Tíminn - 30.12.1989, Blaðsíða 26

Tíminn - 30.12.1989, Blaðsíða 26
L/augardagur,30., desember. 1989 26 Tíminn FLUGMÁLASTJÓRN Námskeið fyrir verðandi flugkennara hefst á Reykjavíkurflugvelli laugardaginn 13. janúar kl. 14.00 ef næg þátttaka fæst. Rétt til þátttöku eiga þeir sem hafa a.m.k. 150 klst. flugtíma og hafa lokið bóklegu námi fyrir atvinnu- flugmannsskírteini og blindflugsréttindi eða eru í slíku námi. Innritun fer fram hjá Flugmálastjórn/loftferðaeftir- liti, flugturninum á Reykjavíkurflugvelli og þar fást frekari upplýsingar. FLUGMÁLASTJÓRN Jólatrésskemmtun Verslunarmannafélag Reykjavíkur heldur jólatrés- skemmtun fyrir börn félagsmanna sunnudaginn 7. janúar kl. 15.00 á Hótel íslandi. Miðaverð fyrir börn kr. 500,- og fyrir fullorðna kr. 200.- Miðar eru seldir á skrifstofu V.R., Húsi verslunar- innar, 8. hæð. Upplýsingar í síma 687100. Verslunarmannafélag Reykjavíkur. ÚTBOÐ Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Hitaveitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í þana og loka. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkju- vegi 3, Reykjavík. Tilboðin verða opnuð á sama stað, sem hér segir: — Þanar, fimmtudaginn 25. janúar 1990, kl. 11.00. — Lokar, fimmtudaginn 25. janúar 1990, kl. 14.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVlKURBORGAp Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800 Umboðsmenn Tímans: Kaupstaður: Nafn umboðsmanns Heimill Sími Hafnarfjörður Ragnar Borgþórsson Holtageröi 28 45228 Kópavogur LindaJónsdóttir Hamraborg 26 641195 Garðabær Ragnar Borgþórsson Holtageröi 28 45228 Keflavík GuöriöurWaage Austurbraut 1 92-12883 Sandgerði Ingvi Jón Rafnsson Hólsgötu 23 92-37760 Njarðvík Kristinn Ingimundarson Faxabraut4 92-13826 Akranes Aöalheiöur Malmqvist Dalbraut 55 93-11261 Borgarnes Inga Björk Halldórsdóttir Kveldúlfsgata 26 93-71740 Stykkishóimur ErlaLárusdóttir Silfurgötu 25 93-81410 Ólafsvík LindaStefánsdóttir Mýrarholti 6A 93-61269 Grundarfjörður Anna Aöalsteinsdóttir Grundargötu 15 93-86604 Hellissandur Ester Friðþjófsdóttir Háarifi 49 93-66629 Búðardalur Kristiana Guömundsdóttir Búðarbraut3 93-41447 fsafjörður Jens Markússon Hnífsdalsvegi 10 94-3541 Bolungarvík Kristrún Benediktsdóttir Hafnargötu115 94-7366 Hólmavik Elísabet Pálsdóttir Borgarbrautð 95-3132 Hvammstangi Friöbjörn Nielsson Fífusundi 12 95-1485 Blönduós Snorri Bjarnason Uröarbraut 20 95-4581 Skagaströnd Ólafur Bernódusson Bogabraut 27 95-4772 Sauðárkrókur Guörún Kristófersdóttir Barmahlíö13 95-5311 Siglufjörður Guðfinna Ingimarsdóttir Hvanneyrarbraut 54 96-71555 Akureyri Halldór Ingi Ásgeirsson Hamarsstíg 18 96-24275 Svalbarðseyri Þröstur Kolbeinsson Svalbarðseyri 96-25016 Húsavik Sveinbjörn Lund Brúargeröi 14 96-41037 Ólafsfjörður HelgaJónsdóttir Hrannarbyggð8 96-62308 Raufarhöfn Sandra Ösp Gylfadóttir Aöalbraut 60 96-51258 Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir Kolbeinsgötu 44 97-31289 Egilsstaðir Páll Pétursson Árskógar 13 97-1350 Seyðisfjörður Anna Dóra Árnadóttir Fjarðarbakka 10 97-21467 Neskaupstaður BirkirStefánsson Miögaröi 11 97-71841 Reyðarfjörður Marinó Sigurbjörnsson Heiðarvegi 12 97-41167 Eskifjörður Þórey Dögg Pálmadóttir Svínaskálahlíð19 97-61367 Fáskrúðsfjörður Guðbjörg H. Eyþórsdóttir Hliöargötu4 97-51299 Djúpivogur Jón Björnsson Borgarlandi 21 97-88962 Höfn Skúli isleifsson Hafnarbraut 16 A 97-81796 Selfoss Margrét Þorvaldsdóttir Engjavegi 5 98-22317 Hveragerði Lilja Haraldsdóttir Heiðarbrún 51 98-34389 Þorlákshöfn ÞórdisHannesdóttir Lyngberg 13 98-33813 Eyrarbakkl Þórir Erlingsson Túngötu 28 98-31198 Stokkseyri Jón Ólafur Kjartansson Eyjaseli 2 98-31293 Laugarvatn Halldór Benjamínsson Flókalundi 98-61179 Hvolsvöllur JónínaogÁrnýJóna Króktún 17 98-78335 Vfk Ingi Már Björnsson Ránarbraut9 98-71122 Vestmannaeyjar MartaJónsdóttir Helgafellsbraut29 98-12192 llllllllllllllllllllll DAGBÓK llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll Biskupsmessa í Dómkirkjunni á nýársdag kl. 11 Dómkirkjan Gamlaársdagur: Aftansöngur kl. 18. Sr. Hjalti Guömundsson. Hafnarbúðir Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson. Nýársdagur: Messa kl. 11. Biskup íslands, herra Ólafur Skúlason prédikar, altarisþjónustu annast Dómkirkjuprest- arnir sr. Hjalti Guðmundsson og sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson. Organisti Marteinn Hunger Friðriksson. Hátíðar- guðsþjónusta kl. 14. Sr. Hjalti Guðmundsson. Árbæjarkirkja Gamlaársdagur: Aftansöngur kl. 18. Halla S. Jónasdóttir og Fríður Sigurðar- dóttir syngja tvísöng. Organisti Jón Mýrdal. Nýársdagur: Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sóknarpresti. Sr. Guðmundur Þorsteinsson. Áskirkja Gamlaársdagur: Aftansöngur kl. 18. Elísabet F. Eiríksdóttir syngur einsöng. Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson. Breiðholtskirkja Gamlaársdagur: Aftansöngur kl. 18. Sr. Jónas Gíslason vígslubiskup prédikar. Reynir Þórisson syngur einsöng. Nýársdagur: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14. Organisti í guðsþjónustunum er Daníel Jónasson. Þriðjudagur 2. jan.: Bænaguðsþjónusta kl. 18.30, altarisganga. Sr. Gísli Jónasson. Bústaðakirkja Gamlaársdagur: Aftansöngur kl. 18. Ei- ríkur Hreinn Helgason syngur einsöng. Guðmundur Hafsteinsson leikur einleik á trompet. Nýársdagur: Guðsþjónusta kl. 14. Ræðu- maður Sigmundur Guðbjarnarson há- skólarektor. Organisti Guðni Þ. Guðmundsson. Sr. Pálmi Matthíasson. Digranesprestakall Nýársdagur: Hátíðarguðsþjónusta í Kópavogskirkju kl. 14. Sr. Þorbergur Kristjánsson. Elliheimilið Grund Gamlaársdagur: Guðsþjnusta kl. 14. Sr. Cecil Haraldsson Fríkirkjuprestur. Nýársdagur: Guðsþjónusta kl. 10. Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson. Organisti Kjartan Ólafsson Fella- og Hólakirkja Gamlaársdagur: Aftansöngur kl. 18. Prestur Sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Einsöngur Kristín R. Sigurðardóttir. Flautuleikarar Guðrún Birgisdóttir og Marticl Nardau. Organisti Guðný Mar- grét Magnúsdóttir. Sóknarprestar. Fríkirkjan í Reykjavík Gamlaársdagur: Aftansöngur kl. 18.00. Leikið á orgel kirkjunnar frá kl. 17.40. Nýársdagur: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14.00. Orgelleikari Pavel Smid. Cecil Haraldsson. Grafarvogsprestakall Nýársdagur: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14. Ræðumaður Páll Svavarsson sóknar- nefndarmaður, framkvæmdastjóri Styrkt- arfélags lamaðra og fatlaðra. Sr. Vigfús Þór Árnason. Grensáskirkja Gamlaársdagur: Aftansöngur kl. 18. Nýársdagur: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14. Prestarnir. Hallgrímskirkja Gamlaársdagur: Aftansöngur kl. 18. Nýárdagur: Messa kl. 14. Sr. Karl Sigur- björnsson. Landsspítalinn Gamlaársdagur: Aftansöngur kl. 17. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Nýársdagur: Messa kl. 10. Sr. Jón Bjarman. Borgarspítalinn: Heilsuverndarstöðin. Guðsþjónusta kl. 1.30. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Grensársdeild:Guðsþjónusta kl. 2.30. Sr. Sigfinnur Þorleifsson. Borgarspítalinn: Guðsþjónusta kl. 3.30. Sr. Sigurfinnur Þorleifsson. Háteigskirkja Gamlaársdagur: Aftansöngur kl. 18. Sr. Arngrímur Jónsson. Nýársdagur: Hátíðarmessa kl. 14. Sr. Tómas Sveinsson. Kvöldbænir og fyrir- bænir eru í kirkjunni á miðvikudögum kl. 18. Prestarnir. Hjallaprestakall í Kópavogi Messusalur Hjallasóknar í Digranes- skóla. Gamlaársdagur: Aftansöngur kl. 18. Kór Hjallasóknar syngur. Elín Sigmarsdóttir syngur stólvers. Organisti David Knowles. Sr. Kristján E. Þorvarðarson. Kársnesprestakall Gamlaársdagur: Aftansöngur í Kópa- vogskirkju kl. 18. Sr. Árni Pálsson. Langholtskirkja Kirkja Guðbrands biskups. Gamlaársdagur: Hátíðarguðsþjónusta kl. 18. Nýársdagur: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14 Sr. Jónas Gíslason vígslubiskup prédikar. Sr. Þórhallur Heimisson. Laugarneskirkja Nýársdagur: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14. Einsöngur Laufey G. Geirlaugsdóttir sópran. Kór Laugarneskirkju syngur. Organisti Ann Torlil Lindstad. Kyrrðar- stund í hádeginu á fimmtudögum kl. 12. Orgelleikur, altarisganga og fyrirbænir. Sóknarprestur. Neskirkja Gamlaársdagur: Jólasamkoma barnanna kl. 11. Sr. Frank M. Halldórsson. Aftan- söngur kl. 18.00. Blásarakvartett leikur frá kl. 17.30. Einsöngur Gunnar Guð- bjömsson. Orgel- og kórstjórn Reynir Jónasson. Sr. Guðmundur Oskar Ólafs- son. Nýársdagur: Guðsþjónusta kl. 14. Ein- söngur Inga Bachmann. Orgel- og kór- stjórn Reynir Jónasson. Sr. Frank M. Halldórsson. Seljakirkja Gamlaársdagur: Aftansöngur kl. 18. Eir- íkur Pálsson, Lárus Sveinsson og Ásgeir Steingrímsson leika á trompeta. Nýársdagur: Guðsþjónusta kl. 14. Altar- isganga. Sóknarprestur. Seltjarnarneskirkja Gamlaársdagur: Aftansöngur kl. 18. Hólmfríður Þóroddsdóttir leikur á óbó. Organisti Gyða Halldórsdóttir. Prestur Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir. Nýársdagur: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14. Hallgrímur Magnússon læknir prédikar. Organisti Gyða Halldórsdóttir. Prestur sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir. Frikirkjan í Reykjavík Gamlaársdagur: Aftansöngur kl. 18. Ein- ar Eyjólfsson. Eyrarbakkakirkja Gamlaársdagur: Messa kl. 18. Sóknar- prestur. Kirkja Óháða safnaðarins Gamlaársdagur: Hátíðarmessa kl 18. Sr. Þórsteinn Ragnarsson. Barnaskemmtun Kvenfélagsins í Krikjubæ laugardaginn 30. des. kl. 15. Eyrarbakkakirkja Gamlaársdagur: Messa kl. 18. Sóknar- prestur. Stokkseyrarkirkja Nýársdagur: Messakl. 14. Sóknarprestur. Sundstaðir Reykjavíkur um áramótin: 29. des.: Opið frá kl. 07:00-20:30 (sölu hætt) 30. des.: Opiðfrá 07:20-17:30 (sölu hætt) 31. des. Gamlársdagur: Opið frá kl. 08:00-11:30 (sölu hætt) 1. jan. 1990 Nýársdagur: Lokað. SKIPTIMARKAÐUR á Safnasýningunni í Hafnarborg Laugardaginn 30. des. kl. 15:00 verður haldinn skiptimarkaður í Hafnarborg í tengslum við Safnasýninguna sem opnuð var 9. des. sl. Á skiptimarkaðinum gefst söfnurum og öðru áhugafólki kostur á að skiptast á hlutum, miðla upplýsingum og fróðleik og e.t.v. eignast viðbót í safnið sitt. Á Safnasýningunni eru hlutir úr fórum 36 safnara auk muna úr Byggðasafni Hafnarfjarðar og Ásbúðarsafni, sem nú er í eigu Þjóðminjasafns íslands. Sýningin er fjölbreytt og forvitnileg og hefur vakið athygli. Opnunartími er kl. 14:00-19:00, alla daga nema þriðjudaga. Sýningin stendur til 15. janúar 1990. Jólatrésskemmtun Áttahagafélags Strandamanna Átthagafélag Strandamanna verður með jólatrésskemmtun í Domus Medica laugardaginn 30. desember kl. 15:00. MINNING Sigurbjörg Gísladóttir Fædd 21. október 1894 Dáin 25. desember 1989 í hugarfylgsnum hálfttTaiðrar konu leyndust dýrmætar minningar. Á fallegum haustdegi rakti hún hluta lífssögu sinnar fyrir dóttursyni. Minntist ferðalags úr Öræfum austur í Suðursveit er hún, sex ára gömul, var látin ríða einsömul yfir Jökulsá. Áin var ekki nema í kvið en þó þótti vissara að binda barnið á hestinn. Hún leit með söknuði til frum- bernsku á Hnappavöllum, þar var skemmtun á hverju einasta laugar- dagskvöldi í stofunni hjá Þorsteini í Vestur-Hjáleigunni en hann var mikill fjörkálfur og þar var dansað dátt. Einbýlið í Hestgerði var ólíkt þorpinu á Hnappavöllum og víðar í Öræfum en þó var þar gestagangur afar mikill, bærinn lá í þjóðleið og pabbi hennar, Gísli Þorsteinsson, var svo gestrisinn að við lá að það gengi nærri heimilinu. Hver einasti fjárrekstur úr Öræfum stoppaði við Hestgerði til að hvíla féð og þá fengu rekstrarmennirnir kaffisopa eða aðra hressingu. Hún minntist fyrstu kaupstaðar- ferðarínnar, 18 ára gömul í hópi 5 annarra ungra kvenna er litu í fyrsta sinn kauptúnið unga á Höfn vorið 1913. Það hittist svo á að verslunin var lokuð því kaupmaðurinn og flestir aðrir íbúar kauptúnsins og sveitarinnar fylgdu ástkærum sókn- arpresti, sr. Benédikt Eyjólfssyni, til grafar þann dag. Séra Benedikt ,var með þeim fyrstu er jarðsungnir voru í nýju kirkjunni við Laxá og grafinn húsmóðir, Höfn í kirkjugarði þar hjá. Stúlkunni ungu sem aldurhnigin hlýtur nú hvíld í sama grafreit þótti mikið um að fá boð frá prestsekkjunni að koma í erfidrykkju í kirkjukjallaran- um eftir útförina. Þær héldu til í fjárhúsum handan árinnar ungu stúlkumar úr Suðursveit á Ieið í kaupstað og hún sendi eftir þeim ekkjan unga að koma í kaffi. Hún kynntist Sverri sínum á prest- setrinu á Kálfafellsstað en hann var ráðsmaður hjá séra Pétri í mörg ár og það var nú ekki rokið saman í einu kasti. Þau urðu ein af frum- byggjunum á Höfn og nutu góðra nágranna sem allt byggist á. Sverrir saknaði búskaparins þó og eitt ár bjuggu þau í Haukafelli á Mýrum en við allt of þröngan kost og einangr- un. Þeir byggðu snoturt lítið hús bræðurnir Sverrir og Hannes á Höfn og eftir að Sverrir féll frá varð Hannes stoð og stytta heimilisins. Sigurbjörg Gísladóttir var fædd á Hnappavöllum í Öræfum 21. októ- ber 1894 en fluttist með foreldrum sfnum, Gísla Þorsteinssyni og Ólöfu Stefánsdóttur, að Hestgerði í Suður- sveit sex ára gömul. Hún flutti til Hafnar 1922 með eiginmanni sínum Sverri Halldórssyni frá Syðri-Fljót- um í Meðallandi og bjó þar til dauðadags, 25. desember 1989. Sverrir lést 13. september 1932. Þau eignuðust 6 börn: Gísla er dó 18 ára gamall 1941, Halldór, fiskmatsmann á Höfn, sem kvæntur er Sigrúnu Ólafsdóttur og eiga þau 5 börn, Ingibjörgu, sjúkraliða á Landspítal- anum í Reykjavík, Ólöfu, húsmóður á Höfn, sem gift var Þórhalli Dan Kristjánssyni hótelstjóra en hann lést árið 1975. Börn þeirra eru 3. Sveinbjörn, verkstjóra hjá Fiski- mjölsverksmiðju Hornafjarðar á Höfn. Hann er kvæntur Ásdísi Ólsen og eiga þau 4 börn. Og Svövu, húsmóður á Höfn, sem gift er Árna Stefánssyni hótelstjóra. Þau eiga 5 börn. Sigurbjörg lifði systkini sín öll en þau voru 13. Henni tókst að standa af sér sorgipog erfiðleika. Ung ekkja með 5 lítil börn og þáð sjötta undir belti hefur kynnst erfiðum tímum en einnig náungakærleik eins og hahn getur bestur verið. Hún fær hvíldina langþráðu við hlið eiginmanns síns og sohar eftir 57 ára aðskilnað. Hvíl í friði. Gísli Sverrir Ámason. i

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.