Tíminn - 19.01.1990, Qupperneq 5

Tíminn - 19.01.1990, Qupperneq 5
Föstudagur 19. janúar 1990 Tíminn 5 Frá fjármálaráðherra vegna ummæla forsvarsmanna „Þýsk-íslenska“: YFIRLÝSING Vegna ummæla Ómars Kristjáns- sonar framkvæmdastjóra í fjölmiðl- um að undanförnu og vegna yfirlýs- ingar frá hlutafélaginu „Þýsk-ís- lenska" í Morgunblaðinu í dag tel ég rétt að taka fram að ég hef hvorki fyrr né síðar haft afskipti af meðferð embætta ríkisskattstjóra og ríkis- saksóknara á skattamálum „Þýsk-ís- lenska". Frétt af ákæru á hendur fyrirtækinu barst mér í fjölmiðlum, enda eru úrslit þessa máls á engan hátt á valdi ráðherra. Rétt er að benda forsvarsmönnum „Þýsk-íslenska“ á að skattamál fyrir- tækisins eru nú fyrir dómstólum og er því eðlilegt að vörn í málinu fari fram á þeim vettvangi. Lokun fyrirtækisins í júní síðast- liðnum vegna vanskila á söluskatti eru þessu máli óviðkomandi. Hinn 8. júní voru gefin út almenn fyrir- mæli til innheimtumanna ríkissjóðs um hertar aðgerðir vegna vanskila á söluskatti og var „Þýsk-íslenska“ í hópi þeirra fyrirtækja sem ekki höfðu gert skil. Fyrirtækið hafði kært álagningu til ríkisskattanefnd- ar, en hún hafði vísað kærunni frá án þess að fella niður álagningu söluskatts á fyrirtækið. Þegar fyrir- tækið greiddi umrædda söluskatts- skuld voru innsigli rofin. Fullyrðingar um sérstakar póli- tískar ofsóknir í garð fyrirtækisins eru úr lausu lofti gripnar. Ég hef fylgt þeirri stefnu sem fjármálaráð- Ólafur Ragnar Grímsson fjármála- ráðherra. herra að móta almennar reglur um skattamál og innheimtu, en hef forð- ast afskipti af málefnum einstakra aðila, og aldrei blandað mér inn í meðferð rannsóknarembætta eða embætta dómskerfisins á einstökum málum. Slíkt er ekki á verksviði fjármálaráðherra. Ég hlýt því að vísa á bug dylgjum Ómars Kristjánssonar í fjölmiðlum síðustu daga, bæði í minn garð og einnig gagnvart fjármálaráðuneyt- inu og þeim embættismönnum sem undir það heyra. Ólafur Ragnar Grímsson í gærkvöldi var veður orðið mjög slæmt á sunnan- og vestanverðu landinu og fólk var hvatt til að fara ekki í ferðalög að óþörfu. í Vest- mannaeyjum voru tíu vindstig klukkan sex í gær og mjög hvasst var einnig undir Eyjafjöllum eins og jafnan er í austanátt. Illfært var um alla vegi á Suðurlandi í gærkvöldi vegna blindbyls. Nær ófært var á Hellisheiði og rúta sem fór yfir hana um miðjan dag í gær var þrjá tíma á leiðinni. Margir bílar hættu við að leggja á heiðina. Á Reykjanesbraut var mikil hálka og skafrenningur. Mjög slæm færð var í Mosfellssveit. Bílaumferð á höfuðborgarsvæðinu gekk hægt seinni part dags í gær. Engin alvarleg óhöpp urðu þrátt fyrir slæma færð. Spáð var að vindátt myndi snúist í norður í nótt og þá var búist við hvassviðri um mest allt land. í dag er spáð verstu verðri á Norður- og Austurlandi, m.a. má búast við all- mikilli snjókomu. Talsverð snjóaði á Suðurlandi eins og sjá má mynd- inni. F.Ó/limiimynd Pjelur Hinn þekkti danski skemmtikraftur Eddie Skoller skemmtir í Islensku óperunni um helgina. Vinsæll danskur skemmtikraftur í íslensku óperunni um helgina: Eddie Skoller einn með gítar Eddie Skoller, danski skemmti- krafturinn, skemmtir á hljómleikum í íslensku óperunni (Gamla bíói) 20. og 21. janúar n.k. Þetta er í annað sinn sem Skoller kemur til íslands til að skemmta en nú sem fyrr kemur hann á vegum lionsklúbbsins Njarðar. Eddie Skoller heitir í raun og veru Edward Ralph Schoylar en faðir hans fæddist í Rússlandi en hrökkl- aðist úr landi undan gyðingaofsókn- um árið 1904. Foreldrar Eddie Skoller bjuggu um tíma í St. Louis í BNA og þar fæddist hann en fjölskyldan flutti til Danmerkur þegar Eddie var sex ára gamall. Eddie Skoller útskrifaðist úr Kaupmannaskólanum í Kaup- mannahöfn og vann um tíma hjá Danfoss en það stóð ekki lengi. Um svipað leyti var hann að byrja að koma fram einn síns liðs með sinn gítar á ýmsum veitingahúsum í Kaupmannahöfn. Jafnframt lék hann í rokksöngleiknum Hárinu og rokkóperunni Jesus Christ Superstar á árunum um og eftir 1970. Eddie Skoller vakti verulega at- hygli utan heimalands síns með eigin útgáfu á lagi og texta Tom Paxtons, What did you learn in school today, þar sem hann þykir ná frábærlega vel framburðareinkennum ýmissa Evrópuþjóða á enskri tungu auk þess að varpa ljósi ýmis þjóðleg sérkenni þeirra á skoplegan hátt. -sá Hluthafafundur hjá Stöö 2: Ný stjórn Hluthafafundur hefur verið boðaður hjá Stöð 2 á morgun, laugardag og verður þá væntan- lega kosið í nýja stjórn í félaginu eftir þær breytingar á eignarhlut sem orðnar eru. Eins og Tíminn greindi frá í gær seldi Eignar- haldsfélag Verslunarbankans hópi einstaklinga, sem saman mynda Fjölmiðlun sf. lOOmilljón kr. hlut í fyrirtækinu. Sömu aðilar höfðu áður keypt 150 milljón kr. hlut. Eignarhaldsfélagið á enn 100 milljón kr. hlut í Stöð 2 en hefur gert samninga við Fjölmiðl- unarmenn um meirihlutaráð í stjóm fyrirtækisins, en hlutafé Stöðvarinnar nemur rúmum 500 milljónum en ekki 400 eins og sagt var í frétt blaðsins í gær. Forráðamenn eignarhaldsfé- lagsins kannast ekki við að hafa brotið samninga á upphaflegum eigendum og segja að ekkert hafi legið fyrir um dreifða eignaraðild að því._________________ Eg heiti ÞJ0ÐBJ0RG Frumsýning á laugardag Eg er steíngeit cítj SJÁUMST í DANSHÖLLINNI Borðapantanir í sima 23333 Fundur lögfræðinga VS( og rannsóknarlögreglustjóra: Óskað frekari greinargerðar Lögfræðingar Vinnuveitendasambands íslands og rann- sóknarlögreglustjóri funduðu í gær vegna óska VSÍ um rannsókn á þeim athönum verkfallsvarða í Bifreiðastjórafé- laginu Sleipni í þriggja daga verkfalli félagsins. Á fundinum var rætt um hvað það væri sem óskað er rannsóknar á og bað rannsóknarlögreglustjóri um greinargerðir þar sem fram komi staðreyndir málsins. í framhaldi af þeim greinargerðum tekur rannsóknarlögreglustjóri ákvörðun um framhald. Gert er ráð fyrir að ofangreindum greinargerðum verði skilað til RLR í dag. „Þegar spurning er um hegningar- lagabrot, þá eru menn persónulega ábyrgir gerða sinna," sagði Jón H. Magnússon annar lögfræðinga VSÍ. Lögfræðingar VSI vöktu athygli RLR á verkfallsaðgerðum bifreið- arstjóranna og fór fram á opinbera rannsókn á atburðunum á sl. þriðju- dag. Þegar spurning er um hvort um sé að ræða hegningarlagabrot heyrir það undir RLR, en ef um umferðar- lagabrot er að ræða, heyrir það undir viðkomandi lögreglustjóra. RLR fór á fundinum fram á grein- arbetri upplýsingar á hverjum þætti fyrir sig og verður greinargerðum frá hverju fyrirtæki lagðar fram. „Það sem við erum að fara fram á er hvar mörkin séu, hvað er manni heimilt að gera í skjóli einhverra verkfalls- aðgerða," sagði Jón. Bent var á tvö ákvæði hegningar- laga í þessu sambandi sem talið er að einhverjir hafi geta gerst brotlegir við, annars vegar grein 176. sem er í kaflanum um ýmis brot á hagsmun- um almennings. í greininni segir m.a. að ef maður veldur með ólög- mætum verknaði verulegri truflun á rekstri almennra samgöngutækja ... þá varði það varðhaldi eða fangelsi allt að 3 árum, eða sektum ef málsbætur eru. Hin greinin er númer 168. Þar segir að ef menn raska öryggi... bifreiða eða annarra slíkra farar- eða flutningatækja, eða um- ferðaröryggi á alfaraleiðum varðar það fangelsi allt að 6 árum eða varðhaldi. Við vildum bara að kannað væri að einhverjir einstaklingar hafi farið út fyrir það sem þeir hafa heimild til og hugsanlega farið út fyrir refsilög- gjöfina," sagði Jón. Ef svo fer að einhverjir teljist hafa gerst brotlegir við refsilöggjöfina, þá er málið ekki í höndum viðsemj- enda og getur því ekki komið til niðurfellingar í samningum. „Við viljum bara leggja okkar af mörkum við að reyna að koma því á framfæri sem gerðist, síðan teljum við það á annarra færi að meta það hvort viðkomandi hafi gengið of langt og gerst brotlegur," sagði Jón. Jón vildi til áréttingar benda á grein þá er fjallar um lögreglumenn, sem oft er borin fyrir því að þeir megi ekki hafa afskipti af vinnudeil- um. Greinin er númer 10 í lögum nr. 56 frá 1972. „Lögreglumenn má ekki nota til að hafa önnur afskipti af vinnudeilum en að halda þar eins og annars staðar uppi friði og afstýra skemmdum, meiðslum og vandræð- um.“ Jón sagði að menn skjóti sér oft á bak við þessa grein og segi: „Lögreglumenn má ekki nota til að hafa afskipti af vinnudeilum." Jón sagði að niðurlagið á greininni segi það sem lögreglu beri að gera. -ABÓ Blindbylur á Sudurlandi

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.