Tíminn - 07.03.1989, Qupperneq 15
Þriðjudagur 7. mars 1989
Tíminn 15
ÁRNAÐ HEILLA
Þorsteinn Davíðsson
verksmiðjustjóri níræður
I dag, 7. mars, á Þorsteinn Davíðs-
son, fyrrum verksmiðjustjóri á Ak-
ureyri, níræðisafmæli. Þorsteinn ber
aldurinn vel, heldur sitt eigið heim-
ili, sér um sig sjálfur, enda ógjarnt
að láta hafa fyrir sér eða vera upp á
aðra kominn.
Þorsteinn Davíðsson er þó enginn
einfari í háttum og að upplagi,
heldur afar félagslyndur og áhuga-
samur um þjóðfélagsmál, ræktunar-
störf og annað sem til framfara og
menningar má verða. Aðalstarf Þor-
steins var forstaða og frumkvæði í
iðnaðarstarfsemi samvinnumanna.
Á því sviði á hann óvenjulegan
starfsferil, og það svo að við fátt má
jafna. Má með fullum sanni segja,
að hann sé einn helsti frumherji í
uppbyggingu samvinnuiðnaðarins á
Akureyri og mótandi að sínu leyti
um þróun hans um áratuga skeið.
Örðugt er að benda á mann sem af
meiri ósérplægni hefur unnið að
iðnaðarmálum samvinnumanna um
jafn langt árabil.
Upphaf samvinnuiðnaðar er oft
rakið til þess, þegar Þorsteinn Dav-
íðsson, rúmlega tvítugur að aldri, er
studdur til þess af hálfu Sambands
tsl. samvinnufélaga að fara til náms
í sútun skinna í Bandaríkjunum árið
1921. Þar dvaldist hann tvö ár, en
kom þá heim til þess að veita
forstöðu Gæruverksmiðju SÍS á Ak-
ureyri, sem verið var að stofna. Sú
verksmiðja var að sönnu mjór vísir
að umfangsmeiri iðnrekstri sam-
vinnumanna og var aðeins rekin um
fjögurra ára skeið sem afullunarverk-
smiðja. Þá varð nokkurt hlé á frekari
þróun gæru- og skinnaiðnaðar. Þor-
steinn tók sér þá fyrir hendur að læra
skógrækt í Noregi og vann eftir það
m.a. sem skógarvörður á Vöglum í
Fnjóskadal allmörg ár, sem var
reyndar hlutastarf á þeim tímum.
Arið 1934 er hann ráðinn til þess
að veita forstöðu nýstofnaðri Skinna-
verksmiðju Iðunnar á vegum Sam-
bandsins, þ.e. fullkominni sútunar-
verksmiðju. Eftir það starfaði Þor-
steinn að þróun skinnaiðnaðar og
skógerðar óslitið sem verksmiðju-
stjóri sútunar til 1969, þá sjötugur að
aldri. Störfum hans í verksmiðjunni
lauk þó ekki við þau tímamót,
heldur vann hann við ýmsa vinnu í
verksmiðjunni allt til ársins 1981.
Starfsþrek Þorsteins var einstakt og
vinnuáhuginn eftir því. Honum féll
aldrei verk úr hendi fyrr en kominn
var á níræðisaldur. Síðan hefur Þor-
steinn lifað í heiðurselli hávaðalausu
lífi, virtur af öllum.
íslenskir samvinnumenn og starfs-
fólkið hjá Sambandsverksmiðjunum
á Akureyri reistu honum veglegan
minnisvarða árið 1983, þegar
gróðursettar voru við hátíðlega at-
höfn 200 trjáplöntur á verksmiðju-
lóðinni og reitnum gefið nafnið Þor-
steinslundur. Með því var viður-
kennd með sýnilegu tákni sérstaða
hans í iðnaðarsögu Sambandsins og
látin í ljós sú virðing, sem starfsfólk-
ið bar fyrir honum alla tíð. Stjóm Þor-
steins á verksmiðjunni og umgengni
hans við starfsfólkið einkenndust af
háttvísi og góðvild. Hann leit víst
aldrei á sjálfan sig sem annað en
fremstan meðal jafningja og lifði lífi
síns fólks eins og frekast var hægt að
hugsa sér. Heimskuhroki stjórnun-
arruddanna, eins og þeir þekkjast
hér og þar, var víðsfjarri skaplyndi
hans og reyndaróþekkt í Sambands-
verksmiðjunum yfirleitt.
Þorsteinn Davíðsson fæddist á
Hallgilsstöðum í Fnjóskadal 7. mars
1899, sonur búandi hjóna þar, Arn-
dísar Jónsdóttur og Davíðs Sigurðs-
sonar. Hann varð búfræðingur frá
Hvanneyri 1919 og vann yfirleitt við
búnaðarstörf, þar til hann hóf feril
sinn á vegum Sambands ísl. sam-
vinnufélaga sem fyrr er rakið. Þor-
steinn var lærður í skógrækt, eins og
fram hefur komið og vann sem
skógarvörður um skeið. Þess er
sérstaklega vert að geta, að hann
stundaði skógrækt á eigin vegum í
Fnjóskadal og sýndi í því mikinn
árangur. Þorsteinn starfaði lengi í
Skógræktarfélagi Eyfirðinga og
Ferðafélagi Akureyrar.
Þorsteinn var kvæntur Þóru
Guðmundsdóttur frá Arnarnesi, en
missti hana eftir 25 ára sambúð árið
1957, rúmlega fimmtuga að aldri.
Þau eignuðust þrjá syni, sem allir
eru á lífi, þeir eru: Ingólfur f. 1934,
starfsmaður Bifreiðaskoðunar ís-
lands á Akureyri, Guðmundur f.
1939, námsstjóri búsettur í Kópa-
vogi og Héðinn f. 1941, mjólkur-
fræðingur á Akureyri. Allir hafa
þeir kvænst og eiga afkomendur.
Kynni mín af Þorsteini Davíðssyni
eru með þeim hætti, að þar er allt á
einn vcg um ágætið. Þau kynni vil ég
nú þakka af heilum hug um leið og
ég sendi honum innilega afmælis-
kveðju. Ingvar Gíslason.
Björn Á. Guðjónsson
hljomsveitarstjori
Ég get ekki stillt mig um að senda
góðvini mínum, Birni Guðjónssyni,
stjórnanda Skólahljómsveitar Kópa-
vogs, örstutta þakkar- og árnaðar-
kveðju á sextugsafmæli hans í dag,
því að við hann og sveitina eru
tengdar margar skemmtilegustu
stundir skólastarfs og hátíða í Kópa-
vogi á liðnum árum.
Björn fæddist í Reykjavík 7. mars
1929 og ólst þar upp á hljómlistar-
heimili, því að faðir hans var ötull
verkamaður í þeirn víngarði, þó að
erfiðismaður væri. Björn fékk ágæta
hljómlistarmenntun, bæði hér í
Reykjavík og erlendis, og varð snjall
hljóðfæraleikari og stjórnandi.
Hann lék um skeið með Sinfóníu-
hljómsveit íslands og einnig erlend-
um sveitum, var t.d. trompetleikari
í óperunni í Gautaborg um skeið.
Þegar Björn kom heim frá starfi
og framhaldsnámi erlendis 1966 voru
fáar skólahljómsveitir til á íslandi.
Það var mikið happ fyrir Kópavog,
að Björn skyldi þá ráðast til þess
hlutverks, með góðum stuðningi
Gylfa Þ. Gíslasonar, menntamála-
ráðherra, að stofna og stjórna skóla-
hljómsveit í Kópavogi. Því starfi
hefur hann sinnt síðan í 22 ár með
óþrjótandi áhuga og frábærum ár-
angri. Þetta var og hefur verið í raun
mikilvægt brautryðjandastarf í ís-
lensku skólastarfi, því svo skammt
var þessi þáttur á veg kominn hér á
landi á þeim árum, en hefur síðan
eflst mjög og hlotið æ meiri viður-
kenningu sem sjálfsagður hlutur.
Karl Guðjónsson, fyrrv. alþingis-
maður, var fræðslustjóri í Kópavogi
á fyrstu árum hljómsveitar Björns,
MINNING
Guðmundur Jónsson
Kópsvatni
Fæddur 2. apríl 1930
Dáinn 19. janúar 1989
Viskuvinur
til veraldar æðri
horfinn ert héðan á braut.
Studdir þú kraftinn
sterka, milda,
meðan entist orka.
Ómetanlegt
á ýmsar lundir
reyndist þitt starf í stríði.
Autt er nú það rúm
er þú áður fylltir.
Vandfyllt verður það skarð.
Bilbug ei sýndir
þótt blési á móti,
en stefndir að miklu marki:
Orkan að ofan
- œðst í heimi -
skyldi hér brjóta sér braut.
Fluttur nú ertu
til fegurri hnattar
í samstilltra vina sveit.
Til framfara mun liggja
framtíð björt
á því Ijósa landi.
Minnist ég margra
merkra stunda,
þótt horfinn sértu héðan.
Vil ég þér votta
- vinur trausti -
þakkir með kærri kveðju.
Samherji.
sjálfur áhugasamur lúðrasveitar-
maður úr Eyjum á yngri árum og
studdi ötullega að viðgangi sveitar-
innar. Samstarf þeirra Björns var
náið og gott.
Skólahljómsveit Kópavogs varð
fljótlega hæf og góð hljómsveit undir
stjórn Björns, enda fór þar saman
kunnátta, reynsla, smekkvísi og
virk stjórnsemi, þótt hið unga lista-
fólk stigi þar flest sín fyrstu spor á
þessari braut. Björn kunni einniglag
á því að velju sér góða samkennara
við sveitina.
Skólahljómsveit Kópavogs varð
ekki aðeins kær og mikilvæg bæjar-
búum, heldur má segja að hún hafi
verið kalllúður þeirra til samfylking-
ar á hverri stórri stundu í félagslííi
þessa unga og sundurleita bæjarfé-
lags í tvo áratugi. En hún hlaut
BILALEIGA
meö útibú allt í kringurri
landið, gera þér mögulegt
aö leigja bil á einum staö
og skila honum á öörum.
Reykjavík
91-31615/31815
Akureyri
96-21715/23515
Pöntum bíla erlendi?
interRent
Bílaleiga Akureyrar
viðurkenningu og vinsældir langt út
fyrir heimahring sinn og var t.d.
fengin til að leika bæði á þúsund ára
byggðarafmæli fslendingaá Þingvelli
1974, og þegar hringvegurinn var
opnaður viö nýja Skeiðarárbrú, svo
að eitthvað sé nefnt.
Þetta mikilvæga hljómlistarstarf
Björns Guðjónssonar fá Kópavogs-
búar seint þakkað svo sem vert er.
Og þótt hann hafi á seinni áruni átt
við nokkra vanheilsu að búa, sem
cngan veginn er auðveld hljómsveit-
arstjóra, hefur hann aldrei látið
deigan síga, aldrei kvcinkað sér eða
hvikað í starfi. Ég hef oft dáðst að
þeirri þrekraun hans.
Á þessum afmælisdegi Björns
hljóta Kópavogsbúar að hugsa til
hans með þakklæti fyrir hið mikil-
væga menningarstarf, sem hann hef-
ur unniö þeini og börnum þeirra, og
vona að hans njóti enn lengi í því.
Hér skal ekki rakin ævisaga
Björns Guðjónssonar að öðru lcyti.
Hann hefur margt annað unnið til
þarfa í lífi og starfi, cn erindi þessara
orða cins Kópavogsbúa er aðeins að
þakka honum góðar stundir á liðnum
árurn og árna honum heilla á sex-
tugsafmælinu.
Ég vona að við njótum hans og
síungrar sveitar hans sem lengst.
Andrés Kristjánsson.
Suðurland
FUF í Árnessýslu
og Félag framsóknarkvenna i Árnessýslu áformar að halda félags-
málanámskeið í lok mars og í apríl. Um er að ræða byrjenda- og
framhaldsnámskeið. Námskeiðin eru öllum opin sem áhuga hafa.
Þátttaka tilkynnist sem fyrst til formanna félaganna.
Sigurðar Eyþórssonar í síma 34691
og Ólafíu Ingólfsdóttur í síma 63388.
FUF og FFÁ.
Kópavogur
Skrifstofan í Hamraborg 5 er opin þriðjudaga og miðvikudaga kl. 9-13.
Sími 41590. Heitt á könnunni.
Opið hús alla miðvikudaga kl.17-19. Félagsmenn eru hvattirtil að
líta inn og taka með sér gesti. Eflum flokksstarfið.
Framsóknarfélögin í Kópavogi.
SUF í Viðey
Miðstjómarfundur Sambands ungra framsóknarmanna verður hald-
inn laugardaginn 18. mars í Viðeyjarstofu.
Dagskrá og sérmál fundarins auglýst síðar.
Framkvæmdastjórn SUF