Tíminn - 13.12.1989, Side 2
2 Tíminn
Miðvikudagur 13. desember 1989
Laxveiðimenn borguðu drjúgt fyrir aflann:
Meðalverð á laxinum
um 24 þúsund krónur
Samkvæmt yfirliti yfir meðaltalsverð sérhvers lax í þrjátíu
veiðiám var hæsta meðaltalsverð á laxi rúmar 40 þúsund
krónur en lægsta meðaltalsverð fyrir hvern lax var 3 þúsund
krónur. Þessar upplýsingar koma fram í grein eftir Geir
Thorsteinsson í Sportveiðiblaðinu sem nú er komið út. Séu
tölurnar úr yfirliti Geirs lagðar saman og deilt í þá upphæð
með fjölda ánna kemur í Ijós að meðaltalsverðið er um 24
þúsund krónur fyrir hvern lax.
Alls veiddust 30 þúsund laxar á
stöng síðastliðið sumar samkvæmt
tölum frá Veiðimálastofnun. Ef gert
er ráð fyrir að árnar þrjátíu gefi
meðaltalsverð á hverjum veiddum
laxi þá greiddu stangveiðimenn
samtals 720 milljónir fyrir laxveið-
ina.
Geir reiknar meðaltalsverð á sér-
hverjum veiddum laxi út frá dýrasta
tíma á hverju veiðisvæði, en auka-
kostnaði eins og fæði, leiðsögn og
ferðakostnaði er sleppt. Samkvæmt
útreikningum Geirs er laxinn dýrast-
ur úr Laxá í Aðaldal, kostaði að
meðaltali 43 þúsund krónur. Við
nánari athugun Tímans kom hins
vegar í ljós að vegna skiptingu
árinnar í lax- og silungsveiðisvæði er
hún varla samanburðarhæf við aðrar
ár ef reikna á út meðaltalsverð á
laxi. Til dæmis gerir Geir ráð fyrir of
miklum fjölda stanga í ánni (28
stanga í stað 19). „Hreinar“ laxveiði-
ár ætti þó að ósekju að vera hægt að
bera saman.
300041000 krónur
Laxinn úr Elliðaánum var sem
fyrr segir ódýrastur samkvæmt út-
reikningum Geirs. Þar veiddust 1630
alvörulaxar, eins og það er orðað, og
133 eldislaxar, samtals 1763 laxar.
Ef fjöldi laxa er margfaldaður með
meðaltalsverðinu kemur í ljós að
veiðimennirnir greiddu tæplega 4,9
milljónir fyrir laxana.
Lax úr Norðurá var næst dýrastur
að meðaltali, kostaði 41 þúsund
krónur. Alls veiddust 880 laxar á
stöng í Norðurá og miðað við sömu
forsendur greiddu veiðimennirnir
fyrir þá samtals rúmar 36 milijónir.
Laxá í Kjós var aflahæsta laxveiði-
áin síðastliðið sumar og gaf 2126
laxa. Meðaltalsverð á hverjum
stangarveiddum laxi var samkvæmt
útreikningum Geirs 17.500 krónur.
Samtals voru því greiddar 37,2 millj-
ónir fyrir laxana sem veiddust í Laxá
í Kjós.
Dýrasta veiðiá landsins, Laxá á
Ásum, gaf mestan fjölda laxa á
hverja dagstöng, að meðaltali 3,9
laxa. 720 laxar veiddust á síðasta
sumri og meðaltalsverð var 27.500
krónur, eða samtals 19,8 milljónir
króna.
Laxveiðiverkfall?
Geir byrjar grein sína á því að
spyrja hvenær laxveiðimenn verði
nógu skynsamir til þess að segja að
nú sem komið nóg „af þessari verð-
vitleysu á laxveiðileyfum", eins og
hann orðar það. Síðan segir hann að
ekki sé aðeins við veiðiréttarhafa að
sakast þar sem þeir selji ekki veiði-
leyfi nema einhver vilji kaupa og því
sé sökin allt eins veiðimannanna og
Geir veltir því síðan fyrir sér hvort
laxveiðiverkfall hefði áhrif á verð
veiðileyfanna.
Síðar í greininni segir: „Þetta er
stór sannleikur; umhverfið, náttúr-
an, veiðifélagarnir og tilveran sjálf,
allt er þetta samtvinnað veiðiskapn-
um, en þetta erum við ekki að kaupa
af veiðiréttarhöfum. Það er kominn
tími til að greina þarna á milli.
Veiðiréttarhafar geta ekki selt nátt-
úruna, veðrið, veiðifélaga manns,
lífið og tilveruna (að minnsta kosti
ekki ennþá, þótt viljann til þess
skorti vafalaust ekki hjá sumum
þeirra). Það sem þeir eru að selja
eru fiskarnir í ánni eða réttara sagt
þeir fiskar, sem að meðaltali koma á
land hvern stangardag. (Hvernig svo
sem stendur á því að þeir telji sig
geta selt veiðileyfi, sem þeir eiga
ekkert frekar en hver annar fslend-
ingur).“
SSH
Umhverf i og
heilbrigði
Á Evrópufundi heilbrigðis- og
umhverfisráðherra sem haldinn var
f Frankfurt 7.-8. desember síðastlið-
| mn var rætt um umhverfi og áhrif
þess á heilbrigði. Var þetta í fyrsta
sinn sem ráðherrar þessara mála-
flokka hittust og ræddu samspil þess-
ara þátta.
Fyrir fundinum lágu drög að Evr-
ópuáætlun um umhverfi og heil-
brigði sem unnin voru á vegum
Evrópuskrifstofu Alþjóða heilbrigð-
ismálastofnunarinnar. Áætlunin var
samþykkt samhljóða á fundinum.
í tilkynningu frá heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu segir:
„Áhrif umhverfis á heilbrigði eru
Veiðimaður rennir fyrir lax í ánni Fáskrúð í Dölunum.
Heildaraflinn í nóvember 1000 tonnum meiri í ár,
en síðasta ár að loðnunni slepptri:
Heildarafli kominn
11,3 milljónir tonna
mikil og víðtæk og oft á tíðum
skaðleg. Enginn er eyland í um-
hverfismálum eins og nýleg mengun-
arslys í Evrópu, t.d. Chernobyl-slys-
ið hafa minnt harkalega á. Hin
nýsamþykkta áætlun byggir á þess-
um staðreyndum og undirstrikar
mikilvægi þverfaglegrar og ekki síð-
ur alþjóðlegrar samvinnu á þessu
sviði.“
Af íslands hálfu sátu fundinn
ráðherrarnir Guðmundur Bjarnason
og Júlíus Sólnes og Dögg Pálsdóttir,
deildarstjóri í heilbrigðisráðuneyt-
inu. Þá sat Ragnhildur Helgadóttir
alþingisnjaður ■ fundinnjsem fuUtrúúv.
Evrópuráðsins.
Heildarafli landsmanna það sem
af er þessu ári er samtals 1357
þúsund tonn, en var árið 1988 1543
þúsund tonn. í nóvember var heild-
arafli allra skipa 138 þúsund tonn,
en var í sama mánuði í fyrra 244
þúsund tonn. Munar þar mestu um
loðnuna, en í nóvember í ár var
loðnuaflinn 35 þúsund tonn en í
fyrra var loðnuaflinn 142 þúsund
tonn. Þetta kemur fram í bráða-
birgðatölum Fiskifélags íslands fyrir
nóvember sl.
Þar sem loðnuveiði var með ein-
dæmum slök í nóvember sl. er
forvitnilegt að skoða aflatölur að
loðnunni slepptri. Þá kemur í ljós að
heildaraflinn fyrir utan loðnu í nóv-
ember í ár var 103.744 tonn, en var
í sama mánuði í fyrra 102.637 tonn.
Ef litið er á sömu tölur fyrir fyrstu
11 mánuði þessa árs, þ.e. heildarafli
að loðnu slepptri, þá kemur í ijós að
búið er að veiða 818.610 tonn á
fyrstu ellefu mánuðum þessa árs, en
á sama tímabili í fyrra var búið að
veiða 745.917 tonn.
1 nóvember var heildarafli togara
30 þúsund tonn, en var í nóvember
í fyrra 31 þúsund tonn, heildarafli
báta var nú 103 þúsund tonn, en var
í fyrra 209 þúsund tonn og felst
munurinn aðallega í dræmri loðnu-
veiði nú. Bátar veiddu hins vegar
800 tonnum meira af ýsu í nóvember
nú og um 1500 tonnum meira af
hörpudiski. Heildarafli smábáta var
■* í.-nóvember í ár 5000 tonn, en var f
sama mánuði í fyrra 3300 tonn,
munurinn felst einkum í þúsund
tonna meiri þorskafla og 600 tonna
meiri ýsuafla smábáta nú en í fyrra.
Á fyrstu ellefu mánuðum þessa
árs er heildarþorskaflinn orðinn 322
þúsund tonn, en var á sama tímabili
í fyrra 343 þúsund tonn. í ár var
miðað við að þorskafli yrði sem næst
325 þúsund lestum, en búast má við
að hann fari í um 330 til 240 þúsund
lestir. Ýsuaflinn er orðinn um 51
þúsund lestir, en var í fyrra 46
þúsund lestir. 67 þúsund tonn hafa
veiðst af ufsa í ár, en í fyrra þúsund
tonnum minna og karfaaflinn er nú
um 5000 lestum minni. Steinbíturs-
aflinn stendur í stað, en grálúðuafli
er nú orðinn um 11 þúsund lestum
meiri en hann var í fyrra, en skar-
kolaafli um 2 þúsund tonnum minni.
Humaraflinn er um 600 tonnum
minni nú, rækjuaflinn 3000 tonnum
minni, hörpudiskaflinn 1200 tonnum
meiri en í fyrra.
Mest barst á land á Siglufirði í
nóvember, (allar fisktegundir), eða
16.988 tonn, því næst koma Vest-
mannaeyjar með rúm 11 þúsund
tonn og í þriðja sæti Eskifjörður
með tæp 11 þúsund tonn. -ABÓ
5 með fullfermi
Fimm loðnubátar tilkynntu um
afla í gær til loðnunefndar, samtals
3360 tonn. Aflann fengu þeir aust-
ur af Kolbeinsey. Það sem af er
þessari vertíð er búið að landa
rúmum 43 þúsund tonnum.
Að sögn Ástráðs Ingvarssonar
hjá loðnunefnd telst honum til að
30 bátar séu nú á miðunum út af
Sléttu, eða örlítið austar en bátarn-
ir voru við veiðar í fyrrinótt. Bát-
amir eru að kasta á um þriggja
mílna loðnutorfu á svæðinu, en
loðnan stendur djúpt þar sem heið-
skírt er og fullt tungl. í nótt var
spáð éljum og ætti því að verða
meiri veiði ef veðurspáin gengur
eftir.
Þeir sem tilkynntu um afla voru
Sjávarborgin með 750 tonn, Þórs-
hamar með 550 tonn, Víkurberg
með 580 tonn, Dagfari með 350
tonn og Bjami Ólafsson var með
1130 tonn. Allir bátar sem voru á
miðunum fengu eitthvað og eru
sumir þeirra að verða búnir að fylla
sig.
Hnúfubakurinn er á miðunum
og reif hann meðal annars nótina
hjá Dagfara. Ástráður taldi víst að
sjómenn væm sáttir við að hafa
hnúfubakinn a.m.k. til að byrja
með, því það sýndi að loðna væri
á svæðinu. -ABÓ