Tíminn - 13.07.1989, Qupperneq 12
12 Tíminn
Fimmtudagur 13. júlí 1989
liillllllllllllllllllllllll DAGBÓK
Frá Félagi eldri borgara
Opið hús ( Goðheimum, Sigtúni 3, í
dag, fimmtudag. Kl. 14:00 - frjáls spila-
mennska. Kl. 19:30 er félagsvist og kl.
21:00 dansað.
Athugið!
Farin verður 8 daga ferð um Vestfirði 16.
og 21. júlf nk. Upplýsingar á skrifstofu
félagsins í sfma 28812.
Verkakvennaféiagið Framsókn
fer í sumarferð
Verkakvennafélagið Framsókn fer (
sína árlegu sumarferð 12. og 13. ágúst.
Farið verður með Herjólfi til Vestmanna-
eyja.
Upplýsingar á skrifstofunni f sfma
688930. Ferðanefndin
Sumarferð
Húnvetningafélagsins
Sumarferð Húnvetningafélagsins f
Reykjavík verður farin dagana 15. og 16.
júlí n.k. Gist verður í Þórsmörk.
Upplýsingar f sfmum 41150 - 681941 -
671673.
Sumarferð Nessafnaðar
Sumarferð á vegum Nessóknar verður
farin laugardaginn 15. júlí að Nesjavöll-
um, Gullfossi og Geysi og víðar.
Lagt af stað kl. 10:00 frá Neskirkju.
Fargjald kr. 800 og er matur innifalinn.
Þátttaka tilkynnist í síma 16783 kl. 16:00-
18:00 daglega.
Birfingarfundur á
Borginni kl. 17:00
Rlkisstjórnin: Hvað ætlar hún að verða
þegar hún er orðin stór? er yfirskrift á
fréttatilkynningu um opinn fund á Borg-
inni fimmtudaginn 13. júní kl. 17:00-
19:00.
Málshefjendur eru: Kristfn Ástgeirs-
dóttir, Guðmundur Ámi Stefánsson og
Óskar Guðmundsson. Þau flytja stuttan
inngang. Jón Baldvin Hannibalsson,
utanríkisráðherra og Margrét Frfmanns-
dóttir, þingflokksformaður Alþýðu-
bandalagsins sitja fyrir svörum málshefj-
enda og annarra fundarmanna. Fundar-
stjóri verður Ámi Páll Ámason.
Fundurinn er opinn öllu áhugafólki um
stjómmál.
Siglingar fyrir almenning
á Rauðavatni
1 sumar mun siglingaaðstaða lþrótta-
og tómsstundaráðs á Rauðavatni verða
opin almenningi á eftirfarandi tfmum:
þriðjudögum kl. 16:00-16:30, fimmtu-
dögum kl. 16:00-18:30 og á laugardögum
kl. 13:00-17:00.
Afnot af bátum og björgunarvestum er
ókeypis. Á staðnum verða starfsmenn til
leiðbeiningar.
Iþrótta- og tómstundaráð
Handritasýning í Ámagarði
Handritasýning Stofnunar Áma Magn-
ússonar er f Árnagarði við Suðurgötu á
þriðjudögum, fimmtudögum og laugar-
dögum kl. 14:00-16:00 til 1. september.
Þjóðdansafélag Reykjavíkur:
Þjóðháttamótið „ísleik"
Dagana 14.-23. júlí mun Þjóðdansafé-
lag Reykjavíkur halda sitt þriðja þjóð-
háttamót, sem gengur undir nafninu „Is-
leik“. Á mótið munu koma rúmlega 200
dansarar og spilarar frá öllum Norður-
löndunum, nema Færeyjum.
Mótið hefst með setningarathöfn á
Kjarvalsstöðum 15. júlf. Sunnud. 16. júlí
kl. 14:30 verður farið í skrúðgöngu frá
Hagatorgi niður f miðbæ, þar sem hópar
frá öllum löndunum munu dansa nokkra
dansa. Að þvf loknu verður farið á
nokkur vistheimili hér f bæ og sýnt þar.
Að kvöldi 15., 16. og 18. júlí verður
dansað í Hagaskóla. Verður þar opið
fyrir áhugasama dansara meðan húsrúm
leyfir.
Mánudaginn 17. og þriðjud. 18. júlí
verða námskeið í þjóðdönsum og þjóð-
lagaspili en miðvikudaginn 19. verður
farið í Þórsmörk. Föstud. 21. verður
sýning og dansleikur á Hótel Selfossi.
Mótinu verður slitið sunnud. 23. júlí
með lokahófi á Hótel Sögu.
„Laugavegurinn"
Landmannalaugar - Þórsmörk
Gengjð á fjórum dögum milli göngu-
húsa Ferðafélagsins í Hrafntinnuskeri,
við Álftavatn og á Emstrum. Ferðimar
hefjast í Landmannalaugum eða
Þórsmörk.
14.-19. júlíkl. 20:00 Landmannalaugar
- Þórsmörk
19. -23. júlí kl. 08:00 Landmannalaugar
- Þórsmörk
20. -25. júh' kl. 20:00 Landmannalaugar
- Þórsmörk
21. -26. júlí kl. 20:00 Landmannalaugar
- Þórsmörk.
Takmarkaður fjöldi í hverja ferð. Pant-
ið tímanlega. Upplýsingar á skrifstofu
F.l.
Ferðafélag íslands
Helgarferðlr Ferðafélagsins
14.-16. júlí
1) Snæfellsnes - Elliðahamar - Ber-
serkjahraun. Gengið þvert yfir Snæfells-
nesið skammt vestan við veginn um
Kerlingarskarð. Þama er fjaligarðurinn
mun lægri en víðast annars staðar. Lagt
verður af stað í gönguna frá Syðra-Lága-
felli. Gist í svefnpokaplássi.
2) Þórsmörk. Gist f Skagfjörðsskála/
Langadal. Gönguferðir um Mörkina við
allra hæfi með kunnugum fararstjómm.
3) Landmannalaugar. Gist f sæluhúsi
F.í. f Laugum. Gönguferðir um nágrenn-
ið. Upplýsingar og farmiðasala á skrif-
stofu F.l.
Ferðafélag íslands
Brúa- og vegagerðarmenn
frá Skeiðarársandi hittast
Þann 15. júlf 1989, nákvæmlega 15
ámm eftir að vega- og brúagerð lauk á
Skeiðarársandi, ætla þeir sem unnu á
„Sandinum“ að hittast á fomum slóðum
við Skeiðarárbrú kl. 17:00 (kl. 5 síðd.)
„Brúa- og vegagerðarmenn mæta með
fjölskyldur sínar, rifja upp gamlan kunn-
ingsskap og slá á létta strengi.
Tjaldað verður að Hofi í Öræfum og
matur seldur f samkomuhúsinu, sem er
síðan opið fyrir uppákomur og dans,“
segir í fréttatilkynningu.
Sumarsýningar
í Norræna húsinu
17. júnf vom opnaðar tvær sýningar í
Norræna húsinu. Sýning á málverkum
eftir Jóhann Briem í sýningarsölum. Sýnd
em um 30 málverk öll í eigu einstaklinga
eða stofnana. Verkin em máluð á ámnum
1958 til 1982. Sýningin stendur fram til
24. ágúst og er opin daglega kl. 14:00-
19:00.
JÖRÐ ÚR ÆGI nefnist sýning, sem
opnuð var í anddyri Norræna hússins.
Þessi sýning er haldin í tilefni af 100 ára
afmæli Náttúmfræðistofnunar íslands.
Sýningin lýsir myndun Surtseyjar og ham-
förunum f Heimaey, sem em á margan
hátt táknræn fyrir myndun íslands. Sýndir
em helstu sjófuglar eyjanna og algengar
háplöntur. Éinnig er lýst landnámi lífvera
í Surtsey.
Sýningin verður opin fram til 24. ágúst
og er opin kl. 09:00-19:00, nema sunnu-
daga kl. 12:00-19:00.
Náttúrufræðistofnun Islands á 100 ára
afmæli á þessu ári og því þótti tilvalið að
leita til sérfræðinga stofnunarinnar með
þessa sýningu.
Eyþór Einarsson, forstöðumaður Nátt-
úmfræðistofnunar, Sveinn Jakobsson
jarðfræðingur og Ævar Petersen fugla-
fræðingur hafa ritað skýringartexta, en á
sýningunni em sýnishom af plöntum,
steinum og sjófuglum á Vestmannaeyja-
svæðinu.
Sigurjón Jóhannsson sér um uppsetn-
ingu og hönnun sýningarinnar.
Sýningin verður opin fram til 24. ágúst
og opin kl. 09:00-19:00 nema sunnudaga
kl. 12:00-19:00.
Angela (18 ára) í Englandi
óskar eftir pennavini
Borist hefur bréf frá Angelu Jackson,
18 ára stúlku í Bretlandi. Hún hefur
áhuga á íþróttum, einkum göngum um
fjalllendi, alls konar músfk og dansi.
Ángela hefur átt heima í Norður-lrlandi,
Skotlandi, Þýskalandi og nú f Englandi.
Hana langar til að skrifast á við íslenskt
ungt fólk. Utanáskrift til hennar er:
Miss Angela Jackson,
12 Anteforth View,
Gilling West,
Richmond,
North Yorkshire
DLIO 5JH
England
ÚTVÓRÐUR - Samtók um
jafnrétti milli landshluta
1. tbl. 4. árg. af tímaritinu „Útvörður"
er komið út. Útgefandi er Byggðahreyf-
ingin Útvörður.
Þórarinn Lámsson, ábyrgðarmaður
ritsins, skrifar forystugrein: „Uppspretta
þjóðlífsins" og vitnar þar f texta eftir
Stein Steinarr.
Kostaðu hug þinn að herða, nefnist
grein Hlöðvers Þ. Hlöðverssonar, þar
sem hann ræðir málefni samtakanna.
Sjöfn Halldórsdóttir skrifar um sumar-
komuna, en Marteinn Friðriksson grein,
sem hann nefnir „Gildi landsbyggðar“.
„Þróun dreifbýlisins, breytt viðhorf“, en
það er þýðing erindi sem Ulf Brangen-
feldt flutti í apríl sl. á vegum Norræna
búfræðifélagsins. Gunnlaugur Júlfusson
þýddi. Bolli Gústavsson, prestur í
Laufási, skrifar greinina: Söguhelgi stað-
anna. Ásgeir Leifsson skrifar grein í
blaðið og er fyrirsögnin: Hugmynd um
breytta atvinnuhætti í sveitum, og em þar
viðraðar margar nýjar hugmyndir.
Dr. Sigrún Stefánsdóttir, framkvæmda-
stjóri Fræðsluvarps skrifar: Fræðsluvarp
- ný leið til fjamáms og Guðrún Friðgeirs-
dóttir, skólastjóri Bréfaskólans: Hlutverk
Bréfaskólans í fullorðinsfræðslu.
„Frá farskóla til farskóla", nefnist frá-
sögn Alberts Einarssonar, þar sem hann
segir frá Farskólanum á Austurlandi, sem
sé tilraun til þess að skapa lifandi fræðslu-
hreyfingu á landsbyggðinni.
Margar aðrar greinar em í ritinu um
byggðastefnu og skyld mál, svo sem
„Nytjaskógrækt á Fljótsdalshéraði",
„Sparifé og raunvextir", „Fullorðins-
fræðsla í landbúnaði", „Falskir eldar“,
„Búrið er að tæmast“ og „Viðvömn". Þá
em greinamar „Gæfumenn fylgi góðu
máli heilu í höfn“, sem er erindi sr.
Heimis Steinssonar á Þingvöllum, sem
hann flutti á aðalfundi Samtaka sunn-
lenskra sveitarfélaga á Hellu í apríl sl. og
Sigurður Helgason skrifar: Saga Ný-
fundnalands er lærdómsrfk.
Á forsíðu ritsins er mynd af Borgarvirki
í V-Húnavatnssýslu, sem tekin er af
Rafni Hafnfjörð.
Ljóð tileinkuð
komu páfa tii íslands
Stjörnumar í hendi Maríu, 61 Ijóð
eftir Ragnhildi Ófeigsdóttur. er komin út
hjá útgáfufélaginu Bókrún. Höfundur
tileinkar ljóðin komu Jóhannesar Páls
páfa II til íslands.
Ragnhildur Ófeigsdóttir er kaþólskur
Reykvíkingur, sem hefur dvalist og stund-
að nám erlendis. Stjömumar í hendi
Maríu er önnur ljóðabókin eftir Ragn-
hildi sem kemur út hjá útgáfufélaginu
Bókrún og er í sama broti og Andlit í
bláum vötnum sem kom út 1987. Fyrsta
bók höfundar, Hvísl, kom út 1971.
Stjömumar í hendi Maríu em Ijóð
trúarlegs eðlis, helgikvæði og hymnar.
Bókin er 140 bls. kilja. Setning og umbrot
varunnið í Félagsprentsmiðjunni, Libreis
prentaði og Félagsbókbandið annaðist
band. Bókin er fáanleg hjá Bókrún, Máli
og menningu og Sigfúsi Eymundssyni.
BLÝLÝSI
— Ijóð og Ijóðsögur
BLÝLÝSI nefnist nýútkomin bók eftir
Siguriaug Elíasson. Utgefandi er ljóða-
forlagið Norðan Niður á Sauðárkróki, en
Myrkfælnisjóður styrkti útgáfuna.
Höfundur er fæddur 1957. Áður hafa
komið út eftir hann tvær ijóðabækur:
Grátónaregnboginn (1985) og Brann-
klukkutuminn (1986). Blýlýsi geymir ljóð
og ljóðsögur sem skipað er í þrjá kafla á
50 síðum. Bókin er kilja, höfundur hann-
aði sjálfur og myndskreytti.
Verslunartíðindi
l.tbl. 40. árg.
Verslunartíðindi er málgagn kaup-
mannasamtaka íslands. Jón Birgir Péturs-
son ritstjóri skrifar forastugrein: Kaup-
menn og náttúravemd og Snjóþungur
vetur.
Blaðið birtir margar fréttir og frásagnir
frá Akureyri, en þar var blaðamaður
Verslunartíðinda á ferðinni í mars sl.
Komið er við í mörgum verslunum þar í
bæ og birtar myndir af verslunarfólki.
í blaðinu er viðtal við Þorvald Hall-
grímsson, og frásögn hans af Höepfners-
verslun, sem faðir hans, Hallgrfmur Dav-
íðsson, rak á árum áður. Þá er birt ræða
Guðjóns Oddssonar, formanns kaup-
mannasamtakanna, sem hann hélt á aðal-
fundinum á Akureyri 8. apríl sl.
Margar fréttir úr félagslffi verslunar-
fólks era í blaðinu og m.a. mynd af
þremur gullverðlaunahöfum, Sigurði E.
Haraldssyni, Guðjóni Oddssyni og Birki
Skarphéðinssyni, sem alUr vora sæmdir
gullmerki KÍ.
Sumarsýning FÍM
Nú stendur yfir sumarsýning FÍM,
Félags íslenskra myndlistamanna, í FÍM
salnum, Garðastræti 6.
Á sýningunni era verk eftir félagsmenn
FÍM. Sýningin stendur til 15. ágúst og
verður skipt utn verk annað veifið á
sýningartímanum.
FÍM salurinn er opinn virka daga kl.
13:00-18:00 ogumhelgarkl. 14:00-18:00.
Sölugallerí er í kjallara salarins.
I