Tíminn - 12.01.1990, Qupperneq 3

Tíminn - 12.01.1990, Qupperneq 3
Föstudagur 12. janúar 1990 Tíminn 3 íþrótta- og tómstundaráð vill að borgin greiði að fullu húsaleigu fyrir íþróttafélög. Gamalt baráttumál Framsóknarmanna. Alfreð Þorsteinsson: Fagna slíkri hugarfars- breytingu hjá íhaldinu íþrótta- og tómstundaráð hef- ur lagt til við borgarráð að tillögu borgarstjórnar, að húsa- leiga íþróttafélaga í Reykjavík verði greidd að fullu en hingað til hafa félögin sjálf þurft að greiða helming hennar. „Framsóknarflokkurinn hefur á yfirstandandi kjörtímabili barist fyr- ir því að húsaleiga íþróttafélaganna í Reykjavík yrði felld niður, líkt og á sér stað í öllum nágrannasveitarfé- lögum Reykjavíkur. Þessi tillaga hefur lengi mætt andstöðu Sjálf- stæðisflokksins, en nú virðist borg- arstjórnarmeirihlutinn loksins vera að átta sig á að hér er um sanngirnis- og réttlætismál að ræða,“ sagði Al- freð Þorsteinsson fulltrúi Framsókn- armanna í íþrótta- og tómstunda- ráði. Alfreð minnti á að á miðju síðasta ári lagði Framsóknarflokkurinn það til í borgarráði að athugað yrði hvernig önnur sveitarfélög stæðu að stuðningi við íþróttafélög í því skyni að það mætti verða til að íþróttafélög í borginni nytu ekki síðri kjara. Könnunin hefði farið fram og hún leitt í Ijós að nágrannasveitarfélögin studdu íþróttafélög sín umtalsvert betur en Reykjavíkurborg og greiddu meðal annars að fullu æf- ingatíma íþróttafélaga. Þá kom og í ljós að sveitarfélögin eftirláta fé- lögunum allar tekjur af keppnis- haldi. Reykjavíkurborg hefði hins vegar aðeins greitt hluta húsaleigu félag- anna eftirá og sagði Alfreð að það hefði reynst reykvískum íþróttafé- lögum þungur baggi, einkum í Minningarrit um Halldór Pálsson Gefið hefur verið út minningarrit um dr. Halldór Pálsson búnaðar- málastjóra. Um er að ræða alþjóð- legt rit með ritgerðum eftir innlenda og erlenda höfunda, skrifað á ensku. Æviárgrip er einnig á íslensku, svo og greinargóð yfirlit með öllum rit- gerðum sem að stofni eru erindi frá fræðafundi er haldinn var í ágúst 1987 til að heiðra minningu Halldórs, en hann lést árið 1984. í bókarlok er birt skrá yfir öll ritverk hans, flokkuð í greinar á erlendum tungumálum annars vegar og á ís- lensku hins vegar. Hér er því á ferðinni eitt helsta fræðirit á sviði sauðfjárræktar, sem gefið hefur ver- ið út hérlendis, auk þess að fjalla í máli og myndum um ævi og störf Halldórs. Minningarritið er gefið út af Bún- aðarfélagi íslands og Rannsóknar- stofnun landbúnaðarins. Ritstjórar eru dr. Ólafur Dýrmundsson og dr. Sigurgeir Þorgeirsson. Ritið er til sölu hjá Búnaðarfélagi fslands, Bændahöllinni. -EÓ Áskriftarsíminn 686300 rwryy' • iiminn ____Lynghálsi 9_ tengslum við innanhússgreinar eins og handknattieik og körfuknattleik. „Ég fagna að sjálfsögðu hugarfars- breytingu borgarstjórnarmeirihlut- ans í Reykjavík, en minni á að enn er Reykjavík langt á eftir nágranna- byggðunum varðandi uppbyggingu íþróttamannvirkja. Framsóknar- flokkurinn mun leggja til að gerð verði fjögurra ára framkvæmdaáætl- un um uppbyggingu þeirra þannig að börn og unglingar í Reykjavík hafi ekki lakari aðstöðu en jafnaldr- ar þeirra í nágrannasveitarfélögun- um,“ sagði Alfreð Þorsteinsson. -sá . JJ JiJ ÍjJJ lli AF SlMtój I' AUilUui Frá og með 1. janúar 1990 skulu starfsmenn greiða 4% iðgjald af öllum launum til lífeyrissjóða og atvinnurekendur með sama hætti 6%. Til iðgjaldaskyldra launa telst m.a. yfirvinna, ákvæðisvinna og bónus. Með auknum iðgjaldagreiðslum ávinna sjóðfélagar sér aukinn lífeyrisrétt! E Lsj. E Lsj. E Lsj. E Lsj. E Lsj. E Lsj. & Lsj. E Lsj. E Lsj. E Lsj. E Lsj. E Lsj. E Lsj. byggingamanna E Lsj. Dagsbrúnar og Framsóknar E Lsj. Félags garðyrkjumanna E Lsj. framreiðslumanna E Lsj. málm- og skipasmiða E Lsj. matreiðslumanna E Lsj. rafiðnaðarmanna E Lsj. Sóknar E Lsj. verksmiðjufólks E Lsj. Vesturlands E Lsj. Bolungarvíkur E Lsj. Vestfirðinga E Lsj. verkamanna, Hvammstanga E Lsj. stéttarfélaga í Skagafirði Iðju á Akureyri Sameining, Akureyri trésmiða á Akureyri Björg, Húsavík Austurlands Vestmanneyinga Rangæinga verkalýðsfélaga á Suðurlandi Suðurnesja verkafólks í Grindavík Hlífar og Framtíðarinnar bygg. iðnaðarmanna í Hafnarf. SAMBAND ALMENNRA LÍFEYRISSJÓÐA Samræmd lífeyrisheild

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.