Tíminn - 29.10.1988, Side 15
14 Tíminn
Laugardagur 29. október 1988
Laugardagur 29. október 1988
Tímiim
□ ER ÁSKRIFANDI
□ NÝR ÁSKRIFANDI
Dags.:
VISA
BEIÐNI UM MILLIFÆRSLU
ÁSKRIFTARG JALDS
Kortnr.: □□□□□□□□□□□□□□□□
Gildir út:
ASKRIFANDI:........
HEIMILI:...........
PÓSTNR. - STAÐUR:.
................ SÍMI:.
Undirritaður óskar þess að áskriftargjald
Tímans verði mánaðarlega skuldfært á
VISA-greiðslukort mitt
UNDIRSKRIFT.
SENDIST AFGREIÐSLU BLAÐSINS
LYNGHÁLSI 9, 130 REYKJAVÍK
Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra fagnar þeim Hauki Gunnarssyni og Lilju Maríu
SnorradóttUr, én þau umfu bæði til gullverðlauna á leikunum. Tímamynd Pjetur.
Iþróttaviðburðir
helgarinnar
Körfuknattleikur:
Laugardagur
1. deild karla Borgarnes
kl.14.00. UMFS-Snæfell
1. deild karla Egilsstaðir
kl.14.00. Úf A-Reynir
1. deild kvenna Strandgata
kl.16.00. Haukar-ÍR
1. deild kvenna Keflavík
kl.14.00. ÍBK-ÍS
Sunnudagur
Flugleiðadeild Hagaskóli
kl.14.00. KR-ÍS
Flugleiðadeild Akureyri
kl.20.00. Þór-UMFT
Flugleiðadeild Grindavík
kl.20.00. UMFG-ÍR
Flugleiðadeild Hlíðarenda
kl.20.00. Valur-Haukar
Fiugleiðadeild Keflavík
kUO.OO. ÍBK-UMFN
l.dcild kvenna Njarðvík
kl.16.00. UMFN-UMFG
1. deild karla ilagaskóli
kl.20.00. Léttir-UBK
Handknattleikur:
Laugardagur
Evrópukeppni félagsliða
Digranesi kl.l5.(H).
UBK-Stavanger
Sunnudagur
5. deild karla Seljaskóla
kl.19.00. KRb-UBKb
2. deild kvenna Seljaskóla
kl.20.15. ÍR-Selfoss
Yngri flokka mót
3. flokkur karla:
1. deild Hafnarfirði
2. deild Vestmannaeyjum
3. deild Keflavík
4. deild Hveragerði
3. flokkur kvenna:
1. deild Seltjarnarnesi
2. deild Seljaskóla
3. deild Sandgerði
4. deild Akureyri
5. flokkur karla:
1. dcild RéttarholLsskóla
2. deild Breiðholtsskóla
3. deild Varmá
4. deild Njarðvík
Badminton:
Um helgina verður haldið j;
í húsum TBR. Keppni tdag hefst kl.
og á morgun kl.10.00.
Afreksfólkið sem keppti fyrir íslands hönd á Ólympíuleikum fatlaðra í Seoul, við komuna til Keflavíkur í gærmorgun. íþróttamönnunum var fagnað
með blómum. Timamynd Pjetur.
íþróttir fatlaðra:
Fræknir ólympíu-
farar komnir heim
VERSLUNARSTJÓRAR
INNKAUPASTJÓRAR
- segir Dave Stringer framkvæmda-
stjóri Norwich.
Bonn. f fyrrakvöld var einn
leikur í v-þýsku 1. deildinni í knatt-
spyrnu. Bochun vann Bayer Leverk-
usen 1-0 á útivelli.
New York. Þrír leikir voru í
fyrrakvöld í NHL-íshókkídeildinni í
Ameríku. Philadelphia Flyers vann
New York Islanders 5-2. Boston
Bruins vann Quebec Nordiques 6-2
og St. Louis Blues vann vann Pitts-
burgh Penguins 4-3.
Aðventuljósin eru komin.
Nýjar gerðir.
Eigum einnig 80 Ijósa útiseríur
með straumbreyti.
GERIÐ PANTANIR SEM FYRST
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suðurlandsbraut 16, s. 68 07 80.
Norwich hefur nú 6 stiga forystu í efsta sæti 1. deildar
ensku knattspyrnunnar. Þrátt fyrir að liðið tapi um
helgina, verður það áfram í efsta sætinu.
Þetta er heldur óvenjuleg staða fyrir Norwich, sem
aldrei hefur byrjað betur í sögu félagsins. „Nú er pressan
öll á okkur, öll hin liðin í deildinni bíða eftir því að geta
tekið okkur í gegn. Sem betur fer þá höfum við nokkurra
stiga forskot, ef eitthvað fer úrskeiðis".
Norwich mætir Southampton, sem er í 5. sæti deildarinn-
ar, í dag.
Millwall, sem er í 2. sæti deildarinnar, mætir Middles-
brough á útivelli og liðið verður líklega án varnarmanns-
ins, Steve Wood, sem meiddist síðastliðinn laugardag í
leik gegn Nottingham Forest.
Liverpool þarf að fara til London og mæta West Ham.
Þar ættu meistararnir að minnsta kosti að geta nælt sér í
1 stig, en liðinu hefur gengið illa það sem af er og erfiðara
mun reynast fyrir liðið að verja titilinn en í fyrstu var spáð.
Mest spennandi leikurinn í London verður þó á milli
Arsenal, sem er í 3. sæti og Coventry, sem er í því 4.
Botnlið Tottenham mætir liði Aston Villa. Ef Tottenham
nær ekki í stig í þes'sum leik, þá má búast við því að hitna
fara um Terry Venables í sæti framkvæmdastjóra liðsins.
Nottingham Forest mætir Newcastle á útivelli og Peter
Eustace, hinn nýji framkvæmdastjóri Sheffield Wednes-
day leiðir sína menn til sigurs gegn Charlton. Luton mætir
QPR á heimavélli, en meiðsl hrjá nú Luton liðið. BL
New York. Knattspyrnu-
stjörnur fyrri ára sparka tuðrunni í
dag á leikvangi New York Giants
fótboltaliðsins. Leikurinn er í tilefni
af því að Heimsmeistarakeppnin í
knattspyrnu verður haldið í Banda-
ríkjunum 1994. Það verður lið Am-
eríku sem mætir liði skipuðu leik-
mönnum frá öðrum heimsálfum. í
liði Amertku eru meðal annars:
Roberto Rivelino Brasílíu, Carlos
Alberto Brasilíu, Edu Brasilíu, Elias
Figueroa Chile, Bruce Wilson fyrr-
um fyrirliði kanadíska landsliðins og
Rick Davis fyrirliði bandaríska
landsliðsins. í liði annarra heimsálfa
eru meðal annars: Pat Jennings N-
írlandi, Zbigniew Boniek Póllandi,
Danny McGrain Skotlandi, Bobby
Charlton Englandi, George Best.
N-írlandi, Eusebio Portúgal, Franz
Beckenbauer V-Þýskalandi, Paulo
Rossi Ítalíu, Michel Platini Frakk-
landi, og Hollendingarnir Johnny
Rep, Johan Neeskens og Ruud Krol.
Þjálfari liðsins er Franz Beckenba-
uer og þjálfari Ameríkuliðsins er
Carlos Bilardo frá Argentínu. BL
Nýjung: Tékkaábyrgð
án bankakorts á
tékkum með mynd
af reikningshafa.
$$$ dtáiFr
v: v:V:
K§XÉͧmM
Nú ábyrgist Búnaðarbankinn tékka, útgefna
af eigendum Gullreiknings að upphceð al.lt að
kr. 10.000,- án framvísunar bankakorts.
Til þess þarf tékkinn að bera mynd af
reikningshafa en slíkt stendur eigendum
Gullreiknings til boða.
Það fer ekki milli mála hver þú ert.
^BUNAÐARBANKINN
TRAUSTUR BANKI
í gærmorgun komu þátttakend-
urnir á Ólympíuleikum fatlaðra
heim úr frækilegri för til Seoul.
íslensku keppendurnir unnu samtals
cllefu verðlaun, tvö gull, tvö silfur
og sjö brons.
Fjöldi fólks var mættur í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar til að fagna heim-
komu keppendanna, þar á meðal
Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmála-
ráðherra. Jóhanna flutti keppendum
og fararstjórum árnaðaróskir og
kveðjur frá ríkisstjórn íslands, en
ríkisstjórnin samþykkti að veita tíu
milljónum króna til íþrótta- og
endurhæfingarmála fatiaðra vegna
þess góða árangurs sem náðist á
leikunum. í ávarpi sagði félagsmála-
ráðherra að íþróttamennirnir hefðu
verið þjóð sinni til sóma og að vonir
stæðu til að fjárveiting þessi flýtti
fyrir því að draumurinn um íþrótta-
Handknattleikur:
hús fatlaðra rættist. Góður árangur
íslensku keppendanna virðist því
hafa vakið áhuga yfirvalda og fjöl-
miðla á málefnum fatlaðra íþrótta-
manna.
í tilefni af heimkomu keppend-
anna efndi Rás tvö til fjársöfnunar
undir kjörorðinu: „Sýnum stuðning,
hefjumst handa.“ ssh
Breiðablik mætir
liði Stavanger
- sem er nú í 2. sæti norsku 1. deildarinnar
Laugardaginn 29. október verður
fyrsti stórleikur vetrarins í hand-
knattleik er 2. deildar lið Breiðabliks
hcfur þátttöku í Evrópukeppni bik-
arhafa. Þetta er í annað sinn sem
félagið leikur í Evrópukeppni, en
það lék í fyrra gegn danska liðinu
Hellerup í IHF-keppninni. Mótherj-
ar liðsins að þessu sinni eru norsku
bikarmeistararnir Stavanger IF frá
Stafangri og verður leikur liðanna
háður í íþróttahúsinu Digranesi í
Kópavogi og hefst kl. 15.00.
Ljóst ér að róður Blikanna verður
síst léttari enda norska liðið talið
vera með eitt sterkasta handboltalið
Norðmanna um árabil. Nægir að
benda á að það hefur 2 danska
landsliðsmenn, stórskyttuna Flemm-
ing Jensen og þjálfarann og fyrrum
danskan landsliðsmann Bjarne
Jeppesen sem lék hér á landi í fyrra
með dönsku meisturunum Kolding
gegn Víkingum. Auk þessa hefur
liðið innanborðs 4 norska landsliðs-
menn.
Benda má á þá staðreynd að norsk
lið hafa mjög oft náð hagstæðari
úrslitum gegn íslenskum félagsliðum
en styrkur landsliðanna hefur gefið
til kynna. Breiðabliksmenn eru þó
hvergi bangnir og munu ganga til
beggja leikjanna með sigur að mark-
miði. Þrátt fyrir að liðið hafi orðið
að þola það að missa 2 lykilmenn frá
fyrra ári, bræðurna Björn og Aðai-
stein Jónssyni, hafa nýir leikmenn
fyllt skörð þeirra. Þetta eru þeir
Sveinn Bragason, sem áður lék með
FH og er leikstjórnandi, Haukur
Magnússon sem kemur úr Fylki og
loks einn af markahæstu leikmönn-
um 2. deildar s.l. ár Pétur Ingi
Arason, sem kemur frá Njarðvík.
Þessir leikmenn hafa lofað góðu nú
í haust og munu eflaust velgja Nors-
urum undir uggum nk. laugardag,
sem og aðrir leikmenn liðsins.
Rétt er að hvetja alla handknatt-
leiksunnendur til að koma á fyrsta
stórleik vetrarins og veita Blikunum
þann stuðning sem nauðsynlegur er
í leikjum sem þessum og hjálpa
þeim að tryggja sér sem veglegast
veganesti fyrir síðari leikinn sem
verður ytra föstudaginn 4. nóvem-
ber.
Enska knattspyrnan:
„Nú er pressan
öll á okkur“