Tíminn - 18.01.1990, Side 1

Tíminn - 18.01.1990, Side 1
Hefur boðað frjálslyndi og framfarir í sjö tugi ára FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1990 „Fæstir njóta eldanna sem fyrstir kveikja þá“ Stöð 2 er komin úr höndum Jóns Óttars í gær seldi Eignarhaldsfélag Verslunarbankans hf, hópi ein- staklinga 100 milljón kr. hlut í Stöð 2. Þeir sem keyptu eru kaupmenn og kunnir fjármála- menn, þeir sömu og áður höfðu keypt af Eignarhaldsfélaginu 150 milljón kr. hlut. Þessir aðil- ar, sem mynda eina blokk, eiga þar með meirihluta í fyrirtækinu eða 250 milljónir, en sem kunn- ugt er var hlutafé Stöðvarinnar aukið í rúmar 400 milljónir um áramót. Upphaflegir eigendur Stöðvar 2, með Jón Óttar Ragn- arsson sjónvarpsstjóra í broddi fylkingar, eru því orðnir minni- hlutahópur. í framhaldi af því sendu þeir Jón Óttar og Hans Kristján Árnason f rá sér tilkynn- ingu þar sem fram kemur að þeir una ekki þessari þróun og muni ekki efna hlutafjárloforð sitt upp á 150 milljónir kr. Nýir stjórnendur hljóti nú að taka við stjórn á Stöð 2. • Blaðsíða 5 7 slasast í strætó Flytja varð 7 manns á slysadeild eftir árekstur tveggja strætisvagna á mótum Hofsvallagötu og Túngötu um kvöldmatarleytið í gær. Ekki urðu alvarleg slys á fólki. Einn farþegi mun hafa viðbeinsbrotnað og hinir kvörtuðu flestir um verki í baki. Tildrög slyssins voru ekki að fullu Ijós í gærkvöldi. Bílstjórarnir sögðust ekki hafa verið á mikilli ferð. Leit helst út fyrir að vagnarnir hafi runnið til eða þá bílstjórarnir misreiknað hvorn annan, að sögn lögreglu. Timamynd pjetur Sex þús. t. fóru í að pækilsalta umferðina

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.