Tíminn - 07.03.1989, Síða 12
12 Tíminn
Þriðjudagur 7. mars 1989
FRETTAYFIRLIT
VlN - Utanríkisráöherra
Bandaríkjanna James Baker
hvatti Sovétmenn til að endur-
skoöa svokallaöa „Brésnef-
kenningu" sem notuö hefur
verið til aö réttlæta hernaöar-
lega íhlutun í ríkjum kommún-
ista. Baker hélt ræöu þessa í
upphafi nýrra afvopnunarviö-
ræðna austurs og vesturs.
; Baker sagði aö Bandaríkja-
menn væru að athuga leiöir til
aö flýta brottflutningi efna-
vopna Bandaríkjamanna frá
Vestur-Þýskalandi fyrir árið
1992. Shévardnadze utanrík-
isráöherra Sovétríkjanna hélt
einnig ræöu og hvatti NATO til
aö draga úr heföbundnum víg-
búnaöi í samræmi viö samdrátt
Varsjárbandalagsins. Menn
eru almennt bjartsýnir fyrir
þessar afvopnunarviðræöur.
Jafnhliöa þeim ræöa 35 ríki
um öryggi og samvinnu í Evr-
ópu.
MAZAR-E-SHARIF -
Þrjár eldflaugarsprungu í Maz-
ar-e-Sharif hinni rammgirtu
höfuðborg Balkhhéraös í
norðurhluta Afganistan. Er
þetta fyrsta árás skæruliöa á
þessum slóðum á þessu ári.
PEKING - Kínversk stjórn-
völd skipuöu svo fyrir aö fólks-
straumur hundruö þúsunda
bænda úr sveitum til borga í
atvinnuleit yröi stöövaöur.
Ríkisráöið skýröi frá því aö
þessi fólksflótti úr sveitum
raskaöi mjög störfum lögreglu
aö halda uppi lögum og reglu i
borgum.
BEIRÚT - Hersveitir Drúsa
skutu loftvarnareldflaugum aö
herþotum til aö þrönqva kristn-
um mönnum til ao létta af
tálmunum viö höfnina í Beirút.
Það var Michel Aoun herforingi;
kristinna manna sem lagði svo
fyrir aö lokað yröi umferö aö
höfninni. Leiðtogar múslíma
segja aö þessi aðgerð kristinna
gæti steypt Líbanon út í algert
borgarastríö aö nýju.
MOSKVA - Pravda lýsti því j
yfir að Gosagroprom landbún-l
aöaráætlunin væri bákn sem |
píndi sovéska bændur. Áætl-
unin átti aö auka framleiösluj
og framboð á landbúnaöarvör- j
um, en lítið hefur oröiö úr því.1
Kommúnistaflokkurinn mun;
ræöa landbúnaðarmál í næstu j
viku, en þar eigast viö Gorbat-
sjof og Ligachef sem eru mjög 1
á öndveröum meiði í flestu.
BELGRAD - Aðalritarii
kommúnistaflokksins i Króatíu1
sagöi aö Júgóslavía gæti
breyst í nýtt Líbanon eöa
Belfast. Þágagnrýndu dagblöð
í Króatíu, sem er vestrænasta
lýöveldiö innan ríkjasam-
bandsins Júgóslaviu, leiötoga
Serba sem reyna aö ná völdum
í allri Júgóslavíu.
ÚTLÖND
Kínverska lögreglan í Lhasa vígbúin til átaka við tíbetska þjóðernissinna.A.m.k. II létust í átökum í Lhasa í gær.
Kínverska lögreglan skýtur á Tíbeta:
Allt í logandi
átökum í Lhasa
Kínversk lögregla skaut að
minnsta kosti ellefu þjóðernissinna
til bana í Lhasa höfuðborg Tíbet um
helgina. Átök milli lögreglu og Tí-
betbúa brutust fyrst út á sunnudag-
inn en rénuðu með kvöldinu. Aftur
brutust út átök í gærdag og stóðu
þau yfir fram eftir degi. Fréttastofan
Nýja Kína skýrði frá þessu, en
erlendir ferðamenn sem hringt hafa
til Vesturlanda frá Lhasa telja að
mun fleiri hafi fallið í valinn.
Fregnir herma að kínverska löe-
reglan hafi á sunnudag fyrirvaralaust
hafið skothríð á óvopnaðan múginn
sem krafðist sjálfstjórnar og sjálf-
stæðis Tíbet, en kínverski herinn
lagði landið undir sig árið 1950.
í þessari viku eru þrjátíu ár liðin
frá því að Tíbetar gerðu fjöldaupp-
reisn gegn stjórn Kínverja. Sú upp-
reisn varð til þess að andlegur leið-
togi Tíbeta Dalai Lama varð að flýja
land. Hann hefur harðlega fordæmt
ofbeldi lögreglunnar.
Verslanir Kínverja í Lhasa voru
rændar í átökunum í gær og múslím-
ar af kínverskum uppruna hafa orðið
fyrir aðsúg Tíbeta. Þá hafa uppreisn-
armenn borið eld að lauslegunt hlut-
unt á götum borgarinnar.
Þúsundir Tíbeta hafa náð alger-
lega á vald sitt einu hverfi í Lhasa,
en íbúar svæðisins óttuðust að kín-
verska lögreglan gerði vopnaðar ár-
ásir inn í hverfið í gærkveldi.
FANGAR NADADIR
í LANDINU HELGA
Lestar-
slysí
Glasgow
Tveir menn létust og fjörutíu
slösuðust í iestarslysi nærri Bell-
grove iestarstöðinni í Glasgow í
gær og er þetta annað lestarslysið
á Bretlandi á þremur dögum.
Flestir hinna slösuðu cru ekki
mikið slasaðir, en nokkurn tíma
tók að losa þá síðustu úr flaki
lestanna tveggja er rákust saman.
Lestarnar tvær rákust saman
rétt eftir að önnur þeirra kom út
úrlestargöngum. Einhverra hluta
vegna sem ekki er vitað óku
lestarnar á söntu brautarteinun-
Það var mikið um sakaruppgjafir
í Landinu helga um helgina. I Jórd-
aníu náðaði Hussein konungur 950
fanga á laugardaginn í tilefni af
stofnun Arabíska samvinnuráðsins.
Þá slepptu ísraelar 130 Palestínu-
mönnum úr haldi á mánudaginn í
von um að það skapaði vinsamlegra
Lech Walesa vill
hætta í Samstöðu
Lech Walesa leiðtogí verkalýðs-
samtakanna Samtöðu hyggst hætta
afskiptum stnum af verkalýðsmál-
unt ef viðræður pólsku ríkisstjórn-
arinnar og stjórnarandstöðunnar
verða til þess að starfsemi Sam-
stöðu verði leyfð að nýju.
Walesa skýrði frá þessu í ræðu
er hann hélt í Gdansk eftir aö
snurða hljóp á þráðinn í viðræðun-
um um framtíð Póllands. Viðræð-
urnar hafa nú staðið í fjórar vikur.
Walesa sagðist þó bjartsýnn á að
viðræöurnar yrðu árangursríkar er
upp yrði staðið.
Flins vegar hét Walesa því að
berjast af fullum krafti fyrir mál-
efnum Samstöðu ogpólsku þjóðar-
innar verði Samstaða ekki lög-
leidd.
andrúmsloft á hernumdu svæðun-
um. Var Palestínumönnunum sleppt
í tilefni af helgihaldi múslíma, en
Isra og Mi'raj hátíðir eru haldnar
um þessar mundir til að minnast
himnafarar Múhameðs spámanns.
En ísraelarnir voru ekki allir í
friðarhug, né heldur Palestínumenn.
ísraelskir hermenn felldu nítján ára
pilt sem réðst að hermönnum með
grjótkasti við Jabalya flóttamanna-
búðirnar.
Náðun Husseins konungs náði til
flestra þeirra sem setið hafa af sér
hálfan dóminn. Hins vegar voru
menn er framið höfðu morð, nauð-
ganireða njósnir undanskildir. Segja
Jórdanir að nú séu engir pólitískir
fangar í haldi í Jórdaníu.
Arabíska samvinnuráðið var
stofnað ló.febrúar og eiga Egyptar,
írakar, Jórdanir og Norður-Jemenar
aðild að því. Er ráðinu ætlað að
vinna saman að efnahagsmálum
þessara ríkja.
ÚTLÖMO
UMSJÓN:
Hallur
Magnússon _
BLAÐAMAÐy^CVv>" jfc
Sex farast
meðtogara
Óttast er að sex manna áhöfn
belgísks togara hafi farist þegar
skip þeirra sökk á írlandshafi á
sunnudagsnóttina. Annar belg-
ískur togari fann lík eins úr
áhöfninni og kallaði eftir hjálp,
en neyöarkall hafði ekki verið
gefið. Þyrlur og skip leita hinna
fimm.
„Söngvar Satans“:
Jibril hyggst drepa Rushdie
Hinn öfgafulli palestínski skæru-
liðaforingi Ahmed Jibril hefur sagst
ætla að taka að sér líflát breska
rithöfundarins Salman Rushdie, en
Ayatollah Khomeini andlegur leið-
togi írana dæmdi hann til dauða fyrir
skömmu og setti með því allt á
annan endann eins og alþjóð ætti að
vita.
Rushdie er nú í felum einhvers-
staðar á Bretlandi eftir-þvf sem
menn komast næst. Litlar líkur eru
taldar á því að hann geti rólegur um
frjálst höfðuð strokið hér eftir þar
sent hann er efstur á dauðalista
milljóna múslíma um allan heint.
Þrír breskir þingmenn hafa skorað
á Rushdie að hætta útgáfu „Söngva
Satans" sem móðgað hefur múslíma
um allan heim. Þingmennirnir eru úr
kjördæmum þar sem fjöldi múslíma
er mikill, en múslímar eru mjög
fjölmennir á Bretlandi og fer þeim
fjölgandi.
Æðsti Rabbíi Israel lét einnig frá
sér fara yfirlýsingu um bók Rushdies
um helgina og var hún í aðeins
friðsamlegri anda en yfirlýsing
Jibrils. Rabbíinn hvatti til þess að
bók Rushdies verð bönnuð í ísrael á
þeim forsendum að hún sé móðgun
við trúarbrögð múslíma. Samkvæmt
ísraelskum lögum ber að banna
bækur sent eru ntóðgandi viö trúar-
brögð í ísrael. Þó lögin séu án efa
sett til verndar Gyðingdómi þá segir
rabbíinn að þau hljóti að ná til allra
trúarbragða.
Rabbíinn fordæmdi hins vegar
dauðadóm Khomeinis og vísaði til
boðorðanna:
- Þú skalt ekki mann deyða.