Tíminn - 13.07.1989, Síða 17
Fimmtudagur 13. júlí 1989
Tíminn 17
í GLETTUR
- Ég les aldrei slúðurfréttirnar...
-Georg, útskýrðu þaðfyrirþessum asna, aðbíllinn
okkar hefur engan afturábak-gír, ... eða er það
nokkuð, ha?
- Hann er svo viðkvæmur fyrir því að vera svona
lágvaxinn ...
- Ég ætla bara að horfa á þessa skemmtilegu.
kaffiauglýsingu, - og svo ætla ég að búa til te handai
okkur
- Ég ætla að fá mér göngutúr. Renndu út svona eins
og tveim kílómetrum af rauða dreglinum...
Meryl Streep, Roseanne Barr, Sylvia MUes, leikstjórínn Susan Seidelmann og Linda Hurt. Konumar sem standa að,,Ævi
kvendjöfuls“ sem verið er að kvikmynda í Bandaríkjunum.
Kvennastjörnufans í
„Æfi kvendjöfuls“
Pað verður stjörnufans í
kvikmyndinni „Ævi kven-
djöfuls" sem nú er verið að
kvikmynda í Bandaríkjun- -
um. Þetta er þó ekki í fyrsta
skipti sem „Æfi kvendjöfuls“
þessi stórkostlega bók Fay
Weldons er kvikmynduð. fs-
lenskir sjónvarpsáhorfendur
ættu að muna eftir bresku
framhaldsmyndaflokknum
„Ævi kvendjöfuls" sem sýnd-
ur var í ríkissjónvarpinu í
vetur og vöktu mikla athygli.
En nú er komið að Banda-
ríkjamönnum að kvikmynda
„Æfi kvendjöfuls“ og ættu
íslenskir kvikmyndahúsgestir
að sjá afurðina í kvikmynda-
húsum borgarinnar næsta
vetur.
Það eru engir slorleikarar
sem leikstjórinn Susan Sei-
delman fær til liðs við sig, en
Susan var einmitt leiksjórinn
í „Desperately Seeking
Susan“ með Roseanne Ar-
quette og Madonnu í aðal-
hlutverkum.
Það verður Roseanne Barr
sem leikur kvendjöfulinn, en
Roseanne er best þekkt fyrir
hina vinsælu gamanþætti
„Roseanne". Meryl Streep
mun leika rithöfundinn róm-
antíska sem stingur undan
Roseanne. Sylvia Miles mun
leika aldraða móður Streep
og Linda Hurt leikur hjúkr-
unarkonuna sem vingast við
kvendjöfulinn Roseanne.
Semsagt tvær leikkonur sem
hlotið hafa óskarsverðlaun og
að auki ein vinsælasta gaman-
leikkona Bandaríkjanna.
„Leikskipan er nokkuð
sérstök“ segir leikstjórinn
Susan Seidelmann. „Það er
dramatíska leikkonan sem
leikur hina kímnu og léttu
konu, en gamanleikkonan
sem leikur alvarlega hlut-
verkið. Meryl er sú kímna,
en getið þrisvar hver mun
síðast hlægja“.
Afabarn Mussolinis
og frænka Sophiu
Loren leikur
Gyoingastúlku
Fallegir leggirnir og geisl-
andi græn augun klingja
bjöllum. Það gerir nafnið
líka. Þetta er hin 24 ára
ítalska leikkona Alessandra
Mussolini. Fætumir og fal-
legu augun minna á frænkuna
Sophiu Loren. Nafnið á
afann, einræðisherrann Beni-
to Mussolini.
Á meðan tengslin við
frænkun Sophiu opna Ales-
söndru dyr, þá hefur afinn
Benito lokað öðram. En þrátt
fyrir það gengur Alessöndru
flest í haginn í dag.
En það var fyrir fimm árum
sem Alessandra fékk hlut-
verk sem Gyðingakona. En
eftir að ítalskir Gyðingar
höfðu látið öllum illum látum
vegna Mussolini nafnsins, þá
var Alessöndru sagt upp. En
hún lét ekki deigan síga,
enda hefðu hvorki Sophia
Loren né Benito Mussolini
gefist upp að svo stöddu.
Nú er Alessandra að leika
í kvikmynd, meira að segja í
fsrael, svo það er greinilegt
að töfrarnir frá Sophiu Loren
kveða órðstír Benitos Musso-
linis í kútinn - og þó. Aless-
andra, þessi hrífandi leik-
kona, leikur Gyðingastúlku -
sem einnig er hermaður.
„Fólk hefur verið mjög
vinsamlegt," segir Alessan-
dra og segist ekkert finna
fyrir því nú að vera bamabarn
hins illræmda fasista og ein-
ræðisherra sem leiddi ítali út
í blóðuga heimsstyrjöld með
Hitler og þýskum nasistum.
Enda var það ekki nafnið
sem vakti styr hjá þessari
huggulegu stúlku er hún sótti
grátmúrinn heim. Onei, það
voru fallegir leggirnir sem
hún varð að hylja með klæð-
um á hinum heilaga stað Gyð-
inga. En á þessari mynd er
hún gengin frá Grátmúmum
og leggirnir aftur komnir í
ljós.