Tíminn - 20.01.1990, Blaðsíða 13
Laugardagur 20. janúar 1990
Tíminn 21
Þorrablót framsóknarfélaganna
í Reykjavík
Hið árlega þorrablót framsóknarfélaganna í Reykjavík verður haldið
laugardaginn 27. janúar n.k. I Norðurljósasal Danshallarinnar (Þórs-
cafe) og hefst kl. 19.30.
Heiðursgestir verða frú Edda Guðmundsdóttir og Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra, sem jafnframt flytur ræðu kvöldsins.
Aðgöngumiða- og borðapantanir eru í síma 24480 (Þórunn).
Verð aðgöngumiða kr. 2.500,-. (Greiðslukortaþjónusta)
Framsóknarfélag Reykjavíkur.
Framsóknarvist
Framsóknarvist verður haldin sunnudag 21.
janúar kl. 14 í Danshöllinni (Þórscafé)
Þrenn verðlaun karla og kvenna. Verð að-
göngumiða kr. 400,- kaffiveitingar innifaldar.
Stutt ávarp flytur Alfreð Þorsteinsson formaður
F.R.
Framsóknarfélag Reykjavíkur
Áífreð
Þorsteinsson
Staðan tekin
Stjórn SUF og stjórnir FUF félaganna efna til skrafs og ráðagerða-
funda á næstu vikum sem hér segir:
Fyrstu fundir: Kópavogur, miðvikud. 24. jan. kl. 20
Hafnarfjörður, þriðjud. 30. janúar kl. 20
Keflavík, þriðjud. 6. febrúar kl. 20
Selfoss, fimmtud. 15. febrúar, kl. 20.
Allir velkomnir.
Stjórnin
Akureyrarferð FUF félaga
Akureyrarferð FUF félaga verður farin helgina 9. til 11. febrúar. FUF
félögum að sunnan til skrafs, skemmtunar og ráðagerða. Allir FUF
félagar velkomnir.
Haldið verður frá skrifstofum Framsóknarflokksins Nóatúni 21 síðla
dags föstudaginn 9. febrúar og komið til Reykjavíkur að nýju
sunnudagskvöldið 11. febrúar.
FUF félagar á Vesturlandi og í Norðurlandskjördæmi vestra eru
hvattir til að slást í hópinn.
Far og gisting í svefnpokaplássi mun kosta tvö þúsund krónur.
Nánari upplýsingar og skráning:
Þórunn á skrifstofu Framsóknarflokksins s. 24480 á daginn.
Guðmundur Birgir í síma 77044 á kvöldin.
FUF félagar á höfuðborgarsvæðinu.
Seltjarnarness
Félagsfundur verður haldinn þriðjudaginn 23. janúar n.k. kl. 20.30 í
húsakynnum félagsins að Eiðistorgi.
Dagskrá: 1. Aðferð við val frambjóðenda á lista í næstu sveitastjórn-
arkosningum.
2. Kosning uppstillinganefndar.
3. Útgáfumál.
4. Önnur mál.
Stjórnin.
Selfoss og nágrenni
Spiluð verður félagsvist að Eyrarvegi 15, Selfossi þriðjudagskvöldin
16., 23. og 30. janúar, kl. 20.30.
Kvöldverðlaun, 1. og 2. verðlaun fyrir öll þrjú kvöldin.
Allir velkomnir
Framsóknarfélag Selfoss
Framsóknarfólk Norðurlandi vestra
Skrifstofur Framsóknarflokksins og Einherja, Suðurgötu 3 á Sauðár-
króki, verða fyrst um sinn opnar mánudaga kl. 13-17 og þriðjudaga
og miðvikudaga kl. 9-12, sími 36757.
llillllllllllllllllllllllll SPEGILL lllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll^
Skipt
um
spaða
Þeir gerðu stormandi lukku
tenniskapparnir heimsfrægu, Mats
Wilander og John McEnroe, þegar
þeir tóku sér gítara í hönd í stað
tennisspaða.
Tennisstjömurnar voru að
skemmta sér í næturklúbbi í Holl-
ywood og nú var ekki keppni á
milli þeirra, heldur hið besta
samspil. Þeir höfðu greinilega tek-
ið lagið saman áður.
Mats Wilander, sænski tennisk-
appinn t.v. og John McEnroe t.h.
spUuðu saman og tó í vel upp
Heimilisfaðirinn skipti um kyn
- Hét áður Michael, en nú Andrea
„Jú, eiginmaður minn gerðist
kona með aðstoð læknavísind-
anna, - en ég hef ekki yfirgefið
hann/hana. Þegar besti vinurinn á
í erfiðleikum þá er það ekki hægt.
Við stöndum saman og reynum að
hjálpast að, sama er að segja um
Ciaran, 7 ára son okkar,“ segir
Colleen Brosnam, eiginkona Mic-
haels Brosnan, - sem reyndar heitir
nú Andrea.
Brosnan fjölskyldan býr í lítilli
borg á Nýja Sjálandi og það var
engin leið að leyna þessum um-
skiptum á fjölskylduföðurnum.
Þetta tók líka allt nokkuð langan
tíma.
Michael sagðist svo frá, að sent
barni hafi honum fundist hann
frekar vera stelpa en strákur. Hann
lék sér með brúður og annað
stelpudót, en sem unglingur hafði
hann áhyggjur af þessu. Þá ákvað
hann að fara að stunda íþróttir og
reyna að verða eins og aðrir jafn-
aldrar.
Þau Colleen kynntust mjög ung
í skóla og hún varð fljótt besti
vinur Michaels. Hann fór í hjúkr-
unarnám, en Colleen varð tölvu-
sérfræðingur og vann hjá ríkisfyrir-
tæki. Þau eignuðust soninn Ciaran
og hamingjan virtist blasa við
þeim. En þá fór að sækja enn
sterkar á hann löngunin til að
verða kona. Hann trúði þó ekki
strax eiginkonu sinni fyrir þessari
þráhyggju, en sóttist í að fá að
máta og klæðast fötum konu
sinnar. Henni þótti þetta einkenni-
leg della, en tók það ekki alvarlega.
Dag nokkurn tók hann í sig
kjark og ræddi málið. Michael
sagðist elska Colleen og son þeirra,
en hann þráði að geta orðið kona
og hann væri óhamingjusamur og
vildi reyna að athuga hvort nokkuð
væri hægt að gera.
Colleen segir, að þetta hafi verið
sér algjört áfall, en þegar hún fór
að átta sig hugsaði hún sem svo:
Honum er alvara. Hann er besti
vinur minn og á í miklum erfiðleik-
um, og ég verð að reyna að hjálpa
honum.
Þau fóru síðan saman að tala við
félagsráðgjafa og heimilislækni, og
eftir rannsóknir komust sér-
fræðingar að því, að eitthvað yrði
að gera.
Læknavísindunum fleygir fram
á þessum sviðum, og nú byrjaði
Michael í hormóna-meðferð. Hún
stóð í tvö ár, og þá breyttist líkami
hans. Varð kvenlegri og röddin
breyttist. Hann fór að klæðast
kvenfötum og láta hárið vaxa og
tók sér nafnið Andrea.
„Jú, ég varð stundum fyrir
háðsglósum, en ég var búinn undir
Þau Michael og Colleen Brosnan með soninn Ciaran. Þama hafði Michael
ekki enn byrjað á hormónameðferðinni
Brosnan fjölskyldan í dag. T.v. er Andrea (áður Michael) og Colleen situr
með soninn sem nú er 7 ára. Hann segir að það sé bara betra að eiga tvær
„mömmur“
það,“ segir Michael/Andrea. Á
árinu 1988 fór hann síðan til
Brussel í Belgíu, þar sem hann
gekkst undir skurðaðgerð sem er
síðasta stig í kynskiptum.
Nú segjast Colleen og Andrea
(áður Michael) búa saman eins og
systur; hafa sitt hvort svefn-her-
bergið og hafa samið um það að
þeim sé frjálst að fara út á lífið og
þá auðvitað báðar með karlmönn-
um ef þær vilja. Ekki hefur þó
reynt á það enn.
Colleen hefur ekki sótt um
skilnað. Hún segir Ciaran litla leita
til þeirra beggja jafnt og hann
virðist sætta sig við ástandið eins
og það er. „En það er ekki hægt að
segja neitt um framtíðina. Við
biðjum vini okkar og ættingja að
reyna að taka okkur eins og við
erum, - bara venjulegt fólk sem
vill lifa lífinu í friði við alla,“ sagði
Colleen við blaðamann sem kom á
heimili þeirra og tók viðtal við
„þær“.