Tíminn - 13.07.1989, Page 19
Fimmtudagur 13. júlí 1989
Tíminn 19
Það var mikil barátta sem einkenndi leik FH og Fylkis í Árbænum í gærkvöldi
Tímamynd Pctur.
Knattspyrna 1. deild
Hörður skoraði þrennu
- FH-ingar unnu Fylkismenn (4-0) í Árbænum í gærkvöldi
Fylkismenn fóru illa að ráði sínu
þegar þeir töpuðu fyrir FH-ingum
(4-0) á heimavelli sínum í Árbænum
í gærkvöldi. Leikurinn einkenndist
af mikilli baráttu lengst af en þegar
Fylkismenn brenndu af vítaspyrnu í
seinni hálfleik hrundi spil þeirra og
FH-ingar gengu á lagið. og skoruðu
hvert markið á fætur öðru undir lok
leiksins.
Það voru Fylkismenn sem voru
fyrri til að koma knettinum í mark
andstæðinganna en mark þeirra var
réttilega dæmt af vegna rangstöðu.
Rétt fyrir lok fyrri hálfleiks var
Guðmundur Valur Sigurðsson felld-
ur inni í vítateig Fylkismanna og
Hörður Magnússon skoraði úr vítinu
af öryggi, (1-0) í hálfleik.
Um miðjan síðari hálfleik fengu
Fylkismenn síðan gullið tækifæri til
að jafna en Gústaf Vífilsson skaut
framhjá úr vítaspyrnu. FH-ingar
gerðu svo út um leikinn er þeir
skoruðu þrjú mörk á þriggja mín-
útna tímabili. Hörður Magnússon
skoraði tvívegis á 76. og 78. mínútu
og mfnútu síðar innsiglaði Pálmi
Jónsson síðan sigurinn er hann skor-
aði fjórða mark FH-inga.
Þeir Hörður Magnússon og Pálmi
Jónsson voru mjög frískir í þessum
leik og léku vörn Fylkismanna oft
grátt en hjá Fylkismönnum var Bald-
ur Bjarnason sprækur. En hann eins
og allt Fylkisliðið gafst upp í lok
leiksins og því fór sem fór. KHG
Horft og lært
- Komin eru út myndbönd fyrir íþróttaunnendur
Bergvík hf. hefur gefið út
myndbönd, sem ætluð eru til leið-
beiningar og skemmtunar. Spól-
umar sem hér um ræðir eru sjö
talsins og em fleiri væntanlegar.
Saga frægra enskra knattspyrnu-
liða er rakin á fjómm spólum, ein
spólan er með frábæm kennsluefni
í golfi, önnur er til leiðbeiningar
við fluguveiði og enn ein spólan
leiðbeinir fólki við þjálfun hunda.
Aðdáendur enska knattspymu-
klúbbsins Liverpool geta glaðst því
ein spólan inniheldur sögu þessa
fræga knattspyrnuliðs. Liverpool
liðið er ömgglega það lið sem notið
hefur einna mestra vinsælda í
breskri knattspymu.
Sögu núverandi Englandsmeist-
ara Arsenal em einnig gerð vegleg
skil á einni spólunni. Þetta fræga
knattspyrnufélag heldur einmitt
upp á aldargamalt afmæli sitt um
þessar mundir.
Sögu frægasta knattspymuliðs
heimsins í dag Manchester United
em auðvitað gerð góð skil. Ekkert
lið í heiminum hefur stærri aðdá-
endaskara en Manchester United,
enda hefur þetta sögufræga Iið
alltaf verið stórt nafn.
Fjórða knattspyrnuspólan sem
komin er út er ein markaspóla.
Sýnt er 101 frábært mark á 65
mínútum. Hinar knattspyrnuspól-
umar er allar 90 mínútur.
*
Það er Bjami Felixson sem talar
inn á allar þessar knattspyrnuspól-
ur.
Kennslumynd í golfi er full af
fróðleik þar margir bestu golfkenn-
arar heims sýna réttu handbrögðin
í golfi. Það er hinn þekkti golfleik-
ari Peter Aliss sem stjórnar ferð-
inni en spólan, sem er um tveir
tímar að lengd, er með íslenskum
texta.
Góð leið til að læra að veiða fisk
er að horfa á reynda veiðimenn að
störfum og það er einmitt það sem
myndbandsspólan Fluguveiði sýnir
þér. Með Arthur Ogelsby sem
leiðbeinanda er farið vandlega í
alla tækni og brögð sem fluguveiði-
menn þurfa á að halda. Það er
Ásgeir Ingólfsson sem er þýðandi
og þulur.
Sjöunda spólan fjallar um þjálf-
un hunda. Það er Barbara Wo-
odhouse sem sýnir hvemig hægt er
að yfirstíga öll helstu hegðunar- hf., í hinum ýmsu sportvömversl-
vandamál sem allir hundaeigendur unum og hjá Sjónvarpinu, þær
þurfa að kljást við. kosta 2.980 kr. hver. KHG
Spólur þessar fást hjá Bergvík
with Barbara Woodhouse
mm
THE WOODHOySE WAY