Tíminn - 20.01.1990, Qupperneq 5
■» f .T 1
Laugardagur 20. janúar 1990
Tíminn 5
Jón Hjaltalín MagnússonformaðurHSÍ segirfjölnota sýningarhús í Laugardal geta skilað
þjóðarbúinu 3-400 milljónum í gjaldeyristekjur á ári:
Sýningarhús kostar
um hálfan milljarð
Jón Hjaltalín Magnússon formaður HSÍ segir að hægt sé
að byggja fjölnota sýningarhús í Laugardal fyrir 470
milljónir króna. Slíkt hús muni draga að sér fjöldann allan
af ferðamönnum, bæta verulega aðstöðu til vörusýninga,
popptónleikahalds og til íþróttaiðkana bæði fyrir almenn-
ing og keppnisfólk. Sýningarhúsið verði fljótt að borga sig
upp, þar sem útreikningar Jóns sýna að gjaldeyristekjur af
slíku húsi vegna komu erlendra sýningar- og ráðstefnugesta
gætu verið á bilinu 3-400 milljónir á ári.
Flestum mun vera ljóst að sýn-
ingarhúsið er forsenda þess að
ísland og Handknattleikssamband-
ið geti staðið við fyrirætlanir sínar
um að vera gestgjafar A-heims-
meistarakeppninnar í handknatt-
leik árið 1995. Samkvæmt nýlegri
reglugerð Alþjóða handknattleiks-
sambandsins verður höllin sem úr-
slitaleikirnir eru spilaðir í að rúma
7000 áhorfendur (ekki 8000 eins
oftast hefur nefnt). Jón Hjaltalín
segir af viðtölum sínum við erlenda
sendiherra og aðila á sviði ferða-
þjónustu að okkur setji veruleg
niður á alþjóðavettvangi ef við
munum ekki standa við gefin lof-
orð og halda keppnina 1995.
Flest öll umræða sem verið hefur
um byggingu sýningahússins hefur
gengið út á að húsið komi til með
að kosta um einn milljarð króna.
HSÍ hefur hinsvegar ávallt gert ráð
fyrir hagkvæmu fjölnota sýningar-
húsi sem uppfyllir öll skilyrði og
kostar um 470 milljónir króna, þar
af eru opinber gjöld, eins og virðis-
aukaskattur og aðflutningsgjöld
um 90 milljónir króna. Er um að
ræða nokkurskonar „vöruskála,“
með steyptu gólfi, lýsingu, loftræst-
ingu ofl. Sjálfur skálinn kostar
samkvæmt útreikningum verktaka
395 milljónir. Bekkir fyrir áhorf-
endur kosta 40 til 50 milljónir og
fer verðið eftir því hvort talað er
um bólstruð sæti eða trébekki.
Rúmar 20 milljónir reiknar Jón
með að fari í ófyrirséð, þar sem
eftir er að taka ákvarðanir um
gólfefni og fleira.
Útreikningar þeir er Jón hefur
gert á mögulegum rekstrartekjum,
hljóða upp á 85 milljónir. f þeim
útreikningum gerir Jón ráð fyrir að
íþróttafélög, skólar og fyrirtæki
leigi hina átta íþróttavelli í samtals
um 2000 klukkustundir á ári og í
kassann komi rúm 31 milljón. Al-
þjóðleg íþróttamót geti skilað 11
milljónum, popptónleikar 12 millj-
ónum, vörusýningar um 20 milljón-
um, ráðstefnur um 4 milljónum,
stórsamkomur skili um 4 milljón-
um og aðrar tekjur verði rúmar 3
milljónir. Samtals gera þetta um 85
milljónir. Á móti reiknar Jón
Hjaltalín með að rekstrarkostnað-
ur verði um 50 milljónir á ári.
Stærstu liðirnir eru launakostnaður
10 manna, rafmagn, hiti, auka-
kostnaður vegna sýninga, viðhald
og endurbætur. Þá standa eftir 35
milljónir í árlegan rekstrarhagnað.
Jón telur ávinning þjóðarbúsins
geta verið mikinn af fjölnota sýn-
ingarhúsi af þessari stærðargráðu.
Enn er Jón bjartsýnn í útreikning-
um. Hann áætlar að ferðamenn
sem húsið og sú aðstaða sem hún
býður upp á, verði um fimm þús-
und á ári. Gjaldeyristekjur í tengsl-
um við húsið verði 3-400 milljónir
á ári vegna alþjóðlegra vörusýn-
inga, ráðstefna og íþróttamótum.
En hvað miðar málinu af hálfu
hins opinbera?
Jón Hjaltalín segir það skoðun
sína að fyrir löngu hefði átt að vera
búið að taka á þessu máli af hálfu
hins opinbera. „HSÍ hefur fylgt
þessu máli eftir og átt fund með
ráðherrum og borgarstjóra
Reykjavíkur. Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra hefur
verið jákvæður allan tímann og
haft fullan skilning á þessu máli allt
frá því sótt var um keppnina.
Svavar Gestsson menntamálaráð-
herra hefur verið jákvæður en
varkár. Við áttum í gær fund með
Steingrími J. Sigfússyni samgöngu-
ráðherra og Birgi Þorgilssyni ferða-
málastjóra og ráðherra leyst, að
því er mér fannst, mjög vel á þessa
hugmynd um fjölnota sýningarhús
sem við lögðum fyrir hann.“ sagði
Jón Hjaltalín formaður HSÍ í sam-
tali við Tímann í gær.
Rætt hefur verið við Davíð
Oddsson borgarstjóra og voru svör
hans til HSÍ þau að hann biði
einungis eftir boði frá ríkisstjórn-
inni um viðræður um málið. Komið
mun hafa til tals að sveitarfélög á
höfuðborgarsvæðinu komi öll inn í
myndina ásamt fyrirtækjum á sviði
ferðaþjónustu og að sama skapi
muni þá hlutur ríkis minnka í
fjárframlögum til sýningahallar-
innar. Jón Hjaltalín áætlar að út-
gjöld ríkisins gætu orðið um 30
milljónir á næstu fimm árin.
Búast má við því að ákvörðun
um framkvæmdir verði tekin á
næstunni og þá ættu aðrir þættir
þessa máls að skírast fljótlega.
- ES
Æfinga- og keppnisaðstaða fyrir
frjálsar íþróttir og almennings-
íþróttir.
Góð æfingaaðstaða fyrir margar
íþróttagrcinar samtímis í þrískipt-
um sal.
Samkoma með 8.000 manns í sæti.
dijjjpar
Jóhannes Nordal,
hagfræðingur og bakari
í nýjustu útgáfu af bókinni
„Who‘s Who“, sem er æviskrá
merkismanna alls staðar úr heimin-
um, er sagt frá Jóhannesi Nordal
Seðlabankastjóra. Jóhannes er
kynntur sem, „Icelandic economist
and baker“, sem þýðir, íslenskur
hagfræðingur og bakari.
Jóhannes Nordal erm.a. kunnur
fyrir setu í mörgum nefndum og
stjómum ýmissa fyrirtækja.
Dropateljara er hins vegar ókunn-
ugt um að hann hefði fengist við
bakaraiðn samhliða öðrum
störfum.
Smyglarínn
Halldór Asgrímsson
Það eru fleiri merkismenn sem í
erlendum ritum hafa getið sér orð
fyrir hluti sem okkur íslendingum
er ókunnugt um. í nýjust útgáfu af
bókinni „Hvem Hvad Hvor“ segir
frá því að hæstaréttardómarinn
Halldór Ásgrímsson hafi í embætt-
is síns nafni smyglað til landsins
ríflega þúsund flöskum af áfengi.
Eitthvað hefur þetta skolast til hjá
Dönunum, því eins og landsmenn
hafa margoft verið minntir á var
það Magnús Thoroddsen sem tók
til sín rúmlega 1000 fiöskur af
áfengi. Það var hins vegar dóms-
máiaráðherra Halldór Ásgrímsson
sem vék Magnúsi úr embætti.
Brjósið
Útsýnishúsið í Öskjuhlíðinni
hefur að undanförnu gengið undir
hinum ýmsu nöfnum. Frægt er
orðið nafnið „Perlan“ sem Morg-
unblaðið hefur gefið húsinu og er
þessu nafni augljóslega beint gegn
öðrum nöfnum s.s. „Auðkúlan“
eða „Skopparakringlan“. Þá kom
Hallgrímur Helgason pistlahöf-
undur á Rás 2 hjá RÚV með
hugmynd að nafninu „Askjan“ og
sagði húsið vera eins og öskju á
hvolfi og taldi við hæfi slíkt nafn á
húsi í Öskjuhlíð. Dropateljari hef-
ur nú heyrt enn eina útgáfu af nafni
en það er „Brjóstið“. Einhverjum
þykir húsið líkjast fallegu kon-
ubrjósti, ekki síst eftir að hnúður-
inn á toppi þess kom í Ijós, en hann
lítur út eins og geirvarta á brjóst-
inu. Kunnugt er hversu sólarljóstið
speglast af útsýishúsinu og kalla
sömu menn þá birtu „brjóstbirtu“.
Skattman og Robin
Það kom fram í ræðu Bjarna P.
Magnússonar á borgarstjórnar-
fundi í fyrrakvöld að Davíð Odd-
son hefur lagt á borgarbúa stór
auknar skattaálögur undanfarin ár.
Sagði Bjami að sjálfur Ólafur
Ragnar Grímsson, kæmist rétt með
tæmar þar sem Davíð hefur hælana
í nýrri skattheimtu. Nú leggur
dropateljari til að úr því fundinn er
slíkur skattadúett, þar sem annar
gengur undir nafninu Skattman
hljóti hinn að vera sá kunni aðstoð-
armaður hans „the boy wonder“
eða undrabaraið Robin sem nú sé
uppkominn og hafi tekið læriföður
sínum fram.
m : Æ
'mz woí
pa m
Opel Vectra kynntur
Um helgina verður Bflvangur með bflasýningu í húsakynnum sínum að Höfðabakka 9. Þar verður
kynntur nýjasti bíllinn frá Opel, Opel Vectra. Þessi nýja gerð hefur vakið verðskuldaða athygli erlendis
og er nú með söluhæstu bflum á Evrópumarkaði. Opel Vectra er fimm manna fjölskyldubfll í hæsta
gæðaflokki, rúmgóður og tæknilega mjög fullkominn.
Bflasýningin verður opin laugardag og sunnudag milli kl. 13 og 17. Tímamynd Ami Bjarna
Eg heítí SISSA
Ég er sauður
- ég meína hrútur
SJÁUMST1DANSHÖLLINNIÁ LAUGARDAGINN
Frumsýning á laugardag