Tíminn - 16.12.1989, Page 15
Tíminn 15
Laugardagur 16. desember 1989
Arni Leví Tómasson
Fæddur 18. júní 1895
Dáinn 3. desember 1989
Ámi lést á sjúkrahúsi Akraness
og var hann jarðsettur að Hjarðar-
holti laugardaginn 9. desember sl.
að viðstöddu fjölmenni.
Hann fæddist að Gilhaga í Bæjar-
hreppi, Strandasýslu. Foreldrar hans
vom hjónin Guðrún Ámadóttir,
Einarssonar frá Grænumýrartungu
og Tómas Tómasson, Tómassonar
frá Litlu-Þverá í Miðfírði, V-Húna-
vatnssýslu. Þau hófu búskap í Gil-
haga árið 1891 og bjuggu þar til
ársins 1898 að þau fluttu að Gilla-
stöðum í Laxárdalshreppi, Dala-
sýslu, og bjuggu þar í 2 ár, en flytja
aldamótaárið til næsta bæjar að
Lambastöðum og bjuggu þar til 1943
að þau fluttu til Búðardals. Böm
þeirra vom 4: Ámi, Ólafur, Stefán
og Guðlaug. Öll vom þau í foreldra-
húsum til fullorðins ára og unnu
heimilinu og stunduðu vinnu annars
staðar þar á milli. Ólafur lærði
trésmíði og þótti hann harðduglegur
og vandvirkur smiður. Stefán bjó á
Goddastöðum sem er næsta jörð við
Lambastaði. Báðir em þeir bræður
látnir fyrir allmörgum ámm.
Guðlaug var um skeið við smjör-
gerð hjá Kaupfélagi Hvammsfjarðar
en flutti síðar til Reykjavíkur. Hún
dvelur nú á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Öll vom þau systkinin mannkosta-
fólk. Ámi Leví var elstur systkina
sinna og vandist hann fljótt til vinnu
en bókhneigður var hann. Þegar
hann hafði aldur til þá stundaði hann
nám við unglingaskóla sem þá var í
Hjarðarholti. Ámi var námfús,
skarpgreindur og stálminnugur, svo
námið kom honum að miklum
notum. Hann var líka vel sjálf-
menntaður, því hann las fræðandi
bækur og tók ungur þátt í félagsstörf-
um, einkum ungmennafélagi, og síð-
ar þegar hann hóf búskap varð hann
virkur bæði í búnaðarfélagi, veiðifé-
lagi og starfsemi samvinnufélaga.
Hann fylgdist líka vel með í lands-
málum þótt það væri erfitt á þeim
ámm sem póstferðir vom strjálar og
blaðaútgáfa ekki mikil.
Ámi var aldrei langdvölum að
heiman. Fjölskyldan var samhent og
hjálpaðist að við að byggja upp á
Lambastöðum og rækta túnið og
girða það. Þama var fjölskyldubú-
skapur þar sem hver og einn vann
eftir bestu getu og hafði í staðinn arð
af kindum sínum og að sjálfsögðu
fæði og húsnæði.
Ámi hóf búskap á Lambastöðum
árið 1920 og bjó hann þar ásamt
foreldmm sínum sem þá vom famir
að reskjast. Það var ekki góðæri á
þessum ámm. Frostavetur 1918,
fannavetur 1920 og ofan á þessi
harðindaár varð mikið verðfall á
útflutningsvömm bænda. Það vom á
þessum ámm ýmis vandamál í land-
búnaði engu síður en í dag. Þrátt
fyrir allt þetta búnaðist Áma vel, því
hann var fyrirhyggjusamur og bú-
höldur góður. Snemma hlóðust
margþætt trúnaðarstörf á Áma.
Hann átti lengi sæti í hreppsnefnd
Laxárdælahrepps, Veiðifélags Laxár
og fulltrúi og síðar deildarstjóri á
aðalfundum Kaupfélags Hvamms-
fjarðar og um skeið átti hann sæti í
yfirkjörstjóm Dalasýslu. Margt
fleira var honum falið, enda naut
hann fyllsta trausts allra þeirra er
honum kynntust. Ámi var alla tíð
bókari, Búðardal
framsóknarmaður og samvinnumað-
ur. Hann ólst upp við vaxandi út-
breiðslu kaupfélaganna og aukna
starfsemi þeirra.
Hann gerðist starfsmaður hjá
Kaupfélagi Hvammsfjarðar árið
1943 þegar mesta blómaskeið þess
hófst og hjá því vann hann í rúm 45
ár. Hann var lengi bókari félagsins
og sá um margs konar skýrsluhald.
Hann fékk hvers manns lof fyrir þau
störf, því hann hafði bæði fallega
rithönd og greinilega. Talnaglöggur
var hann og fljótur að finna villur ef
þær leyndu sér einhvers staðar. Trú-
mennska og heiðarleiki vom hans
aðalsmerki í starfi. Þegar honum
sjálfum fannst hann ekki afkasta
nógu miklu þá fór hann að lengja
vinnutímann og vann um helgar,
nema ekki á stórhátíðum. Um orlof
og laun sín ræddi hann aldrei um.
Þegar hann hafði frístundir las hann
góðar bækur eða tók í spil þegar um
spilakeppni var að ræða eða góðir
gestir komu. Hann ferðaðist ekki
mikið en skemmtilegur ferðafélagi
var hann, því kynntist ég er við
fómm þrír á hestum yfir Gaflfells-
heiði norður til Bitmfjarðar þann 8.
ágúst 1961. Þriðji ferðafélaginn var
Bjami Sigvaldason. í þeirri ferð sá
ég fyrst katlana í ánni Fáskrúð,
Jóhannes skáld kenndi sig við þessa
katla. Ámi sýndi okkur þennan
fagra stað og minntist á Jóhannes og
hans skáldskap, m.a. á kvæðið Karl
faðir minn. Árni var náttúmunnandi
og kunni vel við sig við lækjamið og
fuglasöng. Þessi ferð er mér
ógleymanleg, hún var fróðleg og
skemmtileg.
Árið 1922, hinn 1. janúar, kvænt-
ist Ámi Þóreyju Kristínu Þorleifs-
dóttur, Jónssonar Ólafssonar, Hom-
stöðum í Laxárdal, kona hans var
Elínborg Elísabet Kristmundsdóttir,
Guðmundssonar frá Þverá í
Núpsdal, V-Húnavatnssýslu. Þau
bjuggu víða bæði í Strandasýslu og
Dalasýslu.
Þórey fæddist að Þambárvöllum í
Strandasýslu og ólst upp hjá foreldr-
um sínum. Hún var myndarleg kona,
glaðleg, dugleg og alltaf reiðubúin
til að hjálpa öðmm ef þess þurfti
með. Hún var að eðlisfari hjúkmnar-
kona þótt ólærð væri, hún var ná-
kvæm og næm og hjúkraði af lífi og
sál, eins og margir í hennar ætt.
Heimili þeirra Þóreyjar og Áma
var oftast mannmargt og gestkvæmt,
en húsrými lítið, einkum fyrstu árin
í Búðardal. Það var ekki alltaf
auðvelt að taka á móti gestum undir
þessum kringumstæðum, en þrátt
fyrir þrengsli og þröngan fjárhag
tókst húsbændum vel að gleðja gesti
sína. Þau vom ljúf í lund og hjarta-
hlý svo það leið öllum vel í návist
þeirra. Yfir heimilinu hvíldi friður,
ró og reisn.
Síðustu æviárin vom foreldrar
Þóreyjar á Lambsstöðum og nutu
þar umhyggju og hlýju til hinstu
stundar. Foreldrar Áma fóm með
fjölskyldunni til Búðardals og vom
þar til dauðadags. Tómas dó 1944 en
Guðrún kona hans varð nær 90 ára
gömul. Hún lést 1953. Öll þessi
gamalmenni nutu umhyggju hús-
bændanna og höfðu hjá þeim ömggt
athvarf í ellinni. Þórey var heilsulaus
síðustu árin og þurfi stundum að
vera á sjúkrahúsi, en þess á milli var
hún á dvalarheimilinu á Fellsenda.
Hún lést 24. mars 1980.
Eftir að Þórey varð lasin og gat
ekki hugsað um heimili fór Ámi
Leví til sonar síns Haraldar og Ingu
og var hjá þeim í Búðardal, þar leið
honum vel í faðmi fjölskyldu og vina
og átti sólríkt ævikvöld.
Þau Þórey og Ámi eignuðust tvo
syni. Gunnar dó 4 ára gamall. Har-
aldur Leví er aðalbókari hjá sýslu-
manni Dalasýslu, Búðardal, kona
hans er Inga bankagjaldkeri Þorkels-
dóttir frá Hróðnýjarstöðum.
Þau eiga þrjú böm. Gunnar Leví,
sjómaður í Stykkishóími, í sambýli
með Hrönn Bemharðsdóttur, sonur
þeirra heitir Sölvi Leví. Hafdfs
Hrefna hárgreiðslukona, Búðardal,
sambýlismaður hennar er Sváfnir
Hreiðarsson og eiga þau tvær dætur,
Kötlu Dögg og Ingu Dröfn. Ámi
Þorkell, bifreiðarstjóri í Búðardal.
Ámi Leví var hraustmenni og
náði háum aldri og hélt andlegri
reisn til hinstu stundar. Sfðustu árin
fann hann til lasleika og var þá
stundum á sjúkrahúsi, en heim kom
hann á milli og fór þá fljótlega á
skrifstofu sína, því þar kunni hann
vel við sig. Ámi var skráður bóndi í
23 ár en hann vann við bú foreldra
sinna strax á bamsaldri og þar til
hann fór sjálfur að búa. Hjá Kaup-
félagi Hvammsfjarðar vann hann í
rúm 45 ár. Starfsaldurinn er því
óvenju hár og ævistarfið mikið.
Ámi Leví var myndarlegur
maður, þéttur á velli og þéttur í
lund. Hann var félagslyndur, sam-
vinnuþýður og málafylgjumaður
góður, heiðarlegur og farsæll maður.
Hans mun lengi verða minnst sem
mannkostamanns.
Að leiðarlokum er margs að
minnast. Persónulega þakka ég
Áma fyrir hugulsemi við mig og
heimili mitt frá fyrstu kynnum. En
ég leyfi mér líka að þakka mikilvirt
og farsæl störf í þágu Dalahéraðs.
Aðstandendum öllum votta ég
samúð.
Blessuð sé minning þessa mæta
manns.
Ásgeir Bjamason
Dl
Tilkynning um skuldabréfaútboð
Byggingarsjóóur ríkisins
IESl]|[lMai[aMai|3gE]l
Húsbréf 1. flokkur 1989
kr. 2.000.000.000,-
- krónur tvöþúsundmilljónir 00/100 -
Bréfin eru til 25 ára. Endurgreiðsla
með útdrætti fjórum sinnum á ári,
í fyrsta sinn 15. febrúar 1991.
Vextir 5,75%.
Einingar bréfa: kr. 5.000,-, kr. 50.000,-, kr. 500.000,-
Útgáfudagur 15. nóvember 1989.
Umsjón með útboði og viðskiptavakar á Verðbréfaþingi íslands:
&
LANDSBREF
Verðbrófamarkaöur Landsbankans
Landsbréf hf.
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
□10
1
oi
d15
p
SOGUR AF SONUM EFTIR JON DAN
Söguraf sonum
eftir
Jón Dan
Sögurtilaðlesa Sögurtilaðlesa Sögurafsonum
eina og eina og hugsa um eftir
í ró og næði í góðu tómi Jón Dan
Bókaútgáfan Keilir Stóragerði 12 Sími 39698