Tíminn - 12.05.1989, Síða 15
Föstudagur 12. maí 1989
Tíminn 15
IIIIIIIIIHIII MINNINrs 'ii, iim. lii; 'lli ili: Itl lillL lllll 'lil 'IIi; Hllllll;: lllllll, m lli. illllli: 111
Helga Ingibjörg
Jónsdóttir
Fædd 2. mars 1911
Dáin 1. maí 1989
Helga Ingibjörg Jónsdóttir var
dóttir hjónanna Önnu Jónsdóttur og
Jóns Gíslasonar. Var hún frumburð-
ur þeirra hjóna. Þau bjuggu þá á
Syðri-Löngumýri í Austur-Húna-
vatnssýslu en fluttu nokkrum árum
síðar að Ásum og bjuggu þar sín
búskaparár. Jón féll frá langt um
aidur fram en Anna dó í Reykjavík
1947.
Helga átti einn bróður sem nú er
látinn og þrjár systur og eru tvær
þeirra á lífi.
Helga var vel gefin en það varð þó
ekkert af langskólanámi. Hún fór í
Kvennaskólann á Blönduósi og síð-
an lá leiðin til Reykjavíkur. Þar
lærði hún kjólasaum. Síðan vann
hún mikið hjá klæðskerum við
saumaskap á einkennisfötum og öðr-
um vönduðum herrafötum. Hún var
mjög vandvirk og þess vegna eftir-
sóttur starfskraftur. Þegar Sigfús í
Heklu stofnaði saumastofuna íris
um 1949 varð Helga þar verkstjóri.
Árið 1959 þegar Helga var komin
hátt á fimmtugsaldurinn giftist hún
Erlendi Jónssyni. Erlendur var vel
greindur, skemmtilegur og einstak-
lega lífsglaður og ljúfur maður.
Hann reyndist Helgu frábærlega vel.
Líf Helgu gerbreyttist. Þau fóru
saman á dansiböll og í ferðalög, löng
og stutt, utan lands og innan. Það
var gist í tjaldi ef veður leyfði,
annars á hótelum eða hjá kunningj-
um. Erlendur var mikill laxveiði-
maður. Hann var fljótur að koma
veiðistöng í hendurnar á Helgu.
Hún hreifst með og reyndist góður
nemandi. Fljótlega var hún farin að
fá’ann líka.
Helga og Erlendur voru mjög
hamingjusöm. Það var skemmtilegt
að heimsækja þau enda var mjög
gestkvæmt hjá þeim. Erlendur átti
fjögur böm frá fyrra hjónabandi og
voru þau öll komin með sínar fjöl-
skyldur. Þegar halla tók undan fæti
og Elli kerling tók að gerast nær-
göngul seldu þau Helga og Erlendur
húsið sitt Miðtún og tryggðu sér litla
íbúð í Hátúni lOb. Þar yrðu þau
aldrei ein þótt annað félli frá. Það
varð Helgu mikið áfall þegar Erlend-
ur varð bráðkvaddur fyrir tæpum
níu áram. Heilsu hennar tók að
hraka og mátturinn að þverra. En
hún varð aldrei einmana í þessu
húsi. Þar átti hún marga vini sem
reyndust henni góðir og sannir.
Nú á síðari árum duldist engum að
hverju stefndi. Hún fór á sjúkrahús
oftar en einu sinni og þar kom fram
við rannsókn það mein er varð henni
að aldurtila. Þann 1. maí kom kallið.
En þá var hún ekki ein, hjá henni
var sonur Erlendar, Örn og kona
hans Renata. Við þökkum Helgu
samfylgdina í gegnum árin. Hún
reyndist okkur sannur vinur í raun.
Öllum vinum hennar og ættingjum
sendum við okkar dýpstu samúðar-
kveðjur.
Hvíli hún í friði. Guð blessi minn-
ingu hennar.
Brynja Baldursdóttir
Helga Pálsdóttir
Skuggi féll á vorkomuna er fréttin
barst um að Helga föðursystir mín
hefði orðið bráðkvödd fyrsta maí
síðastliðinn.
Þó vorið sé fyrirboði lífs í ríkum
mæli allsstaðar í náttúrunni, sem
Helga tengdist svo náið á uppvaxtar-
áram sínum í sveitinni, er dauðinn
alltaf nálægur og tekur sinn toll, oft
öllum að óvörum.
í dag 12. maí verður Helga jarð-
sungin frá Bústaðakirkju í Reykja-
vík.
Helga Jónsdóttir fæddist að Syðri-
Löngumýri í Svínavatnshreppi 2.
mars 1911. Faðir hennar var Jón
Gíslason sonur hjónanna Gísla Hall-
dórssonar og Guðrúnar Gísladóttur
frá Eyvindarstaðargerði, nú Aust-
urhlíð í Blöndudal. Móðir hennar
var Anna Jónsdóttir frá Sauðanesi,
dóttir hjónanna Jóns Jónssonar
bónda í Sauðanesi og Helgu Gísla-
dóttur frá Flatatungu í Skagafirði.
Helga var elst í hópi fimm syst-
kina, bróðir hennar Gtsli bóndi á
Stóra-Búrfelli lést árið 1985. Systir
hennar Guðrún, er var ljósmóðir,
lést árið 1946. Eftirlifandi systur
hennar eru Soffía og Ása báðar
búsettar í Reykjavík.
Helga átti heima fyrstu níu æviárin
á Syðri-Löngumýri í Svínavatns-
hreppi, en þá fluttist fjölskyldan að
Ásum í sömu sveit, þar sem Helga
ólst upp til fullorðinsára ásamt for-
eldram og systkinum.
Helga stundaði nám við Kvenna-
skólann á Blönduósi veturinn 1929-
1930, næstu árin stundaði hún vinnu
á ýmsum stöðum, þar á meðal á
Hólum í Hjaltadal og á Siglufirði,
jafnframt því sem hún var öðra
hvora heima á Ásum.
Snemma fór Helga að leggja stund
á saumaskap, fyrst á Blönduósi og
síðan í Reykjavík, en þangað fluttist
hún í kringum 1940 og dvaldist þar
æ síðan. Saumakunnáttan varð
henni haldgott veganesti á lífsleið-
inni og vann hún við saumaskap
mestan sinn starfsaldur eftir að til
Reykjavíkur kom.
Helga var ákaflega heilsteypt
kona, heiðarleiki og samviskusemi
voru hennar æðstu dyggðir, sem
aldrei var kvikað frá. Hún hafði ætíð
brennandi áhuga á að fræðast um
menn og málefni og kunni frá mörgu
að segja. Móður sinni reyndist hún
mikil hjálparhella síðustu misserin
sem hún lifði, en þá var hún mikill
sjúklingur og dvaldist hjá Helgu.
Árið 1959 giftist Helga, Erlendi
Jónssym trá Jarðlangsstöðum í
Borgarfirði, en hann lést árið 1980.
Þau hjón vora ákaflega samhent í
lífi og starfi. Þau áttu hlýlegt heimili
að Miðtúni 16, en fluttust síðan í
íbúðir aldraðra í Hátúni lOb. Þar
eignuðust þau hjón marga trygga
vini, sem reyndust Helgu mikill
styrkur síðustu æviár Erlendar. Er-
lendur átti fjögur börn af fyrra
hjónabandi og reyndust þau og fjöl-
skyldur þeirra Helgu ákaflega vel.
Ég á margar góðar minningar um
heimsóknir þeirra Helgu og Erlend-
ar allt frá barnæsku, en þau komu á
hverju sumri á heimili foreldra
minna og dvöldu þar nokkra daga í
senn. Helga bar ætíð djúpar tilfinn-
ingar til sinna æskuslóða, og sérstak-
lega til Ása, og lagði hún leið sína
oft þangað er hún var á ferð fyrir
norðan. Á síðastliðnu sumri er
Helga kom að Stóra-Búrfelli í síð-
asta sinn keyrði ég hana á æskuslóð-
irnar, og er mér sérstaklega minnis-
stætt er hún labbaði um gamla túnið
á Ásum og tíndi puntstrá í vönd til
að eiga, er heim væri komið. Þetta
sagði mér meira en mörg orð hversu
djúpar tilfinningar Helga bar ætíð til
bernskustöðva sinna á Ásum.
Er faðir okkar systkinanna þurfti
að leita lækninga síðustu æviárin til
Reykjavíkur, var heimili Helgu hon-
um sem annað heimili og erum við
henni hjartanlega þakklát fyrir það
og þann stuðning sem hún veitti
föður okkar í veikindum sínum.
Ég mun ætíð minnast Helgu sem
hinnar traustu staðföstu manneskju
sem aldrei iét glaum og glys heimsins
villa sér sýn.
Við systkinin viljum senda eftirlif-
andi systrum hennar, skyldfólki og
vinum innilegar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning hennar, og
megi hún hvíla í friði.
Fyrir hönd okkar sy stkinanna
Jón Gíslason,
Stóra-Búrfelli.
Katrín Viðar
Fædd 1. september 1895
Dáin 27. aprfl 1989
Katrín Viðar var fædd í Reykja-
vík, og var hún elsta barn hjónanna
Jóns Norðmanns frá Barði í Fljótum
og Jórannar Einarsdóttur frá Hraun-
um í Fljótum. Systkini Katrínar
voru: Jón, dó ungur og ókvæntur,
Kristín kona Páls ísólfssonar
tónskálds, Óskar framkvæmdastjóri
og eigandi byggingavöraverslunar-
innar J. Þorláksson og Norðmann,
kvæntur Sigríði Benediktsdóttur
Þórarinssonar kaupm. í Reykjavík,
Ásta danskennari í Reykjavík, kona
Egils Árnasonar kaupmanns, og
Jórann, gift Jóni Geirssyni lækni.
Þau skildu, og seinni maður hennar
var Þorkell Gíslason.
Foreldrar Katrínar fluttust til Ak-
ureyrar og var faðir hennar þar
útgerðarmaður til dauðadags, en
hann dó ungur.
Eftir lát hans fluttist Jórann til
Reykjavíkur með börnin, og Katrín
hóf nám í Verslunarskóla íslands.
Að því námi loknu fór hún til
Þýskalands og stundaði þar nám í
píanóleik í tvö ár. Þegar hún kom
heim frá Þýskalandi hóf hún kennslu
í píanóleik og hélt því starfi áfram
framundir áttrætt. Á fyrri áram var
hún oft með 30-40 nemendur á vetri,
og eru það því orðnir margir sem
lært haf hjá henni, enda var hún
afburða góður kennari.
Katrín giftist Einari Viðar banka-
ritara og söngvara í Reykjavík. For-
eldrar hans voru Indriði Einarsson
skrifstofustjóri og rithöfundur, og
kona hans Martha María Guðjohn-
sen. Þau Katrín og Einar eignuðust
tvær dætur, Jóranni Viðar tónskáld,
f. 07.12. 1918, gift Lárusi Fjeldsted
kaupsýslum. Þeirra börn era Láras,
Katrín og Lovísa, og Drífu Viðar
rithöfund, f. 05.03 1920, d.
19.05.1971, gift Skúla Thoroddsen
lækni, börn þeirra era: Einar, The-
ódóra, Guðmundur og Jón. Katrín
missti mann sinn eftir nokkurra ára
sambúð. Hún giftist öðra sinni árið
1937 og var seinni maður hennar Jón
Sigurðsson skólastjóri við Laugar-
nesskólann. Hann var mikill menn-
ingarfrömuður og hugsjónamaður
og vora þau hjón mjög samhent. Jón
dó árið 1977.
Árið 1925 stofnsetti Katrín versl-
un með hljóðfæri og listmuni í
Lækjargötu 2 og rak hana í mörg ár.
Jón Norðmann, faðir Katrínar,
var móðurbróðir móður minnar, og
var hún tvo vetur við nám á heimili
þeirra hjóna á ungdómsáram sínum
Þá bast hún þeim vináttuböndum
við Katrínu frænku sína sem ekki
slitnuðu upp frá því. Fyrstu minning-
ar mínar um Katrínu frænku mína
era því bréfin frá henni, sem hún
skrifaði móður minni, og komu eins
og fréttir úr annarri veröld inn á lítið
sveitaheimili norður í Skagafirði, en
svo langt var á milli Reykjavíkur og
skagfirskrar sveitar á þessum áram.
Þá var líka myndin af henni, sem
stóð á kommóðunni heima. Mynd af
ungri stúlku á hvítum kjól, svo
fallegri að ég hugsaði mér að svona
myndu englamir á himnum líta út.
En það var á sólbjörtum júlídegi
sumarið 1932, að ég sá Katrínu
frænku mína í fyrsta skipti. Hún
kom í heimsókn, ásamt Guðrúnu
Sveinsdóttur vinkonu sinni, en þær
vora á ferð um landið á hestum. Þá
bauð Katrín mér að koma suður um
haustið til náms, og dveljast á heimili
sínu. Þetta var ekki lítill fengur fyrir
námsþyrsta sveitastúlku, það var
sannarlega að detta í lukkupottinn.
Um haustið fór ég suður og stund-
aði nám í Gagnfræðaskóla Reykja-
víkur næstu tvo vetur. Þau ár era
mér ógleymanleg. En þó skólinn
væri þroskandi og þar lærði ég margt
sem kom mér að gagni í lífinu, var
ekki síður mikilsvert að verða þess
láns aðnjótandi að fá að dveljast á
heimili Katrínar frænku minnar. Það
var menningar- og menntaheimili,
einn samofinn heimur lita og tóna,
listar og fegurðar. Ég held ekki að á
neinn af samferðafólki mínu sé
hallað, þó mér finnist Katrín Viðar
vera einhver göfugasta manneskja
sem ég hef kynnst á lífsleiðinni. Það
var lærdómsríkt að ræða við hana,
og var þá sama um hvað var rætt,
sjóndeildarhringur hennar var víð-
ur, þekking á mönnum og málefnum
staðgóð, og hún horfði á heiminn
hleypidómalausum augum.
Eitt af því sem Katrín bar fyrir
brjósti var að því yrði komið til
leiðar að allar ungar stúlkur lærðu
eitthvert starf, sem gæfi þeim svo
afdráttarlaus réttindi, að þær gætu
alltaf séð sér og sínum farborða,
hvað sem í skærist á lífsleiðinni.
Hún var þannig sú manneskja sem
kveikti í mér þann neista kvenrétt-
inda sem ég hef að leiðarljósi enn í
dag.
Þá var Katrín mikill íþróttaunn-
andi. Hún stundaði bæði skíða- og
skautaíþrótt, og það var hennar
framtíðarsýn að hér yrði byggð
skautahöll svo hægt væri að stunda
skautaíþróttina bæði sumar og vetur
og burtséð frá veðri. Þegar skauta-
höllin var reist var Katrín orðin 72ja
ára gömul. Þá hringdi sjónvarpið til
hennar og bað hana að vígja skauta-
höllina. Hún lét til leiðast þó hún
hefði ekki stigið á skauta í fimm ár.
Og þegar maður sér sjónvarpskvik-
mynd frá þeirri athöfn má sjá hvar
Katrín Viðar fer þar fremst í flokki,
og verður ekki annað séð en þar fari
ung stúlka, svo léttar vora hreyfingar
hennar á svellinu. Skautahöllin var
síðar gerð að bílastæði.
Þegar ég lít yfir farinn veg finnst
mér heimilið á Laufásvegi 35 bera af
öllum heimilum sem ég hef kynnst,
ekki aðeins að fegurð og smekkvísi,
heldur var það ekki síður sá andi
sem ríkti þar innan veggja. Það var
sannarlega heimili þar sem gleðin og
bjartsýnin réði ríkjum. Ég held að
ekki finnist samheldnari fjölskylda
en Katrín og dætur hennar, þær
Jórunn og Drífa, voru. Og heimili
Katrínar stóð opið öllum okkar
vinum og félögum. Þar var oft margt
um manninn og glatt á hjalla. Þá var
Katrín ekki síður hjálparhella allri
sinni fjölskyldu og vinum, ef eitt-
hvað bjátaði á. Á stundum gleðinnar
og einnig sárastu sorgarinnar var
Katrín jafnan nálæg, og það var
alltaf jafn gott að finna hennar
styrku hönd.
Ég vil ljúka þessum fátæklegu
minningarorðum með djúpu þakk-
læti fyrir allt sem Katrín frænka mín
hefur fyrir mig gert, fyrir allt sem ég
á henni að þakka. Nú er hún horfin
okkur en minningin um góða og
göfuga konu lifir í hugum okkar.
Guð blessi minningu hennar.
María Þorsteinsdóttir.
TÖLVUNOTENDUR
Við í Prentsmiðjunni Eddu
hönnum, setjum og prentum
allar gerðir eyðublaða fVrir tölvuvinnslu.
Smiðjuvegi 3, 200 Kópavogur. Sími 45000
Rafvirkjar -
Rafverktakar
Próf í þeim áföngum, sem kenndir hafa verið á
námskeiðum Rafiðnaðarskólans til löggildingar í
rafvirkjun, verður haldið í Tækniskóla íslands
fimmtudaginn 25. maí 1989 kl. 13:00-14:30.
Þátttaka óskast staðfest fyrir 20. maí.
Þátttakendur leggi fram staðfest gögn um að þeir
hafi lokið námskeiðunum eða sambærilegu námi.
H
RAFMAGNSEFTIRLIT RÍKISINS
Verkstæðissala
Hornsófar og sófasett á heildsöluverði.
Bólsturverk,
I Kleppsmýrarvegi 8. Sími 91-36120.