Tíminn - 07.02.1990, Qupperneq 13

Tíminn - 07.02.1990, Qupperneq 13
Miðvikudagur 7. febrúar 1990 Tíminn 13 ■ Mnr Húsvíkingar -Þingeyingar Steingrímur k Guðmundur Almennur stjórnmálafundur verður haldinn í Félagsheimili Húsavíkur miðvikudaginn 7. febrúar kl. 20.30. Frummælendur: 'Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra og Guð- mundur Bjarnason heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra. Að framsöguræðum loknum, fyrirspurnir og frjálsar umræður. Allir velkomnir. Framsóknarfélag Húsavíkur Akureyringar - Eyfirðingar Opinn fundur um atvinnu- og stóriðjumál verður haldinn í Alþýðuhúsinu, Skipagötu 14, Akureyri, 4. hæð, fimmtudaginn 8. febrúar kl. 20.30. Frummælendur: Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, sem ræðir um stjórn- málaviðhorfið og stöðu atvinnulífs á landsbyggðinni. Úlfhildur Rögnvaldsdóttir, bæjarfulltrúi, ræðir um atvinnuástandið á Akureyri. Guðmundur G. Þórarinsson, alþingismaður, ræðir um stöðuna í álviöræðunum og um nýtt álver á íslandi: Ávörp flytja: Guðmundur Bjarnason, ráðherra, og Jóhannes Geir Sigurgeirsson, alþingismaður. Fundarstjóri: Sigurður Jóhannesson, bæjarfulltrúi. Akureyringar og Eyfirðingar eru hvattir til að fjölmenna á fundinn og taka þátt í umræðum og bera fram fyrirspurnir. Framsóknarfélag Akureyrar Staðan tekin Stjórn SUF og stjórnir FUF félaganna efna til skrafs og ráðagerða- funda á næstu vikum sem hér segir: Fyrstu fundir: Selfoss, fimmtud. 15. febrúar, kl. 20. Allir velkomnir. Stjórnin Akureyrarferð FUF félaga Akureyrarferð FUF félaga verður farin helgina 9. til 11. febrúar. FUF á Akureyri mun taka á móti FUF félögum að sunnan til skrafs, skemmtunar og ráðagerða. Allir FUF félagar velkomnir. Haldið verður frá skrifstofum Framsóknarflokksins Nóatúni 21 síðla dags föstudaginn 9. febrúar og komið til Reykjavíkur aö nýju sunnudagskvöldið 11. febrúar. FUF félagar á Vesturlandi og í Norðurlandskjördæmi vestra eru hvattir til að slást í hópinn. Faroggisting í svefnpokaplássi munkostatvötilþrjú þúsund krónur. Nánari upplýsingar og skráning: Þórunn á skrifstofu Framsóknarflokksins s. 24480 á daginn. Guðmundur Birgir í síma 77044 á kvöldin. FUF félagar á höfuðborgarsvæðinu. Framsóknarkonur Við hvetjum ykkur eindregið til þess að taka sæti á framboðslistum Framsóknarflokksins í sveitarstjórnarkosningunum í vor og r.afa með því áhrif á starf og stefnu ykkar sveitarfélags. stjórn LFK. SPEGILL Ný argerð af Sylvester Stallone Staurblindur Stallone ásamt konunni sem hann sá aldrei í réttu Ijósi. Sylvester Stallone hefur komisl aö þeirri niöurslöðu að hann sé búinn að þurrausa þá kumpána Rocky og Rambo, enda búinn að hafa upp úr þeim um 100 milljónir dollara. Hann hefur því ákveðið að skipta um ímynd, kominn með gleraugu og hœtlur að lita gráu hárin. Nú segist hann einbeita sér að því að safna listaverkum og lesa heims- bókmenntir. Stallone kvartar yfir því að fólk hafi alranga hugmynd um hann. Það setji samasemmerki milli hans og Rambo/Rocky en það sé fjarri sanni. Hvað gleraugun varðar hefur hann þurft á þeim að halda frá 12 ára aldri en hégómagirnin hefur orðið til þess að aumingja maðurinn hef- ur aldrei séð hálfa sjón. Hann kennir þessari sjóndepru um hjóna- band sitt og Brigilte Nielsen, hann hafi hreinlega aldrei séð hana al- mennilega. Nú er bara að bíða og sjá hvað Stallone setur sig í stellingar og reynir að líta út fyrir að vera með afstœðiskenninguna á hreinu. þessi nýja ímynd aflar Stallone þarf að verða harðjaxl aftur af fjár- margra milljóna eða hvorl hann hagsástœðum. Elvis og Liberace Þegar þessi mynd var tekin árið 1956 vissi enginn að þessir tveir menn áltu eftir að verða heims- frœgir og meira en það. Rokk- kóngurinn Elvis Presley og skemmtikrafturinn skrautlegi Li- berace hittust fyrir lilviljun í Las Vegas og skiptust á hljóðfœrum. Sagan segir ttö Elvis hal'i komið Liberace á óvart meö því að spila bara þokkalega á píanó. Þeir áttu svo sann- arlega framtíðina fyrir sér þessir tveir.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.