Tíminn - 29.08.1989, Side 16
AUGLYSINGASIMAR: 680001 —686300
:
RÍKISSKJP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hotnarhúsinu v/Tryggvagotu,
a 28822
i
‘0^0-
, ,
SAMVINNUBANKI tSLANOS HF.
V
rimiim
ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 1989
Ríkisstjórnin leggurfyrirborgaradrög aðsamkomulagi um stjórnarsamstarf. Óeining
innan flokksins varðandi afstöðu til tilboðsins sem felur í sér að borgarar fái tvo ráðherra:
BOLTINN LIGGUR NU
HJÁ BORGARAFLOKKI
Þingflokkur Borgaraflokksins fékk í gær formlegt
tilboð frá ríkisstjórninni, er innheldur drög að samkomu-
lagi að stjórnarsamstarfi flokksins og stjórnarinnar.
Formleg afstaða hefur ekki verið tekin til tilboðsins
ennþá, en samkvæmt heimildum Tímans eru skiptar
skoðanir innan flokksins um ágæti þess og eru Aðalheið-
ur Bjarnfreðsdóttir, Óli Þ. Guðbjartsson og Ásgeir
Hannes Eiríksson hlynnt því að ganga inn í stjórnina á
forsendum tilboðsins, en Júlíus Sólnes og Guðmundur
Ágústsson á móti.
Þingflokkur borgaraflokks-
manna fundaði um samkomulags-
drögin strax cftir að þeir fengu
þau í hendur í gær. Útlit var fyrir
seint í gærkvöldi að fundi yrði
frestað og að öllum líkindum yrði
boðað til fundar seinni partinn í
dag, eða á morgun eftir að athuga-
semdum hefur verið komið til
ríkisstjórnarinnar og fengin við
þeim viðbrögð. Talið er fullvíst að
dagurinn í dag verði notaður til
áframhaldandi samninga og
endanleg úrslit ráðist í málinu á
morgun, en fullur vilji mun vera
fyrir því hjá báðum aðilum að
ljúka sem fyrst því samningaþófi
sem staðið hefur s.l. átta mánuði
milli borgara og ríkisstjórnarinn-
ar. En eins og staðan er nú liggur
boltinn hjá borgurum.
Það tilboð sem Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra af-
henti Júlíusi Sólnes formanni
Borgaraflokksins á sjötta tíman-
um í gær er ekki endanlegt af
hálfu stjórnarinnar. í því er gert
ráð fyrir að Borgaraflokkurinn fái
í sinn hlut tvö ráðuneyti, dóms- og
kirkjumálaráðuneyti og umhverf-
ismálaráðuneyti, sem ráðgert er
að sett verði á laggirnar um næstu
áramót. í tilboði ríkisstjórnarinn-
ar er komið að verulegu leyti til
móts við helstu kröfur borgara-
flokksmanna fyrir stjórnarþátt-
töku. Þar er m.a. kveðið á um
afnám innlendra vísitöluviðmið-
ana í lánssamningum eins fljótt og
unnt er. Sami fyrirvari er þó
hafður á og áður hefur verið af
hálfu ríkisstjórnarinnar, að árs-
hraði verðbólgu verði innan við
10% miðað við sex mánaða tíma-
bil aftur í tímann. Þá eru inn í
samningsdrögunum ákvæði þess
efnis að skattlagning fjármagns-
tekna og launatekna verði
samræmd, að kannaðar verði leið-
ir til að örva fjárfestingar í hluta-
bréfum og að fjölskyldum sem eru
í fjárhagserfiðleikum vegna hús-
næðiskaupa verði veitt aðstoð
með skuldbreytingum.
Eitt af atriðunum í kröfum
Borgaraflokksins var lækkun mat-
vælaverðs, m.a. með tveimur þrep-
um á skattstigi virðisaukaskatts.
Þar er reyndar um sama atriði að
ræða og framsóknarmenn hafa
lagt áherslu á, en andstaða er við
tveggja þrepa skattstig innan Al-
þýðullokksins. I drögum að sam-
komulagi um stjórnarsamstarf
milli Borgaraflokksins og ríkis-
stjórnarinnar er þeirri hugmynd
varpað fram að virðisaukaskattur-
inn verði í tveimur þrepum, nema
á smásölustigi þar sem hann verði
í einu þrepi til að tryggja skattaskil
og á móti komi endurgreiðsla
skattsins til framleiðenda. Þetta
atriði er eftir því sem næst verður
komist ekki útkljáð á milli stjórn-
arflokkanna sjálfra. í tilboðinu er
kveðið á um að leitað verði leiða
Gluggað í tilboð ríkisstjórnarinnar á þingflokksfundi í gær. F.v. Guðmundur Agústsson,
form. þingflokks borgara, og Júlíus Sólnes, formaður Borgaraflokksins.
li Þ. Guðbjartsson,
Tímamynd: Árni Bjarna
til lækkunar búvara og stefnt skuli
að betri nýtingu þess fjármagns
sem til landbúnaðarmála er varið.
Þá eru í boði ýmsar aðrar úrbætur
sem falla að kröfum borgara, til
dæmis að við endurskoðun skatt-
kerfisins verði athugað með hvaða
hætti megi nota húsaleigubætur
eða styrki til þess að jafna stöðu
þeirra er búa í eigin húsnæði og
leiguhúsnæði, ásamt því að bæta
aðstöðu þeirra sem illa eru settir
fjárhagslega.
Þingflokkur framsóknarmanna
sat á löngum fundi í gær, þar sem
væntanlegt samstarf við Borgara-
flokk var m.a. rætt. Nokkuð skipt-
ar skoðanir eru uppi meðal þing-
manna flokksins um hversu langt
flokkurinn eigi að teygja sig til
móts við borgara, á meðan hinir
samstarfsflokkarnir í ríkisstjórn
láti lítið sem ekkert af hendi
rakna. Fullvíst má telja að ekki
verði um frekari tilslakanir-að
ræða frá hendi framsóknarmanna
og því ljóst að fari borgaraflokks-
menn fram á aukin völd við skipt-
ingu ráðuneyta liggur boltinn hjá
Alþýðuflokki og Alþýðubanda-
lagi. - ÁG
Bamaspítali Hringsins fær stórgjöf frá frægum leikara:
Paul Newman gefur600 þús
Newnmn's own, Foundation INC.'
hefur ákveðið að gefa fjárhæð í
byggingarsjóð Barnaspítala
Hringsins. Fyrirtækið framleiðir
ýmis konar matvöru og er eins og
nafnið bendir til stofnað af leikaran-
um góðkunna Paul Newman en allur
arður af rekstrinum rennur til góð-
gerðarstarfsemi.
Víkingur Arnórsson yfirlæknir
Barnaspítala Hringsins staðfesti í
gær að borist hefði tilkynning um
gjöf þessa og sagði hann að hún yrði
afhent formlega innan skamms.
Ingvar J. Karlsson framkvæmda-
stjóri Karls K. Karlssonar hf. sem er
umboðsaðili fyrir vörurnar frá Paul
Newman sagði í gær að upphæðin
sem um væri að ræða væri um tíu
þúsund dalir.
Hann sagði að þessi gjöf hefði
fyrst komið til tals síðastliðið haust
og hefði Paul Newman óskað eftir
gögnum um hvort spítalinn væri
rekinn sem góðgerðastofnun en ekki
með hagnaðarsjónarmið að leiðar-
ljósi. Eftir að honum hefðu borist
umbeðin gögn hefði nú fyrir
skömmu borist bréf til fyrirtækisins
þar sem tilkynnt var um gjöfina og
jafnframt látið að því liggja að um
framhald gæti orðið að ræða.
Matvælaframleiðsla Paul New-
man er til komin að hluta til vegna
matreiðsludellu hans en að hluta til
vegna áhuga hans á líknarmálum.
Fyrir rúmum áratug lést sonur
Newmans og konu hans Joan Wood-
ward af ofneyslu eiturlyfja og varð
of stór skammtur heróíns honum að
aldurtila.
Það varð til þess að Newman sneri
sér að krafti að því að berjast gegn
eiturlyfjaneyslu og að endurhæfingu
eiturlyfjasjúklinga en síðan hefur
þessi starfsemi víkkað út og aukist
og hefur leikarinn lagt bæði fé og
fyrirhöfn í að aðstoða félög og
stofnanir sem annast barnalækning-
ar og endurhæfingu sjúkra barna.
Newman's own fyrirtækið er stofnað
í því augnamiði að hagnaður af því
renni óskiptur til líknarmála af of-
annefndu tagi. -sá