Tíminn - 16.02.1989, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 16. febrúar 1989
Tíminn 7
Þegar snjóa leysir verður tekið til við að setja upp svokallað vegrið. iimamvmi Gunnar.
Umferð til gagnstæðra átta um Ártúnsbrekku aðskilin samkv. tillögu framsóknarmanna:
Fokkervél Flugleiöa
fór út af flugbrautinni á
Akureyrarflugvelli í gær:
Farþegar
ómeiddir
Akureyrarflugvöllur lokaðist í gær
vegna Fokkervélar Flugleiða, er ók
út af flugbrautinni vestan flugstöðv-
arbyggingarinnar. Farþega sakaði
ekki en líkur voru taldar á því í gær
að skemmdir hefðu orðið á nefhjóli
vélarinnar.
Um miðjan dag í gær fór Fokker-
vél frá Flugleiðum út af braut á
Akureyrarflugvelli. Vélin var að
koma inn til lendingar við þokkaleg-
ar aðstæður. Skafrenningur var en
þokkalega bjart veður. í flugturni á
Akureyri fengust þær upplýsingar
að bremsuskilyrði hefðu verið
þokkaleg.
Vélin var lent og verulega hafði
dregiö úr hraða hennar, þegar nef-
hjól tók skyr.flilega að rása, með
þeim afleiðingum að vélin hafnaði
utan flugbrautar með nefhjólið í
skafli.
Loftferðaeftirlit fór i gær norður,
eftir því seni Tfminn kemst næst, og
vildu starfsmenn flugvallarins ekki
fjarlægja vélina fyrr en starfsmenn
Loftferðaeftirlits voru komnir á
staðinn. Þá þurfti einnig sérstök tæki
til að ná vélinni úr snjónum svo ekki
hlytust frekari skemmdir af á nef-
hjólinu.
Ráðgert var að senda flugvirkja
og varahluti norður hið fyrsta. Óvíst
var í gær hvort hægt yrði að koma
því við fyrr en í dag. -ES
„Við byrjum að setja vegrið í Ártúnsbrekkuna miðja strax
og snjórinn fer og veður Ieyfir,“ sagði Ingi Ú. Magnússon
gatnamálastjóri við Tímann.
Mörg alvarleg slys hafa orðið í
Ártúnsbrekkunni vegna þess að bíl-
ar hafa farið inn á öfugan vegarhelm-
ing og skollið á bílum sem á móti
komu. Til að sporna við þessu flutti
Alfreð Þorsteinsson tillögu í borgar-
stjórn í október á síðasta ári unj að
umferð til gagnstæðra átta yrði að-
skilin með vegriði.
Tillaga Alfreðs hlaut góðar undir-
tektir og var borgarverkfræðingi
falið að gera tillögur að framkvæmd-
um. Síðan var hljótt um málið um
tíma og þegar meirihluti borgar-
stjórnar lagði fram fjárhagsáætlun
sína til fyrri umræðu var ekki á
vegrið í Ártúnsbrekku minnst.
Það var hins vegar gert við síðari
umræðuna því þá var komin inn í
áætlunina tillaga frá Davíð Oddssyni
um að 14 milljónum skyldi varið til
að gera slysasvæðið Ártúnsbrekku
öruggari með því að koma upp
vegriði í henni til að aðskilja umferð
til gagnstæðra átta.
Ingi Ú. Magnússon sagði að lítil-
lega þyrfti að breikka vegaxlirnar til
að endurheimta það pláss sem veg-
riðið tekur. Jafnframt því þarf að
færa Ijósastaura á vegbrúnum utar.
Alfreð Þorsteinsson sagði í sam-
tali við Tímann að það væri gleðilegt
að tekið hefði verið tillit til tillögu
framsóknarmanna um þetta mikil-
væga öryggismál.
Flér væri um að ræða mikið hags-
munamál fyrir Reykvíkinga, einkum
íbúa Árbæjar- og Grafarvogshverfa
sem daglega þyrftu að aka um Ár-
túnsbrekkuna. Á Vesturlandsvegin-
um á þessu svæði væri mestur am-
ferðarþungi í Reykjavík og þarna
hefðu orðið fjölmörg óhöpp og slys
í vetur, þannig að ekki hefði verið
eftir neinu að bíða.
„Það er ánægjulegt að borgarstjóri
hefur orðið við tillögum og ábend-
ingum Framsóknarflokksins í þessu
máli,“ sagði Alfreð Þorsteinsson.
-sá
Árni Gunnarsson alþingismaður vísar því á bug aö hann
sé milligöngumaður grænfriöunga á (slandi:
„ALGERT
KJAFTÆÐI“
„Ég vísa þessu algerlega á bug,
þetta er kjaftæði. Það fer hins vegar
ekki á milli mála að þetta fólk hefur
hringt í mig, en ég hef ekki haft
milligöngu um eitt eða neitt“, sagði
Árni Gunnarsson alþingismaður er
Tíminn spurði hann um réttmæti
þeirra sögusagna að hann væri í
stöðugu símasambandi við talsmenn
Greenpeace-samtakanna.
Sú frétt barst blaðamanni Tímans
til eyrna að þingmaðurinn Árni
Gunnarsson héldi uppi sambandi
við samtökin og færi ekki dult með.
Árni tók fram að þó svo að hann
væri milligöngumaður samtakanna
hér á landi væri honum heiður af
því, það fólk sem starfaði innan
Greenpeace hefði meiri tilfinningu
fyrir því sem skipti máli í umgengni
fólks við náttúruna cn þeir
menn er færu með völd í þessu landi.
„Hvalamálið verður æ alvarlegra
með hverjum deginum sem líður.
Menn verða að fara að átta sig á því
að hvalveiðar í vísindaskyni er alls
ekki stefna Alþingis. Ég er búinn að
lesa allar umræður um hvalamálið
og kynna mér framgang þess máls.
Alþingi hefur aldrei mótað formlega
stefnu um vísindahvalveiðar á þann
hátt sem þær eru framkvæmdar
núna, hún hefur verið rædd í utan-
ríkismálanefnd, en það nær ekki
lengra“, sagði Árni.
Tillaga þingmannsins um algert
bann við hvalveiðum næstu þrjú
árin, er til umfjöllunar hjá atvinnu-
málanefnd sameinaðs þings og er
væntanleg þaðan í þessari viku eða
býrjun þeirrar næstu. -ág
Viðtalsfundir menntamálaráðherra
í grunnskólum Reykjavíkur
16. febrúar til 4. apríl 1989.
Svavar Gestsson menntamálaráðherra mun halda viðtalsfundi með
skólastjórum, foreldrum og kennurum í grunnskólum Reykjavíkur.
Markmiðið meö fundunum er aö gefa fólki tækifæri til aö reifa hugmyndir sínar
og skoöanir í uppeldis- og menntamálum. Menntamálaráöherra og starfsfólk ráðu-
neytisins mun skýrafrá því helstasem ádöfinni er í þessum málaflokkum þar.
Viðtalsfundir í framhaldsskólum borgarinnar veröa haldnir síöar.
Fyrsti fundurinn verður haldinn í Hagaskóla fimmtudaginn 16. febrúar kl. 20.30 fyrir skólastjóra,
foreldra og kennara í: Austurbæjarskóla
Grandaskóla
Hagaskóla
Melaskóla
Landakotsskóla
Tjarnarskóla
Vesturbæjarskóla
Næsti fundur verður haldinn í Laugarnesskóla þriðjudaginn 21. febrúar kl. 20.30 fyrir skólastjóra,
kennara og foreldra í: ísaksskóla
Langholtsskóla
Laugalækjarskóla
Laugarnesskóla
Vogaskóla
Æfingaskóla K.H.Í.
Þriðji fundur verður haldinn í íþróttah. Seljaskóla þriðjudaginn 7. mars kl. 20.30 fyrir skólastjóra,
foreldra og kennara í: Breiðholtsskóla
Fellaskóla
Hólabrekkuskóla
Seljaskóla
Ölduselsskóla
Fjórði fundur verður haldinn í Hvassaleitisskóla fimmtudaginn 16. mars kl. 20.30 fyrir skólastjóra,
foreldra og kennara í: Álftamýrarskóla
Bústaðaskóla
Breiðagerðisskóla
Fossvogsskóla
Hlíðaskóla
H>yassaleitisskóla
Réttarholtsskóla
Fimmti fundur verður haldinn í Árbæjarskóla þriðjudaginn 4. aprfl kl. 20.30 fyrir skólastjóra,
foreldra og kennara í: Árbæjarskóla
Ártúnsskóla
Foldaskóla
Selásskóla
Menntamálaráðuneytið.