Tíminn - 31.05.1989, Side 4

Tíminn - 31.05.1989, Side 4
4 Tíminn Miðvikudagur 31. maí 1989 Iðnskólinn í Reykjavík Innritun fer fram í Iðnskólanum í Reykjavík og Miðbæjarskólanum frá kl. 09.00-18.00 1. og 2. júní. Jafnframt verður innritað í Iðnskólanum 5. og 6. júní kl. 11.00-18.00. Innritað verður í eftirtalið nám: 1. Samningsbundið iðnnám (Námssamningur fylgi umsókn nýnema). 2. Grunndeild í prentun. 3. Grunndeild í prentsmíði (setning - skeyting - offsetljósmyndun). 4. Grunndeild í bókbandi. 5. Grunndeild í fataiðnum. 6. Grunndeild í háriðnum. 7. Grunndeild í málmiðnum. 8. Grunndeild í rafiðnum. 9. Grunndeild í tréiðnum. 10. Framhaldsdeild í bifreiðasmíði. 11. Framhaldsdeild í bifvélavirkjun. 12. Framhaldsdeildir í bókagerð. 13. Framhaldsdeild í hárgreiðslu. 14. Framhaldsdeild í hárskurði. 15. Framhaldsdeild í húsasmíði. 16. Framhaldsdeild í húsgagnasmíði. 17. Framhaldsdeild í rafeindavirkjun. 18. Framhaldsdeild í rafvirkjun og rafvélavirkjun. 19. Framhaldsdeild í vélsmíði. 20. Almennt nám. 21. Fornám. 22. Meistaranám. 23. Rafsuða. 24. Tæknibraut (lýkur með stúdentsprófi). 25. Tækniteiknun. 26. Tölvubraut. 27. Öldungadeild í grunnnámi rafiðna. 28. Öldungadeild í rafeindavirkjun. Innritun er með fyrirvara um þátttöku í einstakar deildir. Öllum umsóknum nýnema fylgi staðfest afrit prófskírteina með kennitölu. Iðnskólinn í Reykjavík Menntamálaráðuneytið Lausar stöður við framhaldsskóla Við Fjölbrautaskóla Vesturlands eru eftirtaldar stöður lausar til umsóknar; rafvirkjun, félagsfræði, viðskiptagreinar, stærðfræði og tölvufræði (2 stöður), eðlisfræði og heilbrigðis- fræði (1/2 staða). Við Fjölbrautaskólann við Ármúla eru lausar til umsóknar heilar stöður í hagfræði og vélritun, hlutastöður í verslunar- rétti og tölvufræði og leik- og tónmennt. Þá vantar kennara í ensku og frönsku vegna afleysinga. Við Fjölbrautaskólann f Breiðholti er laust til umsóknar starf skrifstofu- og fjármálastjóra. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykj- avík fyrir 20. júní n.k. Menntamálaráðuneytið «'*<* gr Utboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Hitaveitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í sjálfvirkt brunaviðvörunarkerfi fyrir Nesjavallavirkjun. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík. Tilboðin verða opnuð á sama stað, miðvikudaginn 14. júni 1989, kl. 14.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800 Reynir Daníel Gunnarsson ráðinn Skólastjóri í Ölduselsskóla Menntamálaráðherra hefur sett Reyni Daníel Gunnarsson í stöðu skólastjóra Ölduselsskóla til eins árs, frá og með fyrsta ágúst þessa árs. Minnihluti fræðsluráðs, þar á meðal kennarafulltrúar, fræðslu- stjórinn í Reykjavík, meirihluti kennara, allir stafsmenn skólans á síðastliðnu ári og stjórn foreldrafé- lags Ölduselsskóla studdu setningu Reynis. Þegar ráðið var í stöðuna í fyrra Iágu fyrir stuðningsyfirlýsingar frá foreldrum 759 barna eða 92,3% þeirra foreldra sem á þeim tíma áttu börn við skólann. Meirihluti fræðsluráðs lagði aftur á móti til að Valgerður Selma Gunn- arsdóttir yrði ráðin skólastjóri við Ölduselsskóla. jkb Frá aðalfundi Krabbameinsfélags Islands, í ræðustól er Almar Grímsson, formaður félagsins. Vemdari félagsins, Vigdís Finnbogadóttir, var viðstödd upphaf fundarins. Krabbameinsfélag íslands: Krabbameinsleit tókst vel á árinu Aðalfundur Krabbameinsfélags íslands var haldinn 5. maí s.l. Um 60 manns sóttu fundinn, þar á meðal fulltrúar frá um 20 aðildarfélögum og fjórir fulltrúar frá Færeyska krabbameinsfélaginu. Almar Grímsson, formaður Krabbameinsfélags íslands, skýrði frá því í skýrslu sinni að vel hefði tekist til með leitarstarfið á síðasta ári, en það er fyrsta ár af samningi milli Krabbameinsfélagsins og ríkis- ins um framkvæmd leitar að krabba- meini í leghálsi og brjóstum. Þátt- taka kvenna í leitinni hefur aukist og mikill árangur náðst. Rekstur rannsóknarstofu félagsins í sameinda og frumulíffræði hófst af fullum krafti á síðasta ári en fjár- hagslegur grunuvöllur er óljós. Loks nefndi Almar að Rauði krossinn og Krabbameinsfélagið myndu standa saman að rekstri heimahlynningar krabbameinssjúklinga, en tilraun til slíkrar starfsemi hefur lofað góðu. Loks nefndi Almar að starf krabba- meinssamtakanna að reykingavörn- um hafi áfram verið árangursríkt. f ársskýrslu krabbameinsfélags- ins, sem lögð var fram á fundinum, kemur fram að velta félagsins á síðasta ári var um 114 milljónir króna. Aðildarfélög félagsins eru nú um 29, þar af fimm stuðningshópar krabbameinssjúklinga. Félagsmenn í krabbameinsfélaginu eru um 11.000. -es Samband veitinga- og gistihúsa býður upp á sumarrétti á matsölustöðum um allt land MATUR FYRIR 750-800 KR. í sumar munu fjölmörg veitíngahús innan Sambands veitinga- og gistihúsa taka höndum saman og reyna að slá á hræðslu útlendinga við hátt matarverð á íslandi. Auk þess að gera íslending- um betur kleift að borða á veitingastöðum á ferðalögum um landið. Boðið verður upp á svokallaða sumarrétti á matsölustöðum hring- inn í kringum landið. Verð á forrétti eða súpu, kjöt eða fiskrétti og kaffi, verður á bilinu sex hundruð tií 750 krónur í hádeginu og 850 til tólf hundruð krónur um kvöldið. Börn allt að fimm ára aldri fá matinn ókeypis og fyrir böm að tólf ára aldri verður veittur helmings afsláttur. Nokkuð margir veitingastaðir víðsvegar um landið bjóða þegar upp á rétti á þessu verði. Þeir sem ekki gera það nú þegar munu þurfa að bæta við nýjum réttum frá og með fimmtudeginum. „Það má taka sem dæmi að lúðu eða ýsu er hægt að matreiða á einfaldan, góðan og ódýr- an hátt ef öllu tilstandi í kringum matreiðsluna er sleppt. Til dæmis ef rækjum eða hörpudisk er bætt inn í uppskriftina verður rétturinn dýrari. Megintilgangurinn er að tryggja að ferðalangar geti treyst á að þeir geti fengið einfaldan góðan mat á þessu verði á matsölustöðum um allt land,“ sagði Erna Hauksdóttir fram- kvæmdastjóri Sambands veitinga- og gistihúsa í samtali við Tímann. Viðkomandi veitingastöðum verður eftir sem áður frjálst að bjóða einnig upp á aðra dýrari rétti. En þeim er skylt að hafa sumarrétt- ina á matseðlinum á hverjum degi, einnig um helgar. jkb

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.