Tíminn - 29.10.1988, Síða 12

Tíminn - 29.10.1988, Síða 12
12 Tíminn Laugardagur 29. október 1988 Áslaug Brynjólfsdóttir, fræðslustjóri í Reykjavík: Samstarf KHÍ og fræðslu- skrifstofa um skólaþróun í Kennaraháskólanum hefur verið í gangi svokallað starfsleikninám fyrir kennara í almennum grunnskóla í samstarfi við fræðsluskrifstofurnar í Reykjavík og á Reykja- nesi. í vetur mun þetta nám færast út í önnur fræðsluumdæmi og mun Þorsteinn Sigurðsson, fyrrv. skólastjóri hafa umsjón með náminu ásamt Grétari Marinóssyni dósent í sérkennslu- fræðum við KHÍ. Keith Humphreys, sérkennslufræðingur við Politechnic- háskólann í Newcastle up on Tyne í Englandi starfaði í tvö ár hér á landi sem gistilektor við KHÍ og skipulagði starfsleikninámið í samvinnu við annað starfsfólk skólans. Með þessu námi má segja að leitast sé við að sameina kenningar og framkvæmd á sem raunhæfastan hátt. Nýverið var haldið fjölþjóðleg námsstefna við háskólann í Newcastle þar sem fluttir voru margir fyrirlestrar sem tengjast skólaþróunarstarfi þar sem áhersla er lögð á að skoða skólann í heild sinni og það samhengi sem er milli hinna einstöku þátta skólastarfsins, svipað því sem gert er með starfsleiknináminu hér á íslandi. Nokkrir íslendingar fluttu erindi á námsstefn- unni en hana sóttu af íslands hálfu sérkennslufulltrúi ríkisins frá menntamálaráðuneytinu, tveir kennarar við Kennarahá- skólann, sérkennslufulltrúi í Austurlandsumdæmi og fræðslu- stjórar og sérkennslufulltrúar fræðsluskrifstofanna í Reykja- vík og á Reykjanesi. Tíminn leitaði eftir því við fræðslustjór- ann í Reykjavík, Áslaugu Brynjólfsdóttur, að fá að birta erindi hennar þar sem skilgreint er í hverju starfsleikninámið er fólgið. Hér á eftir fara kaflar úr erindi hennar en sökum plássleysis er það talsvert stytt. Inngangur „Hvert barn á sinn rétt og sína möguleika til þroska." Matth. Jónass. 1 samræmi við þessi orð, sem höfð eru eftir einhverjum okkar helsta uppeldisfræðingi, má segja að sé inntak 2. málsgr. 2. gr. íslensku grunnskólalaganna frá 1974, en þar er kveðið á um að skólanum beri að sinna þessu hlutverki, miðað við þarfir og hæfileika hvers og eins. En lög eru ekki sama og fram- kvæmd og við, sem höfum starfað í skólunum og að skólamálum vitum Þátttakendur á námsstefnunni um skólaþróun í Newcastle sem haldin var á dögunum. VETRARHJÓLBARÐAR Nýir fólksbílahjólbarðar. HANKOOK frá Kóreu. Mjög lágt verð. 155R12 kr. 2.370.00 135R13 - 2.370.00 145R13 - 2.480.00 155R13 - 2.580.00 165R13 - 2.670.00 175/70R13 - 2.950.00 185/70R13 - 2.990.00 175R14 - 3.180.00 185R14 - 3.570.00 185/70R14 - 3.480.00 195/70R14 - 3.850.00 165R15 - 2.980.00 Gerið kjarakaup Sendum um allt land. Barðinn h.f., Skútuvogi 2 Sími: 30501 qq 84844. f REYKJKMÍKURBORG- jjjj Acucm/i Stödívi T Þjónustuíbúðir aldraðra Dalbraut 27 Starfsmann vantar á næturvakt til afleysinga í 2 mánuði. Upplýsingar í síma 685377. að mikið hefur skort á að inntak 2. gr. sé í raun og veru. Áður fyrr var viðhöfð röðun í bekki miðað við getu, þar sem skólar voru með fjölmenna árganga. En með grunnskólalögum 1974, sem eru að mörgu leyti manneskjuleg og ágætis lög, var horfíð að blöndun nemenda í námshópa (bekki). Það verður hins vegar að segjast að kennarar voru margir hverjir ekki undir það búnir að geta kennt allri þeirri breidd (hæfileika), sem þá er í hverjum bekk. Aukin stuðnings- og sérkennsla var þá lausnin og nemendur oftast teknir útúr almennu kennslunni. Raunin hefur orðið sú að stuðnings- og sérkennslan hefur stöðugt aukist innan almenna grunnskólans og hinn alm. kennari hefur haft tilhneigingu til að finna fleiri nemendur, sem falla þannig ekki að ramma bekkjar- kennslunnar. Það hlaut því að verða fagnaðar- efni fyrir fræðsluyfírvöld, ef eygja mátti nýjar leiðir, sem kynnu að leiða til úrbóta í þessum efnum. „Starfsleikninám fyrir kennara í al- menna grunnskólanum“. En með því námi er lögð áhersla á leikni kennara til að koma til móts við öll böm, sem í skólanum em, og styrkja þannig og efla skólastarfið innan frá. Það gekk að vísu ekki átakalaust að fá fjármagn til að koma þessu námi á, sem fer fram í skólunum sjálfum á vegum K.H.Í. í samvinnu við fræðsluskrifstofur, nú til að byrja með aðeins í Reykjavík og Reykja- nesi. Skipulag námsins og þátttaka skóla Það var í ársbyrjun 1987, sem starfsleikninámið hófst fyrir stjóm- endur (kennsluleiðbeinendur) f skólunum. 1 Reykjavík hafði námið þá þegar verið kynnt í nokkmm skólum og niðurstaða orðið sú að fimm skólar tækju þátt í náminu. Byrjaði það með því að valinn hafði verið kenn- ari til að taka þátt í stjórnendanám- inu. Væntanlegum stjómendum sem ráðnir vom að fræðsluskrifstofunni var^gprt ljósf í hverju stjómenda- námið væri aðallega fólgið, þ.e. að stjórna starfsleikninámi ca. 15-20 kennara, næstu tvö árin þar á eftir, hver úti í sínum skóla. Þar sem hann væri einskonar fundarstjóri á viku- legum vinnufundum og leiðbeinandi utan vinnufunda. Jafnframt væri hann í starfshópi með öðrum stjóm- endum undir stjóm sérkennslufull- trúa fræðsluskrifstofunnar og hefði ákveðnum faglegum skyldum að gegna gagnvart K.H.Í. Nám stjórnenda skiptist í tvo 10 vikna hluta. Þar lærðu þeir grund- vallarhugmyndir og meginatriði sem námið byggist á og gátu samhliða glímt við áþreifanleg viðfangsefni í sínum skólum og útbjuggu mismun- andi kennslugögn til að nota við að leiðbeina væntanlegum samkennur- um næstu tvö árin. Haustið 1987 byrjaði svo nám um 90 kennara sem kenna 6-12 ára bömum í þessum skólum, en við bættust 2 dagdeildir innan alm. skól- ans og skóli bamageðdeildar, en stjómandi þar hafði einnig verið í starfsleiknináminu. Tvisvar á sl. vetri vom og verða einnig í ár tveir heilir starfsdagar sameiginlegir fyrir alla kennara úr umræddum skólum, en vikulega em tveggja klst. fundir og gert ráð fyrir 4 klst. heimavinnu fyrir kennara. Hvað segja stjómendur skóla og hvert er mat kennaranna sjálfra á náminu? Á sfðastliðnu vori eftir.að fyrra árs náminu lauk fór fræðslustjóri og sérkennslufulltrúi fræðsluskrifstof- unnar ásamt tveim kennumm náms- ins í K.H.Í. í alla skólana og ræddu við skólastjórnendur og leiðbein- endur kennarahópsins í hverjum skóla. Þeir höfðu allir sömu sögu að segja, að þeim fannst þeir merkja viðhorfsbreytingar til nemenda, kennarar fæm að hugsa öðruvísi og hefðu jafnvel viss áhrif á skólann í heild jafnvel á kennara skólans, sem ekki væru í náminu. Flest öllum bar saman um að þetta hefði verið mikið álag á kennara, en þeir hefðu tekið námið mjög bók- staflega og skilað öllum verkefnum. Framan af vetri hefðu kennarar samt ekki almennilega gert sér grein fyrir markmiðum eða öllu heldur aðferðum og upp hefðu komið ýmiss álitamál og jafnvel streita. Smám saman hefðu þeir náð áttum svo sem varðaði ýmsar skilgreiningar, t.d. hefði tekið tíma að átta sig á því að gera mun á fötlun og sérkennsluþörf- um, þar sem skilgreining á fötlun beinist að henni sjálfri, eðli, orsök- um og meðferðarúrræðum, en skil- greining á sérkennsluþörfum snýst um hvað sé hægt að kenna nemend- um þrátt fyrir fötlun með velferð einstaklingsins á líðandi stundu og framtíð í huga, og er m.a. háð hvemig einstaklingurinn metur sjálf- an sig. Einnig hafi þeir gert sér betur grein fyrir nauðsyn á sífelldu endur- mati á sérkennsluþörfum, svo að námsefnið megi falla að hæfi og þörfum nemandans í stað þess að reyna að aðlaga nemandann að námsefni, sem hann í mörgum tilfell- um hefur ekki áhuga á eða getu til að leysa. í raun teldu sumir ef vel ætti að vera þyrfti að setja náms- markmið og áætlanir fyrir hvern nemanda. í viðræðum nú í haust við kennar- ana sjálfa, sem tóku þátt f náminu,

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.