Tíminn - 12.01.1990, Blaðsíða 16

Tíminn - 12.01.1990, Blaðsíða 16
AUGLÝSINGASÍMAR: 68000i — 6S63QO ríkissRip NÚTÍMA FLUTNINGAR Hatnorhúsinu v/Tryggvagötu, S 28822 SAMVINNUBANKINN L Í BYGGÐUM IANDSINS ÍM PÓSTFAX TÍMANS 687691 O.B|LASr0o VANIR MENN Tíminn FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 1990 Félagsmálaráðherra segir sterk rök þurfa ef ríkisvald og Alþingi ætli að ganga gegn vilja Kópavogs eða Reykjavíkur varðandi breytingu á lögsögumörkum: Gróf íhlutun í sjálfs- forræði sveitarfélaga „I»aö þurfa að vera sterk rök aö baki ef ríkisvaldið eöa Alþingi ætlar að ganga gegn vilja annars sveitarfélagsins og breyta lögsögumörkum með lagaboði. Ef slíkt er gert án þess að brýn almannaheill krefjist, er ekki hægt að segja annað en að það sé gróf íhlutun í sjálfsákvörðunarrétt og sjálfsforræði sveitarfélaga,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra þegar hún var spurð hvort að hún myndi flytja frumvarp um að breyta lögsögumörkum Kópavogs og Reykjavíkur. í síðustu viku gerðu Reykjavík- urborg og Magnús Hjaltested, ábúandi á Vatnsenda, með sér samning um kaup á jörðinni Vatns- enda. Hún er sem kunnugt er innan lögsögumarka Kópavogs. Kristján Guðmundsson bæjarstjóri í Kópavogi og Heimir Pálsson formaður bæjarráðs hafa gefið yfir- lýsingar um að Kópavogur muni aldrei fallast á að gerðar verði breytingar á lögsögumörkum sveit- arfélagsins. í sveitarstjórnarlögum segir að sveitarfélög skuli semja sín á milli um breytingar á lögsögu- mörkum. Náist ekki samkomulag getur Alþingi breytt lögsögu- mörkunum. Félagsmálaráðherra telur eins og áður segir að slík afskipti Alþingis Jóhanna Sigurðardóttir félags- málaráðherra. séu mjög óæskileg og segist ekki geta staðið að því að flytja slíkt mál. Fyrir um tveimur árum flutti félagsmálaráðherra frumvarp um að tekið yrði eignarnám í hluta af Vatnsendajörðinni. Jóhanna var spurð hvort hún myndi flytja sam- bærilegt frumvarp á næsta þingi. Hún sagði að þetta mál væri ekki komið inn á hennar borð ennþá. Hún sagði að á sínum tíma hefði verið veitt eignarnámsheimild í Vatnsenda vegna þess að erfða- skráin leyfir ekki að jörðin sé seld öðruvísi en að Alþingi veiti slíka heimild. Lögfræðingar sem Tíminn hefur rætt við segja að andi eignarnáms- laganna sé þannig að land skuli aðeins taka eignarnámi ef ekki náist samningar um verð og ef seljandi vill ekki selja landið. Ekki er um slíkt að ræða í þessu tilfelli því þegar hefur verið gerður samn- ingur um kaupin. í stjórnarskránni segir að ekki megi taka eign eignar- námi nema að almannaheill krefjist þess. Það er Alþingis að skilgreina hvenær almannaheill leyfir eignar- nám. Heimir Pálsson formaður bæjar- ráðs Kópavogs spurði í frétt í Tímanum síðastliðinn laugardag hvort almannaheill krefðist þess að Reykjavík kaupi byggingaland Kópavogs? Þessi spurning um al- mannaheill verður að skoðast í ljósi þess að Kópavogur hefur ekki haft uppi áætlanir um að byggja í landi Vatnsenda næstu 25 árin. -EÓ BHH Horfur eru á að cngin prófkjör verði höfð fyrir borgarstjórnar- kosningarnar í vor. Sjálfstæðis- flokkur, Framsóknarflokkur og Kvennalisti hafa þegar tekið ákvörðun um að viðhafa ekki prófkjör. Alþýðuflokkur og Ai- þýðubandalag munu á næstu dög- um taka ákvörðun um hvernig staðið verður að vali frambjóðenda á iista. Fulltrúaráð Sjálfstæðisflokksins felldi í fyrrakvöld tiliögu frá ungum sjálfstæðismönnum um að viðhafa prófkjör. Atkvæði féllu þannig að 136 höfnuðu prófkjöri, en 90 studdu það, 4 seðlar voru auðir. Árni Sigfússon borgarfulltrúi bar upp tillögu um að viðhafa prófkjör. Árni sagði í samtali við Tímann að menn hefðu metið stöðuna þannig að það væri ekki ástæða til að efna til prófkjörs að þessu sinni. Hann sagðist ekki vera sammála þessu mati, en myndi að sjálfsögðu sætta sig við niðurstöðu fulltrúaráðsins. Árni taldi hugsanlegt að það hefði haft cinhvcr áhrif á niðurstöðuna að allir núverandi borgarfulltrúar flokksins hyggjast sækjast eftir endurkjöri. Fulltrúaráð Framsóknarflokks- ins í Rcykjavík samþykkti fyrir alllöngu að láta uppstillingarnefnd gera tillögu um hvcrnig listi flokks- ins verður skipaður við kosning- arnar í vor. Fulltrúaráðið mun síðan samþykkja endanlega skipan listans. Álger eining var innan fulltrúaráðsins um að hafa þcnnan hátt á fyrir þessar kosningar. Alþýðubandalagsfélagið í Reykjavík mun halda fund fyrir næstu mánaðamót þar sem ákvörð- un verður tekin um hvort viðhaft verður prófkjör við val á frambjóð- endum á lista flokksins. Búið er að fella úr lögum félagsins ákvæði um að skylda sé að hafa prófkjör. Þjóðmálafélagið Birting, sem starf- ar innan Alþýðubandalagsins, hélt fund í gærkvöldi urn borgarstjórn- arkosningarnar og sameiginlegt framboð minnihlutaflokkanna. Birting hefur enn ekki gefið upp alla von um að hægt verði að berja flokkana saman í eitt framboð. Minnkandi líkur eru taldar á að af slíku verði. Konur I Kvennalistanum hafa vcrið að vinna að framboði á undanförnum vikum. Hugsanlegt er talið að viðhöfð verði einhvers konar óformleg skoðanakönnun við val á frambjóðendum á lista, en ekki verður farið út í hefðbundið prófkjör. Engin ákvörðun hefur verið tek- in um hvort Borgaraflokkurinn í Reykjavík býður fram við borgar- stjómarkosningarnar, en ákvörð- un um það verður tekin á næstu dögum eða vikum. -EÓ Harður árekstur varð milli tveggja bifreiða á gatnamótum Breiðholtsbrautar og Suðurlandsvegar, við Rauðavatn um hálf fimm í gær. Ökumaður annarrar bifreiðarinnar var fluttur á slysadeild. Báðir bflarnir skemmdust mjög mikið og voru þeir fluttir á brott með kranabfl. -ABÓ/Tímamynd Pjeiur

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.