Tíminn - 18.10.1989, Page 5

Tíminn - 18.10.1989, Page 5
Miðvikudagur 18. október 1989 Tíminn 5 Horfur að glseðast á lagmetismarkaðinum: TENGELMANN KAUPIR NÚ ÍSLENSKA RÆKJU Á NÝ Vestur-þýska fyrirtækið Tengelmann skrifaði í fyrradag undir rammasamning við Sölusamtök lagmetis um kaup á niðursoðinni rækju á sjávarútvegsýningunni í Köln og fer fyrsta sendingin utan í desember. Sem kunnugt er hætti Tengelmann kaupum á niðursoðinni rækju á síðasta ári og ástæðan sögð vegna hvalveiða íslendinga. Vonir standa til að Aidi-suður, sem einnig hætti kaupum á lagmeti á sömu forsendum, komi til með að hefja viðskipti að nýju. Að söng Eiríks Valssonar skrif- stofustjóra Sölusamtaka lagmetis hófust viðræður við Tengelmann fyrir alvöru í sumar, þegar sjávarút- vegsráðuneytið gaf út yfirlýsingu þess efnis að hvalveiðum væri hætt í bili að minnsta kosti. „Það var síðan á mánudag að skrifað var undir samning og fer fyrsta sendingin út í desember, þannig að við missum af jólavertíðinni að mestu leyti nú í ár,“ sagði Eiríkur. Hann taldi því ekkert til fyrirstöðu að hægt væri að framleiða niður- soðna rækju upp í samningana. Ei- ríkur nefndi sem dæmi að fram- leiðsla hefði legið niðri hjá Hik á Húsavík, að mestu leyti hjá Pól- stjörnunni og Niðursuðuverksmiðj- an hf. á ísafirði hafi ekkert soðið frá í byrjun febrúar og þar til í sumar þegar farið var í gagn aftur vegna samninga sem tókust við Aldi- norður. Hann sagði að Tengelmann ætlaði sér auðsjáanlega að byrja smátt, aðspurður hvort magnið sem hann keypti væri á við sem áður var. „Við fáum ekki að vera einir um hituna hjá honum fyrsta kastið," sagði Eiríkur. Hins vegar eru kaup Aldi-norður svipuð og áður var. Aðspurður hvaða áhrif þetta hefði á birgðastöðuna hér heima, sagði Eiríkur að rækjubirgðirnar væru svo að segja allar farnar, en þær fóru að mestu á Japansmarkað, en til væri kavíar fyrir Tengelmann, sem færi að verða óseljanlegur, þar sem hann hefði takmarkað geymsluþol. „Við erum að vonast til þess að Tengel- mann ákveði sig með að kaupa kavíarinn, þar sem aðalsölutími hans er í desember og hann er pakkaður og tilbúinn til afhending- ar. „Ef hann selst ekki núna, þá er hann ónýtur," sagði Eiríkur. Þá mun vera til einhverjar birgðir af umbúðum fyrir Aldi-suður. Ekki er ólíklegt að takast megi að selja kavíar og sfldarafurðir á Japans- markað, að undangenginni vöru- þróun. Eins og áður sagði hóf Aldi-norð- ur að kaupa rækju á ný í sumar, auk þess sem í september náðust samn- ingar við fyrirtækið um kaup á 13 fullum gámum af kavíar að verðmæti um 30 milljónir króna til afhendingar í nóvember nk. Eiríkur var bjart- sýnn á að ná mætti samningum við Aldi-suður á ný. Samningar tókust einnig við Coop fyrirtækið í haust, um kaup á rækju. Eiríkur sagði að svo virdst sem einnig væri farið að lifna yfir sölu lagerfyrirtækis þeirra í Þýskalandi. Hann sagði að ekki hefði farið út ein dós af rækju síðan í fyrra vor, þar til um daginn að gámur fullur af niður- soðinni rækju seldist og taldi hann það benda til þess að hreyfing væri að komast á hlutina. -ABÓ Fiskur undir ísteppi Kaupfélag Svalbarðseyrar: Hæstiréttur hefur staðfest fjárnám Hæstiréttur hefur staðfest fjárnám Iðnaðarbanka íslands í eignum Bjarna Hólmgrímssonar stjórnar- manns í Kaupfélagi Svalbarðseyrar vegna fimrn milljón króna víxils, sem Bjarni var ábyrgðarmaður á fyrir kaupfélagið. Áfrýjun sína byggði Bjarni á því að þegar honum hafi verið birt stefna vegna skuldarinnar í ágúst á síðasta ári, hafi málið verið fyrnt, þar sem meira en ár var þá liðið frá gjalddaga víxilsins, sem var 2. apríl 1984. Bjarni taldi einnig að stefnu- frestur í málinu hafi verið styttri en sjö sólarhringa og því hefði fógeti átt að synja um framkvæmd fjárnáms. Bjarni telur einnig að eignir sínar hafi ekki verið virtar þó fjárnám hafi verið árangurslaust að hluta og ann- ar tveggja votta, Gunnar Sólnes hæstaréttarlögmaður hafi ekki full- nægt skilyrðum iaga um þingvotta, þar sem hann sé samstarfsmaður lögmanns Iðnaðarbankans, þ.e. fjárnámsbeiðanda. Hæstiréttur féllst í úrskurði sínum á tvennt það síðastnefnda, þó hann teldi það ekki nægja til að fella fjárnám úr gildi. Þá var Bjarni Hólmgrímsson dæmdur til að greiða Iðnaðarbankanum 50 þúsund krón- ur í málskostnað. -ABÓ Sauðárkrókur og Blönduós: Kaupfélög með bónusverslanir Bæði kaupfélagið á Blönduósi og Sauðárkróki hafa nú opnað svokall- aða Bónusverslun. f slíkum verslun- um er aðallega á boðstólum hrein- lætisvara og margskonar matvara (pakkavara). Húnvetningar urðu fyrri til að opna bónusinn sem hjá þeim hefur hlotið nafnið Spardeild KH. Að sögn Guðsteins Einarssonar kaupfélasstjóra á Blönduósi er kaup- félagið með þessu að koma til móts við kröfu fólks um lægra vöruverð. Álagning á vörum í Spardeildinni verður haldið í algjöru lágmarki þannig að vöruverð á að vera sam- bærilegt við það sem gerist í stór- mörkuðum í öðrum landshlutum. Guðsteinn sagði að með þessu vildi kaupfélagið freista þess að ná til sín einhverju af þeirri verslun sem undanfarið hefur verið sótt á suð- vesturhorn landsins. Spardeild KH. er opin virka daga frá kl. 14.00. til kl. 18.00. og á laugardögum frá kl. 10.00 til kl. 14.00. Hjá K S hefur bónusmarkaðurinn aðeins verið op- inn í rúma viku. Að sögn Ómars Braga vöruhússstjóra í Skagfirðinga- búð hafa viðtökur fólks sem af er verið mjög góðar og lofa vissulega góðu. Fólk hefur haft á orði að nú myndi það hætta að fara norður til að versla. KS. bónus er staðsettur í Skagfirðingabúð og er opinn á sama tíma og verslunin, einnig á laugar- dögum. Ásæður þess að K S. opnar bónusverslun eru að sjálfsöðu svip- aðar og hjá K H. og fleiri kaupfélög- um á landsbyggðinni. Auknar kröfur viðskiptavina um lægra vöruverð og aukin sókn fólks úr dreyfbýlinu í verslun á Reykjavíkursvæðið. Reynslan mun síðan skera úr um hvort þetta nýja verslunarfyrir- komulag á framtíð fyrir sér hjá K H. og K S. en allavega er um ágæta tilraun að ræða sem neytendur ættu í alvöru að gefa gaum að. ÖÞ. ísvélar hf. kynna um þessar mund- ir nýja kælitækni hér á landi, svoköll- uð ísteppi, sem meðal annars henta vel til kælingar á fiski sem sendur er flugleiðis. lsteppin eru plastteppi eða mottur með vatnsfylltum pokum. Teppin eru látin frjósa í nokkrar klukkustundir og eru þá hæf til að viðhalda ferskleika við- kvæmrar vöru í flutningum. Teppin leysa af hólmi venjulegan ís og gera óþarft að búa um varninginn í vatns- þéttum, dýrum og þungum umbúð- um. Upphaflega fluttu ísvélar teppin inn frá Bandaríkjunum en vegna góðs árangurs var ákveðið að hefja framleiðslu á þeim hérlendis. Auk þess að vera þrifalegri en eldri kæliaðferðir fæst mun betri kæling á vörunni og hún varir lengur en hefðbundin kæling, eða þriðjungi lengur en með venjulegum ís. Notk- unin er auðveld og ísteppin má nota margoft, enda eru þau úr níðsterku plasti. Auk fiskútflytjenda geta fjölmarg- ir aðrir hagnýtt sér ísteppin. Þau henta vel til dæmis á sjúkrahúsum við kælingu á blóði og sem kaldir bakstrar. Á veitingahúsum henta teppin vel til kælingar á drykkjum og hjá flutningaaðilum sem flytja slát- urafurðir og kjöt milli staða innan- lands. SSH Hrappur og Oliver draga ut heppna þátttakendur i verðlaunasamkeppninni. Verðlaunagetraun Þjóðleikhússins Dregið hefur verið í verðlauna- getraun sem efnt var til í tengslum við kynningu Þjóðleikhússins á leikárinu. Þeir sem fara með hlutverk Hrapps og Oliver í söngleiknum Oliver, þeir ívar Sverrisson og Giss- ur Páll Gissurarson drógu úr þúsund- um innsendra seðla. Þau sem hlutu vinninga voru Steinn Sigurðarson, Vogarseli 7, Reykjavík, MagnúsS. Kristjánsson, Efstasundi 27, Reykjavík, Hlíf Jóns- dóttir, Unnarbraut 28, Seltjarnar- nesi, Halldóra Geirsdóttir, Hátútni 10 A, Reykjavík og Friðrik Guð- jónsson, Barmahlíð37, Reykjavík. Verðlaunin eru tveir miðar á ein- hverja sýningu leikhússins í vetur og geta vinningshafar gefið sig fram við miðasölu þegar þeir vilja fara í leikhúsið. Landsamband slökkviliðsmanna: Samræmd kjarabarátta Á þingi Landsambands slökkvi- liðsmanna sem haldið var um síð- ustu helgi var samþykkt að stefna ákveðið að þvh' að landsambandið taki í sínar hendur kjarasamninga- mál allra slökkviliðsmanna í land- inu. Hingað til hafa slökkviliðs- menn á hverjum stað samið við viðkomandi sveitarfélag. Samþykkt var að stjórn sam- bandsins haldi aukaþing í síðasta lagi 10. apríl á næsta ári þar sem einvörðungu verði fjallað um samnings réttarmál L.S.S. og fé- laga innan þess. Er gert ráð fyrir að eftir aukaþingið liggi fyrir nauð- synlegar tillögur til lagabreytinga. Einnig er gert ráð fyrir að öll félög slökkviliðsmanna hafi fjallað um stefnu í kjaramálum fyrir fyrrnefnt aukaþing og geti kynnt stefnu sína í kjaramálum á þinginu. SSH

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.