Tíminn - 29.10.1988, Síða 11
Tíminn 11
Laugardagur 29. október 1988
llllllllllHlllllllllll MINNING llllllllllllllllllillllllllllllilllllllllllllliilllllllllll
Arnaldur Þór
Fæddur 23. febrúar 1918
Látinn 22. október 1988
Arnaldur Þór, garðyrkjubóndi í
Blómvangi í Mosfellssveit, lést á
sjúkrahúsi í Reykjavík s.l. laugar-
dag, sjötugur að aldri. Hann var
elstur fjögurra barna hjónanna
Helgu Kristinsdóttur Þór og Jónasar
Þór verksmiðjustjóra, en yngri
systkinin eru þau séra Þórarinn Þór,
fyrrv. prófastur á Patreksfirði,
Guðrún Þór og Kristinn Þór. Arn-
aldur átti við nokkra vanheilsu að
stríða nokkur undanfarin ár og færð-
ist þetta í aukana svo ekki varð við
ráðið.
Hann lætur eftir sig eiginkonu,
Kristínu Jensdóttur Þór, sem hann
kvæntist þ. 29.7. 1944, og þrjú
uppkomin börn, þau Guðrúnu Þór
hjúkrunarfræðing, Jónas sagnfræð-
ing og Ólöfu Helgu kennara.
Helga, kona Jónasareldra, féll frá
um aldur fram er Amaldur var 10
ára gamall og svo sem að líkum lætur
var það mikið áfall og einkum fyrir
elsta soninn á viðkvæmum aldri.
Snemma hneigðist hugur Arnald-
ar að ræktunarstörfum og því réðst
það svo milli feðganna að hann tók
sig upp og fór til náms í garðyrkju á
Reykjum í Mosfellssveit vorið 1933,
þá 15 ára að aldri. Þarna hófst góður
kunningsskapur milli hans og okkar
bræðra sem stóð æ síðan, enda varð
ævistarf Arnaldar hér í Reykjahverf-
inu til dauðadags. Á þessum árum,
á vordögum íslenskrar garðyrkju
með nútíma sniði, þótti það eftir-
sóknarvert ungum mönnum að kom-
ast að til verklegs náms hér að
Reykjum. Þetta var þá stærsta og
best búna gróðrarstöðin í landinu og
í hraðri uppbyggingu; hafði á að
skipa færum fagmönnum á sviði
blóma- og grænmetisræktar undir
forystu Niels Thybjerg, garðyrkju-
stjóra. Ýmsum þótti í mikið ráðist af
Arnaldi svo ungum manni að fara í
fjarlægan landshluta til vandalauss
fólks og ráða sig til þessa náms sem
þá var sniðið að mestu eftir þágild-
andi iðnnámi og að hluta til að
danskri fyrirmynd og þeim aga sem
þar tíðkaðist. Þetta tókst þó mæta
vel og hann naut sín vel í leik með
jafnöldrum og í ströngu starfi með
íærimeisturum sínum, sem reyndar
voru þá flestir danskir, við störf í
gróðurhúsum og á grænkálsökrum á
hinum heitu lendum jarðarinnar.
Árið 1937 er svo haldið til fram-
haldsnámsins í garðyrkjuskólanum í
Ollerup í Danmörku en síðan eitt ár
í Þýskalandi þar sem hann lauk
náminu. Haustið 1939 var hann
þegar ráðinn að gróðrarstöð KEA á
Akureyri, en þar undi hann ekki og
tók þvf starfi sem honum bauðst að
Reykjum sem verkstjóri yfir gróðr-
arstöðinni þar og þótti það mikill
virðingar- og ábyrgðarstaða á svo
fjölmennum vinnustað.
Árið 1946 kaupa þau hjónin Am-
aldur og Kristín garðyrkjubýlið
Blómvang af Jakobínu og Laurits
Boeskov en þá fluttust þau búferlum
til Danmerkur með fjölskyldu sína.
Þar með var ævistarfið endanlega
ráðið og takmarkinu náð, að reka
eigið fyrirtæki. Gerðist Arnaldur
brátt athafnasamur í félagsmálum,
einkum þeim sem snertu mál garð-
yrkjumanna. Hann var stofnandi og
fyrsti formaður Félags garðyrkju-
bænda í Mosfellssveit með einnig
mjög virkri þátttöku í landssamtök-
um garðyrkjubænda og um skeið
formaður þar einnig. Þá tók hann
einnig mjög virkan þátt í landsmála-
pólitík og gerðist útbreiðslustjóri
dagblaðsins Tímans og erindreki
Framsóknarflokksins í Reykjanes-
kjördæmi á árunum 1963 til 1970. Þá
var hann einnig meðeigandi og
starfsmaður við uppbyggingu Gróð-
urstöðvarinnar við Sigtún um skeið,
en seldi sinn hlut 1968 og sneri sér af
alefli að gróðrarstöðinni heima í
Blómvangi.
Arnaldur vann að stofnun Kaup-
félags Kjalarnesþings og var um
skeið formaður þess, ennfremur var
hann fyrsti formaður Kjördæmisráðs
Framsóknarflokksins á Reykjanesi
og 5 ár í miðstjórn þess flokks. Þá
átti hann sæti í ýmsum sýningar-
nefndum Félags garðyrkjubænda og
var ritari framkvæmdanefndar á sjö-
unda norræna garðyrkjuþinginu og
sýningunni í Helsinki 1949. Þessi
sýning er okkur íslendingum ef til
vill minnisstæðari en ýmsar aðrar
því sennilega var það þar sem ís-
lenskur garðyrkjumaður vann til
gullverðlauna fyrir nýtt afbrigði af
nellikum. Þá ritaði Arnaldur greinar
í blöð og tímarit um hugðarefni sín
og síðustu árin var hann ritstjóri
svonefndra Álafossfrétta sem var
starfsmannablað í Ullarverksmiðj-
unni Álafossi. Þar vann hann ákaf-
lega merkilegt starf við söfnun sögu-
legra gagna um ullariðnað á íslandi.
Uppúr 1970 hófust fyrir alvöru
erfiðleikatímar í garðyrkju hér í
Reykjahverfi en um það leyti hóf
Hitaveitan svonefnda djúpborun í
þeim tilgangi að ná hér meira vatni
og það tókst. Hinsvegar gerðist það,
að við þetta hvarf allur hiti úr
yfirborði jarðar og hlunnindi
snemmræktaðs grænmetis á markað
í Reykjavík brugðust og nú eru
hinar gömlu garðyrkjustöðvar, sem
byggðu m.a. á þessum landsgæðum,
hættar starfsemi. Þá var það 1973 að
Arnaldur tók að sér að verða inn-
kaupastjóri á ull fyrir Klæðaverk-
smiðjuna Álafoss og starfaði þar
meðan heilsan entist eða til ársloka
1986.
Það má sjá af þessari upptalningu
að Arnaldur hafði vítt áhugasvið
ásamt hinum daglegu störfum. Á
yngri árum þreytti hann knattspyrnu
með jafnöldrum sínum, en seinna
voru jjað ferðalög, veiði laxfiska og
fugla, en hann þótti fima slyngur við
allan veiðiskap. Eitt var það, sem
hann hafði orð á stundum, en það
var tækifærið sem hann fékk að
koma til starfa í garðyrkjunni í
byrjun og verða síðan þátttakandi í
ævintýrinu er Mosfellssveitin varð
stórveldi í ræktun blóma og græn-
metis. Til gamans má geta þess, að
athugulir menn komust að því að á
áratugnum fyrir stríð var Mosfells-
sveitin það sveitarfélag þar sem
fæstir voru um hvem bíi; var það
talið landsmet. 1 tengslum við starf
sitt á Álafossi og söfnun gamalla
gagna var hann einn af stofnendum
Sögufélags Kjósarsýslu og var þar í
stjóm um skeið, en félag þetta
starfaði vel um árabil, þótt nokkuð
hafi dregið úr því í bili.
Amaldur var baráttumaður að
eðlisfari og skapmaður mikill; fastur
fyrir ef því var að skipta en að sama
skapi málsvari þeirra er minna máttu
sfn. Hann lét að sér kveða á málþing-
um og var málefnalegur og drengi-
legur andstæðingur. Hann var vand-
ur að vinum og mjög stoltur af
eyfirskum uppmna sínum. Amaldur
var einn af þeim sem settu svip á
umhverfi sitt. Nú er röddin hljóðnuð
og hann kominn á annað tilvemstig.
Við, sem eftir stöndum, heiðrum
minningu hans og sendum fjölskyld-
unni og öðmm ættingjum samúðar-
kveðjur.
Amaldur Þór verður jarðsunginn
frá Fossvogskapellu mánudaginn 31.
október.
Jón M. Guðmundsson
Námskeið í œttfrœði eru að hefjast
hjá Ættfrœðiskólanum.
Námskeiðin eru jafnt sniðin fyrir byrjendur
og þá sem lengra eru komnir.
Aðgangur að einu stærsta heimildasafni
landsins í œttfrœði.
Leiðbeinandi: Þorsteinn Jónsson.
Innritun og upplýsingar virka daga kl. 14-16
í síma 641710 og á kvöldin í 46831.
ÆTTFRÆÐISKÓLINN
D4GVI8T BAHVA
Forstöðumaður
Staða forstöðumanns á skóladagheimilinu Völvu-
koti er laus til umsóknar. Fósturmenntun áskilin.
Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri Dagvistar
barna í síma 27277.
KAUPFELÖGIN OG
ARMULA3 REYKJAVIK SlMI 38900
Moksturstæki
&TRI
■»
• Nýtist með eða án jafnstöðuarma - sama tækið!
• Fljóttengd - tvívirk lyfta - tvívirk skófla og hraðlosun.
• Losunarhæð við skóflutengi 3,4 metrar.
• Lyftigeta frá ca. 100 í yfir 2000 kg.
• Á allar gerðir dráttarvéla.
• Einn lipur stjórnarmur.
• Fljóttenging skóflu og tækja.
$TRIMA
“ BergsjóTrima AB
REYKJAVÍK - H0RNAFJÖRÐUR
Vetraráætlun 1988
Frá Reykjavík:
Sunnud. - þriðjud. - föstud.
kl. 8.30
Frá Höfn:
Sunnud. - þriðjud. - föstud.
kl. 10.00
Ath. Breyting þessi tekur
gildi frá og meö 25. október.
Par óskast
til starfa og stjórnunar á kjúklingabúi.
Æskilegt er að viðkomandi hafi kynnst sveitastörf-
um. Nákvæmni hreinlæti og dugnaður, nauðsyn-
legir eiginleikar.
Frítt húsnæði.
Framtíðarstörf fyrir rétt fólk.
Upplýsingar í símum 98-66053, -66083, -66051.