Tíminn - 13.07.1989, Page 5
Fimmtudagur 13. júlí 1989
Tíminn 5
Afgreiðsla Fiskveiðasjóðs á umsóknum Hlutabréfasjóðs:
Verða þrjú fyrirtæki
af sex f öst í kröggum?
Fiskveiðasjóður afgreiddi sl. þriðjudag sex umsóknir frá
Hlutafjársjóði Byggðastofnunar um kaup á hlutdeildarskírt-
einum vegna rekstarvanda fiskiðjufyrirtækja. Samþykkt voru
kaup á skírteinum vegna þriggja fyrirtækja: Hraðfrystihúss
Stokkseyrar, Fiskiðjunnar Freyju og Fiskiðjunnar á Bfldudal.
AUs samþykkti stjórn Fiskveiðasjóðs að kaupa hlutdeildar-
skírteini fyrir um 15 tfl 16 milljónir króna.
Þau fyrirtæki sem hlutu neikvæða
afgreiðslu eru Meitillinn í Þorláks-
höfn, Hraðfrystihús Patreksfjarðar
og Hraðfrystihús Dýrfirðinga. Á-
stæður neitunarinnar vegna Meitils-
ins voru þær, að sögn Más Elíssonar
forstjóra Fiskveiðasjóðs, að um var
að ræða bréf sem Ríkissjóður er í
ábyrgð fyrir en eru hjá Fiskveiða-
sjóði til innheimtu og var málinu því
vísað til Ríkissjóðs.
Þessi ákvörðun Fiskveiðasjóðs
getur hugsanlega ráðið úrslitum um
framtíð fyrmefndra fyrirtækja þar
sem íhlutun Hlutafjársjóðs átti að
auka möguleika þeirra á fyrir-
greiðslu hjá Atvinnutryggingasjóði.
Skiptir auðvitað mestu máli þar um
hve kröfur Fiskveiðasjóðs eru stór
hluti af heildarkröfum sem hvíla á
fyrirtækjunum. Helgi Bergs stjóm-
arformaður Hlutafjársjóðs sagði í
samtali við Tímann í gær að ekki
væri tímabært að slá einhverju fram
um örlög þessara fyrirtækja og
Hlutafjársjóði hefði ekki formlega
borist afgreiðsla Fiskveiðasjóðs. í
framhaldi af þeirri afgreiðslu væri
svo eftir að athuga hvort eða til
hvaða annarra ráða væri hægt að
gripa vegna þeirra fyrirtækja sem
Fiskveiðasjóður var ekki tilbúinn að
kaupa hlutdeildarskírteini í og það
gæti tekið nokkum tíma að ná
endanlegri niðurstöðu í þeim
málum.
„Hvað þetta þýðir nákvæmlega
fyrir reksturinn hjá okkur er varla
hægt að segja til um á þessari
stundu. Við ætlum ekki að leggja
árar í bát og látum þessa niðurstöðu
ekki hafa nein sérstök áhrif á okkur.
Við tökum þessu bara eins og hverju
öðm hundsbiti en vissulega em þetta
vonbrigði," sagði Magnús Guðjóns-
son kaupfélagsstjóri hjá Kaupfélagi
Dýrfirðinga er hann var spurður að
því hvað ákvörðun Fiskveiðasjóðs
þýddi fyrir framtíð hraðfrystihússins
en Fiskveiðasjóður er mjög stór
kröfuhafi gagnvart fyrirtækinu.
Magnús sagði jafnframt að unnið
verði áfram að lausn á rekstarvand-
anum í samstarfi við stjóm Hluta-
bréfasjóðs og reynt yrði að láta
þessa niðurstöðu ekki eyðileggja
það sem gert hefur verið í endur-
skipulagningu fyrirtækisins. Magnús
sagði að það hefði verið langur og
erfiður tími síðan ljóst varð að
mikilla breytinga væri þörf en þess
bæri þó að geta að bæði Byggða-
stofnun og Hlutabréfasjóður hefðu
tekið vel á þessum málum og unnið
mjög „rösklega", eins og Magnús
orðaði það.
Hlutafjársjóði er ætlað að aðstoða
þau fyrirtæki sem em atvinnulega
séð mjög mikilvæg í sínu byggðarlagi
en em það illa sett að Atvinnutrygg-
ingasjóður getur ekki sinnt þeim
nema að til komi einhver sérstök
aðstoð. Aðstoðin felst yfirleitt í því
að Hlutafjársjóður snýr sér til
stærstu kröfuhafa, sem yfírleitt eru
bankar og sjóðir, og fer fram á að
kröfuhafamir framselji Hlutafjár-
sjóði eitthvað af þeim kröfum sem
stofnunin á hjá tilteknum fyrirtækj-
um og taki við hlutdeildarskírteinum
í staðinn sem gefín em út af Hluta-
fjársjóði. Stofnanimar kaupa ekki
beinlínis hlut í fyrirtækjunum heldur
eignast Hlutafjársjóðurinn hlutafé í
þeim en gefur út til lánadrottnanna
hlutdeildarskírteini sem em með
ríkisábyrgð en bera enga dráttar-
vexti. SSH
Dani á Snæfeilsjökli:
Féllí
sprungu
Danskur maður, búsettur hér á
landi féll um fjórða tug metra
niður í spmngu á Snæfellsjökli í
fyrrakvöld. Hann reyndist axlar-
brotinn en annars tiltölulega lítið
meiddur.
Að sögn lögreglunnar í Ólafs-
vík var björgunarsveitin kölluð
út um klukkan 20.00 og fóru þeir
upp á jökulinn ásamt lögreglu og
lækni. Fljótlega eftir að á staðinn
var komið tókst að ná manninum
upp úr sprungunni. Hann hafði
gengið á jökulinn ásamt konu
sinni og tveim börnum, 8 ára
dóttur og 15 ára syni.
Þegar faðirinn féll í sprunguna
hljóp drengurinn niður jökulinn
að bifreið fjölskyldunnar og ók
að Arnarstapa þaðan sem kallað
var á aðstoð björgunarsveitar.
Björgunarsveitarmenn fóru eins
langt og hægt var á bílum upp á
jökulinn, en fóru síðan á snjó-
sleðum síðasta hluta ferðarinnar.
Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti
á jöklinum í um 4000 feta hæð kl.
23.50 og var komin í loftið með
manninn innanborðs fimm mín-
útum síðar og lenti í Reykjavík
hálf eitt. Ferð björgunarsveit-
armanna gekk vel niður jökulinn
og vom komnir ofan af jökli um
hálf eitt. -ABÓ
Harmleikurinn við Bergvatnskvísl:
Atburðarásin
er enn óljós
Þau sem létust í slysinu við Berg-
vatnskvísl austan Hofsjökuls hétu:
Ásta Jóna Ragnarsdóttir, fædd 24.
maí 1963, og dóttir hennar Hanna
María Ásgeirsdóttir, fædd 30. maí
1984. Þær áttu heima að Aðalstræti
13 á Akureyri. Systumar sem létust
hétu, Hulda Hauksdóttir, fædd 29.
apríl 1981, og Margrét Hauksdóttir,
fædd 30. maí 1983. Þær áttu heim að
Seljahlíð 9 G, einnig á Akureyri.
Þau sem lifðu af þennan hildarleik
vom foreldrar systranna hjónin
Haukur fvarsson, fæddur 16. júlí
1947, og Ólöf Tryggvadóttir, fædd
29. júní 1956, og eiginmaður Ástu
Jónu, Ásgeir Vilhelm Bragason,
fæddur 1. september 1960.
atvifcuffi lög”TB|5ff’ píJ'fða^T.eftir
Ólöf á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak-
ureyri, en í gærmorgun var Haukur
fluttur til Reykjavíkur á sjúkrahús
vegna vandamála varðandi starfsemi
nýma hans.
Lögreglu hefur ekki tekist að taka
skýrslu af þeim enn sem komið er og
því ekki Ijóst hvemig slysið átti sér
stað, né heldur hver atburðarásin
var eftir að bílnum hvolfdi í ánni,
þar til björgunarsveitir komu á
staðinn. Eftir því sem næst verður
komist, tókst hjónunum, Ásgeiri og
Ástu Jónu að komast út úr bílnum
auk eldri telpnanna tveggja, þeim
Huldu og Margréti. Yngsta telpan,
Hanna María, komst ekki út úr
bílnum og fannst lík hennar þar,
þegar björgunarsveitir komu á
staðinn. Svo virðist sem Ásta Jóna
hafí komist upp á bakkann austan-
megin, en þar fundust hún og Mar-
grét litla látnar, en Hulda uppi á
bílnum þar sem hann var á hvolfi í
ánni. Haukur óð útí og yfir ána, en
hann var á austurbakkanum þegar
þomið var að fólkinu, þá nokkuð
Ásgeir hafi vaðið með yfir tií hans'
auk þess sem hann gróf hann í
snjóskafl. Eftir það mun hann hafa
farið yfir að vesturbakkanum að
nýju til Ólafar og vom þau í bílnum
þegar björgunarsveitir bar að, um
einum og hálfum sólarhring eftir
slysið. -ABÓ
Hópferðabifreið festist í Ströngukvísl:
Fikruðu sig að
landi á kaðli
Hópferðabíll með 22 svissneska
kennara innanborðs festist í
Ströngukvísl við Eldgjá síðdegis á
þriðjudag. Tókst að bjarga fólkinu
í land með því að strengja kaðal frá
rútunni og upp á bakkann og gátu
ferðamennirnir fikrað sig eftir
kaðlinum í land. Engin slys urðu á
mönnum.
Svisslendingamir voru í rútu frá
Guðmundi Jónassyni og voru á
leið úr Eldgjá þegar rútan festist í
ánni. Ökumaður rútunnar vatt sér
út með kaðal og óð með hann í
land í straumþungri ánni og fikr-
uðu ferðamennimir sig eftir kaðlin-
um að landi. Tvo aðra langferða-
bíla bar að og var fólkið í þeim
bílum aflögufært með þurr föt sem
þeir lánuðu blautum Svisslending-
unum.
Að sögn Gunnars Guðmunds-
sonar framkvæmdastjóra Guð-
mundar Jónassonar hf. var önnur
rúta send á staðinn og héldu Sviss-
lendingarnir ferðinni áfram.
Tmkkur björgunarsveitarinnar í
Vík var fenginn til að draga rútuna
upp úr ánni, en það tókst ekki, fyrr
en veghefill hafði bæst í hópinn og
tókst að ná rútunni upp í gærmorg-
un. —ABÓ
Litla leikhusið er nú á leikferð um iandið með Regnbogastrákinn. F.v. Emil Gunnar Guðmundsson, Alda
Amardóttir og Ólafía Hrönn Jónsdóttir í hlutverkum sínum.
Litla leikhúsið í leikferð um landið:
Regnbogastrákur í félagsheimilum
Litla leikhússins með barnaieikritið
Regnbogastrákinn eftir Ólaf Gunn-
arsson.
í dag, þrettánda júlí, verður sýnt
í félagsheimili Borgamess, á morgun
á Hellissandi, á laugardaginn á
Stykkishólmi, daginn eftir í Búðar-
dal, á mánudaginn á Hvammstanga
og síðasta sýningin verður á Hólma-
vík á þriðjudaginn kemur.
gerist uppi í fjöllum og á róluvelli í
þéttbýlinu. Tröllskessa nokkur
vaknar undir jökli eftir að hafa sofið
þar í einhver hundmð ára. Það
fyrsta sem hún heyrir og sér er
jöklasóley, sem er ekkert venjulegt
blóm því hún getur talað. Jöklasól-
eyin er jafnframt systir regnbogans
og getur kallað á hann til að fá
uppfylltar óskir sínar. Tröllskessan
breytist í Regnbogastrák.
Leikendur em Alda Amardóttir,
Emil Gunnar Guðmundsson og
Ólafía Hrönn Jónsdóttir. Leikstjóri
og höfundur leikmyndar og búninga
er Eyvindur Erlendsson, Gunnar
Þórðarson er höfundur laga og höf-
undur söngtexta er Ólafur Haukur
Símonarson. jkb
Milljónatjón hjá afurðastöðvum:
Rúllubaggaheyskapur
elur ostaskaðvalda
Mjólkurfræðingar telja miklar
skemmdir á ostum í ostabúum í
fyrra megi rekja til jarðvegsbaktería
sem myndast í heyi sem unnið er í
rúllubagga. Talið er að milljónatjón
hafi orðið af þessum sökum.
Bakteríumar þrífast í röku og
súrefnissnauðu umhverfi og því
mynda lofttæmdar plastumbúðir
bagganna hin ákjósanlegustu vaxtar-
skilyrði fyrir þær, ef heyinu er pakk-
að blautu.
Rúllubaggaheyskapur hefur mtt
sér mjög til rúms að undanfömu og
samkvæmt upplýsingum frá Bænda-
skólanum á Hvanneyri em námskeið
í slíkri heyverkun þau vinsælustu
sem skólinn stendur fyrir.
Stór hluti mjólkur sem framleidd
er í landinu fer í ostagerð, en
bakteríurnar em hitaþolnar og koma
ekki fram við venjulega flokkun á
mjólk í afurðastöðvum. Þær fjölga
sér í osti þegar hann er búinn að
gerjast í ákveðinn tíma, og valda því
að gas myndast í honum svo að hann
springur allur. Við þetta skemmist
osturinn og á síðasta ári skipti tjónið
af þessum sökum mörgum milljón-
um króna. Afurðastöðvarnar bera
skaðann að öllu leyti og er nú verið
að huga að aðferðum sem gætu
dregið úr þessu, eins og breyttar
flokkunarreglur fyrir mjólk eða hey-
rannsóknir þar sem sérstaklega yrði
leitað eftir bakteríunum. LDH-