Tíminn - 13.01.1990, Page 4
12 Tímin.n
Laugardagur 13. janúar 1990
Laugardagtír 13' jariúar 1990
Yíri
minn 13
Magnús Karel Hannesson oddviti á Eyrarbakka:
Lei khúsmil Ijónirnar kæmu
sér vel hér á Bakkanum
„Það hefur verið talað um að þessi svalabreyting í
Þjóðleikhúsinu kosti 100 milljónir. Það væri mjög gott ef
þessum 100 milljónum yrði skipt upp milli þorpanna tveggja;
Eyrarbakka og Stokkseyrar. Það er svo merkilegt og raunar
algengt eins og dæmin sanna að það virðast alltaf vera til
nægir peningar í einhverja vitleysu. Þá eru jafnvel ráðherrar
tilbúnir að berjast fyrir slíku en síður fyrir því sem manni
finnst að standi þeim nær.“
Þetta eru orð Magnúsar Karels
Hannessonar oddvita á Eyrarbakka.
Verulegar skemmdir urðu á Eyrar-
bakka í stormflóðinu Aðfaranótt s.l.
þriðjudags og er það líklegast það
mesta sem orðið hefur á öldinni. Á
Eyrarbakka og raunar með allri suður-
strönd landsins sígur land að því er
talið um 4-5 mm á ári. Ef kenningar um
gróðurhúsaáhrifin standast þá á sjór
eftir að hitna og þenjast út og yfirborð
hans þar með hækka. Við spyrjum
Magnús Karel því fyrst hvort Eyrar-
bakki og Stokkseyri verði ekki senn
óbyggilegir staðir?
„Ekki vil ég nú taka undir það. Hér
hefur verið byggð afar lengi og flóð nú
er ekkert einsdæmi. Hér kom stórflóð
1799 og engar sjóvarnir voru þá. Þó
gáfust menn ekki upp heldur tóku sig
til og hlóðu sjóvarnargarða með hönd-
unum einum. Pað er heldur engin
ástæða til að gefast upp eftir flóðið nú.
Það sem skiptir máli er að verjast
þessu. Eyrarbakki byggir á gömlum
merg og á sér langa og merkilega sögu
og ég sé ekki ástæðu til annars en að
horfa björtum augum til framtíðarinnar
þótt að við hugsanlega getum átt von á
einhverjum gusum í framtíðinni.“
Sjóvarnargarðar sem duga
-Ef byggð á að vera sæmilega örugg,
hlýtur þá ekki að þurfa að reisa sæmi-
lega örugga varnargarða.
„Það er rétt. Við höfum þurft að
senda bænarskrár á hverju ári til fjár-
veitingarnefndar og niðurstaðan er sú
að við fáum t.d. nú í ár 2,5 milljónir á
fjárlögum til framkvæmda við sjóvarn-
argarða.
Á sama tíma er verið að halda fundi
suður í Reykjavík þar sem ráðherra í
ríkisstjórninni er að reyna að magna
upp stemmningu um fjárveitingar í,
einhverjar ónauðsynlegar breytingar á
Þjóðleikhúsinu.
Ég er ekkert að hafa á móti því að
húsinu sé haldið við, en eftir því sem
maður heyrir af deilum um þessi mál þá
telur allavega hluti starfsfólks Þjóðleik-
hússins, húsafriðunarmenn og fleiri að
það sé alger óþarfi að breyta þarna
sætaskipan, brjóta niður svalir og
byggja upp aðrar í þeirra stað.“
-En geta sjóvarnargarðar varið
byggðina fyrir hamförum storma og
sjávargangs?
„Jú, vissulega. Það er deginum ljós-
ara eftir þau ósköp sem dundu yfir
aðfaranótt þriðjudagsins. Við höfum
undanfarin ár fengið fjárveitingar til að
reisa sjóvarnargarða og endurbæta.
Það var þó ekki fyrr en á síðasta hausti
sem unnið var að þessu verki af ein-
hverju viti og einhverri skynsemi.
Fyrir nokkru gerði verkfræðistofan
Fjarhitun úttekt á þessum málum að
tilhlutan Vita- og hafnamálaskrifstof-
unnar. í skýrslu sem þá var gerð eru
settar fram tillögur og hugmyndir um
hvernig réttast sé að gera garðana og
eftir því var farið í fyrrahaust. Sá stutti
garður sem þá var gerður stóðst full-
komlega - haggaðist ekki.“
-Hvernig eru garðar kostaðir?
„Til sjóvarnargarða er veitt fé á
fjárlögum. Ákveðinni upphæð er út-
hlutað fyrir allt landið og fastákveðið í
fjárlögum hvernig hún skiptist milli
staða. Þannig eru okkur hér ætlaðar 2,5
milljónir á þessu ári.“
-Það er ekki há upphæð.
Nei, það er rétt. Lengdarmetrinn í
svona garði eins og þeim sem ekki
haggaðist hér, kostar milli 45 og 50
þúsund krónur. Ef við ætlum að verja
þetta þorp allt erum við að tala um
svona tvö þúsund metra, eða nálægt
100 milljónum króna.
Ef við eigum hins vegar að Ijúka
verkinu með 2,5 milljónum króna á ári
þá er ekki séð fyrir endann á verkinu í
bráð og önnur flóð gætu komið á
meðan. Það er því alveg augljóst að við
verðum núna að berja á því að fá
fjárveitingar í þetta verk. Því miður þá
er sveitarfélagið þannig statt að það
getur ekki sjálft sett neina afgerandi
fjármuni í þetta verk.
Staða sveitarfélaga hringinn í kring
um landið er raunar þannig og þar sem
helst er hætta á einhverjum náttúru-
hamförum að ekkert fé er afgangs. Því
verða hinir sameiginlegu sjóðir lands-
manna að koma til. Þá er oft spurt sem
svo hvort það svari kostnaði að reyna
að verja þessa staði.
Hvað borgar sig?
Ég tel hiklaust að það borgi sig. Þetta
er spurningin um það hvort halda eigi
byggð í landinu eða ekki. Menn verða
að gera sér grein fyrir því, að peningar
þjóðarinnar verða til að stórum hluta á
landsbyggðinni í undirstöðu fram-
leiðslugreinunum."
-Ráðherrar hafa komið hér og litið á
verksummerki auk starfsmanna Vita-
og hafnamálaskrifstofunnar. Býstu við
að framkvæmdum verði hraðað við
gerð sjóvarnargarða eftirhamfarirnar?
„Við munum reyna að standa saman
hér á Eyrarbakka og Stokkseyri við að
þrýsta á að fá fjárveitingar í þessi mál.
Brunabótamat þeirra eigna sem eru
fyrir innan sjávarkambinn hér á Eyrar-
bakka er tveir milljarðar króna. Sé
reynt að slá tölu á framleiðsluverðmæti
í frystihúsinu, fiskvinnslustöðvum og
pönnuverksmiðju til viðbótar þá erum
við farin að tala um tvo og hálfan til
þrjá milljarða fyrir utan land og lóðir.
Þó að einhverjir hafi kannski skotið
því að hvort ekki væri rétt að leggja
þetta allt af og flytja fólk í burtu, þá
sýnist mér að þau verðmæti sem verið
er að reyna að verja séu það mikil að
slíkt sé út í hött og í sjálfu sér
dónaskapur við íbúa hér.
Mér sýnist að það þurfi mjög fljót-
lega að reisa um eitt þúsund metra af
sjóvarnargörðum hér en ef við ætlum
að verja allt þorpið þurfa þeir að verða
um tvö þúsund metrar. í síðara tilvik-
inu erum við að tala um 100 milljónir
en í því fyrra um 40-50 milljónir.“
-Hefur verið slegið tölum á tjónið
sem varð í flóðunum?
„Fulltrúar Viðlagatryggingar íslands
byrja sín matsstörf í næstu viku og
niðurstaða okkar hefur orðið sú að láta
þeim það eftir að meta tjónið, enda eru
þeir sérfræðingar í þeim efnum.
Sjálfir höfum við haft nóg að gera við
að hreinsa og laga til og hreinlega
enginn tími til að setjast niður með
pappír og blýant og slá fram einhverri
ómarktækri tölu. Það er þó ljóst að tjón
er mikið og skiptir efalaust einhverjum
tugum milljóna. Ég þori hins vegar
ekkert að segja um hversu mikið.
Tjónið verður bætt
-Fæst það bætt?
„Já, Viðlagatryggingamenn fullyrða
að tjón verði bætt eftir reglum Viðlaga-
tryggingarinnar. Samkvæmt þeim er
það frumskilyrði að eignir manna,
húseignir og tæki séu brunatryggð og
fara bætur eftir tryggingafjárhæð.
Lóðir manna og lendur eru hins
vegar bættar samkvæmt fasteignamati
og geta aldrei orðið hærri en matið
segir til um. Fasteignamat fer eftir
stærð lóðar og er ákveðin krónutala á
fermetra. Þannig hækka bætur ekkert
til fólks sem lagt hefur ómælda vinnu
og fé í að rækta og fegra garða sína. Þá
dregst sjálfsábyrgð, sem hjá einstakl-
ingum er 25.500 krónur, frá bótum.
Stærsta og mesta tjónið hér á Eyrar-
bakka varð hjá fyrirtækinu Bakkafiski
hf., en hluti af húsum þess hrundi.
Ljóst er að fyrirsjáanleg rekstrarstöðv-
un þar mun hafa slæm áhrif á afkomu
fyrirtækisins og þeirra sem þar stunda
atvinnu. Þá eyðilagðist íbúðarhús þar
sem sjórinn braust inn. Að öðru leyti
varð eignatjón þar sem sjór komst í
geymslukjallara húsa og frystikistur,
innihald þeirra, þvottavélar og þvílíkt
skemmdist eða eyðilagðist. Auk þess
skemmdust lóðir og lendur manna
verulega og ég býst við að skemmdir
utanvert á húsum eigi eftir að koma
betur í ljós. Við erum nú að undirbúa
að senda eyðublað inn í hvert hús í
þorpinu þar sem fólk getur tilkynnt allt
tjón af völdum flóðsins. Síðan munu
matsmenn Viðlagatryggingar fara á
staðinn og kanna málið.
-Hvernig gengur að hreinsa til eftir
lætin?
„Þokkalega. Við lentum þó í því að
það tók að frysta á miðvikudag og það
hefur tafið okkur. Hins vegar er spáð
hlýnandi veðri aftur svo vonast er til að
það takist að ljúka miklu um helgina.
Við höfum svo sem ekki verið að setja
allt á annan endann heldur reynt að
halda rónni og láta skynsemi og aðstæð-
ur ráða. Við reynum að hreinsa sem
mest af sandi sem barst á land til að
forðast sandfok sem eyðileggur rúðu-
gler auk annars. Það skal tekið fram að
Viðlagatrygging mun styrkja hreinsun-
arstarfið að talsverðum hluta.
Gott atvinnuástand.
Hörgull á húsnæði
-Hér á Eyrarbakka lifa menn ekki
eingöngu af sjósókn og fiskvinnslu
heldur er hér talsverður iðnaður og
meðal annars framleiddar pönnur og
pottar, - Alpan. Hvert er hlutfall milli
þeirra sem vinna annars vegar við
undirstöðugreinarnar og hins vegar við
iðnað?
„Ég hef ekki nákvæmlega tölur yfir
það. Hins vegar er Alpan að verða
nokkuð stórt fyrirtæki á atvinnumark-
aði hérna og fer að skipta verulegu
máli. Það hefur verið að byggjast upp
á undanförnum árum og er farið að
hossa töluvert upp í frystihúsið.
Hjá Alpan voru á launaskrá á seinni
hluta síðasta árs um fimmtíu manns
þegar allir eru taldir, einnig þeir sem
vinna hlutastarf. S.l. sumar unnu hjá
fyrirtækinu um 40 manns en um helm-
ingur þess var fólk sem býr utan
sveitarfélagsins. Þannig styrkir fyrir-
tækið líka nágrannabyggðirnar, enda
er Árborgarsvæðið svonefnda ein at-
vinnuleg heild.“
-Óseyrarbrúin hefur ýmsu breytt?
„Það hefur hún gert. Það var nú
fjörutíu ára barátta að fá brúna en
menn voru hins vegar úthaldsgóðir og
gáfust ekki upp. Hún hefur auðvitað
sannað gildi sitt. Hér á Eyrarbakka
skipti slæm hafnaraðstaða sköpum og
hve dýrt yrði að gera höfn út í opið
Atlantshafið þótt framkvæmanlegt sé.
Á sínum tíma var valinn sá kostur að
gera höfn í Þorlákshöfn. Hún var
stækkuð eftir Vestmannaeyjagosið og
þar með ákveðið að höfnin í Þorláks-
höfn skyldi þjóna Suðurlandi.
Þá var tengingin við höfnina -Óseyr-
arbrú - ekki komin og við hér þurftum
t.d. að aka 50 km leið til að komast til
Þorlákshafnar. Nú eru hins vegar aðe-
ins 16 km í milli. Um leið og þessi brú
kom hefur ekki komið bátur í höfnina
hér á Eyrarbakka.“
-Hvernig hafa íbúar þrifist hér
undanfarin ár?
íbúatalan hefur verið nokkuð stöðug
undanfarin ár í kring um 540 manns og
jafnvægi milli brottfluttra og aðfluttra.
Atvinna hefur verið næg og stöðug og
afkoma allgóð síðan 1985. Vandamál
okkar eru ekki atvinnumálin heldur
húsnæðisekla - það vantar fyrst og
fremst leiguhúsnæði. Nú er verið að
byggja fjórar kaupleiguíbúðir og þegar
byrjað var á þeim fyrir um ári bárust
tíu umsóknir um þær strax.
Atvinnuástand hefur verið ágætt og
við höfum sloppið nokkuð vel við
galdþrot fyrirtækja og einstaklinga.
g vona að flóðið hafi opnað augu
stjórnvalda fyrir nauðsyn þess að verja
byggðina fyrir áföllum af þessu tagi
sem varð hér og raunar geri ég mér
vonir um það. Félagsmálaráðherra hef-
ur litið afleiðingar flóðsins augum og
sýnt málinu skilning. Ég hef ástæðu á
þessari stundu til að ætla að stjórnvöld
séu að hugleiða leiðir til að koma í veg
fyrir frekari áföll í framtíðinni.“
-Stefán Ásgrímsson
Magnús Karel Hannesson oddviti á
Eyrarbakka. í baksýn eru rústir
frystihússins. Tímamynd; Árni Bjaraa
Tímamynd: Pétur.