Tíminn - 07.02.1990, Page 2
2 Tíminn
Miðvikudagur 7. febrúar 1990
Á síðastliðnum ellefu árum er búið að farga hundrað og fimmtán þúsund fjár vegna
riðuveiki og skera niður á rúmlega sexhundruð búum:
64% riðubænda hefja
ekki búskap aftur
Frá árinu 1978 hefur verið skorið niður hjá 609 bændum
vegna riðuveiki. Af þeim hafa 299 lokið umsömdu
fjárleysistímabili og átt þess kost að hefja sauðfjárbúskap
að nýju. Það vekur hins vegar athygli að einungis 109
bændur hafa nýtt sér þennan rétt, eða um 36% af heildinni.
Þessar upplýsingar komu fram í
svari Steingríms J. Sigfússonar,
landbúnaðarráðherra, við fyrir-
spurn Elínar Líndals varaþing-
manns, sem hún flutti varðandi
niðurskurð vegna riðuveiki. í svari
sínu skipti ráðherra tímabilinu frá
1978 til 1989 í tvennt. Á árunum
1978 til og með 1985 var fram-
kvæmdur niðurskurður vegna riðu-
veiki á 168 fjárbúum, samtals tæp-
lega tuttugu og átta þúsund kindur.
Á tímabilinu frá og með 1986 til
ársins í fyrra var fé skorið niður á
393 sauðfjárbúum, samtals rúm-
lega sjötíu og níu þúsund kindur.
Þar fyrir utan stóð Framleiðnisjóð-
ur landbúnaðarins fyrir niður-
skurði á 49 fjárbúum árið 1986,
samtals rúmlega átta þúsund
kindum. Þetta gerir í heildina
niðurskurð á 115.500 kindum, frá
609búum, áárunum 1978 til 1989.
Að sögn Kjartans Blöndal, fram-
kvæmdastjóra Sauðfjárveikivarna,
voru stærstu niðurskurðarárin
1987-’88 og ’89. Þar er í flestum
tilfellum um þriggja ára samninga
að ræða, en til boða stendur að
semja ýmist til tveggja eða þriggja
ára.
Á síðastliðnum þremur árum
hafa þrjú riðutilfelli verið staðfest
á svæðum sem áður hafa verið talin
ósýkt. Þar er um að ræða einn bæ
í Hrunamannahreppi í Árnessýslu
1988, tilfelli sem greindist í Gríms-
ey árið 1987 og annað tilfelli í
Kirkjubæjarhreppi sama ár. Auk
þess hafa áður þekkt riðusvæði í
nokkrum tilfellum stækkað á sama
tímabili.
Þá kom fram í máli landbúnaðar-
ráðherra, að hann hefur skipað
nefnd til að yfirfara og endurskoða
öll lagaákvæði varðandi búfjár-
sjúkdóma og varnir gegn þeim.
Hlutverk nefndarinnar verður að
samræma lögin og horfa til núver-
andi aðstæðna í þeim efnum. Verð-
ur lærdómur sem draga má af
aðgerðum gegn riðuveiki, sérstak-
lega hafður í huga þegar sú endur-
skoðun verður framkvæmd.
-ÁG
Skipadeild Sambandsins:
1989 var
metár í
flutningum
Flutningar Skipadeildar Sam-
bandsins hafa aldrei verið meiri en á
síðasta ári, samtals 540 þúsund tonn
sem er 6% aukning frá árinu 1988.
Heildar rekstrartekjur námu rúmum
2,8 milljörðum króna, sem er ríflega
33% hækkun frá árinu áður. Með
vísan til hækkunar byggingavísitölu
nemur raunhækkunin um 11% milli
áranna 1988 og 1989.
Aukningin var í innflutningi, út-
flutningi, strandflutningum og flutn-
ingum á milli erlendra hafna, en
samdráttur varð í olíuflutningum
innanlands. Séu olíuflutningarnir
undanskildir nemur aukningin 18%.
Mest jukust strandflutningarnir, eða
um 45%, og er ástæðan endurbætt
skipulag og fastar vikulegar siglingar
til hafna á Vestur- og Norðurlandi.
f lok ársins 1989 voru tíu skip í
rekstri hjá Skipadeild Sambandsins,
fjögur eigin skip, þrjú á þurrleigu
með íslenskum áhöfnum og þrjú á
tímaleigu með erlendum áhöfnum. í
árslok störfuðu samtals 270 manns
hjá deildinni. SSH
Finnur Ingólfsson varaþingmaður leggur fram frumvarp um hertar kröfur
um eigin atvinnurekstur:
Menn dæmdir frá
rekstri í 5 ár?
Finnur Ingólfsson, varaþing-
maður, hefur lagt fram frumvarp
til laga er gerir ráð fyrir að unnt
verði að banna einstaklingum
að stunda atvinnurekstur vegna
afbrota. Tilgangur frumvarpsins
er sá, að hvern þann, sem bregst
gróflega skyldum sínum í eigin
atvinnurekstri, eða í atvinnu-
rekstri lögaðila sem hann er í
forsvari fyrir, megi útiloka frá
frekari atvinnurekstri um tiltek-
inn tíma.
Gert er ráð fyrir að atvinnurekstr-
arbannið verði þrjú ár hið skemmsta
og fimm ár hið lengsta. Séu ástæðar
taldar óljósar, má samkvæmt frum-
varpinu, úrskurða menn í bann til
bráðabirgða, er taki gildi strax við
uppkvaðningu. Slíkt bráðabirgða-
Finnur Ingólfsson.
bann getur þó aldrei orðið til lengri
tíma en níu mánaða.
Þeim sem dæmdur hefur verið í
atvinnurekstrarbann er auk þess
óheimilt að gangast undir ótakmark-
aða ábyrgð á rekstri hvers kyns
félags eða annars lögaðila með fjár-
hagsleg markmið. Þá skal honum
ekki heimilt að sitja í stjórn, eða
varastjórn, félags eða lögaðila með
fjárhagsleg markmið, né heldur að
vera framkvæmdastjóri, staðgengill
framkvæmdastjóra, eða veita í raun
forstöðu atvinnurekstri lögaðila sem
hefur fjárhagsleg markmið.
Flutningsmenn auk Finns Ingólfs-
sonar eru alþingismennirnir Páll Pét-
ursson, Kristín Einarsdóttir, Árni
Gunnarsson og Ásgeir Hannes Ei-
ríksson. -ÁG
Frá útkomu ritsafnsins „Keflavík í byrjun aldar“. Til vinstri afhendur Jón
Tómasson myndatextahöfundur verksins og fyrrverandi ritstjóri Faxa
núverandi ritstjóra, Helga Hólm, fyrsta eintak verksins. Til hægri afhendir
Anna Sigríður Björnsdóttir, dóttir Mörtu Valgerðar Jónsdóttur, Guðleifi
Sigurjónssyni, forstöðumanni Byggðasafns Suðumesja, Ijósmyndir og fleiri
gögn úr fóram höfundarins.
KEFLAVIK I
BYRJUN ALDAR
Bókaforlagið Líf og Saga hefur
sent frá sér ritverkið „Keflavík í
byrjun aldar". Minningar frá Kefla-
vík eftir Mörtu Valgerði Jónsdóttur.
Á árunum 1945-1969 birtust minn-
ingarþættir Mörtu Valgerðar í tíma-
ritinu Faxa og nutu þeir mikilla
vinsælda. í þáttunum fer hún hús úr
húsi og skrifar um íbúana þannig að
úr verður góð heildarmynd um þá
sem bjuggu í Keflavík um aldamót-
in.
28 útskrifast frá Hvanneyri
Prófkjör í Kópavogi:
EFSTU
Laugardaginn 27. janúar 1990
voru útskrifaðir 28 búfræðingar frá
Bændaskólanum á Hvanneyri. Um
er að ræða hluta þeirra sem áttu að
útskrifast á síðastliðnu vori en ekki
luku námi þá vegna verkfalls
kennara. Hluti þessara nema mun
ljúka námi á vori komandi, en
nemendum gafst kostur á að ljúka
búfræðiprófi annaðhvort í janúar
eða í vor.
Tveir nemendur hlutu fyrstu
ágætiseinkunn: Guðlaugur V. Ant-
onsson frá Vík í Mýrdal og Sigmund-
ur J. Jóhannesson frá Brekkukoti í
Hofshreppi í Skagafirði. Báðir hlutu
þeir einkunnina 9,1.
Þær breytingar urðu á starfsliði
skólans að Sigtryggur J. Björnsson,
sem verið hefur yfirkennari undan-
farið lét af því starfi, en við tók
Bjarni Stefánsson, kennari, frá Túni
í Hraungerðishreppi.
Fram kom í ræðu skólastjóra að
þetta er í fyrsta skipti í 100 ára sögu
skólans að ekki hefur verið hægt að
útskrifa búfræðinga á eðlilegum
tíma.
Nýútskrifaðir búfræðingar frá Bændaskólanum á Hvanneyri,
FELLDIR
Richard Björgvinsson og Bragi
Michaelson sem skipuðu fyrsta og
annað sæti á lista Sjálfstæðisflokks-
ins í Kópavogi í síðustu bæjarstjórn-
arkosningum fengu slæma útreið í
prófkjöri sem flokkurinn hélt um
helgina. Richard lenti í áttunda sæti
en Bragi í því fimmta. Niðurstöður
prófkjörsins urðu að í fyrsta sæti
lenti Gunnar Birgisson, í öðru sæti
Guðni Stefánsson, í þriðja sæti Birna
Friðriksdóttir og í fjórða sæti lenti
Arnór L. Pálsson. Guðni er eini
núverandi bæjarfulltrúinn sem má
telja að eigi möguleika á endurkjöri.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú fjóra
bæjarfulltrúa í bæjarstjórn Kópa-
vogs. -EÓ