Tíminn - 12.01.1990, Síða 5
(/Oí'; i.- v IíTí5i ,<J i V.Vht lícV
Föstudagur 12. janúar 1990 Tíminn 5
Skilur stór meirihluti landsmanna ekki kostnaðinn af skuldum sínum:
Fjármálahugtök
flestum latína?
Þótt flestir íslendingar hafi sjálfsagt einhverntíma tekið
Ián, þann áratug sem verðtrygging hefur verið nánast
allsráðandi, kemur í Ijós að 2 af hverjum 3 skilja ekki
hugtökin; nafnvextir, raunvextir og verðtrygging. Sú var
a.m.k. niðurstaða víðtækrar könnunar sem Félagsvísinda-
stofnun gerði fyrir viðskiptabankana meðal landsmanna
18-75 ára. Ekki hvað síst vekur athygli að meirihluti
sjálfstæðra atvinnurekenda taldi sig ekki skilja þessi hugtök
og heldur ekki nema sára fáir af þeirri kynslóð sem hvað
lengsta skólagöngu hefur að baki, þ.e. fólk um og undir
hálfþrítugu, sem alist hefur upp með verðtryggingu á nær
öllum sviðum.
í könnun þessari var spurt margra
spurninga varðandi afstöðu fólks
m.a. til; þjónustu bankanna og lip-
urð starfsmanna þeirra, sem um
80% svöruðu jákvætt og yfir 91%
þegar spurt var um viðskiptabanka
viðkomandi svaranda. Bankastjórar
voru ánægðir með afstöðu fólks til
atriða sem snéru beint að bönkunum
og starfsemi þeirra.
Trú á þekkingu
almennings enn minni
Sú spurning sem fyrst var vitnað
til hljóðaði hins vegar svo: „Telur þú
þig vita hvað hugtök eins og nafn-
vextir, raunvextir og verðtrygging
þýða?“ Þeirri spurningu svöruðu,
sem fyrr segir, tæplega 67% alls
úrtaksins (1.023 manns) neitandi,
um 33% játandi, en aðeins 1%
færðist undan að svara henni eða tók
ekki afstöðu. Enn minni trú höfðu
þátttakendur á vitneskju samborg-
ara sinna. í>ví spurningu um hvort
almenningur viti nægilega vel hvað
áðurgreind hugtök þýða svöruðu
92% fólks neitandi.
Skilja kjósendur
sijórnmáiamennina?
Sú spurning vaknar hvað þeir,
sem efins eru um muninn á t.d.
nafnvöxtum og raunvöxtum, grípa
þá mikið af hinni stöðugu efnahags-.
málaumræðu sem að miklu leyti
snýst um hugtök eins og:
Kaupmáttaraukningu/rýrnun
Framfærsluvísitölu
Fjármagnskostnað
Greiðslubyrði
Misgengi
Raungildi - Núvirði
Hátt/lágt raungengi
Samkeppnisstöðu
Rekstrarafkomu
Viðskiptajöfnuð
Vaxtamun
Landsframleiðslu
Þjóðartekjur - svo nokkuð sé
nefnt af þeim hugtökum sem m.a.
stjórnmálamenn og foringjar laun-
þega, atvinnurekenda og fjármagns-
markaðar eru eiliflega að ræða um.
Hvað skilur þjóðin mikið af viðtöl-
unt fjölmiðla og ræðum manna um
þessi efni?
Tíminn spurði nokkra forystu-
menn á ýmsum sviðum þjóðlífsins
fólk almennt gerir sér ekki betur
grein fyrir, t.d. mismunandi kostn-
aði af lánum sem það er að taka eða
mismunandi ávöxtunarmöguleikum
fjármuna sem það á, heldur en ráða
má af svörum þess í könnuninni?
Hvemig tekur fólk þá t.d. afstöðu til
mismunandi leiða út úr efnahagserf-
iðleikum heimila sinna, fyrirtækja
sinna eða þjóðarinnar í heild? Hefur
kynning og upplýsingagjöf brugðist
einhvers staðar, t.d. í skólum,
bankakerfinu, hjá launþegasamtök-
um, fjölmiðlum eða öðrum?
Niðurstaðan úr svörum fólks
við spurningunum um vexti og
verðtryggingu kom greinilega
mörgum á óvart, þótt svör þeirra
væru að öðru leyti töluvert mis-
munandi.
„Trúi þessu ekki“
„Ég hreinlega
trúi þessu ekki.
Ég held að þetta
geti ekki verið
rétt,“ sagði Ein-
ar Oddur Krist-
jánsson, form.
VSÍ. „Ég held að
menn viti nú
nokkurn veginn
um eðli þessara hugtaka þó þeir vilji
kannski ekki svara þessari spurningu
nema neitandi, vegna þess að þeir
treysta sér kannski ekki til að skil-
greina þessi hugtök nákvæmlega."
„í stíl við afstöðuna til EB“
„Þetta eru
náttúrlega ekk-
ert sérstaklega
góðar fréttir,"
sagði Páll Pét-
ursson, formað-
ur þingflokks
Framsóknai flokks-
ins.
„Þetta er í stíl
við niðurstöður úr nýlegri skoðana-
könnun þar sem könnuð var afstaða
íslendinga til Evrópubandalagsins,
þar sem fjöldi fólks virtist telja að
við ættum að ganga í Evrópubanda-
lagið, án þess að vita nokkuð um
hvað það var að tala,“ sagði Páll.
Ekki hissa....
ȃg er ekki
mjög hissa á
þessu, þvímaður
verður iðulega
var við hvað
þetta vefst fyrir
fólki," sagði
Ingvi Öm Krist-
insson, hag-
fræðingur hjá
Seðlabankanum. „Vitanlega er þetta
slæmt. En ég veit ekki hver helst
hefur brugðist. Skólakerfið fræðir
fólk ekki í þessum efnum. Stjóm-
málamenn eru oft óábyrgir í sinni
umfjöllun um efnahagsmál. Kannski
hefði Seðlabankinn átt að rækja
upplýsingaskyldu sína betur. Þama
virðist mér a.m.k. þarft verkefni
fyrir sjónvarpsstöðvarnar - því mér
finnst líklegt að það sé einna helst í
gegn um slíka fjölmiðla sem hægt er
að ná til alls fjöldans með einhverj-
um árangri,“ sagði Ingvi Örn.
Þekkir einn hagfræðing
- pyngjuna
„Ef á hinn
bóginn hefði ver-
ið spurt í
könnuninni:
Sligar vaxta-
kostnaður og
fjármagnskostn-
aður þig og þitt
heimiíi? Þá hefði
fólk ekki velkst í ^
vafa um svarið," sagði Ögmundur
Jónasson formaður BSRB. „Það
skiptir engu máli hvort menn kunna
að skilgreina hvernig þessi
fjármagnskostnaður skiptist - hvað
af honum þýðir verðtrygging, hvað
af honum raunvextir eða einhver
önnur nöfn. Það sem skiptir máli, og
það sem fólk veit, er að fjármagns-
kostnaður er allt of mikill og að hann
er að sliga einstaklinga og heimili.“
- Skiptir ekki máli hvort fólk getur
áttað sig á lánakostnaði áður en lán
er tekið, en ekki þá fyrst þegar
„gluggabréfin“ fara að berast?
„Jú. En þegar athugað er misgengi
lána og launa þá kemur á daginn að
það misgengi er eins mikið núna og
það var einna verst á árunum 1984-
1985. Samsetningin á því er hins
vegar allt önnur. Nú vega raunvextir
þyngra en verðtryggingin. Það sem í
raun skiptir máli er misgengið, ekki
hvað það kallast og hvernig það er
skilgreint. Almenningur skilur einn
„hagfræðing“, sem er eigin pyngja,"
sagði Ögmundur.
Mikilþórfá
fuliorðinsfræðslu
„Þetta kemur
mjög á óvart.
Einhvern veginn
hélt ég að megin-
þorri fólks vissi
þetta,“ sagði Jó-
hannes Gunnars-
son, form. Neyt-
endasamtak-
anna. Ef rétt er
telur hann þetta hljóta að vera
lýsandi dæmi um að efnahagsumræð-
an í þjóðfélaginu hljóti að fara fyrir
ofan garð og neðan hjá megin þorra
landsmanna, sem að sjálfsögðu sé
alvarlegt mál. Þar sem bankakerfið
byggist nær allt á verðtryggingu spyr
Jóhannes: „Hefur bankakerfið ekki
skyldum að gegna við að upplýsa
fólk? Hefur bankakerfið brugðist?
Viti fólk ekki meira en þetta sýnir
það líka verulega gloppu í skólakerf-
inu og er talandi dæmi um þörfina
fyrir aukna neytendafræðslu á öllum
stigum skólakerfisins. Því þessi atr-
iði eru vitanlega mjög mikilsverð
hvað varðar rekstur og afkomu
hcimila," segir Jóhannes.
„Fræðsluna vantar“
„Mér mér
finnst þeir ótrú-
lega margir sem
ekki kunna skil á
þessum hugtök-
um, það ætti hins
vegar ekki að
koma á óvart sé
litið á það hve
fræðsla um þessi
mál er af skornum skammti," sagði
Krístín Einarsdóttir, formaður þing-
flokks Kvennalistans.
„Ég hef tekið eftir því sjálf af því
að tala við fólk að margir átta sig
ekki á muninum á nafnvöxtum og
raunvöxtum, en ég held að flestir viti
hvað verðtrygging er. Eitt af því sem
ég hef tekið eftir, sérstaklega eftir að
ég byrjaði í pólitísku starfi, er að
jafnvel þeir embættismenn og pólit-
íkusar sem tala um hagfræðileg hugt-
ök skilja þau ekki nægilega vel
sjálfir, hvað þá aðrir."
„Þeir eru verstir
litlu spámennirnir“
„Þetta er |Jifc W
ábyggilega rétt,“ ||
sagði Guðmund- §f '[J
ur J. Guðmunds-
son, formaður
Verkamanna-
sambands ís-
lands. „Mér
kemur þetta ekki
á óvart. Stjórn-
málamenn og svokallaðir efnahags-
ráðgjafar hafa tamið sér sérstakt
málfar sem er almenningi ákaflega
fjarlægt.“
- En skilja þeir sjálfir, sem eru að
reyna að útskýra efnahags- og kjara-
mál fyrir almenningi með fræðiheit-
um, hvað þeir eru að tala um?
„Ekki aílir, en þeir telja sér nauð-
synlegt að nota þau,“ sagði Guð-
mundur. „Þetta á að vera einhver
gæðastimpill hjá þeim, eins konar
sveinsstykki, er sanni að þeir séu
lærðir menn. Verstir eru litlu spá-
mennirnir, sem reyna að vera stórir
með því að temja sér þetta málfar,
til þess að almenningur hafi trú á því
að þeir séu gjaldgengir til einhvers."
Aðspurður um hvort væri heppi-
legra, að fræða fólk um hugtök sem
notuð eru í efnahagsmálaumræðu,
eða breyta málfari þeirra sem tala
við það, sagði Guðmundur að
skynsamlegra væri að breyta málfari
fræðinganna - þeir væru miklu færri.
Guðmundur J. sagði það ekki
hafa komið sér á óvart að bankarnir
létu gera skoðanakönnun sem þessa,
niðurstöður hennar væru furðulegar.
„Hvað eru þeir að spyrja hvort
menn séu ánægðir með banka eða
ekki?, sjötíu og fimm prósent af
landsmönnum eru öskrandi vitlausir
út í vaxtaokrið. Hvaða vinsældum er
verið að fiska eftir, þegar spurt er
um hvort afgreiðslufólk sé almenni-
legt eða ekki? Ég næ ekki þeirri
niðurstöðu," sagði Guðmundur.
-HEI/ÁG
Ráðherrar kynntu sér afleiðingar flóðanna á Eyrarbakka og
Stokkseyri í gær. Félagsmálaráðherra segir:
Sjóvarnagarða
fyrir 75 milljónir
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra segist telja að ríkis-
valdið verði nú þegar að leggja fram
fjármagn til að endurbyggja sjó-
varnagarða á Eyrarbakka og Stokks-
eyri. Ráðherra ætlar að ræða málið
á ríkisstjórnarfundi í dag. Jóhanna
skoðaði skemmdirnar á Eyrarbakka
og Stokkseyri í gærmorgun. Stein-
grímur J. Sigfússon samgönguráð-
herra og yfirmenn Vita- og hafna-
málaskrifstofunnar fóru einnig aust-
ur í gær til að kanna gagnsemi
sjóvarnagarða.
„Það er hrikalegt tjón sem þarna
hefur orðið. Það liggur fyrir að
viðlagatryggingar bæta ekki tjónið á
þessum sjóvarnagörðum. Ég iteld að
það verði ekki hjá því komist að
veita fjármagni til uppbyggingar
sjóvarnagarðanna, bæði á Stokks-
eyri og Eyrarbakka. Báðir staðimir
eru bókstaflega berir fyrir ágangi
sjávar eftir hrun sjóvarnagarðanna.
Það er mitt mat að það sé ábyrgðar-
hluti af ríkisvaldinu að bregðast ekki
skjótt við í þessu máli. Mér sýnist að
ef vel á að vera þurfi á báðum
þessum stöðum 1200-1500 metra
langa sjóvarnagarða. Bygging þeirra
mun kosta a.m.k. 75 milljónir
króna,“ sagði Jóhanna.
Félagsmálaráðherra sagði að í
samtölum sínum við heimamenn á
Eyrarbakka og Stokkseyri hefði
komið fram að fyrirtækin sem urðu
fyrir hvað mestu tjóni, treysti sér
vart til að byggja þau upp að nýju ef
sjóvarnagarðarnir verða ekki endur-
byggðir.
Stokkseyrarhreppur hefur óskað
eftir aðstoð vegna þess tjóns sem
hreppurinn hefur orðið fyrir, en þar
er m.a. um að ræða tjón á vegum í
sveitarfélaginu. Jóhanna sagði að
hún myndi ræða þetta mál á ríkis-
stjórnarfundi í dag.
Á síðastliðnu hausti voru gerðir
nýir sjóvarnagarðar á Eyrarbakka á
sjávarkambinum vestast í þorpinu.
Þeir voru gerðir eftir forskrift verk-
fræðistofunnar Fjarhitunar sem fyrir
nokkru gerði úttekt á þörfum fyrir
slíka garða á Eyrarbakka og Stokks-
eyri. Þessir nýju garðar stóðust
stormflóðin fullkomlega og hafa
ekki haggast. Hins vegar rofnuðu
eldri garðar á allmörgum stöðum og
þar urðu skemmdir verulegar.
Magnús Karel Hannesson, oddviti
á Eyrarbakka, sagði í gær að hann
vonaðist til að augu ráðamanna
hefðu opnast fyrir nauðsyn góðra
sjóvarnagarða svo koma mætti í veg
fyrir skemmdir af völdum flóða í
framtíðinni. -EÓ/sá