Tíminn - 07.02.1990, Side 9

Tíminn - 07.02.1990, Side 9
8 Tíminn Miðvikudagur 7. febrúar 1990 Miðvikudagur 7. febrúar 1990 Tíminn 9 Heimsmeistarakeppnin í handknattleik hefst í lok febrúar í hinni nýfrjálsu Tékkóslóvakíu: „Fyrsta stórmótið eftir byltinguna“ - segir Jiri Zeman sendiherra Tékka á íslandi sem heldur með Logn ríkir nú í handknattleiksheimin- um, en það er aðeins lognið á undan storminum. Sjálf úrslitakeppni heims- meistaramótsins er framundan og liðið æfir nú af kappi fyrir átökin í Tékkóslóv- akíu. íslenska landsliðið mun taka á móti Rúmenum, Svisslendingum og Hollend- ingum, áður en haldið verður í austurátt. Rúmenar koma fyrst og leika þrjá leiki gegn okkar mönnum, 10., 11. og 12. febrúar og verða allir leikirnir í Laugar- dalshöll. Svisslendingar leika hér 15. og 16. febrúar, einnig í Höllinni og Hollend- ingar sækja okkur heim rétt áður en lagt verður upp og leika hér tvo leiki, 22. og 23. febrúar. Tékkóslóvakía Stóratburðir hafa átt sér stað í Tékkó- slóvakíu síðustu vikur, kommúnista- íslendingum þegar Tékkar eru ekki að leika Eftir Björn Leósson MS' stjórnin féll, eins og annars staðar í Austur-Evrópu og nýir menn tóku við stjórninni. Tíminn heimsótti tékkneska sendiráðið í Reykjavík til þess að for- vitnast um undirbúning keppninnar og ástandið í Tékkóslóvakíu. Tékkneski sendiherrann á íslandi, Jiri Zeman, tók á móti blaðamanni og fletti í gegnum kynningarbækling heimsmeist- arakeppninnar. Sendiherrann krossaði yfir myndir af nokkrum helstu íþrótta- forkólfum Tékkóslóvakíu, en myndir af þeim prýddu bæklinginn. „Þessi var rekinn og þessi líka og annar er kominn í staðinn,“ sagði sendiherrann, þegar hann krossaði yfir mynd af forseta íþróttasambands Tékkóslóvakíu og fleiri fyrirmönnum. „Það hafa verið gerðar .miklar breytingar í heimalandi mínu í kjölfar byltingarinnar," sagði Zeman. „Ég var 8 daga í Prag fyrir skömmu og hafði tækifæri á að sjá með eigin augum hvað hefur gerst. Ég er ekki viss um að ferðamenn taki eftir breytingunum, nema þeir hafi komið áður til landsins. Fólkið er mun ánægðara og opnara en áður og nú blakta aðeins tékkneskir fánar við hún, rauði fáninn er horfinn. Þegar ég ók frá Prag tók ég eftir að öll áróðursskiltin sem á stendur „Lifi kommúnisminn" og þess háttar, eru horfin. Þá hefur nöfnum verið breytt, götur heita ekki lengur Lenínstræti, eða nöfnum rússneskra hershöfðingja, held- ur heita þær sínum gömlu nöfnum frá því fyrir síðari heimsstyrjöldina. Heimsmeistarakeppnin í handknatt- leik er fyrsta stórmótið í íþróttum sem haldið er eftir byltinguna, en ég vil gjarnan kalla þessar breytingar byltingu. Mönnum er mikið í mun að sýna að við getum skipulagt svona mót og allt gangi upp. Það eina sem skipuleggjendur hafa áhyggjur af er að lítið verði um áhorfend- ur. Handbolti er ekki vinsælasta bolta- greinin í landinu, knattspyrna, íshokkí, blak, körfubolti og tennis eru greinar sem allar eru vinsælli en handbolti. Það verður alltaf fullt af fólki á leikjum tékkneska liðsins, en á öðrum leikjum gæti orðið fámennt. Ekki bætir úr skák að bestu dagar tékknesks handknatt- leiks, þegar landsliðið var heimsmeistari, eru liðnir.“ Sendiherrann hafði nokkrar áhyggjur af tékkneska liðinu, þó einkum mark- vörslunni. „Barda er einn besti mark- vörður heims, en hann er ekki búinn að ná sér eftir slæm meiðsl. Næstu mark- verðir landsliðsins eru ekki nógu góðir og því verður maður að vona að Barda verði að fullu búinn að ná sér fyrir keppnina. Annars held ég með íslandi, þegar Tékkóslóvakía er ekki að spila,“ sagði Zeman, sem mun verða íslenska liðinu samferða á mótið. „Þegar íslenska liðið tók þátt í móti í Bratislava í nóvember komu fram kvart- anir út af matnum. Slóvakar eru mikið fyrir feitan og mikið kryddaðan mat og ég skil vel að mönnum líki slíkt misvel. Ég hef talað við Jón Hjaltalín um mataræði liðsins og beðið sérstaklega um góðan mat fyrir íslenska liðið meðan á keppninni stendur. Þeir fá ekki ýsu, en íþróttahöllin í borginni Zlín þar sem íslenska liðið mum keppa í riðlakeppninni. Það er tímanna tákn að fyrir „byltinguna“ í vetur hét borgin Gottwaldov en hefur nú aftur fengiö sitt upphaflega nafn. örugglega silung, þannig að maturinn ætti að verða líkari því sem menn eiga að venjast,“ sagði Jiri Zeman. „Mér er sagt að sovéska liðið sé ósigrandi um þessar mundir og níu önnur lið séu álitin líkleg til afreka í keppninni. Ég ræddi við menn heima þegar ég var þar á ferð, þar á meðal son minn sem er íþróttafréttamaður við útvarpið í Prag. Menn nefndu Júgóslava, Ungverja, Svía, Rúmena, íslendinga, Pólverja, A-Þjóðverja, S-Kóreumenn og Spánverja auk Sovétmanna, sem sterk- ustu þjóðirnar í keppninni," sagði Jiri Zeman sendiherra Tékkóslóvakíu á ís- landi og bætti við að Jiri væri tékkneska nafnið fyrir Georg. Beinar útsendingar Ríkissjónvarpið mun verða með við- búnað vegna heimsmeistarakeppninnar. Bjarni Felixson og Samúel Örn Erlings- son fara til Tékkóslóvakíu, Bjarni mun lýsa öllum leikjum íslenska liðsins i sjónvarpi og Samúel í útvarpi. Þetta er sama gengi og lýsti frá B-keppninni í Frakklandi. Hjátrú hefur skapast í kringum lýsing- ar Bjarna Fel. því liðið mun ekki hafa tapað leik sem Bjarni hefur lýst og handknattleiksmennirnir sjálfir vilja ólmir fá Bjarna til Tékkóslóvakíu. Leikirnir í riðlakeppninni, sem fram fer í borginni Zlín, sem fyrir byltinguna hét Gottwaldov, verða gegn Kúbu 28. febrúar, gegn Spáni 1. mars og gegn Júgóslavíu 3. mars. Að riðlakeppninni lokinni tekur við keppni í milliriðli, en sú keppni mun fara fram í Bratislava. Ekki er ljóst gegn hverjum verður leikið, en þrjú efstu liðin í riðlunum komast í milliriðlana. Líklegt er að mótherjar íslands í milliriðli verði Sovétmenn, A-Þjóðverjar og Pólverjar. Úrslitakeppnin verður í Prag 9. og 10. mars. Þann 9. verður leikið um 11.-12. sætið og 5.-6. sætið, en daginn eftir verður leikið um önnur sæti, þar á meðal um 3.-4. sætið og 1. sætið. Þeir tveir leikir verða sýndir í beinni útsendingu í Ríkissjónvarpinu. Hópferðir Fjórar ferðaskrifstofur verða með hópferðir til Tékkóslóvakíu vegna keppninnar. SAGA og ÚRVAL/UT- SYN annars vegar og FARANDI og FERÐABÆR hinsvegar. Á öllum þess- um ferðaskrifstofum var sömu fréttir að fá, sárafáir höfði látið bóka sig, en mikið var um fyrirspurnir. Mismunandi ferðatilhögun mun vera í boði, bæði er hægt að fara út og fylgjast með keppninni í heild og einnig að mæta til leiks þegar keppni í milliriðlum hefst. Verðið fyrir þessar ferðir er á bilinu 77-86 þúsund. Innifalið er flugfar, akstur, fararstjórn, aðgöngumiðar, gist- ing með morgunverði og 1/2 fæði í Zlín og Bratislava. Hjá Faranda og Ferðabæ er hver að verða síðastur að tryggja sér sæti í hópferðinni. Aðeins um 10 manns hafa bókað sig í ferðirnar og því ríkir óvissa um hvort af hópferðinni verður. „Við erum að missa af hótelplássi og aðgöngu- miðum, við höfum ekki lengri frest á þessum hlutum. Það er því raunverulega að verða of seint að panta sér far, en málin skýrast nánar á næstu klukkutím- um,“ sagði viðmælandi blaðsins hjá Ferðabæ. Hjá Sögu og Úrval/Utsýn munu 20-30 manns hafa bókað sig í ferðirnar. Einn ferðaskrifstofumaður sem blaðið ræddi við sagði, að almennt peningaleysi hjá fólki gerði strik í reikninginn og eins væri fólk í vafa um framgöngu íslenska liðsins í keppninni. Annar benti á að íslending- ar væru alltaf seinir að taka við sér og vildu helst ákveða svona ferð með stutt- um fyrirvara. Ferðaskrifstofurnar þurfa að panta hótel og aðgöngumiða með góðum fyrirvara og því er þeim vandi á höndum. Hjá Faranda og Ferðabæ gæti orðið að hætta við ferðina vegna fámenn- is, nema eitthvað mikið gerist og það fljótlega. Hjá Sögu og Úrval/Útsýn verð- ur áfram hægt að bóka sig næstu daga, en fólki er bent á að ekki verður hægt að bæta við sætum í ferðirnar á síðustu stundu. Sem sé, fólk hefur áhuga en er hikandi. 3 vikur til stefnu En þangað til keppnin hefst mun athygli manna hérlendis beinast að ís- lenska landsliðinu og undirbúningi þess, hvernig gengur liðinu í leikjunum fram að keppninni, hvaða leikmenn koma til með að verða valdir til fararinnar, verður undirbúningstíminn nægur og rétt skipu- lagður? En þrjár vikur eru til stefnu þar til mótið hefst og augu landsmanna munu þá beinast í austurátt að Pilzen, Prag, Ostrava, Zlina, Presov, Bratislava og þó einkum Zlín, til að byrja með.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.