Tíminn - 01.02.1990, Síða 5
Fimmtudagur 1. febrúar 1990
Tíminn 5
Er alkalívirkni
enn til staðar?
Alkalivirkni í steypu hér á landi hefur á ný komið til
umræðu eftir að Jón Guðmundsson í Tækniháskólanum í
Lundi telur rannsóknir sínar sýna fram á að alkalíúrfellingar
á íslenskri steypu séu enn til staðar. Þetta kom fram í
fyrirlestri Jóns á norrænni ráðstefnu um steypu á dögunum
og hefur þegar vakið snörp viðbrögð hjá Rannsóknastofnun
byggingariðnaðarins.
Sturla Einarsson húsgagna og byggingameistari sýnir hvernig tveggja og hálfs
árs gömul gólfplata er farín. í plötuna er notuð vikursteypa og því ekki um
annað að ræða en að úrfellingin sé komin til vegna sementsins, þar sem ekkert
salt er í vikrinum sem tekinn var við Heklu. Timamynd Pjetur
Hákon Ólafsson forstjóri RB fór
utan í gær til að kanna rannsóknar-
gögn og aðferðir Jóns, en talið hefur
verið að tekist hafi að koma fyrir
alkalívirkni í íslenskri steypu með
öflugu átaki árið 1979.
Jón Sigurjónsson yfirverkfræðing-
ur Rannsóknastofnunar byggingar-
iðnaðaríns sagði að vissulega hefðu
niðurstöður Jóns komið þeim á
óvart. „Ég held að niðurstöður úr
þessum rannsóknum Jóns séu ekki í
takt við niðurstöður úr okkar rann-
sóknum og þess vegna dreif forstjór-
inn sig til Svíþjóðar til að skoða
málið,“ sagði Jón Sigurjónsson.
Efasemdamenn halda því fram að
þrátt fyrir hið mikla átak sem gert
var 1979 þá sé síður en svo búið að
komast í veg fyrir alkalívirkni
steypu. Einn þeirra er Sturla Einars-
son húsgagnasmiður og bygginga-
meistari, sem stundað hefíir sjálf-
stæðar rannsóknir og tilraunir á
steypu í um 15 ár. Hans niðurstaða
er sú sama og Jón Guðmundsson
fékk í rannsóknum sínum, þ.e að
alkalívirkni sé enn til staðar. Jón
Sigurjónsson sagði að allt frá árinu
1979 til ’80 væri búið að gera mæling-
ar á steypu eftir að kísilryksíblönd-
unin kom og allar þær ráðstafanir
sem gerðar hafi verið og ekkert í
þeirra mælingum sem benti til þess
að hættan sé ekki afstaðin. „Annað
hvort er þetta eitthvað nýtt eða
mistúlkun hjá Jóni,“ sagði Jón Sigur-
jónsson.
„Þessi steypa okkar er ekkert í
Iagi ennþá,“ sagði Sturla í samtali
við Tímann, er hann benti á loftplötu
og vegg í bílskúr sem reistur var fyrir
tveimur og hálfu ári síðan. „Þessi
bílskúr er byggður úr vikursteypu
alveg, þannig að það eru engin
sjávarefni í steypunni. Vikurinn er
tekinn austur við Heklu og er salt og
kalklaus, þannig að það er bara
sementið sem er svona mengað,"
sagði Sturla. Hann sagði að hver
gæti dæmt fyrir sig, hvort þetta ætti
að vera svona. „Þetta er það sem við
horfum á vella út úr veggjunum í
þeim húsum sem verst eru farin. Ég
held að það sé tímabært hjá okkur,
eftir alla þá umfjöllun sem steypu-
skemmdir hafa fengið og allán þenn-
an tíma, að fara að hugsa sem svo,
er ekki mál að linni. Þarf ekki að
fara að gera eitthvað alvarlegt í
hlutunum,“ sagði Sturla og benti á
að vísindamenn hlustuðu ekkert á
þá sem ynnu með þessi efni daglega.
„Úrfelling þarf ekki endilega að
vera alkalískemmd. Ef það er
vatnsstreymi í gegn um steypu þá
þvæst salt úr steypuefninu út á
yfirborðið. Þegar vatnið gufar upp
verður saltið eftir. Það þarf ekki
endilega vísbending um alkalí-
skemmdir,“ sagði Jón. Hann sagði
að mönnum hætti til að tileinka
alkalívágestinum allar skemmdir
sem koma, en hann væri ekki nema
hluti af því. Hann sagði að þeim á
RB væri ekki kunnugt um alkalí-
skemmdir í húsum byggð eftir 1979
til 1980.
Um þá gagnrýni sem Jón Guð-
mundsson fékk við að nota ekki
loftblendi í steypuna sem hann rann-
sakaði sagði Sturla að umrædd gólf-
plata og veggur sem steypt var fyrir
2 1/2 ári innihéldi 10,5% loftblöndu
sem væri rúmlega tvöfaldur skammt-
ur sem vanalegast er notað, þannig
að litlu loftblendi væri ekki um að
kenna. „Það er líka dálítið stór
spuming fyrst loftið er svona gott, af
hverju em þá húsin í lagi sem steypt
vom áður en loftblendið kom til,“
sagði Sturla.
Hann sagði að sementið væri upp-
fullt af salti sem ekki ætti að vera og
benti á að í gömlu húsunum sem
byggð vom fyrir stríð væri ekki slíku
fyrir að fara. Það sement var
innflutt. Sturla benti á að í þeim
tilfellum þar sem lögð væri mikil
áhersla á að mannvirki stæðust, væri
notað innflutt sement, s.s. Ráðhús-
ið, Búfellsvirkjun, Keflavíkurvegur-
inn og fleiri. „Af hverju er verið að
flytja inn sement, ef okkar er í lagi.
Þetta stangast heldur betur á,“ sagði
Sturla. Til viðbótar við úrfellið
springa veggir, vegna þess að saltið
og kalkið draga í sig vatn og verður
steypan þá vatnsdræg fyrir bragðið
og þegar frýs myndast frostspennur
sem leiðir til þess að veggir springa.
Nú hefur sjávarsandinum verið
kennt um? „Já, það er salt í honum,
en af hverju að vera að einangra
hann, þegar sementið er sínu saltrík-
ara. Það er framleitt úr skel sem dælt
er upp af Faxaflóasvæðinu og með
slæðist þang og önnur dmlla. Á
öðmm stöðum þar sem sement er
búið til þar er kalkið tekið í námum
uppi á landi, sem er gamall hafsbotn
sem risið hefur úr sæ og útskolað á
þúsundum ára og ekki snefill af
aukaefnum í því. Ætli við séum ekki
eina landið í heiminum þar sem
þessari dmllu er dælt upp af sjávar-
botninum og skellt inn í ofnana,"
sagði Sturla og bætti því við að við
brunann í ofninum gufi um 80%
saltsins út auk annarra aukaefna.
Auk kalksins sem færst úr skeljum,
er í sement m.a. notað líparít og leir
sem fluttur er inn frá Danmörku.
Hann sagði augljóst mál að til að
vinna bug á alkalískemmdum þyrfti
að flytja inn kalkið í steypuna, eða
skola kalkið það vel að efnið sé
tiltölulega hreint við notkun.
„Það er engin spurning að við
eigum að byggja steinhús hér á
landi. Við höfum nóg af grjóti og
sandi og við getum alveg framleitt
sement ef rétt er á haldið. Vanda-
málið sem mér sýnist vera er að fá
nógu hreint kalk. Eins og við vinnum
þetta núna gengur ekki upp,“ sagði
Sturla. -ABÓ
Hæstiréttur:
Fjórtán ár
fyrir morð
Hæstiréttur hefur kveðið upp 14
ára fangelsisdóm yfir rúmlega tví-
tugum Reykvíkingi, Guðmundi
Sveinbjömssyni, fyrir að hafa myrt
með hnífi Öldu Rafnsdóttur á
heimili hennar í Kópavogi aðfara-
nótt 3. september 1988. Dómur
Hæstaréttar er í aðalatriðum stað-
festing á dómi héraðsdóms og virð-
ast ný gögn um geðheilsu sakbom-
ings, sem lögð vom fram í málinu
og aflað var að ósk verjenda ekki
hafa skipt neinum sköpum. f þeim
gögnum kemur fram að um stund-
arbrjálæði hafi verið að ræða, þó
ágreiningur hafi verið meðal geð-
lækna og sálfræðinga um eðli þess
stundarbrjálæðis. Enginn virðist
þó draga í efa sakhæfi Guðmundar.
í greinargerð Hæstaréttar kemur
fram að Guðmundur hefur sjálfur
ekki getað gefið nema óljósar
skýringar á þeim banvænu áverk-
um sem hann veitti öldu á hálsi,
en man þó að hann hafði slegið
hana áður. Kveðst hann ekki skilja
vers vegna hann gerði þetta.
í dómi Hæstaréttar segir að
ákærði hafi unnið til refsingar sam-
kvæmt 211. gr. almennra hegning-
arlaga og þykir refsing hans hæfi-
lega ákveðin í héraðsdómi. í 211.
gr. segir: „Hver, sem sviptir annan
Alda Rafnsdóttir, fórnarlamb þess
ofbeldisglæps sem Hæstiréttur hef-
ur dæmt í.
mann lífi skal sæta fangelsi, ekki
skemur en 5 ár, eða ævilangt."
Þá kemur gæsluvarðhaldsvist
sakbornings til frádráttar refsing-
unni með fullri dagatölu og Hæsti-
réttur telur ekki efni til að taka til
greina kröfu verjenda um að til
frádráttar komi þreföld dagatala
tvö tiltekin tímabil, sem ákærði var
í Síðumúlafangelsi. Ákærði er
dæmdur til greiðslu áfrýjunar-
kostnaðar. -BG
Hitaveita Akureyrar:
Hagræðing í rekstri með
nýju sölufyrirkomulagi
Um síðustu áramót var sölufyrir-
komulagi Hitaveitu Akureyrar
breytt á þann veg, að í stað orku-
gjalds og aflgjalds, sem áður var, er
nú komið orkugjald og fastagjald
eftir mælastærð.
Breyting þessi er gerð að tilstuðlan
stjórnar veitustofnana og miðar að
því að einfalda gjaldskrá Hitaveit-
unnar. Gert er ráð fyrir að tekjur
veitunnar verði þær sömu eftir þessa
breytingu og að ekki komi til hækk-
unar afnotagjalda. Hins vegar er
áætlað að með þessu fyrirkomulagi
verði hægt að draga úr rekstrarút-
gjöldum Hitaveitunnar og ná þannig
fram hagræðingu og sparnaði sem
koma mun jafnt Hitaveitunni og
neytendum til góða.
Samkvæmt nýju gjaldskránni er
orkugjald 97.50 kr. rúmmetrinn, í
stað 91.10 kr. áður, og í stað viðmið-
unar við afl kemur fastagjald sem
miðast við mælastærð. Fastagjald
mælanna verður sem hér segir á
ársgrundvelli. Fyrir 15 mm mæla
greiðast 6.800.-, 20 mm kr. 16.800,-,
25 mm kr. 33.600.-, og af 50 mm
mælum og stærri greiðast árlega
268.800,- kr. HIÁ, Akureyrí.
Átak í aðbúnaði og ðryggi
Vinnueftirlit ríkisins gengst nú
fyrir fundaherferð, að beiðni Sam-
bands byggingarmanna, um vinnu-
vemdarmál víðsvegar um land. Á
fundunum eru mönnum kynnt rétt-
indi þeirra og skyldur varðandi að-
búnað og öryggi á vinnustöðum.
Þau mál sem lögð er áhersla á að
kynna em aðbúnaður og skipulag
starfsmannahúsnæðis, persónuhlífar
og hlífðarbúnaður véla, líkamsbeit-
ing og öryggi og hreinn vinnustaður.
Miðað er við að hver fundur standi
yfir í um 50 mínútur.
í fréttatilkynningu frá Vinnueftir-
liti ríkisins segir að gott starfsum-
hverfi sé hagsmunamál allra, jafnt
atvinnurekenda sem starfsmanna.
„Það skilar sér í meiri afköstum,
minni fjarvem vegna veikinda og
slysa og betri vinnuanda,“ segir í
tilkynningunni. -ABÓ
Frá fundi um vinnuverndarmál, sem Vinnueftirlit ríkisins hefur hleypt af
stokkunum. Tímamynd Pjetur