Tíminn - 06.01.1990, Side 6
16
HELGIN
Laugardagur 6. janúar 1989
SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL
Brennandi ástríður
og blóðugt morð
Golfleikarinn gleymdi aö leita kúlunnar
þegar hann gekk fram á handlegg sem stóð upp úr jörðinni
Ijúfa lífift þar til þeim elskhug-
Golfleikarinn lék fyrstu níu holur
vallarins rösklega og sólin skein enn
uppi yfir þegar hann kom á tíundu
brautina. Hann sló og bar hönd yfir
augu til að horfa á eftir kúlunni þar
sem hún hvarf í runnaþykknið með-
fram brautinni.
Á leiðinni þangað velti maðurinn
vöngum yfir hvaða skyssu hann hefði
gert. Þegar hann fór út af flötinni og
öslaði hátt gras og kjarr í leit að
kúlunni var hann enn að liugsa en
skyndilega voru allar hugsanir um
golf á bak og burt og viku fyrir áfalli.
Upp úr jörðinni fyrir fótum hans
stóð hálfrotnuð mannshönd og hluti
framhandleggs.
Golfleikarinn hraðaði sér í golf-
skálann og hringdi til lögreglunnar.
Innan skamms var hópur manna frá
morðdeildinni kominn á vettvang
með skóflur. Bráðlcga höfðu þeir
grafið upp rotnað lík konu.
Þegar fór að skyggja var rannsókn
vel á veg komin í næsta nágrenni í
leit að vísbendingum en er myrkur
skall á hafði enn ekkert fundist. Þar
sem útilokað var að setja upp Ijós og
halda leit áfram var ákveðið að bíða
birtingar.
Daginn eftir var vettvangsrann-
sókn haldið áfram og reynt eftir
megni að trufla ekki golfmót sem
haldið var á vellinum. Þessi fyrsta
vika ágúst 1987 var annavika fyrir
golfleikara á svæðinu.
Tveir silfurhringar
Enn var fátt sem benti til hver
konan gæti verið, raunar aðeins
tveir hringar á vinstri hönd hennar.
Báðir voru þeir úr silfri, ódýrir og að
líkindum keyptir á ferðamannastað
í Evrópu. Slíka hringa var ómögu-
legt að rekja.
Þó mátti af þeim íhuga þann
möguleika að konan væri frá megin-
iandi Evrópu og hefði komið til
Engiands til að starfa á bresku
heimili. Afar margar stúlkur leita í
heimilisstörf í Englandi sem „au
pair“. Hinn möguleikinn var líka til
staðar: Að stúlkan væri ein þeirra
kvenna, einhleypra, giftra eða frá-
skildra sem daglega hverfa í Eng-
landi, annaðhvort viijandi eða óvilj-
andi.
Leitað var til almennings ef ein-
hver kynni að bera kennsl á hring-
ana. Þegar í stað hringdu 25 kvíðnir
ættingjar stúlkna sem höfðu týnst og
vildu fá að skoða hringana.
Hvert einasta tilvik var athugað
gaumgæfilega en það bar engan
árangur. Líklegast var að stúlkan
hefði horfið um jólaleytið fyrir allt
að átta mánuðum, eftir rotnunarstigi
líksins að dæma og gróðrinum um-
hverfis.
Um tíma leituðu lögreglumenn og
sporhundar við golfvöllinn en án
árangurs. Þá sneri lögreglan sér til
sérviturs öldungs sem hafði búið í
tjaldi þar skammt frá í 30 ár og
þekkti svæðið eins og lófana á sér. í
hálfa klukkustund gekk hann hægt
og rólega um skóginn en staðnæmd-
ist loks við tré. Hann benti lögregl-
unni á bókstaf sem hafði verið
skorinn vandlega í börk þess.
- Þetta J var skorið hér f vetur,
sagði hann. - Það má ráða af vexti
barkarins.
Loks taldi lögreglan sig hafa
eitthvað til að fara eftir. Dánaror-
sökin þótti einnig staðfest: Höfuð-
kúpa konunnar hafði verið moluð.
Rannsókn á líkinu benti til að konan
hefði verið um tvítugt og meðalhá.
Staðreyndir síðar leiddu í ljós að allt
var þetta rétt nema aldur konunnar.
Hann reyndist fölsk vísbending.
Morðið var nú sett á svið: Konan
hafði verið slegin niður og höfuð
hennar síðan molað, ef til vill með
því að slá henni við trjástofn. Það
var þó ekki fulivíst. Ennfremur gat
verið að hún hefði verið myrt annars
staðar og síðan flutt út í skóginn.
Hópur manna leitaði meðfram veg-
inum að sönnunargögnum og annar
hópur talaði við íbúa í grenndinni ef
einhver kynni að hafa séð grunsam-
legan bíl á ferð.
Æstur maður á föstum bíl
Merkilegasta vísbendingin í mál-
inu kom þegar eigandi dráttarbíls í
nágrenninu gaf sig fram og skýrði frá
atburði sem átti sér stað í janúar.
Hringt var til hans vegna bíls sem sat
fastur í leðju á kjarrsvæði. Staðurinn
reyndist vera skammt frá þar sem
líkið fannst.
- Maðurinn var í miklu uppnámi,
rifjaði eigandi dráttarbílsins upp.
Slíkt var svo sem ekki óeðlilegt en
þessi maður virtist hafa áhyggjur af
öðru og meira en bara bíl sínum.
- Þegar ég var búinn að losa
bílinn, tilkynnti náunginn að hann
hefði enga peninga til að borga mér
með, hélt maðurinn áfram. - Ég
sagðist þá taka varahjólið sem trygg-
igu en hann sagðist ekki hafa neitt
slíkt. Ég trúði honum ekki og leit í
farangursgeymslu bílsins. Þá rauk
hann upp og skipaði mér að hætta að
snuðra. Ég vildi engin vandræði og
fór án þess að fá eina tryggingu.
Hann lofaði að borga mér en ég vissi
að hann gerði það aldrei.
- Þú hefur þó ekki fengið nafnið
hans? spurði lögreglumaður.
- Ég hef það hérna, svaraði mað-
urinn. -Ég er líka með bílnúmerið,
bætti hann við og rétti fram blað-
snepil.
Nafnið var R. Jones og líklegt var
að það væri falskt nafn. Sú trú
styrktist til muna þegar í ljós kom að
bílnúmerið var af flutningabíl sem
ekið hafði verið á haugana nokkru
áður. Jones þessi þurfti samt ekki að
vera morðingi, þótt líklega ætti hann
sér eitthvert leyndarmál.
Vísindaleg rannsókn útilokaði
brátt R. Jones því hún leiddi í ljós
að líkið hafði verið grafið öllu lengur
en í fyrstu var talið, eða síðan í
byrjun desember 1986, heilum mán-
uði áður en dráttarbíiiinn var kallað-
ur á vettvang.
Reynt var að dæla efnablöndu
undir húð þá sem eftir var á fingrum
líksins í því skyni að ná fingraförum
þess en það dugði ekki til að komast
að hver konan var. Enn var leitað til
almennings því einhver hlaut að
hafa þekkt konuna.
Tannlæknir úti á landi
Eftir nokkra daga kom miðaldra
vélvirki frá Hertfordshire og sagði
dapurlega sögu. Eiginkona hans, 38
ára að aldri hvarf að heiman sumarið
1981, á sama tíma og heimilisvinur
hvarf að heiman frá sér. Nokkrum
dögum síðar sást konan í Dublin en
síðan hafði ekkert tii hennar spurst.
Hin íturvaxna Jean Cotter stundaði
anum lenti saman í síðasta sinn.
Lögreglan fór vandlega yfir þetta 6
ára gamla mál þar sem lýsingin á
konunni kom nákvæmlega heim við
líkið. Eftir mikla vinnu varð ljóst að
þetta var ekki rétta konan.
Svipaðar sögur voru reyndar
mýmargar en hægt var að afskrifa
þær flestar og enn var ekki ljóst hver
Róiegheitamaðurinn Seymour
Brown þoldi lengi vel bæði árásir
og svívirðingar en loks fauk í
hann.
konan í skóginum við golfvöllinn
var.
Þegar komið var fram í september
1987 og meira en mánuður liðinn frá
líkfundinum var megináherslan lögð
á að leita þess tannlæknis sem gert
hafði við tennur hinnar myrtu og
gæti þekkt handarverk sín.
Hann fannst loks í Mansfield í
Nottinghamshire og sagði að þetta
væri mjög líkt einum sjúklingi sínum
sem horfið hafði sex árum áður.
Konan hét Jean Cotter og var
fimmtug. Þótt hún gæti verið sú
myrta í skóginum, var lítið annað á