Tíminn - 07.03.1989, Side 11
10 Tíminn
Þriðjudagur 7. mars 1989
Þriðjudagur 7. mars 1989
Tíminn 11
lllHllllllllllllllllllll ÍÞRÓTTIR
Rúllað yfir Víkinga
Þeir fjölmörgu sem lögöu leið sína
í íþróttahúsið við Strandgötu komu
örugglega til að horfa á spennandi
leik, en sú varð ekki raunin. FH-
ingar rúlluðu bókstaflega yfír Vík-
inga sem áttu ekki möguleika og
urðu lokatölur 36-27 FH-ingum í vil.
Það var aðeins fram í miðjan síðari
hálflcik sem jafnræði var með liðun-
um.
Það væri synd að segja að leikur-
inn hafi verið varnarinnar, langt er
stðan að maður hefur séð jafn lélegar
varnir og verða sérstaklega FH-ingar
að skoða það mál því nú fara í hönd
tveir erfiðir Evrópuleikir við Rúss-
ana.
Fram í miðjan fyrri hálfleik var
jafnt með liðunum, en er staðan var
10-10 sigu FH-ingar framúr og náðu
fjögurra marka forystu í hálfleik
17-13. FH-ingar héldu áfram þar
sem frá var horfið í síðari hálfleik og
skoruðu hvert markið á fætur öðru
án þess að Víkingar næðu að svara
fyrir sig.
Þegar að staðan var orðin 33-20
skiptu FH-ingar eiginlega öllu aðal-
liðinu útaf og sendu inná nýtt lið,
unga stráka og efnilega. Þá náðu
Víkingar aðeins að klóra í bakkann
og minnka muninn í níu mörk áður
en flautað var til leiksloka.
Maður leiksins var tvímælalaust
Guðjón Árnason sem gerði tólf
mörk og var algerlega óstöðvandi.
Þá var ðskar Ármannsson drjúgur,
hann spilaði í vinstra horninu og
skoraði sex mörk. Gunnar Beint-
einsson skoraði einnig sex mörk ,
Héðinn Gilsson fimm, Þorgils Óttar
þrjú, Óskar Helgason tvö og þeir
Hálfdán Þórðarson og Knútur Sig-
urðsson eitt mark hvor.
Hjá Víkingum er varla hægt að
taka einhverja útúr til að titla þá
bestu menn, því í heildina var liðið
ákaflega slakt. Þó varði Sigurður
Jensson ágætlega í markinu. Þeir
Bjarki Sigurðsson og Guðmundur
Guðmundsson gerðu sex mörk hvor
og gerði Guðmundur þau öll í síðari
hálfleiknum. Þá gerði Jóhann Sam-
úelsson fimm mörk, Sigurður Ragn-
arsson þrjú, Árni Friðleifsson þrjú,
Siggeir Magnússon tvö og þeir Karl
Þráinsson og Brynjar Stefánsson eitt
mark hvor. -PS
Valssigur á Eyjapeyjum
Valsmenn unnu stórsigur á Vest-
mannaeyingum 36-24 að Hlíðarenda
á sunnudag. Staðan í hálfleik 15-12
Valsmönnum í hag.
Valsmenn hófu leikinn af krafti og
um miðjan síðari hálfleik varstaðan
orðin 11-4 Valsmönnum í hag og
virtist ekkert geta stöðvað Valsmenn
í að sigra Eyjamenn svona eins og
með þrjátíu mörkum eða svo. En þá
vöknuðu Eyjamenn til lífsins og
náðu að minnka muninn í þrjú mörk
fyrir hálfleik. Þar áttu þeir stærstan
þátt þcir Sigurður Gunnarsson og
Sigurður Már Friðriksson línumaður
sem gerðu fjögur mörk hvor í fyrri
hálfleik.
En Valsmenn komu í þvílíkum
ham í síðari hálfleikinn að Eyja-
mcnn voru sem áhorfendur að leikn-
um. Þeir Jakob, SigurðurSv., Valdi-
mar Grímsson og Geir Sv. fóru
hamförum og skoruðu hvert markið
á fætur öðru. Það var helst að
Sigurður Gunnarsson reyndi að
klóra í bakkann en það var lítið og
máttlaust, því að vörn Valsmanna
var þétt og fyrir aftan hana stóð Páll
Guðnason og varði hreint ágætlega.
Besti maður Valsliðsins var tví-
Fátt virðist geta
bjargað Breiðablik
Stjarnan sigraði Breiðahlik 24-21
í hrútlciðinlcguni leik í íþróttahúsi
Digrancsskóla á sunnudag. Leikur-
inn var ekki vel lcikinn og virtust
leikmenn frckar áhugalausir uni það
seni þcir voru aö gcra.
Það voru þó Blikar sem tóku
forystu og virtust ætla að selja sig
dýrt, en Adam var ekki lengi í
Paradís. Um miðjan fyrri hálflcik
náði Stjarnan aðjafna leikinn. Fram
í miðjan síðari hálfleik skiptust liðin
á að leiða leikinn, en eftir það náði
Stjarnan yfirhöndinni og lét hana
ckki af hendi. Sigurinn varð með
þremur mörkum, hefði getaö orðið
stærri og var aldrei í hættu.
Stjarnan lék ekki vel í þessum
leik. Þeir Gylli Birgisson og Haf-
steinn Bragason voru langbestir
Stjörnumanna og skoruðu þeir sjö
mörk hvor. Sigurður Bjarnason
gerði fjögur, Skúli Gunnsteinsson
þrjú, Hilmar Hjaltason tvö og Axel
Björnsson 1. Brynjar Kvaran varði
ágætlega, ein tíu skot.
Hans Guðmundsson er sá cini
leikmaður sem eitthvað gctur skoraö
fyrir utan og gerði hann átta mörk.
Sveinn Bragason fimm, Þórður
Sveinsson og Elvar Erlingsson þrjú
mörk hvor og þeir Andrés Magnús-
son og Kristján Halldórsson eitt
mark hvor.
Þá bar það helst til tíðinda að
annar dómara leiksins, Gunnar
Viðarsson mætti ekki til leiks svo að
Stefán Arnalds tók stöðu hans. -PS
mælalaust Jakob Sigurðsson sem fór
hreinlega á kostum. Þá voru þeir
frískir Valdimar Grímsson, Sigurður
Sveinsson og Geir Sveinsson, sem
hafði óvenjugott pláss á línunni og
nýtti sér það vel.
Eyjamenn spiluðu ágætlega í fyrri
hálfleik, en í þeim síðari voru þeim
engin grið gefin af mulningsvélinni
frá Hlíðarenda og voru peyjar frá
Eyjum þá ráðþrota. í fyrri hálfleik
átti línumaðurinn Sigurður Már
Friðriksson góðan leik, en besti
maður Eyjamanna var tvímælalaust
Sigurður Gunnarsson, sem að mínu
mati er allt of góður fyrir þetta lið.
Þrátt fyrir að vera tekinn úr umfcrð
allan leikinn skoraði Sigurður Gunn-
arsson níu mörk.
Mörkin, Valur: Jakob Sigurðsson
10, Sigurður Sveinsson 8, Geir
Svéinsson 6, Valdimar Grímsson 6,
Júlíus Jónasson 3, Jón Kristjánsson
2 og Gísli Óskarsson 1.
ÍBV: Sigurður Gunnarsson 9, Si-
gurður Friðriksson 5, Sigurður Már
Friðriksson 4, Sigurbjörn Óskarsson
2, Þorsteinn Viktorsson 2, Óskar
Brynjarsson og Jóhann Pétursson 1
mark hvor. -PS
Árni Friðleifsson og félagar í Víkingi máttu þola stórtap gegn FH-ingum um helgina. Hér er Árni
í leik gegn Stjörnunni, en Garðabæjarliðið vann sigur á nágrönnum sínum í Breiðabliki.
Tímamynd: Pjetur.
Körfuknattleikur:
Guðjón með 50 stig
í tapleik gegn KR
Bukvörðurinn snjalli úr Kctlavík, Guð-
jón Skúlason, átti stórleik mcð liði sínu á
sunnudagskvöldið cr ÍBK og KR mættust
i Hagaskóla. Guðjón skoraöi 2/3 af stigum
liðsins, eða 50 af 74. Þessi frammistaða
Guðjóns dugði Keflvíkingum ekki til sigurs
í leiknum, það voru KR-ingar sem fóru
með sigur af hólmi 74-84.
Pressuvörn KR-inga kom vcl út í þessum
lcik og riðlaði leikskipulagi Kellvíkinga.
Liðshcildin hjá KR lék vel að þessu sinni,
en hjá KR stóð Guðjón upp úr.
Stigin KR: Birgir 24, Guðni 16, Ólafur
15, Jóhannes 9, Gauti 6, Lárus 5, Matthías
5 og ívar 4. ÍBK: Guðjón 50, Sigurður 11,
Axcl 5, Albert 4, Jón Kr. 2 og Magnús 2.
BL
Valsmenn í úrslitin
Handknattleikur:
J Handknattleikur:
Óli Ben.
á kreik
Fins og ölluin er kunnugt cr
Einar Þorvarðarson markvörður
Valsmanna meiddur, krossbönd
að öllum likindiiiii úr lagi gengin.
I.cikinn gegn Vestinannacying-
um spilaði Páll Guðnason og stóð
sig með prýði, varði ein 17 skol.
Kn á bckknum sat Ólafur Bene-
diktsson, sem hér á árum áður
stúð í inarki Valsinanna og lands-
liðsins, og síðustu íjórar mínút-
urnar stóð Óli Ben. í markinu, cn
varöi rcyndar ckki skot. -PS
Staðan í 1.
deildinni í
handknattleik
Valur .... , 12 12 0 0 330-244 24
KR 11 9 0 2 278-247 18
Stjarnan .. 12 8 1 3 278-253 17
FH 12 7 1 4 326-299 15
Víkingur . 12 5 1 6 311-326 11
Grótta ... 11 4 2 5 232-237 10
KA 12 5 0 7 286-292 10
Fram .... 12 1 3 8 253-297 5
ÍBV 12 1 3 8 247-291 5
UBK 12 1 1 10 249-304 3
Algjört hrun hjá
Fram undir lokin
Hörð barátta um fall í 2. dcild
milli Fram og ÍBV blasir nú við, eftir
að Framarar töpuðu fyrir KA-mönn-
um 25-29 í Laugardalshöllinni á
sunnudagskvöld.
Liðin skiptust á um að hafa foryst-
una í leiknum, en frumkvæðið var
hjá Fram lengst af í fyrri hálfleikn-
um. í leikhléinu voru þaðþónorðan-
menn sem höfðu eitt mark yfir
14-15. Leikurinn var mjög jafn og
spennandi í síðari hálfleik og þegar
6 mínútur voru til leiksloka voru
Framarar einu marki yfir, 24-23. Þá
hreinlega hrundi leikur liðsins og
KA-menn gerðu 6 mörk gegn einu á
lokamínútunum og sigruðu með 29
mörkum gegn 25.
Erlingur Kristjánsson, Jakob
Jónsson og Guðmundur Guðmunds-
son voru bestir norðanmanna í þess-
um lcik, en hjá Fram voru þeir Jens
Einarsson markvörður, Júlíus
Gunnarsson og Birgir Sigurðsson
bestir.
Mörkin Fram: Júlíus 9/1, Birgir 6,
Dagur 3, Tryggvi 3, Egill 2 og
Ragnar 2. KA: Jakob 11/2, Erlingur
9/2, Sigurpáll 3/1, Pétur 2, Guð-
mundur 2, Friðjón 1 og Bragi 1.
BL
Haukasigur á ÍR
Haukar unnu ÍR 76-82 í Flugleiða-
deildinni í körfuknattleik í Selja-
skóla á sunnudagskvöld. í hálfleik
var staðan 30-34 Haukum í vil.
Bjöm Steffensen og Jón Örn
Guðmundsson voru bestir ÍR-inga,
en hjá Haukum voru ívar Ásgríms-
son, Pálmar Sigurðsson og Henning
Henningsson bestir.
Stigin ÍR: Björn St. 20, Jón Örn
20, Ragnar 10, Sturla 8, Braga 6,
Karl 6, Gunnar Örn 4 og Pétur 2.
Haukar: ívar 25, Pálmar 24, Henn-
ing 15, Tryggvi 7, Ingimar 4, Hörður
3, Haraldur 2 og Reynir 2. BL
Það var gífurleg stemmning í íþróttahús-
inu í Grindavík á sunnudagskvöld er
heimamenn léku til úrslita við Valsmcnn
um sæti i úrslitakcppni íslandsinótsins.
Húsið var troðfullt af áhorfcnduni eða á
sjötta hundrað manns og þeir létu vel í sér
hcyra. Eftir mikinn baráttuleik höfðu gest-
irnir betur og sigruðu 71-80.
Leikurinn var jafn mest allan fyrri
hálfleik, en undir lokin sóttu Valsmenn í
sig veðrið og komust yfir. Forskot Vals-
manna var 4 stig í hálfleik 38-42 og í síðari
hálfleiknum höfðu þeir jafnan frumkvæð-
ið. Þegar 5 mín. voru til leiksloka liöfðu
Grindvíkingar náð að minnka muninn í 1
stig. Lokamínúturnar voru æsispennandi
og reynsla Valsmanna kom þeim til góða
og þeir náðu að tryggja sér sigur 71-80.
Með þessum sigri tryggðu Valsmenn sér
rétt til að lcika í úrslitakeppni íslandsmóts-
ins og þar mæta þeir Keflvíkingum eða
KR-ingum. Njarðvíkingar hafa fyrir löngu
tryggt sér sæti í úrslitunum.
Tómas Holton átti stórleik með Valslið-
inu, en hjá heimamönnum var gamla
kempan Ólafur Þór Jóhannsson traustur.
Guðmundur Bragason stóð einnig vel fyrir
sínu.
Stigin UMFG: Guðmundur 18, Hjálmar
13, Rúnar 11, Ólafur 10, Jón Páll 9, Astþór
6 og Eyjólfur 4. Valur: Tómas 27, Bárður
11, Björn 9, Hreinn 9, Ari 8, Matthías 8,
Arnar 4 og Ragnar 4. BL
Blak:
Gífurleg spenna á Akureyri
Frá Jóhannesi Hjarnasyni fréttamanni Tímans:
KA-menn unnu mjög mikilvægan sigur á
Þrótturum í úrslitakeppninni um íslands-
meistaratitilinn ■ blaki. Fimm hrinur þurfti
til að fá fram úrslit og í lokahrinunni var
útlitið dökkt hjá heimamönnum því Þrótt-
arar leiddu 11-6.
En eins og svo oft áður í vetur var
Flugleiðadeild:
STAÐAN
Keflavík . 24 18 6 1212-1896 36
KR........... 25 18 7 1999-1838 36
Haukar....... 25 13 12 2188-2071 26
ÍR ............. 25 12 13 1967-1975 24
Tindastóll .... 24 6 18 1980-2103 12
Njarðvík..... 25 21 4 2211-1896 42
Grindavík .... 26 16 10 2118-1977 32
Valur .......... 25 16 9 2128-1936 32
Þór.......... 25 3 22 1943-2373 6
ÍS........... 24 1 23 1511-2229 2
lokakaflinn heimamönnum drjúgur og sig-
ur vannst 15-13. Úrslit í öðrum hrinunt
voru 15-9, 5-15, 17-16, 14-16 og eins og
áður sagði 15-13 í oddahrinunni.
KA-menn standa nú vel að vígi í úrslit-
akeppninni, þeir hafa unnið þrjá fyrstu
leikina og ætti þeim að nægja sigur í þeim
tveim heimaleikjum sem eftir eru til að
tryggja sér íslandsmeistaratitilinn. Stefán
Magnússon var bestur þeirra í leiknum, en
leikur liðsins var í heild með slakasta móti.
Þróttarar gerðu heiðarlega tilraun til að
klekkja á deildarmeisturunum, en þrekið
brást í lokin. Þeir eiga nú tæpast möguleika
lengur á titlinum.
í Kópavogi áttust við HK og ÍS í
úrslitakeppninni. Stúdentar höfðu sigur í
fjórum hrinum. KA hefur 6 stig í úrslita-
keppninni, en ÍS og Þróttur hafa 2 súk
HK-menn hafa enn ekki hlotið stig.
í kvennaflokki léku Þróttur Nes. fflg
Breiðablik. Þróttur hafði sigur í þremur
hrinum, en leikurinn fór fram eystra.
Víkingur og ÍS áttust við í Reykjavík og
Víkingsstúlkurnar héldu sigurgöngu sinni
áfram, er þær sigruðu örugglega 3-0.
Víkingur hefur 6 stig í úrslitakeppninni, en
UBK, Þróttur Nes. og ÍS hafa 2 stig.
" JB/BL
Körfuknattleikur:
Samkvæmtbókinni
Frá Jóhannesi Bjarnasyni fréttamanni Tímans:
Njarðvíkingar voru ekki í vandræðum
með að leggja Þórsara að velli er liðin
mættust í Flugleiðadeildinni á sunnudags-
kvöld. 108-81 voru lokatölur, en í hálfleik
var staðan 48-29 gestunum í hag.
Eiríkur Sigurðsson þjálfari lék best
þeirra í leiknum og Guðmundur Björnsson
var sterkur. Friðrik Ragnarsson spilaði vel
fyrir Njarðvíkinga, en liðið var mjög jafnt
að getu.
Stigin Þór, Eiríkur 19, Guðmundur 19.
Kristján 17, Björn 10, Jóhann 10, Einar
Karls. 2, Aðalsteinn 2 og Þórður 2.
UMFN: Friðrik Ragnars. 24, Teitur 15,
Jóhann 13, Kristinn 12, Helgi 11, Hreiðar
9, Friðrik Rúnars, 9, Alexander 6, Georg
5 og fsak 4. JB
Umboðsmenn Tímans:
Kaupstaður: Nafn umboðsmanns Heimili Simi
Hafnarfjörður Ragnar Borgþórsson Hamraborg 26 641195
Kópavogur LindaJónsdóttir Holtageröi 28 45228
Garðabær Ragnar Borgþórsson Hamraborg 26 641195
Keflavík GuðríðurWaage Austurbraut 1 92-12883
Sandgerði Margrét Magnúsdóttir Hjallagötu 4 92-37771
Njarðvík Kristinn Ingimundarson Faxabraut 4 92-13826
Akranes Aðalheiður Malmqvist Dalbraut 55 93-11261
Borgarnes Inga Björk Halldórsdóttir Kveldúlfsgata 26 93-71740
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir Silfurgötu 25 93-81410
Ólafsvík LindaStefánsdóttir Mýrarholti 6A 93-61269
Grundarfjörður Anna Aðalsteinsdóttir Grundargötu 15 93-86604
Hellissandur Ester Friðþjófsdóttir Háarifi 49 93-66629
Búðardalur Kristiana Guðmundsdóttir Búöarbraut 3 93-41447
Isafjörður Jens Markússon Hnífsdalsvegi 10 94-3541
Bolungarvík Kristrún Benediktsdóttir Hafnargötu 115 94-7366
Flateyri Guðrún Kristjánsdóttir Brimnesvegi 2 94-7673
Patreksfjörður Ása Þorkelsdóttir Uröargötu 20 94-1503
Bíldudalur HelgaGísladóttir Tjarnarbraut 10 94-2122
Þingeyri Karitas Jónsdóttir Brekkugötu 54 94-8131
Hólmavík Elísabet Pálsdóttir Borgarbraut 5 95-3132
Hvammstangi Friðbjörn Nielsson Fífusundi12 95-1485
Blönduos Snorri Bjarnason Urðarbraut 20 95-4581
Skagaströnd Ólafur Bernódusson Bogabraut 27 95-4772
Sauðárkrókur Guðrún Kristófersdóttir Barmahlíð13 95-5311
Siglufjörður Guðfinna Ingimarsdóttir Hvanneyrarbraut 54 96-71555
Akureyri Jóhannes Þengilsson Kambagerði 4 96-22940
Svalbarðseyri Þröstur Kolbeinsson Svalbarðseyri 96-25016
Húsavik Ólafur Geir Magnússon Hjarðarhóli 2 96-41729
Ólafsfjörður Helga Jónsdóttir Hrannarbyggð8 96-62308
Raufarhöfn Ófeigurl. Gylfason Sólvöllum 96-51258
Þórshöfn Kristinn Jóhannsson Austurvegi 1 96-81157
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir Kolbeinsgötu 44 97-31289
Egiisstaðir Páll Pétursson Árskógar13 97-1350
Seyðisfjörður Anna Dóra Árnadóttir Fjarðarbakka 10 97-21467
Neskaupstaður KristínÁrnadóttir Nesbakka16 97-71626
Reyðarfjörður MarínóSigurbjörnsson Heiðarvegi 12 97-41167
Eskifjörður Þórey Dögg Pálmadóttir Svínaskálahlíð19 97-61367
Fáskrúðsfjörður Guðbjörg H. Eyþórsdóttir Hlíðargötu4 97-51299
Stöðvarfjörður SvavaG. Magnúsdóttir Undralandi 97-58839
Ojúpivogur ÓskarGuðjón Karlsson Stapa, Djúpavogi 97-88857
Höfn Ingibjörg Ragnarsdóttir Smárabraut 13 97-81255
Selfoss Margrét Þorvaldsdóttir Skólavöllum 14 98-22317
Hveragerði Lilja Haraldsdóttir Heiðarbrún51 98-34389
Þorlákshöfn Þórdís Hannesdóttir Lyngberg 13 98-33813
Eyrarbakki ÞórirErlingsson Túngötu28 98-31198
Stokkseyri Hjörleifur Bjarki Kristjánsson Sólvöllum 1 98-31005
Laugarvatn HalldórBenjaminsson Flókalundi 98-61179
Hvolsvöllur Jónína og ÁrnýJóna Króktún 17 98-78335
Vík VíðirGylfason Austurveg 27 98-71216
Vestmannaeyjar MartaJónsdóttir Helgafellsbraut29 98-12192
BLIKKFORM
Smiðjuveqi 52 ~ Sími 71234
Öll almenn blikksmíðavinna, vatnskassavið-
gerðir, bensíntankaviðgerðir, sílsalistar á alla
bíla, (ryðfrítt stál), og einnig nælonhúðaðir í
öllum litum.
Postsendum um allt land
(Ekið niður með Landvélum).
TÖLVUNOTENDUR
Við í Prentsmíðjunni Eddu
hörinum, setjum og prentum
allar gerðir eyðublaða fVrir tölvuvinnslu.
Smiðjuvegi 3, 200 Kópavogur. Sími 45000