Tíminn - 07.02.1990, Blaðsíða 16

Tíminn - 07.02.1990, Blaðsíða 16
AUGLYSINGASIMAR: 680001 —686300 RÍKISSKIP NÚTIMA FLUTNINGAR Hafnorhúsinu v/Tryggvagöfu, ________g 28822 SAMVINNUBANKINN BYGGDUM LANDSINS PÓSTFAX TÍMANS 687691 VaMtnoMMS Múlakaffi ALLTAF í LEIÐINNI 37737 38737 ríniinn MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 1990 Skuldarar brugöust snarlega við innheimtuaðgerð fjármálaráðuneytisins 500 MANNS GERDU UPP BÍLASKATTA Fimmhundruð manns lögðu leið sína á skrifstofu Tollstjóra í gær til að gera upp vangoldinn þungaskatt og bifreiðagjöld frá fyrra ári eða árum. Innheimtust um 10 milljónir króna þegar í stað vegna þess. Eins og Tíminn greindi frá í gær hófust innheimtuaðgerðir vegna vanskila á þungaskatti og bifreiðagjöldum sem samtals námu 720 milljónum króna og í Reykjavík einni er talið að vanskil nemi um 280 milljónum króna, vegna 3-4 þúsund bifreiða. Tveir hópar lögreglumanna fóru um bæinn í gær til að klippa númer af þeim bifreiðum sem eigendur höfðu ekki staðið í skil- um við að borga umrædd gjöld. Númer voru tekin af 20 bifreiðum, en lögreglan var ekki eins lengi með klippurnar á lofti og ráð var fyrir gert vegna þeirra snörpu viðbragða sem fólk sýndi þegar í gærmorgun. „Égermeð tvoþykka og mikla doðranta hér á borðinu yfir þá sem skulda bifreiðagjöldin. Upphæðirnar eru allt frá nokkrum krónum og upp í hálfa milljón króna í einhverjum tilfellum, en flest hlaupa á nokkrum þúsund- um,“ sagði Jónas Hallsson yfirlög- regluþjónn hjá Lögreglunni í Reykjavík í samtali við Tímann. Nýir listar hafa nú verið gerðir, þar sem þeir sem greiddu skuldir sínar í gær eru ekki lengur meðal skuldara og verður unnið eftir þeim lista í dag. Annars er ætlunin að ganga ekki mjög hart fram í afklippingum í dag, til að gefa fólki kost á að greiða skuldina, en Ur umferð: V/óqrcidds þungaskatts. Mælabunaður ófullnægjandí. V/rangrar skráningar. Ekkí >nas» tit áicsturs- Lögregla og starfsmaður Tollstjóra fjarlægja skráningarnúmer bifreiðar, þar sem ekki bifreiðagjöld höfðu ekki verið greidd. Tímamynd Ámi Bjama Svona iíta miðarnir út sem bifreið- arnarfá í stað númeraspjaldanna. Tímamynd Ámi Bjama á morgun verða innheimtuaðgerð- irnar hertar á ný. Björn Hermannsson tollstjóri sagði í samtali við Tímann að innheimtan hafi gegnið mjög vel þennan fyrsta dag, enda um leið og opnað var á skrifstofu Toll- stjóra í gærmorgun streymdu skuldararnir að til að gera upp sín mál. Undir lok vinnudags í gær höfðu um 500 manns sem skuldaði þungaskatt og bifreiðagjöld lagt leið sína til Tollstjóra og greitt það sem þeim bar eða samtals um 10 milljónir króna. Björn sagði að aðgerðum yrði haldið áfram, eða þar til komið væri hreint borð. Þá sagði Björn að gera mætti ráð fyrir því að eitthvað meira hafi inn- heimst í gengum gíró hjá bönkun- um, sem berst embættinu eftir tvo daga. „í þeim tilfellum þurfa menn að vera á varðbergi og sýna kvittanirnar," sagði Björn. -ABÓ Árni Stefánsson úr Reykjavík meistari: Bréfskák ’89 lokið Árni Stefánsson úr Reykjavík sigraði á 11. Bréfskákþingi íslands sem lauk fyrir skömmu. Árni hlaut átta og háífan vinning af 10 mögu- legum og sæmdarheitið Bréfskák- meistari íslands 1989. í næstu sætum í landsliðsflokki urðu Áskell örn Kárason Kópa- vogi, Jón Kristinsson Hólmavík og Bjarni Magnússon Reykjavík þeir hlutu allir 7 vinninga. þessir fjór- menningar voru í nokkrum sér- flokki því næstu menn hlutu fjóra og hálfan vinning. í meistaraflokki urðu efstir og jafnir Jón Jóhennes- son og Gunnar örn Haraldsson báðir úr Reykjavík hlutu sjö og hálfan vinning af 10 mögulegum, þriðji varð Jón Magnússon Reykja- vík með sjö vinninga. í almennum flokki sigraði Sigurjón Þorkelsson Vestmannaeyjum með fimm og hálfan vinning af sex mögulegum. Þetta er í annað skipti sem Árni Stefánsson sigrar á Bréfskákþingi íslands. í fyrra skiptið var það í mótinu sem lauk 1982 en það var í fjórða skipti sem mótið var haldið. Ö Þ: Flying Tigers: Afgreiðslugjöld fyrir ríkisstjórn Flugfax, umboðsaðili Flying Tigers hér á landi, mun á næstu dögum leggja fyrir ríkisstjórnina beiðni um að hún beiti sér fyrir lækkun afgreiðslugjalda fyrir vélar FER RAÐUNEYTIÐ AÐ KANNA BEIN JÓNASAR? „Ég trú því að bein Jónasar séu grafin á Þingvöllum. Þetta var að vísu mjög umdeilt á sínum tíma og sjálfsagt færst aldrei endanlega úr þessu skorið," sagði Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra þeg- ar hann var spurður út í þá fullyrð- ingu Björns Th. Björnssonar í ríkis- sjónvarpinu að bein Jónasar lægju enn í danskri mold. Steingrímur á sæti í Þingvallanefnd. Steingrímur sagðist hvorki hafa séð sjónvarpsþátt Björns né grein rar hítmí v:t. v.tut »4. .1. .' þ, íul Tímans í gær um jarðneskar leifar Jónasar Hallgrímssonar og ætti því erfitt með að tjá sig um málið. Hann sagði þó hugsanlegt að forsætisráðu- neytið eða Þingvallanefnd hefði af- skipti að málinu. -EÓ flugfélagsins. Flugleiðir hafa einka- rétt á afgreiðslu flugvéla á Keflavík- urflugvelli samkvæmt samningi við ríkisstjórnina og hefur fyrirtækið ekki verið tilbúið að lækka af- greiðslugjöldin. Hefur þetta leitt til þess að vélar Flying Tigers eru svo til hættar að lenda hér á landi á leið sinni til Japan. Hafa menn verulegar áhyggjur af því að þetta kunni að valda óbætanlegu tjóni á stöðu ís-f lenskra sjávarafurða á mörkuðum í Japan. Guðmundur Þór Þormóðs- son hjá Flugfaxi sagði í samtali við Tímann í gær að Flugleiðir væru að fórna heildarhagsmunum fyrir ímyndaða einkahagsmuni. Á tímabilinu apríl-desember sl. fluttu Flying Tigers 430 tonn frá íslandi til Japan. Mestur hluti þess var ferskur lax og hefur sjávaraf- urðadeild SÍS hingað til tekist að senda lax vikulega á markað í Japan. Hefur það skipt miklu máli varðandi stöðu vörunnar á markaðinum. í gær tókst að bjarga málunum með því að senda skammt þessarar viku í gegnum Bandaríkin sem er mun dýrara, tekur lengri tíma og getur haft veruleg áhrif á gæði vörunnar. Um var að ræða 6 tonn af laxi og er verðmætið rúmar þrjár milljónir króna. Þess má að lokum geta að útflutn- ingsaðilar sjá góða möguleika varð- andi Japansmarkað og er eftirspurn- in mun meiri en laxeldisstöðvar hér heima hafa getað sinnt hingað til, en Japanir vilja eingöngu 7-8 punda lax. Guðmundur sagði að þegar stöðvarnar næðu því marki að fram- leiða 400-500 tonn á mánuði þá mætti reikna með því að fjórðungur framleiðslunnar færi á Japansmark- að, sem þýðir sölu fyrir 52 milljónir • á mánuði. SSH

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.