Tíminn - 29.10.1988, Qupperneq 4
' ec\^aMg0rdagur29^oJdóbeÞT988
4 Tíminn
Börnin í Gróttu á Seltjarnarnesi óhress með sölumennsku hvalfriðunarsinna:
Gróttuæskan í rækju-
stríði við græningja
Grænfriðungar hafa undanfarið farið um Seitjarnarnes
með nýjustu fjáröflun sína og selja almenningi rækju.
Rækjan er ein af aðalfæðutegundum skíðishvala auk smákr-
abbadýra sem þeir éta. Fjáröflun þessi hefur mælst illa fyrir
á Seltjarnarnesi þar sem íþróttafélagið Grótta hefur óformlegt
einkaleyfi á fjáröflun með rækjusölu á Nesinu. í einum
söluhópnum voru fjórir einstaklingar sem sóttu jafnan rækju
sína út í sendiferðabfl er fylgdi þeim eftir um hverfið. í þeim
tilfellum sem Tíminn frétti af kynntu sölumenn sig ekki fyrir
íbúum að fyrra bragði en sögðust vera græningjar þegar eftir
því var gengið fyrir hverja fjáröflunin væri.
Tíminn náði tali af einum íbúanna
sem varð fyrir því að fá sölumenn
grænfriðunga í heimsókn og var
hann reiður yfir ágangi þessum á
yfirráðasvæði Gróttu. Magnús Ge-
orgsson, yfirmaður íþróttamiðstöðv-
arinnar á Seltjarnarnesi, sagðist ekki
geta neitað því að hafa fengið þessa
menn í heimsókn og var Magnús
ekki ánægður með framferði þeirra.
„Ég sagði sölumanninum að hér á
Nesinu mætti Grótta ein selja rækjur
til fjáröflunar og þó er ég KR-ingur.
Þess vegna vildi ég ekki kaupa af
honum rækjur. Ég spurði síðan
hvaðan hann væri og þá kom upp
þetta grænfriðungsmál. Ég benti á
það að þetta væri hræsni, að mínu
mati t.d. gagnvart Bandaríkjamönn-
um, Rússum og öðrum, þar sem þeir
strádræpu höfrunga og aðrar tegund-
ir hvala. Hvalveiðarnar hér við land
væru þó hluti af okkar lífsviðurværi,
auk þess mætti vel deyða einhverjar
af þeim hvalategundum sem ætu
loðnuna og aðra fiskitegundir við
landið okkar. Ég benti honum á að
við þyrftum að vernda þær fiskiteg-
undir sem við veiddum og þar af
leiðandi þyrfti að veiða hvali af þeim
tegundum sem ekki eru í útrýming-
arhættu," sagði Magnús.
En þessi sölumaður var ekki einn
á ferð eins og fram hefur komið.
Magnús var daginn eftir heimsókn-
ina að hjálpa kunningja sínum við
viðgerðir og býr sá maður hinum
megin á Nesinu, eða norðan megin.
„Þar var ég staddur einn, þar sem
þessi kunningi minn er erlendis, og
þá lenti ég á dömu í sömu erinda-
gjörðum. Þá var mér alveg nóg
boðið. Égerekkert á móti ákveðinni
friðun og þannig málum, en það
verða að vera takmörk fyrir því
hvernig þetta fólk lætur. Þessi rækju-
sala hefur verið lyftistöng Gróttu-
manna og krakkanna í íþróttastarf-
inu hér á Nesinu og við Nesbúar
kaupum af okkar börnum til að
styrkja þau í starfi til ferðalaga og
íþróttaiðkana," sagði Magnús Ge-
orgsson.
Það er Ijóst að rækjan gegnir
mikilvægu hlutverki í lífríki hval-
anna og nærast skíðishvalir að veru-
legu leyti á rækju og smákröbbum
sem og ýmsu öðru smálegu sem
finnst í svifi hafsins, en gráhvalir
eins og þeir sem verið var að bjarga
úr ísvök við Alaska eru af ætt
skíðishvala. Ekki er rækjan síður
mikilvæg í fjáröflun barnanna í
Gróttu. Rækjan er einnig mikilvæg-
HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
TÆKNIDEILD
Útboó
Hreppsnefnd Breiðdalshrepps óskar eftir tilboðum
í byggingu þriggja íbúða raðhúss, á einni hæð,
byggðu úr steinsteypu, verk nr. K.14.01, úr
teikningasafni tæknideildar Húsnæðisstofnunar
ríkisins.
Brúttóflatarmál húss 282 m2.
Brúttórúmmál húss 959 m3.
Húsið verður byggt við götuna Hrauntún nr. 8-12,
Breiðdalsvík og skal skila fullfrágengnu, sbr.
útboðsgögn.
Afhending útboðsgagna er á skrifstofu Breiðdals-
hrepps, Ásveg 32, Breiðdalsvík og hjá tæknideild
Húsnæðisstofnunar ríkisins frá fimmtudeginum, 3.
nóvember 1988, gegn kr. 10.000,00 skilatrygg-
ingu. >
Tilboðum skal skilað á sömu staði eigi síðar en
þriðjudaginn 22. nóvember 1988 kl. 11.00 og
verða þau þá opnuð að viðstöddum bjóðendum.
F.h. hreppsnefndar,
tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins.
ri HÚSNÆÐISSTOFNUN
ZXH RÍKISINS
LJ LAUGAVEGI77101 REYKJAVÍK SÍMI 696900
ur hluti af þeirri lagmetissölu sem
verið hefur að dragast saman í
Þýskalandi á undanförnum vikum.
Á það hefur verið bent að rækjan sé
óheppilegur söluvarningur fyrir
hvalverndunarmenn, þeir séu að
selja matinn frá hvölunum. KB
DAGVI8T BARIVA
Fóstrur, þroska-
þjálfar, áhugasamt
starfsfólk!
Dagvist barna, Reykjavík, óskar eftir starfsfólki
í gefandi störf á góðum vinnustöðum.
Til greina koma hlutastörf bæði fyrir og eftir
hádegi. Upplýsingar veita forstöðumenn eftirtal-
inna dagvistarheimila og skrifstofa Dagvistar
barna, sími 27277.
Steinahlíð
Sunnuborg
Völvukot
AUSTURBÆR
v/Suðurlandsbraut
Sólheimum 19
BREIÐHOLT
Völvufelli 7
s. 33280
s. 36385
s. 77270
HH
i*-
tjr Utboö
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd Rafmagnsveitu
Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í rafbúnað, 132 kw. SF 6 einangrað-
an, fyrir aðveitustöð C á Hnoðrarholti.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri að Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 14. desember kl.
11.00.
INNKAUPASTOFNUN REY.KJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
Hafskipsmáliö:
Rannsóknin
á lokastigi
Ákæru eða ákæra í Hafskips- og
Útvegsbankamálunum er að vænta á
næstunni. Jónatan Þórmundsson,
sérstakur saksóknari, vill ekkert
segja til um hvort niðurstaðan verði
sú að sérstök ákæra verði gefin út í
•Hafskipsmálinu og önnur í Útvegs-
bankamálinu eða hvort lögð verði
fram ein ákæra sem taki sameigin-
lega til beggja málanna. Hann sagði
að vissulega væri einfaldara að reka
þetta sem eitt mál.
Jónatan sagði í samtali við Tím-
ann að menn ættu ekki að ganga út
frá neinu sem gefnu í þessu máli.
Niðurstaðan getur orðið sú að um
verði að ræða jafn harðar, harðari
eða mildari ákærur en áður voru.
„Þetta er sjálfstæð rannsókn, sjálf-
stæðari en ég reiknaði með í upphafi
og þess vegna er það kannski eðlilegt
að niðurstaðan geti orðið eitthvað
öðruvísi. Hvort hún verði mildari
eða harðari í heild er ekki gott að
segja, það kemur í ljós. Svo verður
að hafa í huga að hér er aðeins um
ákærur að ræða,“ sagði Jónatan.
Jónatan sagði að yfirheyrslum
væri nær lokið. Rannsóknin tekur
fyrst og fremst til síðustu áranna, en
einstaka angar ná lengra aftur í
tímann. Aðspurður sagði Jónatan
að hann hefði ætlað að skila af sér
um mánaðamótin ágúst-september.
„En það verður að hafa það í huga
að maður er háður ýmsum aðilum,
eins og rannsóknarlögreglu og þeir
eru með endurskoðendur sem skila
álitsgerðum, sem verður formlega
gert eftir helgi,“ sagði Jónatan. „Það
er mjög stutt í að ég skili málinu af
mér.“ -ABÓ