Tíminn - 07.02.1990, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 7. febrúar 1990
Tíminn 3
Uppstillingarnefnd Sjálfstæðisflokksins að hreinsa til á borgarstjórnar-
listanum. Tveim slátrað, einn hættir:
Er Ólafur B. Thors
borgarstjóraefni?
„Það eru átta ár síðan ég lauk mínum ferli í borgarstjórn
Reykjavíkur og ég hef ekki haft nein áform um að koma
þangað aftur eftir að hafa setið í borgarstjórn í tólf ár. Sagan
á því ekki við nein rök að styðjast hvað varðar mig enda hefur
þetta mál ekki einu sinni komist á umræðustig við mig, hvað
þá meira,“ sagði Ólafur B. Thors fyrrv. borgarfulltrúi, nú
forstjóri Sjóvá Almennra, í gær.
Tíminn hefur orðið þess áskynja
að fjölmennur og öflugur hópur
manna innan Sjálfstæðisflokksins
sækir það mjög fast að Ólafur B.
Thors verði í öðru sæti á framboðs-
lista Sjálfstæðisflokksins við sveita-
stjórnarkosningarnar í vor og að
meirihluti uppstillingarnefndar sé
fylgjandi því. Pað sé aðeins spurning
um baráttuaðferð hvenær þegar
ákveðinn Iisti Sjálfstæðismanna
verði birtur.
Alkunna er að Davíð Oddsson er
varaformaður Sjálfstæðisflokksins
og því næsta víst að hann taki sæti á
Alþingi eftir Alþingiskosningarnar
vorið 1991. Þá tclja þeir sem halda
Ólafi B. Thors fram, að ekki veiti af
að fá þekktan þungavigtarmann með
flekklausa pólitíska fortíð sem arf-
taka Davíðs Oddssonar.
Samkvæmt heimildum okkar á
Tímanum verður borgarstjórnarlisti
Sjálfstæðisflokksins þannig skipað-
ur: Davíð Oddsson verður í efsta
sæti. I öðru sæti Ólafur B. Thors sem
þá tæki við borgarstjóraembætti þeg-
ar Davíð flyst upp í hinn pólitíska
fyrsta flokk og verður Alþingismað-
ur. í þriðja sæti verður Magnús L.
Sveinsson, í fjórða sæti Katrín
Fjeldsted. í>au Magnús og Katrín
flytjast niður um eitt sæti frá því sem
nú er en Katrín tekur sæti Páls
Gíslasonar. Hann mun ekki gefa
kost á sér áfram.
Vilhjálmur í>. Vilhjálmsson mun
skipa áfram fimmta sætið en í það
sjötta; sæti Hilmars Guðlaugssonar
formanns bygginganefndar kemur
Guðrún Zoéga en uppstillingar-
nefnd mun ekki huga Hilmari frekari
setu í borgarstjórn.
Heimildarmenn Tímans segja að
þetta sé löngu orðið Ijóst af fram-
komu flokksfélaga Hilmars í borgar-
kerfinu gagnvart honum og störfum
hans, en trekk í trekk hafi nánast
verið valtað yfir bygginganefnd, nú
síðast við afgreiðslu skipulagsnefnd-
ar og síðan meirihluta bygginga-
nefndar varðandi Hátún 6a-6b.
Félagsmálaráðherra felldi nýlega
byggingarleyfi hússins úr gildi en
þegar byggingarnefnd afgreiddi það
sama leyfi, þá sat Hilmar B. Guð-
laugsson formaður nefndarinnar
hjá.
í sjöunda sæti verður Árni Sigfús-
son áfram og trúlega mun Júlíus
Hafstein halda áfram áttunda sætinu
þrátt fyrir vandræðaganginn í sam-
bandi við húsbyggingu pappírsfyrir-
tækis hans; Snorra h.f. við Lágmúla.
Breyting verður hins vegar á ní-
unda sætinu því að Jóna Gróa Sig-
urðardóttir fær að fjúka eins og
Hilmar B. Guðlaugsson en í stað
hennar kemur Anna K. Jónsdóttir.
Ólafur B. Thors sagði Tímanum í
gær að liann hefði vissulega heyrt
getgátur um skipan hans í annað sæti
lista Sjálfstæðismanna og um þetta
væri mikið spurt: „Ég svara þessu
ekkert öðruvísi en svo og sann-
leikanum samkvæmt, að ég hcf ekki
nokkur afskipti af störfum uppstill-
ingarnefndar Sjálfstæðismanna og
Davíð Oddsson
Ólafur B. Thors
veit ekkert hvað hún er að gera. Ég
held hins vegar að Sjálfstæðisflokk-
urinn eigi svo gott og mikið lið að
hann þurfi ekkert að vera að kalla til
menn sem búnir eru að standa
varðstöðuna á þessum vettvangi,"
sagði Ólafur B. Thors. -sá
Frá undirritun samkomulags um stuðning Rauða krossins við heimahlynningu Krabbameinsfélagsins. F.v. Guðjón
Magnússon, formaður Rauða kross íslands, Almar Grímsson, formaður Krabbameinsfélags íslands og Arinbjörn
Kolbcinsson, formaður Reykjavíkurdeildar Rauða kross íslands.
Samvinna Rauða krossins og Krabbameinsfélagsins:
Heimhlynning krabba-
meinssjúkra aukin
Starfsemi heimahlynningar
Krabbameinsfélagsins hefur nú ver-
ið aukin þannig að veitt er þjónusta
Samband íslenskra bankamanna
hefur fallið frá kröfum um 10%
meðallaunaháikkun og mun miða
kröfugerð sína við nýgerða samn-
inga ASÍ og BSRB. Samningar
bankamanna hafa verið lausir síðan
um áramótin.
Ingvi Örn Kristinsson formaður
sambandsins sagði í gær að miðað
við þær samningaviðræður sem nú
stæðu yfir milli samningsaðila þá
allan sólarhringinn. Samkvæmtsam-
komulagi sem nýlega var undirritað
veitir Rauði krossinn Krabbameins-
væri miðað við að laun bankamanna
hækkuðu til jafns við hækkanir í
samningum ASÍ og BSRB.
Bankamenn lögðu fram kröfur
sínar skömrnu fyrir áramótin en í
þeim var gert ráð fyrir því að
endurheimtur yrði kaupmáttur
launa þeirra eins og hann var á árinu
1988. Það hefði þýtt um 10% hækk-
un í krónum talið. -sá
félaginu fjárhagslegan stuðning til
að gera þessa aukningu mögulega.
Rauði kross íslands og Reykj avík-
urdeild Rauða kross fslands ætla að
styrkja rekstur Heimahlynningar-
innar til marsloka 1991 en fyrir þann
tíma verður árangur starfseminnar
metinn og leitað leiða til að finna
þjónustunni farveg til frambúðar.
Nú starfa fjórir hjúkrunarfræðing-
ar við Heimahlynninguna. Einnig
starfa tveir læknar við þjónustuna í
hlutastarfi. Tilgangur Heimahlynn-
ingarinnar er að gefa sjúklingum
með krabbamein á lokastigi kost á
því að dvelja heima eins lengi og
þeir óska og aðstæður leyfa með því
að veita markvissa líknarmeðferð.
Byggt er á hugmyndafræði Hospice-
hreyfingarinnar sem miðar að því að
tryggja lífsgæði og sjálfsvirðingu svo
lengi sem unnt er. Þjónustan nær
einnig til stuðnings við aðstandendur
sjúklinga.
Samningaviöræöur milli SÍB og bankanna:
BANKAMENNN SLÁ
AF KAUPKRÖFUM
Helgarsjón-
varp í haust
Myndbanda- og auglýsingagerð-
arfyrirtækið Sýn hf. mun hefja rekst-
ur helgarsjónvarps í haust, ári eftir
að samgönguráðherra veitti fyrir-
tækinu leyfi til að senda út á rás 6 á
metrabylgjusviði. Upphaflega stóð
til að hefja útsendingar í byrjun
þessa árs.
Björn Br. Björnsson hjá Sýn sagði
að ákveðið væri að helgarsjónvarpið
yrði með sérstakan myndlykil og
verður því ekki samið um aðgang að
tölvukerfi Stöðvar 2. Það er því Ijóst
að þeir sem vilja horfa á helgarsjón-
varpið ásamt Stöð 2 verða að hafa
tvo myndlykla við hlið sjónvarps-
tækisins. Björn vildi ckki gefa upp
hvaða aðilar stæðu að helgarsjón-
varpinu.
Varðandi þau skilyrði sem sett
voru fyrir leyfisveitingunni sagði
Björn að Póstur og sími væri úr-
skurðaraðili varðandi þau atriði og
málið væri því hjá þeim. Þegar Sýn
hf. var veitt lcyfið kom fram að
nokkrar breytingar þyrfti að gera á
dreifikerfi sjónvarps á suð- vestur-
horningu. Meðal annars væri unt að
ræða nýjan sendi á Kjalarnesi sem
þjónar Mosfellingum, einnig þyrfti
að setja nýjar greiður á 400-500
loftnet í Mosfellsbæ. Áætlaður
kostnaður við breytingarnar var þá
talinn nema nokkrum milljónum
króna. SSH
Ráðslagað um
steikarfeiti
í dag hefst ráðstefna um steik-
ingarfeiti á vegum Rannsókn-
aþjónustun'nar h.f. í samvinnu við
Matvæla- og næringarfræðingafé-
iag íslands og Félag matreiðslu-
manna.
Lærð erindi um heitt mál; steik-
ingafeitina, flytja Baldur Hjaltason
efnafræðingur, Snorri Þórisson
matvælafræðingur, Sigurður Páls-
son lyfja- og matvælafræðingur,
Brynhildur Briem lyfja- og mat-
vælafræðingur og Ulfar Eysteins-
son veitingamaður.
Meðan á ráðstefnunni stendur
kynna nokkur fyrirtæki steikingar-
feiti sem þau hafa á boðstólum.
Ráðstefnugjald er 3500 kr. og inni-
falin er mappa með ítarlegum ráð-
stefnugögnum og veitingar. -sá
Asgeir
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð
Ásgeirs Friðjónssonar sakadómara í
ávana og fíkniefnamálum að Ásgeir
skuli víkja sæti dómara í stóra kóka-
ínmálinu svo nefnda. Ásgeir úr-
víkur
skurðaði svo í málinu fyrir nokkru
og kærði ríkissaksóknari þann úr-
skurð til Hæstaréttar, sem nú hefur
staðferst úrskurð dómarans. -ABÓ