Tíminn - 18.05.1989, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 18. maí 1989
Tíminn 7
Viðbúið að um fjörutíu fyrirtæki hverfi af sjónarsviðinu eftir endurskipulagningu í útflutnings- og
samkeppnisgreinum. Gunnar Hilmarsson stjórnarformaður Atvinnutryggingasjóðs:
Enginn héraðsbrestur
„Það er kannski ljótt að segja það, en kannski er ekki
héraðsbrestur af þessum fyrirtækjum öllum. Eigum við ekki
að segja að svona tíu prósent af þessu megi fara. Það eru
eitthvað um tíu til tuttugu fyrirtæki þama á meðal sem er
fullkomlega eðlilegt að fari. Það hefur enga þýðingu að halda
í fyrirtæki sem ekki eiga sér eðlilegan grundvöll.
Við megum ekki gráta alltof mikið þegar Tíminn spurði hann hvað
yfir öllu af þessu því að um margt verði um fyrirtæki sem hvorki hljóta
þetta má segja bara „Tough luck,““ fyrirgreiðslu hjá Atvinnutrygginga-
sagði Gunnar Hilmarsson stjórnar- sjóði né Hiutafjársjóði, en gera má
formaður Atvinnutryggingasjóðs ráð fvrir bví að bau verði um fiörutíu
Steingrímur Hermannsson og Edda Guðmundsdóttir ræða við sænsku
forsætisráðherrahjónin í boðinu á Hótel Sögu í fyrrakvöld.
Tlmamynd:Ámi Bjarna
Við hlustum vel
á öll heilræði
I ræðu sem Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra
íslands hélt í kvöldverðarboði, sem haldið var sænsku
fosætisráðherrahjónunum til heiðurs, minntist hann á
mikilvægi náttúruvemdar, forystuhlutverk Islendinga inn-
an EFTA, norræna samvinnu og fleira.
„Við búum í veröld sem breytist
hratt, dag frá degi. Hraðinn á
þessum breytingum verður sífellt
meiri og hættumar verða alvarlegri
og geta vaxið okkur yfir höfuð ef
við kunnum ekki fótum okkar
forráð“ sagði Steingrímur.
Hann talaði um hættumar sem
stafa af kjamorkuvopnum, eyði-
leggingu náttúrunnar, svo sem eyð-
ingu ósonlags og skóga og fleira.
Því sagði hann nauðsyn vera þeim
þjóðum sem sjá og skilja hættuna,
að taka höndum saman og snúa
þessari þróun við.
Steingrímur minntist einnig á
miklar breytingar sem nú standa
fyrir dymm í Evrópu, samvinnu
aðildarþjóða EFTA. Vegna sér-
stakra aðstæðna íslendinga í að-
skiljanlegum málum sagði hann
mikilvægt fyrir þjóðina að halda
fast í sjálfstæði sitt þó á hinn
bóginn væri einnig mikilvægt að
eiga aðild að fríverslunarsamning-
um og annarri samvinnu þjóða
Vestur-Evrópu. í tilefni þessa
þakkaði Steingrímur Ingvari Carls-
syni aðild hans að þeim hluta
fríverslunarsamningsins sem að
fiskafurðum snýr.
Steingrímur kom í ræðu sinni
inn á forystuhlutverk íslendinga
innan EFTA og sagðist geta full-
vissað sænska forsætisráðherrann
um að íslendingar stæðu fyllilega
undir þeirri ábyrgð. En við mynd-
um þó hlusta gaumgæfilega á öll
heilræði samstarfsaðila og væri
þessi heimsókn mikilvæg í því
sambandi.
En þó að samvinnan innan
EFTA væri mikilvæg, benti Stein-
grímur á að það væru Norðurlönd-
in sem ættu mest sameiginlegt og
væri því eðlilegt að þau leituðu
sameiginlegrar lausnar þeirra
vandamála sem upp kynnu að
koma. Norrænt samstarf væri
mikilvægt og þess bæri að gæta og
hlúa að.
Forsætisráðherrann sagðist vilja
nota tækifærið og benda á breyting-
ar sem nú eiga sér stað í austurhluta
álfunnar. Bæði á pólitíska, efna-
hagslega og hernaðarlega sviðinu.
Þetta væri, út frá sjónarhóli
Norðurlandanna, allrar athygli
vert og ættu þau að taka virkan
þátt í umbótunum.
Að lokum talaði Steingrímur
sérstaklega um sérstöðu Svía hvað
félagslegar aðstæður varðar og for-
ystu þeirra á því sviði sem tekið
væri mið af hvarvetna á Norður-
löndum. Sömuleiðis minntist hann
á mikilvægi þessa fundar og sagðist
sannfærður um að heimsóknin yrði
til að renna enn sterkari stoðum
undir samvinnu landanna á öllum
sviðum.
jkb
talsins þegar upp verður staðið og
flest smá.
Gunnar sagði í gær að 102 fyrir-
tæki hefðu til þessa fengið fyrir-
greiðslu hjá sjóðnum en 46 neikvæða
afgreiðslu. Reikna mætti þó með að
fjögur til sex þeirra kæmu aftur til
afgreiðslu hjá sjóðnum eftir að hafa
sjálf endurskipulagt rekstur sinn.
Hann sagði að nú væru á milli 40
og 50 fyrirtæki í vinnslu hjá sjóðnum
og væri beðið eftir ársreikningum
margra þeirra, en á hverjum fundi
sjóðsstjómarinnar fá milli fimm og
tíu fyrirtæki afgreiðslu, jákvæða eða
neikvæða eftir atvikum.
Aðspurður um hversu mörg fyrir-
tæki það yrðu þegar upp verður
staðið sem enga afgreiðslu hljóta
sagði Gunnar að það gætu orðið um
sextíu fyrirtæki í það heila sem ekki
hlytu afgreiðslu hjá Atvinnutrygg-
ingarsjóði. Af þeim mætti búast við
að fimmtán til tuttugu fái einhverja
fyrirgreiðslu hjá Hlutafjársjóði.
„Menn verða auðvitað að skoða
það að af þessum sextíu eru mörg
afar smá. Þetta eru prjónastofur,
smá fiskverkendur sem hafa verið að
versla á markaðnum. Þarna eru tvær
til þrjár útgerðir sem ekki ganga upp
og rækjuverksmiðjur sem ekki hafa
náð fótfestu," sagði Gunnar.
Nefnt hefur verið að einhverjir
milljarðar spöruðust ef fyrirtækjum
í samkeppnisgreinum fækkaði um
tíu prósent. Gunnar sagði að það
væri e.t.v. fullmikið sagt. Nær væri
að tala um 2-4% heildarsparnað.
„Um þrjátíu fyrirtæki hafa gert
vart við sig hér hjá Hlutafjársjóði en
segja má að um tuttugu fyrirtæki
hafi lagt inn raunverulega umsókn,"
sagði Helgi Bergs stjómarformaður
Hlutafjársjóðs.
Hlutverk Hlutafjársjóðs er að
taka þátt í fjárhagslegri endurskipu-
Helgi Bergs
lagningu útflutnings- og samkeppn-
isgreina með kaupum á hlutabréfum
í starfandi fyrirtækjum. Sjóðurinn á
að afla fjár til þessa með því að selja
hiutdeildarskírteini til lána- og pen-
ingastofnana og lánardrottna þeirra
fyrirtækja sem sækja um lán til
sjóðsins.
Segja má því að í raun sé sjóðnum
ætlað að hressa við eiginfjárstöðu
fyrirtækja þannig að hún nái þeim
lágmarkskröfum sem Atvinnutrygg-
ingarsjóður gerir að skilyrði fyrir
aðstoð sinni við fyrirtæki í sam-
keppnisgreinum.
Helgi Bergs sagði þegar þetta var
borið undir hann að þetta væri
sumpart rétt þótt ekki þyrftu endi-
lega að vera tengsl á milli Hlutafjár-
sjóðs og Atvinnutryggingasjóðs.
Hlutverk Hlutafjársjóðs væri að gera
fyrirtækin lánshæf hjá Atvinnutrygg-
ingasjóði eða öðrum sjóðum. Sjóð-
urinn ætti að greiða skuldir fyrirtækj-
anna með hlutdeildarskírteinunum
Gunnar Ililmarsson
og fengi í staðinn hlutabréf í fyrir-
tækjunum.
Helgi sagðist ekki treysta sér til að
nefna neinar tölur um hversu mikið
aðstoð við þessi u.þ.b. tuttugu fyrir-
tæki muni kosta, né heldur vildi
hann nefna neitt þeirra með nafni.
„Þegar við afgreiðum eitthvert
fyrirtæki jákvætt, þá verður sagt frá
því. Ef við afgreiðum eitthvert nei-
kvætt þá veit ég ekki hvort frá því
verði sagt, því þá værum við með því
að segja að fyrirtækið sé ómögulegt
og værum í raun að taka það af lífi,“
sagði Helgi.
Hann sagði að tafsamt hefði verið
að koma starfsemi sjóðsins í gang af
ýmsum orsökum en sagðist vænta
þess að hún hæfist innan skamms.
Samkvæmt heimildum blaðsins
eru meðal þeirra fyrirtækja sem sótt
hafa formlega um fyrirgreiðslu til
sjóðsins; Magnús Gamalíelsson h.f.,
Einar Guðfinnsson h.f. og Álafoss
h.f. - sá
BORGARA
FLOKKUMNN
Þingmenn
Borgaraflokksins
efna til fundar í Þórscafé
í kvöld kl. 20.30.
Fundarefni:
Stjórnmálaástandið og stefnu-
mótun Borgaraflokksins.
Allir velkomnir
Þingmenn Borgaraflokksins