Tíminn - 31.01.1990, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Miðvikudagur 31. janúar 1990
Við í Prentsmiðjunni Eddu
hönnum, setjum og prentum
allar gerðir eyðublaða fyrir tölvuvinnslu.
Smiðjuvegi 3, 200 Kópavogur. Símí 45000
Umboðsmenn Tímans:
Kaupstaður: Nafn umboðsmanns Heimili Sími
Hafnarfjörður Ragnar Borgþórsson Holtagerði 28 45228
Kópavogur LindaJónsdóttir Hamraborg 26 641195
Garðabær Ragnar Borgþórsson Holtagerði 28 45228
Keflavík GuðríðurWaage Austurbraut 1 92-12883
Sandgerði Ingvi JónRafnsson Hólsgötu 23 92-37760
Njarðvík Kristinn Ingimundarson Faxabraut 4 92-13826
Akranes Aðalheiður Malmqvist Dalbraut 55 93-11261
Borgarnes Inga Björk Halldórsdóttir Kveldúlfsgata26 93-71740
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir Silfurgötu 25 93-81410
Ólafsvík LindaStefánsdóttir Mýrarholti 6A 93-61269
Grundarfjörður Anna Aðalsteinsdóttir Grundargötu 15 93-86604
Hellissandur Ester Friðþjófsdóttir Háarifi 49 93-66629
Búðardalur Kristiana Guðmundsdóttir Búðarbraut3 93-41447
fsatjörður Jens Markússon Hnífsdalsvegi 10 94-3541
Bolungarvfk Kristrún Benediktsdóttir Hafnargötu 115 94-7366
Hólmavfk ElísabetPálsdóttir Borgarbraut 5 95-3132
Hvammstangi FriðbjörnNíelsson Fífusundi 12 95-1485
Blönduós Snorri Bjarnason Urðarbraut 20 95-4581
Skagaströnd Ólafur Bernódusson Bogabraut27 95-4772
Sauðárkrókur Guðrún Kristófersdóttir Barmahlíð 13 95-5311
Siglufjörður Sveinn Þorsteinsson Hliðarveig46 96-71688
Akureyri Halldór Ingi Ásgeirsson Hamarsstíg18 96-24275
Svalbarðseyri Þröstur Kolbeinsson Svalbarðseyri 96-25016
Húsavfk Sveinbjörn Lund Brúargerði 14 96-41037
Ólafsfjörður HelgaJónsdóttir Hrannarbyggð 8 96-62308
Raufarhöfn Sandra Ösp Gylfadóttir Aðalbraut 60 96-51258
Vopnafjörður Svanborg Vfglundsdóttir Kolbeinsgötu 44 97-31289
Egilsstaðir Páll Pótursson Árskógar 13 97-1350
Seyðisfjörður Margrét Vera Knútsdóttir Múlavegi 7 97-21136
Neskaupstaður BirkirStefánsson Miðgarði 11 97-71841
Reyðarfjörður Marínó Sigurbjörnsson Heiðarvegi 12 97-41167
Eskifjörður Þórey Dögg Pálmadóttir Svínaskálahlíð 19 97-61367
Fáskrúðsfjörður Guðbjörg H. Eyþórsdóttir Hlíðargötu4 97-51299
Djúpivogur Jón Biörnsson Borgarlandi21 97-88962
Höfn Skúli Isleifsson Hafnarbraut16A 97-81796
Selfoss Margrét Þorvaldsdóttir Engjavegi 5 98-22317
Hveragerði Lilja Haraldsdóttir Heiðarbrún51 98-34389
Þorlákshöfn Þórdfs Hannesdóttir Lyngberg 13 98-33813
Eyrarbakki ÞórirErlingsson Túngötu28 98-31198
Stokkseyri Jón Ólafur Kjartansson Eyjaseli 2 98-31293
Laugarvatn Halldór Benjaminsson Flókalundi 98-61179
Hvolsvöllur Jón ína og Árný Jóna Króktún 17 98-78335
Vfk Ingi Már Björnsson Ránarbraut 9 98-71122
Vestmannaeyjar Marta Jónsdóttir Helgafellsbraut 29 98-12192
i «nr
Létt spjall á laugardegi
Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi, mun ræða borgarmálefni og
fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar og Finnur Ingólfsson um borg-
arstjórnarkosningarnar, laugardaginn 3. febrúar kl. 10.30, aö Nóatúni
21.
Allir velkomnir.
Fulltrúaráðið
Framsóknarvist
Framsóknarvist verður spiluð sunnudaginn 4.
febrúarnk. í Danshöllinni (Þórscafé) kl. 14.00.
Veitt verða þrenn verðlaun karla og kvenna.
Aðgangseyrir kr. 400,- kaffiveitingar innifaldar.
Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi flytur stutt
ávarp í kaffihléi.
Framsóknarfélag Reykjavíkur
Kópavogur - Opið hús
Opið hús alla miðvikudaga að Hamraborg 5, kl. 17-19.
Alltaf heitt á könnunni.
Framsóknarfélögin.
DAGBÓK
Rangæingafélagið
verður með spilakvöld fimmtudaginn
1. febrúar kl. 20.30 í Ármúla 40.
Félag eldri borgara
Snúður og Snælda, leiklistarhópur FEB
gengst fyrir leiklistarnámskeiði 5. febrúar
nk. Upplýsingar á skrifstofu félagsins.
Tölvunámskeið hefst aftur 7. febrúar
nk. og verður haldið á miðvikudögum og
föstudögum kl. 14. Upplýsingar í Tóm-
stundaskólanum.
Munið þorrablót Félags eldri borgara,
sem verður í Goðheimum Sigtúni 3,9. og
23. febrúar.
Málörvun, málþjálfun
og málskilningur
Svanhildur Svavarsdóttir ræðir um
Málörvun, málþjálfun og málskilning á
fyrsta fundi ársins hjá Foreldrafélagi
misþroska barna.
Fundurinn verður haldinn í Æfinga-
deild Kennaraháskólans, gengið inn frá
Bólstaðarhlíð, sama stað og venjulega,
miðvikudaginn 31. janúar kl. 20.30.
Svanhildur mun á fundinum kynna
hvernig hún vinnur með börn og hvernig
hún telur að foreldrar styðji best við
bakið á börnum sínum. Hún mun einnig
kynna námskeið um sama efni.
Á eftir verða fyrirspurnir og almennar
umræður.
Foreldrafélagið hvetur alla foreldra og
annað áhugafólk til að mæta og fræðast.
KVENNAATHVARF
Húsaskjól er opið allan sólarhringinn
og aðstoð fyrir konur sem beittar hafa
veirð ofbeldi í heimahúsum eða orðið
fyrir nauðgun.
Síminn er 21205 - opinn allan sólar-
hrínginn.
Arkitektúr og skipulag
4. tbl. 10. árg. er komið út í glæsilegum
búningi, enda er Arkitektafélag íslands
50 ára um þessar mundir. Efni blaðsins er
mjög fjölbreytt og að lokið dregið saman
í enskan útdrátt. Leiðara skrifar formað-
ur Arkitektafélags íslands, Stefán Bene-
diktsson og fjallar þar um nauðsyn þess
að koma á menntun fyrir arkitekta hér á
landi. Þórunn Valdimarsdóttir skrifar um
fortíð í húsum og þær Bergljót Einars-
dóttir og Hafdís Hafliðadóttir minnast
þess að Arkitektafélagið er 50 ára. Gestur
Ólafsson greinir frá starfs Jóns Kristins-
sonar arkitekts, sem starfar í Hollandi, en
hann hefur beint kröftum sínum mjög að
orkuspamaði og umhverfis- og vingjam-
legum byggingum. Byggingaþjónusta
A.í. er nú orðin 30 ára og skýrir Ólafur
Jensson nokkuð frá starfsemi hennar. 1
tilefni 50 ára afmælis Garðyrkjuskóla
ríkisins hafa Félag íslenskra landslags-
arkitekta, Félag skrúðgarðyrkjumeistara
og Félag gaðplöntuframleiðenda gefið
skólanum sjö þemagarða og er greint
nánar frá þeirri gjöf í blaðinu. Skýrt er frá
hugmyndasamkeppni um skipulag og
notkun Þrastaskógar. Þá er sagt frá nýrri
framsókn línóleumgólfdúka, sem hafa átt
litlum vinsældum að fagna undanfarna
áratugi. Margt fleira forvitnilegt efni er í
ritinu.
Minningarkort Áskirkju
Eftirtaldir aðilar hafa minningarkort
Safnaðarfélags Áskirkju til sölu:
Þuríður Ágústsdóttir, Austurbrún 37,
sími 681742
Ragna Jónsdóttir, Kambsvegi 17, sími
82775
Þjónustuíbúðir aldraðra, Dalbraut 27
Helena Halldórsdóttir, Norðurbrún 1,
Guðrún Jónsdóttir, Kleifarvegi 5, sími
681984
Holtsapótek, Langholtsvegi 84
Verslunin Kirkjuhúsið, Klapparstíg 27
Verslunin Rangá, Skipasundi 56.
Þá gefst þeim, sem ekki eiga heiman-
gengt, kostur á að hringja í Áskirkju,
sími 84035 milli kl. 17:00 og 19:00 ogmun
kirkjuvörður annast sendingu minningar-
korta fyrir þá sem þess óska.
Sölustaðir minningarkorta
HJARTAVERNDAR
ReykjavíkiSkrifstofa Hjartavemdar,
Lágmúla 9, 3. hæð, sími 83755 (Gíró)
Reykjavíkur Apótek, Austurstr. 16,
Dvalarheimili aldraðra, Lönguhlíð,
Garðs Apótek, Sogavegi 108, Bókabúðin
Embla, Völvufelli 21, Árbæjar Apótek,
Hraunbæ 102A, Bókabúð Glæsibæjar,
Álfheimum 74, Kirkjuhúsið, Klapparstíg
27, Vesturbæjar Apótek, Melhaga 20-22.
Kópavogur: Kópavogs Apótek, Hamra-
borg 11. Hafnarfjörður: Bókabúð Olivers
Steins, Strandg.31, Sparisjóður Hafnar-
fjarðar. Keflavík: Rammar og gler, Sól-
vallag. 11, Apótek Keflavíkur, Suðurg. 2,
Akranes: Bókabúð Andrésar Níelssonar,
Skólabraut2. Borgarnes: Verslunin ís-
björninn. Stykkishólmur: Hjá Sesselju
Pálsdóttur, Silfurg. 36. ísafjörður: Póstur
og sími, Aðalstræti ISStrandasýsla: Hjá
Ingibjörgu Karlsdóttur, Kolbeinsá,
Bæjarhreppi. Akureyrí: Bókabúðin
Huld, Hafnarstræti 97, Bókaval, Kaup-
vangsstræti 4Húsavík: Blómabúðin
Björk, Héðinsbr. 1. Raufarhöfn: Hjá
Jónu Ósk Pétursdóttur, Ásgötu 5. Egils-
staðir: Hannyrðaverslunin Agla, Selási
13. Eskifjörður: Póstur og sími, Strand-
götu 55. Siglufjörður: Verslunin Ögn,
Aðalgötu 20. Vestmannaeyjar: Hjá Am-
ari Ingólfssyni, Hrauntúni 16. Selfoss:
Selfoss Apótek, Austurvegi 44.
Amnesty International:
Fangar
janúarmánaðar
Mannréttindasamtökin Amnesty
Intemational vilja vekja athygli al-
mennings á máli þessara samvisku-
fanga. Amnesty vonar að fólk sjái
sér fært að skrifa bréf til hjálpar
þessum mönnum og skipi sér á bekk
með þeim sem berjast gegn mann-
réttindabrotum á borð við þau sem
hér eru virt að vettugi.
íslandsdeild Amnesty gefur einnig
út póstkort til stuðnings föngum
mánaðarins. Hægt er að gerast
áskrifandi að þessum kortum með
því að hringja til skrifstofunnar,
Hafnarstræti 15, virka daga frá kl.
15-18 í stma 16940.
Indónesía: Alexander Warouvv og
Manan Effendi hafa verið í fangelsi
frá árinu 1965.
Alexander Warouw, 72 ára, og
Manan Effendi, 69 ára, voru hand-
teknir í október 1965, nokkrum
vikum eftir byltingartilraun og morð
á 6 herforingjum. Kommúnista-
flokkur Indónesíu var sagður bera
ábyrgð á þessum atburðum og í
kjölfarið var flokkurinn bannaður
og mikil „hreinsun" átti sér stað.
Þessi „hreinsun“ kostaði a.m.k.
500.000 manns lífið og er talið að
rúmlega milljón manna hafi verið
handteknir.
Alexander Warouw og Manan
Effendi voru tengdir Kommúnista-
flokknum í Kalimantan. Ekkert
bendir til þess að þeir félagar hafi
vitað um þá atburði sem leiddu til
byltingartilraunarinnar og ekkert of-
beldi átti sér stað í Kalimantan á
þessum tíma.
f maí 1967 voru þeir leiddir fyrir
Balikpapan héraðsdómstólinn í Kal-
imantan og sakaðir um niðurrifs-
starfsemi. Manan Effendi vardæmd-
ur til dauða en Alexander Warouw
fékk í lífstíðarfangelsi. Áfrýjun Al-
exanders var neitað en dómi Manans
var breytt í lífstíðarfangelsi.
Fangamir hefðu átt að vera leystir
úr haldi í ágúst 1988, en í mars 1987
gaf forseti landsins út tilskipun sem
breytti stefnu yfirvalda gagnvart
eftirgjöf á refsingu. Tilskipunin úti-
lokar eftirgjöf hjá þeim föngum sem
dæmdir eru til dauða en fá dómi
breytt í lífstíðarfangelsi. Tilskipunin
útilokar einnig eftirgjöf hjá þeim
föngum sem sitja í lífstíðarfangelsi
nema náðun komi til.
Vinsamlegast skrifið kurteislegt
bréf og farið fram á að þeir félagar
verði tafarlaust látnir lausir og án
nokkurra skilyrða. Skrifið til:
Let Ismail Saleh S H Menteri
Kehakiman Jalan Hayam Wuruk 7
Jakarta Pusat Indonesia
Kúba: Elizardo Sanchez Santa
Cruiz, 45 ára, er fyrrum prófessor í
heimspeki við háskólann í Havana.
Hann var dæmdur í 2 ára fangelsi
fyrir að gefa opinberar yfirlýsingar
til varnar mannréttindum.
Elizardo Sanchez, forseti kúb-
versku mannréttindanefndarinnar
(Comision Cubana de Serechos
Humanos y Reconcilicación Nacion-
al), var handtekinn snemma að
morgni 6. ágúst 1989. Tuttugu örygg-
islögreglumenn gerðu húsleit á
heimili hans (og skrifstofum mann-
réttindanefndarinnar) og handtóku
hann síðan. Síðar sama dag voru
tveir aðrir mannréttindasinnar hand-
teknir. Hiram Abi Cobas Nunes og
Hubert Jérez Marino.
Allir þrír voru ákærðir fyrir að
„dreifa fölsuðum fréttum í þeim
tilgangi að sverta virðingu og orðstír
ríkisins“, að því er virðist vegna
viðtala við erlenda fréttamenn um
réttarhöld og meðferð á fyrrum
liðsforingja. Liðsforinginn var tek-
inn af lífi 13. júlí 1989 eftir að hafa
verið sekur fundinn um „óvinveittar
aðgerðir í garð erlends ríkis“ og
lögbrot í tengslum við eiturlyfjasölu.
Elizardo Sanches var dæmdur í 2
ára fangelsi 17. nóvember sl. og er
hafður í haldi í Combinado del Este
fangelsinu í Havana.
Elizardo hefur nokkrum sinnum
verið í haldi að því er virðist af
pólitískum ástæðum. Hann var
handtekinn í september 1986 eftir
að hafa fordæmt opinberlega mann-
réttindabrot á Kúbu. Hann var hafð-
ur í haldi án ákæru þar til honum var
sleppt í maí 1987.
Elizardo stofnaði kúbversku
mannréttindanefndina í október
1987 og í apríl sl. hóf hann baráttu
fyrir löggildingu nefndarinnar. Á
árinu 1988 var Elizardo leyft að sæka
mannréttindanámskeið í Bandaríkj-
unum en eiginkona hans og tvö börn
hafa búið þar frá 1980.
Vinsamlegast skrifið kurteislegt
bréf og farið fram á að Elizardo
Sanchez verði tafarlaust Iátinn laus
og án nokkurra skilyrða. Skrifið til:
Su Excelencia Comandante en Jefe
Dr. Fidel Castro
Presidente de la República
Ciudad de Habana
Cuba/Kúba
Grikldand: Daniel Kokkalis, 29 ára
prestur Votta Jehóva, var dæmdur í
4 ára fangelsi fyrir að neita að gegna
herþjónustu.
Daniel Kokkalis hefur verið í
fangelsi frá því í mars 1988. Trú hans
meinar honum að gegna herþjón-
ustu. Þegnskylduvinna þeirra sem
neita að gegna herþjónustu í Grikk-
landi er helmingi lengri en herskyld-
an og telur Amnesty það óréttlátt.
í júlí 1987 viðurkenndi innanríkis-
ráðuneytið Daniel Kokkalis sem
prest Votta Jehóva í Athica héraði
og veitti honum leyfi til að jarða,
gifta og skíra.
í september 1988 gengu í gildi lög
nr. 1764/88 sem veita „prestum og
munkum þekktra trúarbragða"
undanþágu frá því að gegna herþjón-
ustu. Á grundvelli þessara laga fór
Daniel Kokkalis fram á undanþágu
frá því að gegna herþjónustu og fór'
jafnframt fram á að vera sleppt úr
haldi. í kjölfarið var réttarhöldum
hans frestað fimm sinnum á meðan
mál hans var í athugun en í júlí 1989
dæmdi herréttur Aþenu Daniel í 4
ára fangelsi.
Við áfrýjun dómsins 31. október
fór Daniel fram á að vera sleppt úr
haldi á þeirri forsendu að hann væri
prestur en beiðni hans var neita þar
sem trúarbrögð Votta Jehóva voru
ekki „þekkt trúarbrögð“.
Vinsamlegast skrifið kurteislegt
bréf og farið fram á að Daniel
Kokkalis verði látinn laus tafarlaust
og án skilyrða. Skrifið til:
President Christos Sartzetakis
Office of the President
17 Stisichorou Street
Athens
Greece/Grikldand