Tíminn - 13.12.1989, Blaðsíða 14
14 Tíminn
Miðvikudagur 13. desember 1989
.............1111 RJKIIR llllllllllllllllllliMi'i'.''.''!lJ'|ll'll|lllllllllllllllllllllllllllllllll,liiil.|,.i.r:n'''l'''l'l'l|l!!l|l|l|l|l|l|lllllllllllllll;lil;lilililii'.:""i|l!!''ll!l|l|llllllllllllllllllllllllllillliililiH11, 1 '"'''"l'llllllllllllllllllllllllllllllllllllllil.....................................................................n'lil'ITIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIilllJ.111i ....................III........................Illillllllll.........1....1.....
„Naivistar" í
íslenskri
myndlist
Iceland Review útgáfan hefur
gefið út bókina Naive and
fantastic art in Iceland eftir
Aðalstein Ingólfsson listfræðing.
Hér er komin fyrsta tilraun sem
gerð hefur verið til að gera úttekt
á verkum sjálfmenntaðra
alþýðulistamanna á íslandi en
erlendis hafa verk slíkra
hstamanna nú öðlast fastan sess
í listasögunni. Nægir að nefna
verk Henri Rousseau í Frakklandi
og Grandma Moses í
Bandaríkjunum.
í Naive and fantastic art in
Iceland gerir Aðalsteinn
Ingólfsson grein fyrir helstu
forsendum listsköpunar af þessu
tagi, en í kjölfarið fylgja kaflar um
ellefu sjálflærða Ustamenn, allt frá
Sölva Helgasyni til Guðmundar
Ófeigssonar. í bókinni er m.a.
fjallað um verk Sæmundar
Valdimarssonar, ísleifs
Konráðssonar, Karls Einarssonar
Dunganon, Grímu, Stefáns
Jónssonar frá Möðrudal, Eggerts
Magnússonar, Þórðar
Vcildimarssonar, Sigurlaugar
Jónasdóttur, Kristins
Ástgeirssonar og Gunnars
Guðmundssonar. Birtar eru 86
litmyndir af verkum þeirra.
Páll Stefánsson tók flestar
ljósmyndanna, útlitshönnun
annaðist Björgvin Ólafsson,
Prentmyndastofan hf. sá um
litgreiningar og filmuvinnu, en
Í>rentun bókarinnar fór fram á
talíu.
Almenna bókafélagið hefur
keypt íslenska útgáfu bókarinnar
og mun gefa hana út næsta vor
undir heitinu Einfarar í íslenskri
myndlist. Bókin er í flokki
Ustaverkabóka sem Iceland
Review útgáfan hefur gefið út á
ensku á undanfömum ámm og
hefur Almenna bókafélagið keypt
og gefið út íslenskar útgáfur
þeirra. í þessum flokki era
bækurnar Kjarval - Málari lands
og vætta eftir Aðalstein
Ingólfsson og Matthías
Johannessen og Nína
Tryggvadóttir - í krafti og birtu
eftir Hrafnhildi Schram.
Bókin Naive and fantastic art
in Iceland kostar kr. 3.950.
Lokabindi
aflakónga og
athafnamanna
Hörpuútgáfan hefur gefið út
þriðja og jafnframt síðasta bindið
í bókaflokknum Aflakóngar og
athafnamenn. Bókaflokkurinn er
byggður á viðtölum við fólk sem
er í fararbroddi í skipstjórn og
útgerð og gefur hann raunsanna
mynd af Ufi sjómanna og
fiskveiðum á okkar tímum og fyrr
á öldinni. FjaUað er um þau mál
sem helst era í brennidepU hverju
sinni en rauði þráðurinn í
viðtölunum nú er andstaða
viðmælenda Hjartar Gíslasonar
við afskipti stjómmálamanna af
sjávarútveginum.
Meðal viðmælenda í þessari bók
er Guðrún Lárasdóttir,
útgerðarmaður í Hafnarfirði, einn
eigenda Stálskipa hf. Fyrirtæki
hennar keypti skuttogarann
Sigurey frá Patreksfirði og var hún
þá sökuð um að hrifsa lífsbjörgina
af Patreksfirðingum og
forsætisráðherra sagði hvíslað um
erlent fjármagn að baki
kaupanna.
„Stundum vellríkur - stundum
skitblankur" er yfirskrift
viðtalsins við Örn Eiríksson í
Keflavík. „Eðlilegast er að hver
sjái um sig," segir Guðrún
Lárasdóttir. „Hefaldreitekiðlaun
í landi, “ segir Runólfur
Hallfreðsson á Akranesi.
„Áhöfnin ræður mestu um
aflasældina," segir Ólafur Örn
Jónsson, Reykjavík. „Það geta
allir fyUt skip í mokveiði," segir
Guðbjartur Ásgeirsson, ísafirði,
og yfirskrift viðtalsins við Ingva
Rafn Albertsson á Eskifirði er
„Menn verða að vera ábyrgir
gerða sinna. “
Bókin Aflakóngar og
athafnamenn, þriðjabindi, er 168
bls. að stærð og prýðir bókina
mikiU fjöldi ljósmynda. Bókin er að
öllu leyti unnin í Prentsmiðjunni
Odda hf. Nafnaskrá er í bókinni
fyrir ÖU bindin. Höfundurinn,
Hjörtur Gíslason, er blaðamaður á
Morgunblaðinu og er
sjávarútvegurinn sérsvið hans.
EKKlERflbLT
SEMSÝNIST
Theresa
Charles enn á
rólinu
Bókaútgáfan Skuggsjá hefur
gefið út nýja skáldsögu eftir
Theresu Charles, Ekki er allt sem
sýnist.
Annabella Morleigh hafði verið
yfir sig ástfangin af æskuvini
sínum David og var niðurbrotin
þegar hann fór skyndUega tU
Ástralíu. En jafnvel eftir að hann
virtist hafa horfið í eyðimörkinni
var hún viss um að hann myndi
samt sem áður snúa aftur tU
hennar.
Andrés Kristjánsson þýddi
bókina.
GUÐNÝ Þ. MAGNÚSDÓTTIR
Dulskynjanir
kvenna
Bókaútgáfan Skuggsjá hefur
sent frá sér bókina Dulræn
reynsla - Frásagnir af
dulskynjunum sjö íslenskra
kvenna eftir Guðnýju Þ.
Magnúsdóttur.
Áhugi á dulrænum fræðum
hefur alltaf verið mikill. Hér segja
sjö íslenskar konur frá reynslu
sinni í þessum efnum, greina frá
því sem fyrir þær hefur borið í
lifinu á þessu sviði og svara um
leið ýmsum áleitnum
spurningum. Hvað ber að gera ef
við finnum fyrir auknum
dulrænum skynjunum? Hvers
vegna sumir miðlar en aðrir ekki?
Hvernig líður þeim sem sjá fyrir
óhugnanlega atburði, eins og
slys, áður en þeir gerast? Höfum
við lifað áður og þá ef til vill oft?
Hvert föram við milli
jarðvistarskeiða? Hvar er
heimurinn „fyrir handan" og
hvernig er þessi heimur? Geta
heimarnir verið margir? Er rétt að
við getum orðið jafnt fyrir áhrifum
illra afla sem góðra? Hvað er hægt
að gerast til að verjast hinum illu
öflum? Era draumar ferðalög á
önnur tilverastig? Um
framangreind atriði og ýmislegt
fleira er fjallað í þessari bók.
Dulræn reynsla er 192 bls. með
myndum. Bókin var sett og
prentuð í Prisma, Hafnarfirði, og
bundin í Félagsbókbandinu-
Bókfell, Kópavogi. Kápu hannaði
og prentaði Prisma.
iva Steen
ENGINN SÁ ÞAÐ
GERAST
S22!r*íaBBfflFæSEa
Enn fleiri
rauðar
ástarsögur
Bókaútgáfan Skuggsjá hefur sent
frá sér þrjár nýjar skáldsögur í
bókaflokknum Rauðu
ástarsögurnar. Það era bækurnar
Lykilorðið eftir Else-Marie Nohr.
Svikavefur eftir Erik Nerlöe og
Enginn sá það gerast eftir Evu
Steen. Bækurnar vora þýddar af
Skúla Jenssyni og Syerri
Haraldssyni.
Lögmannsljóð
Bókaútgáfan Skuggsjá hefur
gefið út ljóðabókina Skiptir það
máli? eftir Árna Grétar Finnsson.
Skiptir það máli? er önnur
B&dii
Hamingju-
eyjan
Allir áttu að halda að hún væri
dáin. Hún var á flótta undan
yfirvöldunum vegna morðs á
stjúpföður sínum. Hún hafði gert
djarfa áætlun um að fela sig í
bjálkakofa á afskekktri eyju þar
sem enginn myndi þekkja hana. Á
flóttanum kynntist hún ungum
fuglafræðingi sem átti eftir að
breyta öllu lífi hennar.
Hún stóð við borðstokkinn á
skipinu. Skyndilega birtist
frakkaklæddur maður með dimm
og illileg augu fyrir framan hana.
Hann kom nær og nær og lostafullt
augnaráðið fyllti hana ólýsanlegri
skelfingu. Þetta var Harry Blom
stjúpfaðir hennar lifandi kominn.
Hamingjueyjan er átakamikil og
spennandi ástarsaga um unga
stúlku sem verður fómarlamb
miskunnarlausra örlaga, en
upplifir samt sem áður mikla
hamingju.
Hamingjueyjan er 179 bls. SkúU
Jensson þýddi. Prentverk
Akraness hf. prentaði.
ljóðabókin sem Árni Grétar
Finnsson sendir frá sér. Árið 1982
kom út bók hans Leikur að orðum.
í þeirri bók birtust bæði framort
ljóð og þýdd, en í þessari nýju bók
Áma Grétars era eingöngu
framort ljóð. Ljóðin era í senn
margbreytileg að efni og
framsetningu, en víða má greina
ákveðinn tón sem sérkennir
höfundinn. Eiríkur Smith
myndskreytti bókina.
Hamingju-
eyjan
Hörpuútgáfan hefur sent frá sér
nýja ástarsögu eftir Bodil
Forsberg. Þetta er 21. bókin sem
kemur út á íslensku eftir þennan
vinsæla höfund.
Á bókarkápu segir meðal
annars:
ÁRNI GRÉTAR FINNSSON
SKJPnR.
MÐ
máii?
LJÓÐ
llllllllllllllllllllllllll DAGBÓK lllllllllllllllllllllllllllllll
Gissur Pálsson.
Áttræðisafmæli
Gissur Pálsson, rafvirkjameistari, Ból-
staðahlíð 41, Reykjavík, er 80 ára í dag,
miðvikudag 13. desember. Hann tekur á
móti gestum í Templarahöllinni, Eiríks-
götu 5 í dag milli kl. 17:00 og 20:00.
Myndakvöld F.I.
Myndakvöld Ferðafélags Islands verð-
ur miðvikudaginn 13. desember í Sóknar-
salnum, Skipholti 50a, og hefst kl. 20:30
stundvíslega.
Fyrst sýnir Eygló Sigurðardóttir, hús-
vörður F.l. í Þórsmörk, myndir frá lífi og
starfi húsvarða á þessum vinsæla stað.
Eftir hlé verður stuttur annáll um vinnu-
ferðir F.í. á liðnum árum.
Veitingar í hléi. Allir velkomnir, félag-
ar og aðrir. (Aðg. 200 kr.).
Aðalfundur íslenska
mannfræðifélagsins
Islenska mannfræðifélagið heldur
aðalfund sinn í veitingastofu Tæknigarðs,
Dunhaga5, miðvikud. 13. des. kl. 17:30.
Félagið var stofnað 1969 og hefur
staðið að fjölmörgum fræðslufundum fyr-
ir almenning um mannfræðileg efni og
skyldar greinar.
Að loknum aðalfundarstörfum talar
dr. Jens Ó.P. Pálsson, forstöðumaður
Mannfræðistofnunar Háskóla Islands, um
starfsemi stofnunarinnar og Islenska
mannfræðifélagsins. Skýrt verður m.a.
frá því hverjir munu flytja fyrirlestra á
vegum félagsins og Mannfræðistofnunar-
innar á næsta ári.
Bamagæsla í Bernhöftstorfu
Nemar á 3. ári í Fósturskóla íslands
bjóða upp á bamagæslu í Bemhöftstorfu
í desember fyrir börn 2ja-8 ára.
Opið verður frá kl. 14:00 á föstudögum
og frá kl. 10:00 á laugardögum.
Margt verður til skemmtunar: leikir,
föndur og ýmsar uppákomur.
Jólasýning í Gallerí Borg
I Gallerí Borg, Pósthússtræti 9, hefur
nú verið sett upp sýning á verkum „gömlu
meistaranna".
Á sýningunni em m.a. 6 Kjarvalsverk,
þrjár olíu- og þrjár vatnslitamyndir eftir
Ásgrím Jónsson, tvær olíumyndir eftir
Jón Stefánsson, stór olíumynd frá 1948
eftir Svavar Guðnason, uppstilling frá
1941 eftir Þorvald Skúlason, stór olíumál-
verk eftir Sverri Haraldsson og Ragnheiði
Ream, stórt Siglufjarðar-málverk eftir
Jón Þorleifsson (Síldarárin), einniggaml-
ar olíumyndir eftir Jóhann Briem og Jón
Engilberts.
Öll verkin á sýningunni em til sölu.
I Gallerí Borg, Austurstræti 10
(Penninn) er nú blandað upphengi.
Grafík-myndir eftir um það bil 50 höf-
unda, litlar vatnslita- og pastel-myndir og
stærri olíuverk eftir marga af kunnustu
listamönnum þjóðarinnar.
Opnunartími Gallerí Borgar í desem-
ber er miðaður við opnunartíma verslana.
Laugardaginn 16. og á Þorláksmessu
verður gestum Gallerí Borgar í Pósthús-
stræti boðið upp á jólaglögg og piparkök-
ur.
Hádegistónleikar
í Laugarneskirkju
Hádegistónleikar verða í Laugarnes-
kirkju í dag, miðvikudag 13. des. kl.
12:00 Ann Toril Lindstad leikur á orgel
kirkjunnar verk eftir Beethoven, Arild
E. Sandvold og Rolf Karlsen.
Á morgun, fímmtudag 14. des. verða
einnig hádegistónleikar og messa kl.
12:00. Þá leikur Ann Toril Lindstad verk
eftir J.S. Bach.
Jólasýning Slunkaríkis
á ísafirði
Laugardaginn 16. des. kl. 14:00 verður
opnuð í Slunkaríki á ísafirði samsýning á
verkum fjögurra myndlistarmanna,
þeirra Elísabetar Haraldsdóttur, Ólafar
Bjamadóttur, Þorbjargar Þórðardóttur
og Þórðar Hall.
Elísabet og Ólöf sýna verk unnin í leir,
bæði myndir og ýmsa nytjahluti, eins og
skálar, katla, nælur o.fl.
Þorbjörg sýnir myndvefnað og Þórður
teikningar unnar með blýanti og þurrkrít.
Þau hafa öll stundað nám við Mynd-
lista- Qg handíðaskóla íslands og síðar
framhaldsnám m.a. í Vín og Stokkhólmi
og starfa nú sjálfstætt að list sinni. Þau
hafa sýnt víða hérlendis og erlendis. Þetta
er sölusýning og allir ávallt velkomnir.
Sýningin stendur til jóla.
Abeka í Ghana óskar efftir
pennavini á íslandi
19 ára stúlka, Abeka Comfort, óskar
eftir pennavinum á íslandi. Hún segist
hafa áhuga á að fá meira að vita um land
og þjóð. Utanáskrift til hennar er:
Abeka Comfort
P.O. Box 1023,
Tema,
Ghana
W-Africa