Tíminn - 08.02.1989, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Miðvikudagur 8. febrúar 1989
Sala ÁTVR 100.000 krónur á hverja fjölskyldu á íslandi 1988:
Svolítið minna
sopið og svælt
Sú sparnaðarviðleitni sem greip landsmenn á síðasta ári
kom m.a. fram í sölutölum Áfengis- og tóbaksverslunar
ríkisins. Áfengissala varð nokkru minni heldur en næstu
tvö ár á undan, miðað við magn hreins alkóhóls á hvem
landsmann 15 ára og eldri. Og sala á sígarettum og vindlum
varð nú minni heldur en nokkru sinni frá 1980, miðað við
sömu forsendur. AIls seldi ÁTVR áfengi og tóbak fyrir
7.247 milljónir á árinu, sem lætur nærri að svara til 100.000
kr. á hverja fjölskyldu í landinu.
áður. Á yfirstandandi áratug komst
salan hæst árið 1984, í 127 pakka á
mann.
Þótt margir hafi fagnað góðum
árangri bæði hvað varðar fækkun
ungmenna sem byrja að reykja og
hins vegar fjölda þeirra sem hætta
að reykja var sígarettusala ÁTVR
í fyrra þó ennþá aðeins meiri
heldur en í byrjun þessa áratugar.
Um 4,48 lítrar á mann
Áfengissalan jafngilti 4,48 lítr-
um af hreinu alkóhóli að meðaltali
á þá 187 þús. íslendinga sem náð
höfðu 15 ára aldri. Það var um 3%
minna en árið áður, en þá náði
áfengissala á mann hæst á þessum
áratug, 4,62 lítrar. Minnst varð
hún hins vegar 4,25 lítrar, árið
1982. Munur mestu og minnstu
sölu er því rúmlega 8%.
Léttvínsbylgjan liðin hjá
Val á milli einstakra veiga rokk-
ar aftur á móti miklu meira. Sala á
léttum vínum óx um þriðjung frá
1980-84 en hefur síðan minnkað í
kringum 5-10% á ári. í fyrra var
léttvínssala 8,16 lítrar á mann, eða
sú sama og í upphafi áratugarins.
Fyrst og fremst er það hvítvínið
sem áhugi fólks hefur minnkað á,
t.d. minnkaði sala þess um 15% á
síðasta ári.
Brennivínið í stórsókn
Sala á sterkum vínum hefur
þróast þveröfugt, aukist verulega
ár frá ári síðan 1983 og er nú komin
upp fyrir léttvínssöluna í lítrum
talið, 9,11 lítrar á mann í fyrra.
Athygli vekur að sala á brennivíni
jókst um nær fjórðung og varð þar
með aftur álíka og 1986. Sala á
koníaki óx einnig drjúgt. Sala á
gini hélt og áfram að stóraukast og
hefur nú nær tvöfalast á tveim
árum, að því er virðist á kostnað
vodka og viskís. En sala þeirra
tveggja tegunda dróst saman á
síðasta ári.
Um 116pakkar af
sígarettum á mann
Sala á sígarettum varð að meðal-
tali 115,5 pakkar á hvern lands-
mann 15 ára og eldri á síðasta ári,
sem er 5 pökkum minna en árið
Hafa verður í huga að í framan-
greindar tölur vantar allar sígarett-
ur sem um 150.000 ferðamenn og
áhafnir flugvéla sem fluttu þá hafa
keypt (og reykt) í fríhöfnum og
erlendis, sem ætla má að sé a.m.k.
tvöfalt meira en 70.000 ferðamenn
keyptu árið 1980. Þetta á raunar
einnig við um áfengissöluna.
Enn meira hefur þó dregið úr
sölu á vindlum. Vindlaskammtur-
inn var 74 stykki á mann (15 ára og
eldri) á síðasta ári. Það var minnk-
un úr 79 stykkum (6,33%), frá
árinu áður og úr 87 stykkjum árið
1980 (15%).
Alls seldi ÁTVR áfengi fyrir um
4.250 milljónir króna og tóbak
íyrir tæplega 3.000 milljónir, eða
samtals 7.246 milljónir sem fyrr
segir. Þar af fékk ríkissjóður 4.275
milljónir kr. í hagnað, eða um 59%
af heildarsölunni.
Lítrar á mann
15 ára og eldri
198G 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988
KMM Létt vín 1ÉÉÍ Sterk vln i..........I Alkóhóllltrar
Hvernig léttvínsbylgjan reis og hnignaði á ný sést glöggt á þessu línuriti.
Þátt fyrir afvötnun mörg þúsund manna á þessum áratug hefur
heildardrykkja (lítrar hreins alkóhöls á mann) heldur sigið upp á við
fremur en hitt.
Tóbaksneysla á mann
15 ára og eldri
mllle (þúsund stk.)
3--------------------------------
1980 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988
Vlndllngar
Hver ár'ingur hefur náðst í baráttunni á móti sígarettureykingum á
undanförnum árum kemur (að hluta) fram á þessu línuriti. Ljóst er að
„betur má ef duga skal“ til að ná markmiði um reyklaust ár 2000.
Fyrir þessa fjármuni fengu lands-
menn um 3,2 milljónir lítra af
áfengi (um 87.300 flöskur á viku)
og um 21,6 milljón pakka af sígar-
ettum (um 59.000 pakka á dag).
Deilt niður á landsmenn svarar
salan til um 100.000 kr. útgjalda á
hverja vísitölufjölskyldu í landinu,
þar af 58.500 kr. fyrir áfengi og
41.500 kr. fyrir tóbak. -HEI
Viktor Rajevskí, aðstoðarforsætisráðherra, og Valter Khalliamjagi, ráðherra þjónustugreina á blaðamannafundinum
Sl. fimmtudag. (Tíniamynd Pé(ur)
Aðstoðarforsætisráðherra Eistlands og ráðherra þjónustugreina í heimsókn:
Kanna moguleika á
auknum viðskiptum
Að undanförnu hafa verið staddir
hér á landi þeir Viktor Rajevskí,
aðstoðarforsætisráðherra Eistneska
Sovétlýðveldisins og Valter- Khall-
iamjagi, ráðherra þjónustugreina.
Með þeim í för hefur verið Osvald
Kaldre, sem er aðalforstjóri eist-
neska út- og innflutningsfyrirtækis-
ins Estimpex.
Tilgangur heimsóknarinnar er sá
að kanna möguleika á að koma á
auknum viðskiptum milli Eistlands
og íslands og á blaðmannafundi sl.
fimmtudag sögðu ráðherrarnir að
með auknu sjálfstæði einstakra lýð-
velda Sovétríkjanna hefðu utanrík-
isviðskipti nú færst í miklu ríkari
mæli til lýðveldanna sjálfra en fyrr
hefði verið. Hér væri um að ræða
áhrif „Perestrojku", sem miðaði að
því að draga úr hvers kyns miðstýr-
ingu og dreifa ábyrgð.
Sagði forsætisráðherrann að Eist-
lendingar hefðu verið einna fram-
takssamastir við að nota sér þetta
aukna frelsi og þegar kannað mögu-
leika í nýjum viðskiptum í Kanada
og á Irlandi og nú væri röðin komin
að íslandi. Eistland stæði mjög fram-
arlega meðal Sovétþjóðanna, eink-
um á sviði raforkuframleiðslu og í
þjónustugreinum. Þar með væri tal-
inn ullariðnaður og væri mikill áhugi
á að að kanna hvort grundvöllur gæti
orðið fyrir samstarfi í vöruþróun og
tæknibúnaði á því sviði.
Ráðherrarnir hafa átt viðræður
við iðnaðarráðherra og ýmsa for-
göngunienn íslensks iðnaðar meðan
á dvöl þeirra hér hefur staðið.
Nýstofnað vá-
tryggingafélag
Brunabótafélag íslands og Sam-
vinnutryggingar g.t. hafa stofnað
Vátryggingafélag íslands.
Nýja félagið mun í framtíðinni
annast meginhluta þeirrar vátrygg-
ingastarfsemi sem nú er í höndum
stofnfélaganna.
Efnt var til hugmyndasamkeppni
um nafn á hið nýja félag og fyrir
valinu varð Vátryggingafélag
íslands. Sjötíu manns áttu tillögu að
þessu nafni og verður dregið á milli
þeirra um verðlaunaféð sem nemur
200 þúsund krónum.
Stofnfundur var haldinn á mánu-
dag og var þar kjörinn Ingi R.
Helgason formaður, Guðjón B.
Ólafsson varaformaður og Hallgrím-
ur Sigurðsson ritari. Forstjóri félags-
ins var kjörinn Axel Gíslason. Þar
til starfsleyfi fæst munu stofnfélögin
tvö annast starfsemi og þjónustu við
viðskiptavini Vátryggingafélags
íslands. jkb
Athugasemd við fullyrðingar Landvara:
Gjald fyrir
faxkröfurnar
var vel kynnt
Faxkröfur er viðbótarþjónusta
Pósts og síma sem ekki er ætlað að
koma í stað gildandi póstkröfu-
þjónustu.
Forráðamenn Landvara lýstu
því yfir á blaðamannafundi að þeir
hefðu orðið mikillar óánægju varir
meðal landsbyggðarfólks með
verðlagningu á faxkröfusendingar.
Því telur Póstur og sírni ástæðu til
að benda á að forráðamönnum
Landvara hafi verið vandlega
kynntur kostnaður við þessa teg-
und sendinga og þeir fallist á þá
verðlagningu.
Unnið er að endurskoðun gjalds
fyrir póstfaxþjónustu eins og gert
hafði verið ráð fyrir er nokkur
reynsla væri komin á hana.
jkb