Tíminn - 12.01.1990, Page 10
10 Tíminn
Föstudagur 12. janúar 1990
Tilkynning til
launaskattsgreiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að
gjalddagi launaskatts fyrir mánuðina nóvember og
desember er 15. janúar n.k.
Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til inn-
heimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík tollstjóra, og
afhenda um leið launaskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið.
yy Rafvirkja
með framhaldsmenntun í faginu vantar til starfa.
Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri í síma 95-
35474, 95-35270.
Sjúkrahús Skagfirðinga,
Sauðárkróki.
wr\i\ou i Mnr
Unnur
Stefánsdóttir
Guðni
Ágústsson
Jón
Helgason
íbúar Grímsness, Þingvalla
og Grafningshreppa
Alþingismenn Framsóknarflokksins boöa almennan stjórnmálafund á
Borg í Grímsnesi mánudagskvöldiö 15. jan. n.k. kl. 21.00.
Enn fremur kemur á fundinn Unnur Stefánsdóttir varaþingmaöur.
Þorrablót
Þorrablót Framsóknarfélags Hveragerðis verður haldið í Verka-
lýðssalnum, Austurmörk 2, föstudaginn 19. janúar.
Húsið opnað kl. 19.00.
Miðaverð kr. 1500.-
Upplýsingar og miðapantanir hjá eftirtöldum aöilum:
Gísli Garðarsson s: 34707.
Sturla Þórðarson s: 34636.
Garðar Hannesson s: 34223/34395.
Nánar auglýst síðar.
Stjórnin
Kópavogur - Þorrablót
Hið landsfraega þorrablót framsóknarfélaganna í Kópavogi verður
haldið í Félagsheimili Kópavogs laugardaginn 20. janúar og hefst kl.
20.00.
Matinn frá Sveinbirni í Veislustöðinni þekkja allir og Lúdósextett og
Stefán sjá um fjörið fram undir morgun.
Miðapantanir: Einar í síma 43420 og 41590, Guðrún í síma 641512
og hjá formönnum félaganna.
Tryggið ykkur miða tlmanlega á þessa glæsilegu skemmtun.
Nefndin.
Framsóknarfélag Garðabæjar
Almennur félagsfundur verður haldinn n.k. mánudagskvöld kl. 20.30
að Goðatúni 2.
Fundarefni: Bæjarstjórnarkosningarnar. önnur mál.
Stjórnin.
Kópavogur - Opið hús
Opið hús alla miðvikudaga að Hamraborg 5, kl. 17-19.
Alltaf heitt á könnunni.
Framsóknarfélögin.
milHlllllll DAGBÓK
Bruno Ehrs-ljósmyndasýning í
anddyri Norræna hússins 13. jan.-ll.febr.:
TÚLKANIR - Ijósmyndir
af höggmyndum
Laugardaginn 13. jan. verður opnuð
Ijósmyndasýning í anddyri Norræna
hússins. Hér er um að ræða myndir sem
sænski Ijósmyndarinn Bruno Ehrs hefur
tekið af höggmyndum fimm af þekktustu
myndhöggvurum Norðurlanda. Það var
ritstjórn listatímaritsins SIKSI, sem er
gefið út af norrænu listamiðstöðinni í
Sveaborg, sem ákvað að helga eitt tölu-
blað helstu myndhöggvurum Norður-
landa. Valdir voru myndhöggvararnir
Einar Jónsson (1874-1954) Islandi, Ru-
dolph Tegner (1873-1950) Danmörku,
Gustav Vigeland (1869-1943) Noregi,
Váinö Aaltonen (1894-1966) Finnlandi
og Carl Milles (1875-1955) Svíþjóð.
Þessir myndhöggvarar eiga það allir
sameiginlegt að reist hefur verið sérstakt
safn yfir verk þeirra.
Bruno Ehrs var valinn til þessa verkefn-
is og ferðaðist hann um Norðurlönd og
tók Ijósmyndir af höggmyndum meistar-
anna. Hann valdi 25 bestu myndirnar
fyrir þessa sýningu. Þær eru allar svart-
hvítar. Sýningin var fyrst sett upp í
Milles-safninu í Stokkhólmi og síðan
hefur hún verið sýnd í Wáinö Aaltonen-
safninu í Abo, og á tveimur söfnum í
Danmörku, Rudolph Tegner-safninu og
Gammel Holtegard safninu.
Bruno Ehrs er fæddur 1953. Hann
hefur starfað sjálfstætt sem Ijósmyndari
frá 1979. Hann hefur haldið einkasýning-
ar í Stokkhólmi, Helsinki og París. Hann
hélt sýningu í anddyri Norræna hússins
1988 sem nefndist „Stokkhólmsröðin“.
Sýningin er opin daglega kl. 09:00-
19:00, nema sunnudaga kl. 12:00-19:00.
Aðgangur er ókeypis.
FBA-samtökin
FBA (fullorðin börn alkóhólista) -sam-
tökin eru sjálfshjálparhópar, þar sem fólk
hittist og deilir reynslu sinni, styrk og
vonum til að losna undan áhrifum þess að
alast upp við slæmar fjölskylduaðstæður.
FBA-samtökin eru opin bæði fullorðnum
börnum alkóhólista og öðrum sem líkt er
ástatt um.
Deildir sem voru í Þverholti 20 hafa
flutt í annað húsnæði. Þriðjudagsdeild og
fímmtudagsdeild fíytja í Langagerði 1 og
hefjast fundir sem fyrr kl. 21:00. Laugar-
dagsdeildin, sem var í græna húsinu kl.
11:00 fellur niður, en aðrar deildir eru
óbreyttar: Miðvikudagsdeild kl. 21:00 í
kjallaranum Fríkirkjuvegi 11 og Sunnu-
dagsdeild kl. 11:00 í Bústöðum. (félags-
miðstöðin í kjallara Bústaðakirkju).
Jóna, tengiliður, hefur síma 30227 eftir
kl. 18:00.
HAFNARBORG
SAFNASÝNING í Hafnarborg
Safnasýningin í Hafnarborg, menning-
ar- og listastofnun Hafnarfjarðar, verður
opin sunnudaginn 14. janúar og mánu-
daginn 15. janúar kl. 14:00-19:(K). Þetta
eru síðustu sýningardagar.
Athugið að lokað verður laugardaginn
13. janúar.
Laugardagsganga Hana nú
Hin vikulega laugardagsganga Hana
nú í Kópavogi verður á morgu, 13.
janúar. Lagt af stað frá Digranesvegi 12
kl. 10:00.
„Með hverjum laugardegi hækkar sólin
og birtan vex. Gönguglaðir Kópavogsbú-
ar munu þreyja þorrann og góuna og
ganga móti hækkandi sól og birtu í
náttúru og sinni. En jafnframt lifum við í
núinu, og hver laugardagur er samveru-
stund á góðra vina fundi. Og dæmin sýna,
að veður eru okkur hagstæð og við
göngum oft milli lægða á laugardags-
morgnunum. Nýlagað molakaffi," segir í
bréfi frá Frístundahópnum Hana nú í
Kópavogi.
Textíl sýning í
Galleríi Sævars Karls
í Galleríi Sævars Karls, Bankastræti 9,
stendur nú yfir textil-sýning Málfríðar
Aðalsteinsdóttur. Hún er fædd í Reykja-
vík 1960 og stundaði nám við Statens
Handverks- og kunstindustriskole í Oslo.
Útskrifaðist með diplom við Textildeild
1987.
Málfríður hefur sýnt verk sín í Þýska-
landi og á Norðurlöndum.
Sýningin stendur til 25. janúar og er
opin á verslunartíma.
Ljóðatónleikar á Egilsstöðum
Laugardaginn 13. janúar verða haldnir
Ijóðatónleikar á Egilsstöðum. Þar syngur
Gunnar Guðbjörnsson, tenór og Jónas
Ingimundarson leikur á píanó.
Frá Félagi eldri borgara
Dansnámskeiðin hefjast aftur í Nýja
dansskólanum laugardaginn 13. janúar.
Upplýsingar hjá Nýja dansskólanum, Ár-
múla 17A, sími 38830.
FÍM-salurinn
Samsýning félagsmanna í Félagi ís-
lenskra myndlistarmanna stendur yfir í
FÍM-salnum og Galleríinu, Garðastræti
6. Opið er kl. 14:00-18:00 virka daga.
Listasafn ASt:
Sýning Sigurjóns Jóhannssonar
Laugard. 13. jan. kl. 14:00 verður
opnuð sýning á verkum Sigurjóns Jó-
hannssnnar leikmyndateiknara og málara
í Listasafni ASl við Grensásveg.
Sigurjón á að baki langan listferil hjá
Þjóðleikhúsinu og hefur gert þar yfir 50
leikmyndir auk leikmynda fyrir kvik-
myndir, m.a. Nonna og Manna.
Sigurjón er fæddur og uppalinn á
Siglufirði og sýningin sem hér kemur fyrir
sjónir almennings er byggð á lífsreynslu
hans sjálfs frá bernskuárunum þar.
Að lokinni sýningunni í Reykjavík fer
sýning Sigurjóns sem LIST UM LANDIÐ
á vegum Listasafns ASÍ til gömlu síldar-
plássanna og fleiri staða úti á landi.
Sýningin er opin virka daga kl. 16:00-
20:00 og um helgar kl. 14:00-20:00. Á
sýningunni verður seld bókin Svartur sjór
af síld (síldarævintýrin miklu á sjó og
landi) eftir Birgi Sigurðsson, útgefandi er
Forlagið. Aðgangur að sýningunni er
ókeypis.
Sýningin stendur til 28. janúar.
Sunnudagsferðir Útivistar
Þórsmerkurgangan: Fyrsti áfangi
sunnud. 14. jan. Id. 13:00.
Farinn verður fyrsti áfangi Þórsmerk-
urgöngunnar sunnud. 14. jan. Gengið
verður úr Grófinni eftir gömlu þjóðleið-
inni upp í Árbæ. Leiðinni verður skipt í
stutta áfanga til þess að gera öllum kleift
að taka þátt í göngunni. Áfangastaðir
verða: Arnarhóll, Droplaugarstaðir,
Öskjuhlíð, Grímsbær, Elliðaárhólmar og
gamli Árbærinn. Lagt verður af stað úr
Grófinni kl. 13:00. Allir velkomnir. Boð-
ið upp á rútuferð til baka.
Skíðagöngunámskeið sunnudaginn 14.
janúar.
1 fyrstu skíðagöngu Útivistar á árinu
mun vanur skíðagöngumaður leiðbeina
þátttakendum á gönguskíðum. Hug-
myndin er að seinna í vetur verði svo
gefinn kostur á framhaldsnámskciði.
Lag af stað frá Umferðarmiðstöð -
bensínsölu kl. 13:00. Áætlað er að koma
til baka kl. 17:30. Farmiðar við bíl (600
kr.) Allir velkomnir.
Sunnudagsferð F.í. 14. jan.
Þingvellir í byrjun árs er sunnudagsferð
Ferðafélags Islands 14. janúar kl. 11:00.
Fyrst verður létt ganga frá Vatnsviki um
Konungsveg að Hrafnagjá, en síðan mun
sr. Heimir Steinsson þjóðgarðsvörður
taka á móti hópnum á Skáldareit og segja
frá sögu staðarins. Að því loknu verður
stutt helgistund í Þingvallakirkju.
Fararstjóri er Sigurður Kristinsson.
Brottför frá Umferðarmiðstöðinni, aust-
anmegin Farmiðar við bíl (1000 kr.) Frítt
er fyrir börn með fullorðnum. Heimkoma
um kl. 16:30.
Þórsmörk að vetri 2.-4. febr. Þetta
verður þorrablótsferð F.Í.. Gist í Skag-
fjörðsskála. Pantið tímanlega.
Ferðafélag tslands
llllllllllllllll MINNING llllllllllllllllllllllllllllllllllllíllllllllllllllllllllllll^
Ingveldur J.R. Pálsdóttir
Fædd 4. ágúst 1904
Dáin 30. desember 1989
í dag verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju Ingveldur J.R. Pálsdótt-
ir, móðir mín, 85 ára að aldri. Hún
fæddist að Hjallakoti á Álftanesi, en
flutti til Reykjavíkur níu ára gömul.
Foreldrar hennar hétu Ólöf Jóns-
dóttir og Páll Stefánsson. Móðir mín
var fimmta í röð sjö systkina. Tvö af
þeim eru nú eftirlifandi. Eftir að þau
fluttust til Reykjavíkur var móðir
mín í vist á ýmsum stöðum, meðal
annars hjá Ingibjörgu Ólafsdóttur.
En síðar lærði hún að sníða og
sauma hjá systur Ingibjargar, Maríu
Ólafsdóttur. Og það nýttist henni
alla ævi. Eftir það fór hún að vinna
á netaverkstæði í Viðey. Síðan fékk
hún vinnu á saumaverkstæði hjá
Álafossi við sníðar og saumaskap.
Árið 1936 þann 16. maí giftist hún
föður mínum Aroni Ingimundi
Guðmundssyni (lést 14. júlí 1974).
Inni á heimiiinu vann hún alla tíð
eftir það. Eignuðust þau fjögur
börn. Þau eru: Guðmundur, giftur
Sigríði K. Bjarnadóttur; Páll, giftur
Ingu Einarsdóttur; undirrituð, gift
Hauki F. Leóssyni; Óli Már, giftur
Kristínu Gunnarsdóttur. Barnabörn
foreldra minna urðu þrettán talsins.
Nefni ég þau hér í aldursröð: Inga
Lára Hauksdóttir 26 ára, Sigríður
Pálsdóttir 26 ára, Hildur Hauksdótt-
ir 24 ára, Ingveldur Pálsdóttir 23
ára, Aron Hauksson 22 ára, Einar
Aron Pálsson (lést 17 ára í umferð-
arslysi þann 16. júní 1985), Hallfríð-
ur Ósk Óladóttir 20 ára, María Una
Óladóttir 17 ára, Leó Hauksson 17
ára, Gunnar Aron Ólason 14 ára,
Ragnhildur Guðmundsdóttir 14 ára,
Aron Ingi Guðmundsson 9 ára og
Haukur Már Hauksson 6 ára. Eina
barnabarnabarnið heitir Gylfi Aron
Gylfason 3 ára, sonur Hildar.
Móðir mín var mjög lítillát kona
og hógvær, bjartsýn var hún og létt
í lund. Hún og faðir minn spiluðu
gjarnan bridge í frístundum við vini
sína. Mikil hannyrðakona, var hún
fram á síðasta dag. Hún saumaði og
prjónaði .flest fet á okkur krakkana
í gamla daga/ Til dæmis saumaði
hún fermingarkjólinn á mig og brúð-
arkjólinn og oft saumaði hún kápúr
og kjóla á mig eftir að ég giftist.
„Hvernig viltu hafa kjólinn, Raggý
mín?“ sagði hún oft. Og óg'íýsti bara
fyrir henni að morgni einnvers dags
hvernig ég vildi hafa hann og síðan
var hún búin með hann um kvöldið. ,
Já, svona var mamma alltaf fljót að
hlutunum. Eins var þetta þegar
barnabörnin komu í heiminn hvert á
fætur öðru. Þá hófst hún handa við
að prjóna og sauma á þau og hefur
gert alla tíð síðan. Meira að segja
prjónaði hún jólagjafir handa yngstu
börnunum nú fyrir síðustu jól. Einn-
ig er margt annað til eftir hana, t.d.
klukkustrengir, veggmyndir, vegg-
teppi, stóll, heklaðir dúkar, heklað-
ar gardínur, hekluð blóm á kjóla,
prjónuð og hekluð herðasjöl og
rúmteppi. Svona má lengi telja.
Móðir mín og ég vorum trúnaðar-
vinkonur og ég er sannfærð um það
að vinarstrengurinn slitnar ekki þótt
leiðir skilji um stund. Verst þykir
mér að hafa ekki verið á landinu,
þegar hún lauk þessari jarðvist dag-
inn fyrir gamlársdag síðastliðinn.
„Hve fús ég hefði, elsku mamma mín,
lukt þinni bri við blundinn hinsta þinn,
brjósti þérhnigið að í hinsta sinn
og hinstum sonarkossi á kaldar varir þrýst,
en, - kveðja þá berst mér og dánarfregn þín!“
(G.G.)
En nóttina eftir birtist hún mér í
dásamlegum draumi þar sem henni
leið yndislega vel.
Við Haukur, börnin okkar fimm,
tengdasynir okkar, Einar Ólafsson
og Gylfi Sigfússon, og bamabarnið
okkar þökkum móður minni fyrir
ánægjulegar samverustundir. Minn-
ingamar um yndislega mömmu,
tengdamömmu, ömmu og lang-
ömmu eiga eftir að lifa í hugum
okkar allra. ,
Ég votta öðrum aðstandendum
hennar dýpstu samúð.
Ragnhildur Aronsdóttir.