Tíminn - 16.02.1989, Síða 19
' .» w »
Timinn 19
Fimmtudagur 16. febrúar 1989
FflT iW —
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Fjalla-Eyvindur
og kona hans
leikrit eftir Jóhann Sigurjónsson
Fimmtudag kl. 20.00 Síðasta sýning.
Þjóöleikhúsiö og islenska óperan sýna:
iI>o)fmannt5
ópera eftir Offenbaoh
Föstudag kl. 20.00
Laugardag kl. 20.00
Föstudag 24.2. kl. 20.00. Næstsiðasta
sýning
Sunnudag 26.2. kl. 20.00. Síðasta sýning.
Leikhúsgestir á sýningarnar sem felldar
voru niðurs.l. sunnudag vegna óveðurs
og rafmagnsleysis vinsamlegast hafið
samband við miðasölu í dag.
Óvitar
barnaleikrit eftir Guðrúnu Helgadóttur
Ath! Sýningar um helgar hefjast kl. tvö
eftir hádegi.
Laugardag kl. 14.00.
Sunnudag kl. 14.00. Uppselt
Fimmtudag 23.2. kl. 16.00
Laugardag 25.2. kl. 14.00 Fáein sæti laus
Sunnudag 26.2. kl. 14.00 Fáein sæti laus
Laugardag 4.3. kl. 14.00
Sunnudag 5.3. kl. 14.00
Laugardag 11.3. kl. 14.00
Sunnudag 12.3. kl. 14.00
SVEITASINFÓNÍA
eftir Ragnar Arnalds
Tónlist: Atli Heimir Sveinsson
Leikmynd og búningar: Sigurjón
Jóhannsson
Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson
Föstudag kl. 20.30
Þriðjudag 23. febr. kl. 20.30
Laugardag 25. febr. kl. 20.30. Örfá sæti
laus
eftir Göran Tunström
Ath. breyttan sýningartima
Laugardag 18. febr. kl. 20.00. Uppselt
Sunnudag 19. febr. kl. 20.00. Örfá sæti laus
Miðvikudag 22. febr. kl. 20.00
Föstudag 24. febr. kl. 20.00. Uppselt
Sunnudag 26. febr. kl. 20.00. Örfá sæti laus
Þriðjudag 28. febr. kl. 20.00. Örfá sæti laus
Miðasala í Iðnó sími 16620
Miðasalan i Iðnó er opin daglega kl. 14-19
og fram að sýningu þá daga sem leikið er.
Simapantanir virka daga frá kl. 10-12.
Einnig simsala með VISA og EUROCARD
á sama tíma. Nú er verið að taka á móti
pöntunum til 9. apríl 1989.
Háskaleg kynni
leikrit eftir Christopher Hampton
byggt á skáldsögunni
Les Liaisons Dangereuses eftir Laclos
Sunnudag kl. 20.00 3. sýning
Laugardag 25.2. kl. 20.00 4. sýning
Kortagestir ath.l Þessi sýning kemur í
stað listdans í febrúar.
Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla daga
nema mánudaga frá kl. 13-20.00.
Símapantanir einnig virka daga frá kl.
10-12. Sími 11200.
Leikhúskjallarinn er opinn öll
sýningarkvöld frákl. 18.00.
Leikhúsveisla Þjóðleikhússins: Máltíðog
miði á gjafverði.
VISA SAMKORT EURO
NEMENDA
LEIKHÚSIÐ
LEIKUSTARSKÖU ISLANOS
UNDARBÆ sm 21971
„Og mærin fór í dansinn...11
eftir Debbie Horsfield
11. sýning föstud. 17. febr. Uppselt
12. sýning laugard. 18. febr. kl. 20.00
Miðapantanir allan sólarhringinn i sima
21971.
- Eg gat ekki sofnað og fór að telja kindur, - og
þá mundi ég allt í einu eftir lambakótelettunum í
ísskápnum...
Ég leit á
karlmenn
sem „ovinina
Eflaust muna cinhverjir
cnn eftir hinum geysivinsælu
framhaldsþáttum „Húsbænd-
ur og hjú" sem hér voru
sýndir fyrir margt löngu.
Meðal leikara þar var Nicola
Pagett sem lék Elizabeth Bel-
lamy og öðlaðist frægð fyrir
vikið.
En frægðin hafði sitthvað í
för með sér sem fæstir gera
ráð fyrir og Nicola ekki held-
ur þá. Fyrir laun sín keypti
hún sér lítið hús og var yfir
sig ánægð þegar hún flutti inn
og hafði alla hluti út af fyrir
sig. Smátt og smátt tók ein-
manaieikinn að gera vart við
sig og ágerðist svo að eitt
kvöldið sá Nicola ekki annað
ráð en leita á náðir „Samverj-
anna“, samtaka sem hjálpa
þunglyndu fólki.
-Eg hafði lengi velt fyrir
mér hvort þetta væri allt sem
lífið hefði upp á að bjóða,
segir Nieola. -Ég vann stöð-
ugt og hafði nóg að gcra. Ef
fyrir kom að cg átti frí, upp-
götvaði ég að líf mitt var
galtómt og ég fann ekkert að
taka mér fyrir hendur. Svo
kom að því að ég varð þrítug
án þess að hafa verið við
karlmann kennd og þá fylltist
ég örvæntingu um aö eitthvað
væri bogið við mig.
Nicola er vel greind og
innst inni vissi hún hver
undirrót vandans var. Hún
bar hrædd við karlmcnn af
því hún þekkti þá ekki. Hún
gekk í klausturskóla frá 6 til
I2 ára aldurs og fór síðan í
heimvistarskóla þar sem voru
eingöngu stúlkur líka og hún
átti engan bróður.
í leiklistarskóla forðaðist
hún skólabræður sína því hún
hafði ekki hugmynd um
hvernig ætti að umgangast
hitt kynið. Henni fannst þeir
eins og verur frá öðru sól-
kerfi. Eini karlmaðurinn sem
hún hafði kynnst var faðir
hennar.
-Ég var á barnti örvænting-
ar þegar ég varð þrítug og
leið hálfu verr en þegar ég
varð fertug, segir Nicola, sent
nú er 43 ára.
Þá gerðist það er hún var
að leika í sviðsverki í London
að hún kynntist verðandi eig-
inmanni sínum, leikritahöf-
undinum Grahani Swannel.
Þau giftu sig fyrir tæpum tólf
árum eftir að Nicola herti
upp hugann og bað hans í
annað sinn. Þá sagði hann já.
Þau eiga níu ára gamla dóttur
og Nicola segist nú vera
ánægð og örugg með tilver-
una.
Nicola fæddist í Kaíró og
var skírð Nicola Mary Pagett
Scott. Húrt ólst upp í Japan
og Hong Kong. Þegar hún
var 8 ára lék hún Mjallhvíti í
japanska klausturskólanuni
og framtíð hennar sem leik-
konu var tryggð. Síðan þá
hefur hún leikiö bæði á sviði,
í kvikmyndum og sjónvarpi.
Við niunum hana kannski í
„Önnu Kareninu“ og sent
Adele Fairley í „Kjarna-
konu.“
Swannel-hjónin eftir frumsýningu á leikverki hans fyrir
nokkruin áruin.
Bíóborgin: Tucker ★★★
Skemmtileg ræma
Preston Tucker var hug-
vitsmaður er átti sér hinn
dæmigerða bandaríska
draum að brjótast úr örbirgð
til ríkidæmis. Þegar síðari
heimsstyrjöldinni lauk, sýndu
kannanir að eftir þessi erfið-
leikaár áttu Bandaríkjamenn
þann draum mestan að eign-
ast nýjan bíl. Tucker hafði
sínar hugmyndir um hinn
nýja bíl og myndi sá bíll valda
byltingu í bílaiðnaðinum.
Hann ætlaði sér að hlaða
bílinn nýjungum, s.s. skutvél,
diskhemlum, öryggisbeltum,
innspýtingu og ýmsu fleiru.
En vandamálið var að afla
fjár fyrir ævintýrið, en fjár-
málamenn höfðu ekki trú á
þessu og virtist bílafram-
leiðslan ætla að verða draum-
urinn einn. En með hjálp
góðra manna fékk hann að
skrifa grein í myndablaðið
PIC og urðu viðbrögðin með
eindæmum góð sem urðu þess
valdandi að fjármála-
mennirnir fengu áhugann og
stofnað var félag um rekstur-
inn. Framleiðslan var framúr-
stefnuvagn sem hlotið hafði
nafnið Tuckcr Torpado.
Þetta brölt Tuckers var
ekki alls staðar vel séð. Hinir
þrír stóru, Chrysler, Ford og
General Motors reyndu allt
hvað þeir gátu til að stoppa
Nicola 43 ára, eiginkona og móðir og laus við allt
þunglyndi og örvæntingu.
Tucker og beittu fyrir sig
opinberum aðilum. Nú var
svo komið að stjórn Tucker
bílaverksmiðjanna létu gera
róttækar breytingar á bílnum
án vitundar Tuckers og
reyndu þeir í framhaldi af því
hreinlega að losa sig við hann.
Virtist þeim ætla að takast
ætlunuarverk sitt, en Tucker
var ekki af baki dottinn, átti
góða vini og sitthvað í poka-
horninu.
Myndin er byggð sann-
sögulegum atburðum. Með
hörku sinni og áræðni náði
Tucker að smíða 50 bíla af
Torpado-gerð sem voru langt
á undan sinni samtíð og eru
ntargar af hugmyndum hans
notaðar í bílum nú til dags.
Þess má geta að 46 bílar af
Tucker Torpado eru enn í
notkun.
Yfir allri leikgerð er ákaf-
lega sérkennilegur blær,
minnir hvað helst á leikhús-
uppfærslu og senurnar eru
margar hverjar fléttaðar
skemmtilega saman. Allt ger-
ir þetta myndina dálítið sér-
staka en alls ekki síðri og
finnst mér leikstjóranum
Francis Ford Coppola takast
þetta sérlega vcl.
Aðalhlutverkið, Preston
Tucker, leikur Jeff Bridges.
Nær hann fullkomlega að
túlka þennan öra, hugmynda-
ríka og þrautseiga Banda-
ríkjamann, sem vildi láta
hinn fullkomna ameríska
draum rætast. Önnur hlut-
verk eins og Abe Karatze,
sem leikinn er af Martin
Landau, Vera, sem Joan Al-
len túlkar og Eddi sem leikinn
er af Frederic Forrest, eru
ákaflega vel leyst af hendi.
Svona í lokin langar mig að
minnast á tvennt. Dálítið
angrar mig að textinn skuli
ekki ná að fylgja talinu.
Hið síðara sem
mig langar að minnast er að
sjaldan eða aldrei hefur hljóð
bíómyndar hljómað jafnvel í
mínum eyrum.
Kvikmyndin Tucker er tví-
mælalaust eitthvað sem þú
lesandi góður ættir að sjá ef
þú hefðir lausa kvöldstund.
Skemmtileg sannsögulcg
mynd nteð góðum leik, sem
ég gef hiklaust þrjár stjörnur
af fjórum.
Pélur Sigurðsson