Tíminn - 16.02.1989, Side 8
8 Tíminn
Fimmtudagur 16. febrúar 1989
Timinn
MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og
Framsóknarfélögin í Reykjavík
Framkvaemdastjóri
Ritstjórar:
Aðstoðarritstjóri:
Fréttastjórar:
Auglýsingastjóri:
Kristinn Finnbogason
Indriði G. Þorsteinsson ábm.
IngvarGíslason
OddurÓlafsson
Birgir Guðmundsson
EggertSkúlason
StelngrímurGíslason
Skrifstofur: Lyngháls 9, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími:
680001. Kvöldsimar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn, fréttastjórar
686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot:
Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f.
Póstfax: 68-76-91
Subbulegt smáfiskadráp
Að éta útsæðið hefur aldrei þótt bera vott um
búhyggindi. Samagildir um veiðar á undirmálsfiski.
Vera má að það sé einhverjum skjóttekinn gróði
að moka upp ýsukóði þegar gott verð fæst fyrir
slíkan afla í útlöndum, en gæfulegt sýnist það ekki.
Ljóst er orðið að mikið hefur verið veitt af
smáýsu hér við land og hún seld fyrir gott verð í
Bretlandi, enda eftirspurnin mikil. Tíminn hefur
sýnt fram á að undirmálsýsa er einnig á boðstólum
í verslunum hér á landi og sýnir það hve menn eru
blindir fyrir því glapræði sem smáfiskadráp er.
f*að er ávallt erfitt fyrir stjórnvöld að fylgjast náið
með hvort fiskur sem dreginn er úr sjó nær löglegri
stærð eða ekki. Það er líka álitamál hvort æskilegt
er að einhvers konar lögregluyfirvöld séu að fylgjast
með veiðum, veiðarfærum og því hvers konar fiski
er skipað á Iand eða seldur erlendis úr íslenskum
skipum.
Sjómenn og þeir sem versla með fisk eiga að sjá
sóma sinn í að nota einvörðungu lögleg veiðarfæri
og að gera sér smáfiskadráp ekki að féþúfu. Þessir
aðilar eiga mest undir því komið fiskur fái að vaxa
eðlilega og sé fyrst veiddur þegar hann hefur náð
góðri stærð og mun meira verð fæst fyrir hvern
einstakling en þegar verið er að selja kóð.
En í raun eiga allir landsmenn hagsmuna að gæta
þegar um fiskvernd er að ræða því miðin eru
sameign þjóðarinnar og þeir sem gera sér leik að
því að nota ólögleg veiðarfæri og drepa undirmáls-
fisk í stórum stíl eru að hlunnfara alla þá sem
auðlindir sjávarins heyra til.
Útgerðum er ekki færður fiskveiðikvóti á silfur-
fati til þess að misnota aðstöðu sína og veiða og selja
undirmálsfisk vegna skammtímahagsmuna. Það
hlýtur að vera hægt að gera þá kröfu til þeirra sem
fá nánast einokun á að veiða fisk, að þeir fari að
lögum hvað snertir veiðarfæri og að þeir varist
smáfiskadráp í stórum stíl.
Sú skoðun er uppi að fiskiskipastóllinn sé allt að
þriðjungi of stór og væri auðveldlega hægt að ná
sama aflamagni úr sjó þótt skipum fækkaði sem því
nemur. Miðað við kvartanir útgerðarmanna um
nauman kvóta fyrir hvert skip á þessi skoðun
augljóslega við rök að styðjast.
En ef sjómenn halda að það sé í lagi að drepa
tveggja ára undirmálsfisk í stórum stíl og koma
þannig í veg fyrir að aflamagnið aukist í framtíðinni,
kemur brátt að því að flotinn verður miklu meira
en þriðjungi of stór og þá er hætt við að útgerð verði
síður en svo ábatavænlegur atvinnuvegur.
Skipstjórnarmenn verða að gera það upp við
sj álfa sig hvort þeir ætla að eyða heilum fiskistofnum
af íslandsmiðum vegna græðgi og skammsýni eða
hvort þeir hlíta ráðum vísindamanna og leyfa
fiskinum að vaxa og aukast að verðmæti áður en
hann er dreginn úr sjó.
Það eru þeir sem veiða fiskinn og selja hann sem
eru hinir eðlilegu eftirlitsmenn með hvort auðlindin
nær að endurnýjast eðililega.
En þegar þeir leggjast í rányrkju pissa þeir í eigin
skó af óttalegum subbuskap.
lllllllllllllllllllllll GARRI
SJÁLFTAKA
Garri staldraði dálítið við frétt
Tínians á laugardaginn var um
vangaveltur um breytingar á
greiðslum til lækna. Þarsagði með-
al annars að núna væru uppi hug-
myndir hjá ýmsum sjúkrasamlög-
um um að hætta að grciða læknum
beint eftir framlögðum reikningum
þeirra. Þess í stað væru menn nú
að velta því fyrir sér að láta þá, sem
sæktu til læknanna, greiða þeim
beint að fullu, en fá síöan endur-
greitt hjá sjúkrasamlagi sínu.
Hér verður vitaskuld um tölu-
vert gagngera breytingu að ræða ef
af veröur. Læknar eru eins og allir
vita upp til hópa hinir trúverðug-
ustu menn og enginn telur sig hafa
efni á öðru en að treysta þeim.
F.nda cr eins og allir vita ekki lcitaö
til þeirra nema brýn þörf kreiji.
En læknar eru menn eins og
aðrir. Og það er engum hollt að
hafa fulla sjálftöku um laun sín.
Með öðrum orðum að geta ráðið
því sjálfur hvað hann skammtar sér
í laun.
Sextíu skoðanir
í fréttinni er rakið dæmi um
iækni sem gerði reikning fyrir að
hafa á einum og sama deginum
skoðað tæplega sextíu sjúklingu, á
stofu sinni og f húsvitjunum í
strjálbýli. Það er út af fyrir sig
hugsanlegt að einn og sami læknir
hafi getað afrekað þetta, en trúlegt
er það ekki. Að því þá ógleymdu
að slík „ufköst" gefa nú eiginlega
ekki í skyn að viðkomandi læknir
hafi gefið sér nægilegun tíma til aö
skoða alla þessa sjúklinga gaum-
gæfilega.
Sannieikurinn er auðvituð sá að
læknir, sem leyfir sér að skoða 60
kranka landsmenn sína á dag, sjúk-
dómsgreina þá og gefa þeim viðeig-
andi lyf og ráðleggingar, hann
hlýtur að vera kominn út í að vinna
hreina og klára hundarbukavinnu.
Slíkum lækni er í rauninni alls ekki
treystandi.
Þetta skilur hver maður, og
vonandi viðkomandi læknir líka,
að sjúklingum hans ógleymdum.
Þess vegna verður eiginlega að
vona, svona læknisins og sjúklingu
hans vegnu, að hann hafi hér
oftulið afköst sin verulega. Sem
aftur felur þá í sér að hann hefur
leyft sér að gunga á lagiö gagnvart
einhverju sjúkrasamlaginu og
smeygt sér inn um smugur sjálf-
tökukerfisins sem hjá þcim gildir.
Þetta er auðvitað ulls ekki nógu
gott, jafnvel þó að viöurkcnnt sé
að sjúkdómar séu síður en svo
nokkuð gamanmál og að allir eigi
niikið undir því komið að læknar
séu samviskusamir og vinni verk
sin vel. En það getur vitaskuld
komið fyrir bestu lækna, líkt og
aðra menn, að séu þeim opnaðar
smugur til að drýgja tekjur sínar þá
freistist þeir til þess að ganga á
lagið.
Dæmið um tannlæknana
Þetta kerfi, það er að láta þá sem
nota þjónustu læknanna borga
hana fullu verði og fá svo endur-
greit'-hjá sjúkrasamlagi, hefur eins
og menn vita lengi vcrið í gildi í
barnutannlækningum. Þó að það
megi vitaskuld segja að það sé
gamaldags fyrirkomulag að láta
fólk snúast í þcssu, í staðinn fyrir
að tannlæknarnir sendi reikning-
ana bara beint í sjúkrasamlagið, þá
hefur þetta kerfi samt sýnt sig að
hafa ýmsa kosti.
Eins og allir vita eru tannlækn-
ingar óhemju dýrar hér hjá okkur.
Hvað sem öðru líður þá hefur
núvcrandi greiðslukerfi leitt það af
sér að fólk fylgist mun betur en clla
með verölagningu tannlæknanna.
Með öðrum orðum þá verður fólk
áþreifanlegu vart við það í dag
þegar tannlæknurnir eru að taka
þessa fimm þúsund kalla, eða hvað
það er, fyrir að skoða upp í börnin
í svo sem korter eða tuttugu mínút-
ur.
Líka fer ekki á milli mála að
þetta kerfi setur tannlæknum vissur
skorður. Þó að þeir séu víst ficstir
tiltölulega ófeimnir, blessaðir, við
uð skjóta sér á bak við gjaldskrá
sína þá skapar það þeim samt visst
aðhald að þurfa að innheiinta þess-
ar himinháu fjárhæðir af vcnjulegu
launafólki. Kostnaðurinn er vissu-
lega hár í dag, en ætli að hann sé
þó ckki ívið lægri og töluvert meira
ábcrandi heldur en ef þetta rynni
allt beint í gegnum kerfið? Þetta
greiðslukerfi er líka trúlega aðal-
ástæða þcirrar sivaxandi gagnrýni,
sem tanniæknar hafa orðið að sitja
undir síðustu misserin fyrir gjald-
töku sina. Sá er eldurinn sárastur
sem á sjálfum brennur.
Kostnaðurinn við allan rekstur
heilbrigðiskerfisins er orðinn him-
inhár hjá okkur, og þar þarf að
leita allra leiða til sparnaðar. Og
sjálftaku er engum holl. Þess vegna
má meir en vera að full ástæða sé
oröin til þess að gefa fólki færi á að
fylgjast betur með því hvað þjón-
ustan, sem það er að notfæra sér,
kostar raunverulega. Og þá um
leið að skapa aðhaldið fyrir þá sem
veita þessa sömu þjónustu. Slíkt
aðhald er öllum hollt. Garri.
Ao sameinast 400 milljónum
Einhver óttalegur taugatitringur
grípur suma einstaklinga og sam-
tök þegar hinn svokallaða innri
markað Evrópubandalagsins ber á
góma en hann á að taka gildi á
árinu 1992. Þá verða margir eitt
spurningarmerki í framan og fara
að velta fyrir sér hvort íslendingar
eigi að ganga í bandalagið alfarið
eða að hluta og hvort það verði
yfirleitt nokkuð líf sem hægt er að
kalla því nafni á landinu ef staðið
verður utan þeirrar nýju Evrópu
sem þá á að verða til.
Mönnum ber hreint ekki saman
um í hverju innri markaðurinn
felst. Jónas á DV efast ekki eitt
augnablik um að þar sé verið að
undirbúa eitt gríðarlegt framsókn-
arfjós þar sem samnefnd landbún-
aðarstefna mun svífa yfir flórnum.
Biðst hann undan öllu samneyti
við þann félagsskap.
Aðrir telja að mikið efnahags-
legt og pólitfskt stórveldi sé í
uppsiglingu í Vestur-Evrópu og að
þar séu að verða til nokkurs konar
bandaríki og verði illt utan að búa
þegar til kemur.
Fjármagnsflæðið
endanlega
Hræðsluáróður er rekinn um að
reistir verði tollmúrar úm hin nýju
bandaríki og verði ekki nokkur
leið að smygla þangað íslenskum
fiski, gæru eða lopahespu nema
þjóðin og landið sverji sig í lög hins
nýja markaðar.
Verslunarráð hélt viðskiptaþing
í vikunni til að kynna fagnaðarboð-
skapinn um innri markaðinn og
ætti sumum að vera léttir að heyra
að banka- og fjármagnsstarfsemi
alls konar á að vera frjáls eins og
fuglinn fljúgandi innan bandalags-
ins. Þá verður hægt að fá fleiri
banka hingað til að slá og svo
verður líka hægt að slá banka og
fjármagnsfyrirtæki í útlandinu og
verða þá ekki aldeilis vandræði
með fjármagnið. Svo verður líka
hægt að leggja inn í banka í
útlöndum og kaupa þar hlutabréf.
Mörgum þykir inngangan í Evr-
ópubandalagið nýja vera girnileg
og einkum hafa forsvarsmenn iðn-
rekenda verið þess fýsandi að gal-
opna þarna markað fyrir íslenskar
iðnaðarvörur og væntanlega ís-
lenskt fjármagn.
Yfirleitt eru það útflytjendur
sem telja að allt atvinnulíf á Islandi
stöðvist ef ekki verður gengið í
bandalagið og af tali þeirra má
ráða að engu sé líkara en að
íslenskt þjóðlíf standi og falli með
því hvort tollar á íslenskum vörum
séu eitthvað hærri eða lægri í
löndum Vestur-Evrópu, eða þeim
löndum sem eru í bandalaginu
margnefnda.
Skyldur og kvaðir
Þrátt fyrir allt talið og kynningar-
starfsemina varðandi innri markað
Evrópubandalagsins, sem óðum
nálgast í tímanum, er eins og
enginn aðili treystist til að gefa
einhverja mynd af hvaða áhrif það
kann að hafa á íslandi að vera einn
góðan veðurdag orðinn hluti af
bandaríkjum nokkur hundruð
milljóna Evrópubúa.
Aðild veitir ekki aðeins einhliða
réttindi íslendinga í Vestur-Evr-
ópu, einhver réttindi hljóta Þjóð-
verjar, Frakkar, Bretar, ítalir
o.s.frv. að fá hér á landi.
Frjálst fjármagnsflæði, sameig-
inlegur vinnumarkaður, eignar-
réttur í lausu og föstu einskorðast
ekki við landamæri og borgaraleg
réttindi yfirleitt verða sameiginleg.
Hvernig munu íslenskir bankar
og fyrirtæki standa sig í samkeppn-
inni innan bandalagsins? Á að
flytja landbúnaðarvandamál
meginlandsins hingað til lands?
Hvaða trygging er fyrir áframhald-
andi eignarétti á skipum, vinnslu-
stöðvum, höfnum eða jafnvel
fiskinum í sjónum? i
Engu er líkara en að þeir sem i
láta sig vandræðin vegna væntan-!
legs innri markaðar Evrópubanda-
lagsins einhverju varða einblíni á
tollfrelsi á íslenskum útflutningi og
að hingað berist nóg erlent fjár-
magn án nokkurra kvaða.
Enginn virðist velta fyrir sér að
tollar falla niður á innflutningi
hingað til lands eða hvað það hefur
í för með sér t.d. fyrir íslenskan
iðnað, eða rekstur ríkissjóðs.
Skyldi ekki íslenskt strjálbýli
verða freistandi fyrir íbúa þéttset-
inna landa þar sem landrými og
atvinna er af skornum skammti?
Leyfir Evrópa með sínum innri
markaði að einhver þjóð einoki
land sitt til dæmis með þeim hætti
að hreintungustefna ríki í mennta-
kerfi og opinberu máli og í ríkis-
reknum fjölmiðlum?
Verður ekki verndun máls og
menningar smáþjóðar álitin óþol-
andi þjóðremba í nánu ríkjasam-
bandi innri markaðarins? Verður
yfirleitt leyft að sporna við því að
þjóðir fái að halda sérkennum
sínum, svo sem sjálfu þjóðerninu?
Er reyndar þegar álitamál hvort
það er kurteisi að minnast á slíkt
hugtak um vestanverða Evrópu.
Að því er best verður skilið
sveitast margir aðilar við að kynna
sér hvaða réttindi vinnast með
inngöngu Íslandí í Evrópubanda-
lagið og eru haldnar um það fjálgar
ræður, svo sem á viðskiptaþingi.
En mikið yrði fróðlegt að frétta
hvort einhver er að kynna sér
hvaða skyldur og kvaðir fylgja
inngöngu og umfram allt hvaða
réttindi ávinna 400 milijónir manna
sér á íslandi ef landið gengur í hin
nýju bandaríki. OÓ