Tíminn - 29.10.1988, Qupperneq 18

Tíminn - 29.10.1988, Qupperneq 18
18 Tíminn Laugardagur 29. október 1988 -*r Standast allir fullkomlega kröfur nýju reglu- gerðarinnar (Nr. 407-1988) um búðarkassa. Örugg og góð þjónusta. SENDUM í PÓSTKRÖFU Komdu við hjá okkur eða hringdu og fáðu frekari upplýsingar. Einar J. Skúlason hf. Grensásvegi 10, sími 68-69-33 IRI REYKJKMÍKURBORG ÍSl Baðvörður óskast viö piltaböð í íþróttahúsi Álftamýrarskóla frá 1. desember n.k. Nánari upplýsingar í síma 686588 milli kl. 8.00- 11.00 fyrir hádegi. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma Unnur Ingibjörg Sigfúsdóttir frá Hólmlátri, Miklubraut 76, Reyk]avfk sem andaðist20. októbers.l. verðurjarðsung- in frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 1. nóvember kl. 13.30. Arndfs Styrkársdóttir Klara Styrkársdóttir Sigfús Styrkársson Guðríður Þorvaldsdóttir Guðjón Styrkársson Ágústa Einarsdóttir Hjálmar Styrkársson Vilborg Reimarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi Arnaldur Þór Blómvangl, Mosfellsbæ er lést 21. október verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 31. október kl. 15.00. Kristfn Þór Guðrún Þór Harry Sönderskov Jónas Þór Anna Bára Árnadóttir Ólöf Helga Þór barnabörn Fulltrúar á aðalfundi Landssambands smábátaeigenda. Aðalfundur Landssambands smábátaeigenda: 222 smábátar á 9 mánuðum Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra og Gylfi Gautur Pétursson, deildarstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu. Smábátum hefur fjölgað um 13% frá síðustu áramótum. Á sama tíma hefur aukning í brúttólestum verið 19% og er heildarstærð smábátaflot- ans nú 8.711 brúttólestir. Þetta kom fram í ræðu Halldórs Ásgrímssonar sjávarútvegsráðherra . á aðalfundi Landssambands smábátaeigenda sem haldinn var í gær. Formaður landssambandsins, ArthurBogason, sagði að margir aðilar hefðu ráðist í útgerð smábáta af mikilli bjartsýni og sumir vafalaust af meira kappi en forsjá. Fjölgun smábáta hefur verið mikil á síðustu árum. Smábátar undir 10 brl. voru 1.500 1. janúar 1987,1.716 1. janúar 1988 og 1.938 1. október 1988. Með hiiðsjón af þessu hefur smábátum fjölgað um 13% frá síð- ustu áramótum og aukning í brúttó- lestum er 19% á sama tíma og er heildarstærð smábáta nú 8.711 brl. í ávarpi sjávarútvegsráðherra kom fram að afli smábáta hefði meira en tvöfaldast á sl. fjórum árum. Þannig veiddu smábátar tæp- lega 21 þúsund tonn á árinu 1984 og var þorskafli þar af 16 þúsund tonn. Á árinu 1987 varð þorskafli smábáta 36 þúsund tonn en heildaraflinn um 43 þúsund tonn. Fyrir fyrstu níu mánuði þessa árs benda bráða- birgðatölur til að afli smábáta verði heldur meiri en sömu mánuði í fyrra, þrátt fyrir samdrátt í heildar- afla. Látið hefur verið að því liggja að vonlaus rekstrargrundvöllur hafi leitt menn til að sökkva eigin bátum. Það sem af er árinu hafa sex smábát- ar sokkið og hefur mannbjörg orðið í öll skiptin. Halldór Ásgrímsson sagði að í þessi sex skipti hefði aðeins einn maður verið um borð í hverjum bát. Haft er fyrir satt að þar sem tveir hafi verið um borð hafi þeir getað komið í veg fyrir að bátar þeirra hafi sokkið vegna leka. Arthur Bogason formaður LS sendi formanni Rannsóknanefndar sjó- slysa tóninn og minnti á að í lýð- ræðisríkjum væri það grundvallar- réttindi hvers manns að hann er saklaus þar til sekt hans hefur verið sönnuð. „Eitthvað er þetta samt ekki á hreinu hjá mörgum þeim mönnum sem frekar skyldu hlífa en höggva. Þannig gengur sjálfur for- maður Rannsóknanefndar sjóslysa svo langt að taka að sér dómarahlut- verkið í málunum, án þess að hann hafi hið minnsta fyrir sér í málinu," sagði Arthur. Öryggismálin komu mikið til um- ræðu á aðalfundinum, þá aðallega vegna þeirrar staðreyndar að lög- boðinn sleppibúnaður björgunar- báta hefur ekki staðist þær kröfur sem til hans eru gerðar. „Þetta er hrikaleg niðurstaða. Þetta er ekki aðeins áfall fyrir íslenska sjómenn sem hafa bundið við þennan búnað miklar vonir sem nú reynast falskar heldur er það einnig ljóst að ár eftir ár er verið að rukka menn um skoðunargjald af búnaði sem við- komandi stofnun hefur verið lengi ljóst að stæðist engan veginn kröfur," sagði Arthur. - ABÓ H H Arthur Bogason, formaður landssambandsins, í ræðustól og við háborðið situr öm Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda. Tím«myndlr:Gurmar

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.