Tíminn - 20.01.1990, Síða 1
Heilbrigðismálin:
Hafa sér
fræðingar
völdin?
Guðjón Magnússon, aðstoðarlandlæknir segir í viðtali
við Tímann að sérfræðingar séu það fjölmennir innan
stéttarfélaga lækna að þeir ráði þar algerlega ferðinni.
Sérfræðingar séu því gífurlega öflugur hagsmuna-
hópur sem sé ein megin ástæða þess að enginn
heilbrigðisráðherra hafi hingað til haft kjark tii að gera
þær breytingar, sem nú er verið að gera á heilbrigðis-
kerfinu. Samkvæmt þessu hafa sérfræðingar ekki
eingöngu haft völdin í stéttarfélögum lækna heldur
miklu víðar í heilbrigðiskerfinu. Guðjón metur það svo
að þær breytingar sem felast í nýjum reglugerðardrög-
um um samskipti lækna þjóni langtímamarkmiðum,
sem vegi miklu þyngra en stundarhagsmunir sérfræð-
inga.
Timamynd Pjetur
Blaðsída 12 og 13 Guöjón Magnússon, aðstoðarlandlæknir.
ríkisstjórnarandstöðu og fjáraustri í skrauthýsi
BRYN MANNGILDISMAL
KÆFD SJÁLFSÁNÆGJU
Sigrún Magnúsdóttir borgarfulitrúi segir borgarstjóra sjálf-
hælinn í túlkun sinni á fjárhagsáætlun borgarinnar og þar
sitji nákvæmnin í meðferð talna ekki í fyrirrúmi. Sigrún
segir áberandi og óviðeigandi ríkisstjórnarandstöðu ein-
kenna málfiutning borgarstjóra, en hann varð varaformaður
Sjálfstæðisflokksins í haust. Gagnrýni Sigrúnar á fjárhags-
áætlunina er þó einkum á hraðan og skilyrðislausan
fjáraustur í nokkrar skrautbyggingar, sem meirihlutinn
hælir sér af, á meðan ýmis félagsleg mál sem snerta sjálft
manngildi borgarbúa bera skarðan hlut frá borði.
• Blaðsíða 2
Hefur boðað frjálslyndi og framfarir í sjö tifgi ára
LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 1990 - 14. TBL. 74. ÁRG. - VERÐ í LAUSASÖLU KR.