Tíminn - 27.01.1990, Síða 3
Laugardagur 27. janúar 1990
HELGIN
11
þingi (1867) var kosin nefnd til þess
að undirbúa hátíðahöld í tilefni af
1000 ára minningu íslandsbyggðar.
Nefndin sendi svo áskorun lil
allra landsmanna um að leggja fram
fé til þess að hœgt yrði að reisa Al-
þingishús úr íslenskum steini og
„skyldi þar á sett mynd Ingólfs Arn-
arsonar." Skyldi þetta hús vera minn-
ismerki er þjóðin reisti sér á þessum
merku tímamótum.
Hér var gripin hugmynd Halldórs
Kr. Friðrikssonar um húsbyggingu,
en aðeins breytt til. Eins á hér að
ganga til móts við þá sem reisa vildu
Ingólfi minnisvarða, þar sem mynd
hans skyldi vera á húsinu. En ekkert
var á það minnst hvernig þessi mynd
skyldi vera, né hvernig henni skyldi
komið fyrir. Fóru leikar svo að aldrei
framar var minnst á mynd Ingólfs.
Alþingishúsið var fullgert 1881, en
þar var engin mynd af landnáms-
manninum.
Jason eða Ingólfur?
Nú leið og beið fram til sumars-
ins 1906. Þá var íslensku þingmönn-
unum boðið til Kaupmannahafnar.
Fóru þangað 35 þeirra. Þarna sátu
þeir í dýrðlegum fagnaði og hvers
kyns dálœti og voru leystir út með
gjöfum. Og ofan á allt þetta kom svo
fyrirheit um að danska ríkisþingið
œtlaði að gefa íslandi standmynd úr
eiri af Jason, gríska fornkappanum,
gerða eftir hinni heimsfrœgu frum-
mynd Albert Thorvaldsens. Skyldi
henni œtlaður staður á Austurvelli
hjá mynd Thorvaldsens og vonar-
gyðjunnar.
Þegar dönsku blöðin komust að
þessu voru þau ekki ánœgð með
myndarvalið. Var því hreyft bœði í
Nationaltidende og Politiken aö gefa
heldur mynd af Ingólfi Arnarsyni eft-
ir Einar Jónsson. Önnur blöð tóku
undir þetta og myndablöðin birtu
myndir af styttu Einars Jónssonar og
luku lofsorði á hana. Undir þetta tóku
og blöð úti um land í Danmörku.
Þetta írafár meðal Dana og ákafi um
að gefa íslendingum gjafir, mœltist
þó ekki sem best fyrir hér á landi. En
það varð þó til þess að gerð var gang-
skör að því að reisa Ingólfi minnis-
merki fyrir íslenskt fé.
Þá sló í dönsku bakseglin. Ritzau
fréttastofan var látin flylja þá fregn
að ríkisþingið œtlaði ekki að gefa Is-
lendingunt neina standmynd. Kom
þetla eins og skollinn úr sauðarleggn-
um, eftir allt það er blöðin höfðu sagt
um málið. En er leitað var skýringar
á þessu þótti lang sennilegast að rík-
isþingmenn hefðu œllað að skjóta
saman fé til kaupa á Jason — þeir
hefðu getað fengið ódýra afsteypu af
honum. En Ingólfur þótti þeim allt of
dýr.
„Illa farið og ekki illa farið þó í
aðra röndina“, segir Isafold er fréttin
barst, „að vér fáum ekki Ingólf í þetta
sinn og þann veg, sem hér stóð til.
Því satl aö segja lá við að oss œtlaði
að fara að þykja nóg um danskar
gjafir. Er miklu mannalegra og
skemmtilegra að vér komum upp
Ingólfsmyndinni sjálfir. Vér hljótum
að gera það einhvern tíma. Mœtti þá
ekki byrja á að efna til þess nú þegar.
Hver vill gangast fyrir fjársöfnun? Sá
má vitja 50 kr. hjá ísafold — til þess
að einhver byrji.“ i
Blaðið Ingólfur tók dýpra í ár-
inni: „Það vœri þjóðarsmán ef vér
létum Dani verða fyrsta til að reisa
Ingólfi minnisvarða hér... Hann
myndi snúa sér í gröf sinni.“
Iðnaðarmannafélagið
tekur af skarið
Þegar umtalið um gjöfina slóö
sem hœst, kom Jón Halldórsson hús-
gagnasmiður á fund Knud Zimsen,
sem þá var formaður Iðnaðarmanna-
félagsins. Jón var þá nýkominn frá
útlöndum. Honum var mikið niðri
fyrir:
„Þú veist nýju fréttirnar,“ sagði
hann. „Danir œtla að fara að gefa
okkur standmynd af Ingólfi Arnar-
syni. Finnst þér prýði að því? Danir
að gefa Islendingum mynd af Ingólfi
landnámsmanni! Nei, í þessu máli
verða íslendingar að sjá sóma sinn,
þeir eiga sjálfir að reisa Ingólfi minn-
ismerki og gera það óstuddir.'
Vildi hann að Iðnaðarmannafé-
lagið hefði forgöngu í málinu og
skoraði á Knud Ziemsen að kalla
saman fund.
Fundurinn var haldinn 17. sept-
ember. Jón Halldórsson reifaði málið
þannig að allir fundarmenn hrifust af.
Samþykkt var að veita 2000 kr. úr
sjóði félagsins til að byrja meö og
fela Einari Jónssyni að gera minnis-
merkið. Og svo var kosin nefnd til að
hrinda málinu í framkvœmd. Hún
símaði brátt Einari Jónssyni: „Iðnað-
armannafélagið gengst fyrir fjársöfn-
un til Ingólfsmyndar þinnar. Starfaðu
öruggur!"
Þetta var sögulegt skeyli á fleiri
en einn veg. Það var fyrsta almenna
símskeytið sem fór frá þessu landi,
var sent um leið og ritsíminn var opn-
aður. Og það gaf Einari vonir, sem
ekki var hœgt að uppfylla. Félagið
hafði ekki nema þessar 2000 krónur
og þaö var ekki nema tíundi hlutinn
af verði myndarinnar. Fjársöfnunin
gekk ákaflega treglega. Þá réðist
nefndin í það að reisa íbúðarhús og
efna til happdrœttis um það. Sveinn
Jónsson, trésmíðameistari, og fleiri
gáfu 900 fermetra lóð undir það við
Bergstaðastrœti. Húsið komst upp og
menn voru sendir út um land að
kaupa happrœttismiða. Fólk áttaöi
sig ekki á þessu. Það vildi ekki kaupa
happdrœttismiða. Þá var öldin önnur
en nú.
Reyndar voru fieiri fjáröflunar-
leiðir en róðurinn var þungur. Og
þannig leið hvert árið af öðru. Um
síöir var þó dregið í happdrœtlinu
hinn 2. janúar 1914. Og þá var tekin
sú ákvörðun að Iðnaðarmannafélagiö
greiddi allt sem á vantaði, hversu
mikið sem það yrði.
Svo liðu enn mörg ár. En 1922
var mynd Ingólfs steypt í brons og
24. febrúar 1924 var hún afhjúpuð á
Amarhóli og afhent ríkisstjórninni
sem alþjóðareign.
Allir þeir sem fyrir þessu máli
börðust eru nú fallnir frá. En Ingólfur
stendur svipmikill á hólnum og ber
hátt. Um 1960 var tvífari hans reistur
í Hrífudal á Fjölum, œttatóðali hans
— gjöf frá íslendingum. Sú fram-
kvœmd gekk skjólt og vel fyrir sig og
fór ekki hátt.
Tvennir eru tímarnir.
Styrkir til
umhverfismála
Landvernd mun á næstunni úthluta styrkjum úr
Pokasjóði Landverndar.
1. Úthlutun er bundin verkefnum á sviði umhverf-
ismála, svo sem landgræðslu, skógrækt, friðun,
verndun, fegrun og snyrtingu lands og til fræðslu
og rannsókna.
2. Verkefni, sem sótt er um styrk til þurfa að vera
vel afmörkuð og skilgreind. Styrkumsókninni þarf
að fylgja verk- og fjárhagsáætlun.
3. Farið er fram á að styrkþegar leggi af mörkum
mótframlag sem getur falist í fjárframlögum,
vélum, tækjum, efni eða vinnu.
4. Styrkþegar skuldbinda sig til að skila skýrslu
um framkvæmd og árangur verkefnisins fyrir lok
úthlutunarárs.
5. Styrkumsóknir þurfa að berast skrifstofu Land-
verndar fyrir 15. febrúar 1990.
Landvernd
Skólavörðustíg 25,101 Reykjavík.
FÉLAG
JÁRNIÐNAÐARMANNA
Allsherjar-
atkvæða-
greiðsla
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæða-
greiðslu við kjör stjórnar og trúnaðarmannaráðs
Félags járniðnaðarmanna fyrir næsta starfsár.
Tillögum um skipan stjórnar og trúnaðarmanna-
ráðs félagsins skal skila til kjörstjórnar félagsins, á
skrifstofu þess að Suðurlandsbraut 30, 4. hæð,
ásamt meðmælum a.m.k. 75 fullgildra félags-
manna.
Tillögur eiga að vera um 7 menn í stjórn félagsins
og auk þess tillögur um 14 menn til viðbótar í
trúnaðarmannaráð og 7 varamenn þeirra.
Frestur til að skila tillögum um skipan stjórnar og
trúnaðarmannaráðs rennur út kl. 18:00 þriðjudag-
inn 7. febrúar 1990.
Stjórn Félags járniðnaðarmanna
Sýnum
gagnkvæma tillitssemil
í umferðinni.
‘iíO^Öi'lf j.'O'T
1990
PROWLER
fró ARCTIC CRT, nýr frá grunni.
Nýtt framfjöðrunarkerfi, svipað
og í kappakstursbílum
(Double-Wishbone). Einnig er
nýtt, þróað fjöðrunarkefi að
aftan með mestu slaglengd
sem til er. Ný, léttbyggð,
vökvakæld vél 440 c.c. (ca
62 hö). Nú er stýri, mælar
og vindhlíf sambyggð og hreyf-
ist með stýri. Hér er á ferð-
inni ný kynslóð af ARCTIC CAT
vélsleðum.
Verðfrá 596.027
WiLDCAT
Verðfrá 697.016
Ot
ELTIGRE EXT
PANTHERA
Verðfrá 650.308
PANTHER
Verðfrá 518.996
COUGAR
Verðfrá 541.902
CHEETAH T0UR
Verðfrá 661.870
JAC A.F.S.
Verð frá 472.349
^S. BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR HF
Ármúla 13 - 108 Revkiavík - ® 681200
HEILSUGÆSLUSTÖÐ Á BLÖNDUÓSI
Tilboð óskast í aó fullgera húsnæöi á 1. hæð heilsugæslustöðvar á Blönduósi, sem nú er
tilbúin undir tréverk.
Flatarmál hússins er um 700 m2. Verkið skal unnið af einum aðalverktaka.
Verktími ertil 1. maí 1991.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Reykjavík, til og með föstudags
15. febrúar 1990 gegn 10.000,- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 20. febrúar 1990, kl. 11:00.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK