Tíminn - 13.07.1989, Blaðsíða 20
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 —686300
RÍKISSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAR Holnathúsinu v/Tryggvagötu, ® 28822 L “O0#- w § SAMVINNUBANKI ISLANDS HF. ÞRttSTllR 685060 VANIR MENN PÓSTFAX TÍMANS 687691
Tíniiiin
FIMMTUDAGUR 13. JÚLÍ1989
Ríkisstjómin fundar á Þingvöllum um 4 milljarða gat á fjárlögum og ætlar að
fylla upp í það að stærstum hluta með innlendum lántökum:
3 milljarða kr. aukin
lán án hækkunar vaxta
Ríkisstjórnin kom saman til aukafundar á Þingvöllum í
gærkveldi. Aðalefni fundarins var hvernig mæta skyldi
rúmlega 4 milljarða gati sem stefnir nú í á fjárlögum.
Líklegt þykir að stoppað verði í stæstan hluta gatsins með
innlendum lántökum, en fyllt verði upp í hluta þess með
aukinni fjáröflun og sparnaði útgjalda. Fundinum var ekki
lokið þegar blaðið fór í prentun í gærkveldi.
Endurskoðuð áætlun uni af- skýringar á versnandi afkomu
komu ríkissjóðs gerir ráð fyrir að ríkissjóðs: Það er hækkun verðlags
tekjuhalli á þessu ári geti orðið allt
að 4,2 milljarðar, verði ekki gripið
til sérstakra ráðstafana. í áætlun
þeirri sem nýlega er komin út er
gert ráð fyrir að breytt innhcimta
skatta, sparnaður, og niðurskurður
gjalda skili einum og hálfum til
tveimur milljörðum upp í fjárlaga-
gatið en afganginn á að brúa með
allt að 3 milljaröa kr. innlendum
lántökum.
í skýrslunni frá fjármálaráðu-
neytinu cru gefnar þrjár megin
untfram laun og meiri samdráttur
innanlands en reiknað var með í
fjárlögum, niðurfelling skatta í
kjölfar kjarasamninga í vor og
ýmsar ákvarðanir um aukin ríkisút-
gjöld. Áætlað er að tekjur aukist
um 1,1 milljarð kr. frá áætlun á
fjárlögum um áramót. Það er mun
minna en nemur breyttum verð-
lagsforsendum en á móti hærra
verðlagi koma minni tekjur vegna
lækkunar og niðurfellingar skatta í
tengslum viö gerð kjarasamninga í
vor og meiri samdráttar í veltu.
Alls er gert ráð fyrir að 3,4 mill-
jarðar fari til viðbótarútgjalda sem
ákveðin voru m.a. í tengslum við
kjarasamninga og vegna erfiðrar
stöðu atvinnuveganna. Bein verð-
uppfærsla á rekstrarliði fjárlaga er
hálfur þriðji milljarður og vegur
þar þungt aukinn kostnaður vegna
kjarasamninga opinberra starfs-
manna í vor.
Eins og greint var frá í Tímanum
fyrir skömmu, er nú þegar búið að
tryggja sölu spariskírteina ríkis-
sjóðs fyrir 3,2 milljarða króna. Við
gerð fjárlaga var gert ráð fyrir að
innlent lánsfé ríkisins á þessu ári
næmi um 5 milljörðum. Eigi að
stoppa upp í meirihluta fjárlaga-
gatsins með auknum lántökum, er
ljóst að afla verður innlends láns-
fjár fyrir rúmlega 8 milljarða. Segja
skýrsluhöfundar að í ljósi stöðunn-
ar á lánsfjármarkaðinum sé alls
ekki útilokað að unnt sé að afla
þessa fjár og muni mikil innlausn
spariskírteina ríkissjóðs í haust
auðvelda það verk. Þrjú atriði eru
nefnd til að þetta megi takast án
þess að til hækkunar vaxta komi.
Að gerðar verði lagabreytingar er
veiti einstaklingum eignarskatts-
frelsi á hlutdeildarskírteinum
verðbréfasjóða, sem aðeins yrðu
saman settir úr verðbréfum ríkis-
sjóðs. Einnig verði athugað hvort
ekki sé hægt að auka kaupskyldu
verðbréfasjóðanna á spariskírtein-
um. Að sett verði á markaðinn
sérstök skuldabréf fyrir lífeyris-
sjóði og aðra stóra kaupendur. Að
tekin verði ákvörðun um að Hús-
næðisstofnun nýti ekki meira en 9
milljarða af ráðstöfunarfé lífeyris-
sjóðanna í ár, til þess að unnt verði
að fá meira fé frá sjóðunum til
kaupa á ríkisskuldabréfum. Þessu
til viðbótar kæmi til greina að
semja sérstaklega við bankana og
lífeyrissjóðina um lántökur.
Samanlagt er aukning á gjalda-
hlið fjárlaga tæpir sex milljarðar
króna. Þar vega þyngst auknar
niðurgreiðslur búvara, en gert er
ráð fyrir um 700 milljóna aukafjár-
veitingu til niðurgreiðslu búvara,
auk fjárveitingar til útflutningsbóta
upp á 200 milljónir. Sérstök 150
milljóna kr. fjárveiting var sam-
þykkt af ríkisstjórninni til atvinnu-
mála skólafólks og önnur eins upp-
hæð ntun fara til greiðslu á van-
goldnum launum fyrrverandi
starfsfólks gjaldþrota fyrirtækja.
Þá fara tæpar 400 miiljónir í auknar
greiðslu lífeyristrygginga og 550
milljónir í auknar greiðslur sjúkra-
trygginga. - ÁG
Hollustuvemd ríkisins fylgist meö PCB mengun:
PCB að finna í
heimilistækjum
Að sögn Birgis Þórðarsonar hjá
Hollustuvernd ríkisins á mest af
rafspennum sem innihalda PCB að
vera farið úr landi í kjölfar umfangs-
mikils átaks sem gert var til að safna
þeim saman. Eitthvað mun þó hugs-
anlega vera cftir af smærri rafspenn-
um eða þéttum, nieðal annars í
heimilistækjum, og er stefnt að at-
liugun og cftirliti með því hvernig
þeim inálum er háttað.
1 næstu viku fást niðurstöður úr
rannsóknum á sýnum, úr rafspenn-
um frá fyrirtækinu Hringrás, scm
send voru til greiningar í Danmörku
eftir frumgreiningu hér á landi,
vegna gruns um PCB mengun.
Bráðabirgðaniðurstöður benda til að
hugsanlega geti verið um niengun að
ræða.
Notkun á PCB hefur víðast hvar
verið bönnuð þar sem um stórhættu-
legt eiturefni er að ræða. „f>ó megin-
hluti stærri tækjanna sé farinn úr
landi er möguleiki að efnið finnist í
spennum eða þéttum í heimilistækj-
um eins og þvottavélum, þurrkurum
og því um líku og við höfum tekið á
móti nokkrum slíkum tækjum.
Rannsóknir á því hafa verið í athug-
un hjá okkur en málið er tiltölulega
stutt komið ennþá. Hættan er mjög
lítil þar sem magnið er yfirleitt ekki
nema nokkur grömm, miðað við
stór tæki þar sent oft á tíðum er um
að ræða hundruð lítra. En þetta
safnast þegar saman kemur og það
er full ástæða til að hafa eftirlit með
þessu,“ sagöi Birgir í samtali við
Tímann.
Rafmagnstækin sem um ræðir
koma frá löndum á borö við Ítalíu
og jafnvel Frakkland. En mjög
breytilegt er hve ströng framleiðslu-
ákvæði eru í hverju landi fyrir sig. í
Þýskalandi og Svíðþjóð hefur notk-
un efnisins til að mynda verið bönn-
uð alfarið í mörg ár. „Þjóðverjar
hafa einmitt verið að gera átak til
þess að útiloka PCB í heimilistækj-
um, hvort sem þau eru framleidd þar
í landi eða innflutt. Það getur líka
veriö að efnið sé til staðar í vissum
hlutum tækjanna sem eru framleidd-
ir annars staðar, þó sjálft tækið konii
frá, til að mynda Þýskalandi," sagði
Birgir.
PCB er eiturefni sem brotnar
seint og illa niður í náttúrunni. Mest
mengun af völdum efnisins er í sjó.
„Við strendur íslands hefur enn
sem komið er fundist tiltölulega lítið
að efninu en eins og ég sagði áður er
full ástæða til að halda uppi ströngu
eftirliti," sagði Birgir. jkb
Eldri borgarar í leigubílaferð
Leigubílalestin á leið niöur Kambana. í henni voru uni 50 bílar.
Stoppað var í Eden í Hveragerði á leiðinni til Selfoss. Hér má sjá nokkra
eldri menn ganga Uin Staöinn. Tímamyndir: Árni Bjarna
Leigubílstjórar á Hreyfli buöu í
gær cldri borgurum frá Seljahlíð.
Hrafnistu og Sólvangi í ferðalag til
Hveragerðis og Selfoss. Um 50
leigubílar með um 130 manns
lögðu af stað frá Reykjavík um kl.
13:00 og var keyrt í einni lest til
Hveragerðis. Stoppað var í Eden í
um klukkustund og síðan haldið til
Selfoss. Boðið var upp á veitingar
í Hótel Selfoss og bæjarstjóri heils-
aði upp á fólkið. Eftir nokkurn
tíma á Sclfossi var keyrt yfir Óseyr-
arbrú og þaðan til Reykjavíkur.
Að sögn Kristins Snælands,
leigubílstjóra, voru svona ferðir
talsvert algengar áður fyrr. Þá var
vistfólki af Vífilsstöðum og
Reykjalundi boðið í dagsferðir
með leigubílum Hreyfils. Þær ferð-
ir lögðust af um 1960, en hugmynd-
in er að reyna að koma þcim á
aftur.
Leigubílstjórarnir keyra fólkið
algerlega endurgjaldslaust. „Það
er ekki algengt að gamla fólkið sé
með einkabíla, því notar það leigu-
bílana mjög mikið. Það má því
segja að við séum að þjóna bestu
viðskiptavinunum með því að
bjóða þeim einn túr ókeypis,"
segir Kristinn. GS