Tíminn - 17.02.1990, Side 5
Laugardagur 17. febrúar 1990 HELGIN 5
Þórunn Thorsteinsson.
Ágústína
Elín Munck
Ágústína er Rangæingur í móðurætt en af
Vesturlandi í föðurætt. Hét móðir hennar
Guðrún Guðmundsdóttir og var úr Holtum,
en faðir hennar var Guðmundur Kristjáns-
son frá Stóra-Múla í Saurbæ. Bjuggu þau
hjón í Vestmannaeyjum og þar er Ágústína
fædd hinn 18. janúar 1917. Ólst hún upp í
foreldrahúsum í Eyjum til 16 ára aldurs.
Heimskreppan í algleymingi og ekki efni til
langskólagöngu dóttur og var Guðmundur
þó stýrimaður og formaður á báti á árabili.
1933 réðst Ágústína til barnmargrar fjöl-
skyldu Adolphs Bergssonar, lögfræðings í
Reykjavík, og var þá lokið veru hennar í
Eyjum nema fáeina daga að vori er hún fékk
orlof til að skreppa heim. Eftir 3 ára vist í
Reykjavík ákvað hún að fara til Danmerkur
á vegum Ingveldar föðursystur sinnar, sem
bjó í Kulhus á Sjálandi, gift Ejnari Hansen
skipstjóra. Var hún síðan stofustúlka og í
ýmsum vistum á Sjálandi, við matreiðslu-
nám og einn vetur í húsmæðraskóla í
Ölstykke en minnist sérstaklega verunnar á
prestsetrinu í Vanlöse. Hjónin höfðu áður
verið í Færeyjum og skilningur þeirra á
smáþjóðunum í norðri meiri en almennt var
í Danmörku. Eftir þá góðu vist fór Ágústa
að vinna á saumastofu, fyrst hjá Unni
Larsen frá Vestmannaeyjum, en síðan við
karlmannafatasaum á English House í
Kaupmannahöfn, þar sem hún starfaði
þangað til hún giftist 1942. Var maður
hennar Jens Munck, Jóti að uppruna, fædd-
ur hinn 27. júní 1911, löggiltur dómtúlkur
og skjalaþýðandi. Bjuggu þau í 14 ár á
Friðriksbergi við góðar aðstæður en voru á
sumrum á Solröd Strand uns þau settust þar
að fullu að 1958 í stóru og fallegu húsi. Eftir
lát manns síns 1978 seldi Ágústína húsið og
býr síðan ein í prýðilegri íbúð í fjölbýlishúsi
á Ishöj suður af Kaupmannahöfn.
Börn Jens og Ágústínu eru 4 og öll búsett
á Sjálandi, Finn Hesselholt Munck, cand.
scient. í stærðfræði, í næstu grennd við
móður sína, Jan, sem er hagfræðingur, í
Slagelse og Elín Katja, listmálari og einka-
ritari, í Söborg, en Leif, sem er þeirra
yngstur, er cand. polyt. í hagfræði og býr í
Kaupmannahöfn. Öll eru þau systkin fjöl-
skyldufólk og eru barnabörn Ágústínu 8.
Fyrr á árum tók Ágústína virkan þátt í
starfi íslenska samkórsins og byrjaði þar
með Sigríði Kristjánsdóttur Schultz, föður-
systur sinni, en söngstjórinn var vinur þeirra,
Axel Arnfjörð píanókennari. Síðar, þegar
Axel hóf organistastörf fyrir Söfnuð íslend-
inga í Kaupmannahöfn 1964, gerðust þær
frænkur báðar söngfélagar og lagði Ágústína
drjúgan skerf til kirkjukórsstarfsins uns hún
varð að hætta vegna alvarlegra veikinda
fyrir 3 árum, en allt til 1983, þegar hún fór
í fyrsta sinn á sjúkrahús, hafði hún verið
hraust og raunar sjaldan orðið misdægurt.
Endá þótt Ágústína hafi verið í meira en
hálfa öld í Danmörku og eigi þar stóra
fjölskyldu er hún fyrst og fremst íslendingur
í lund og hætti og á marga góða vini í hópi
landa sinna í Höfn. Katja dóttir hennar
hefur og haldið málverkasýningar í félags-
heimilinu í Húsi Jóns Sigurðssonar.
ALVÖRU
SNJOBLASARAR
FRÁ TREJON
FYRIRLIGGJANDI
KAUPFÉLÖGIN OG
TREJQN
ÁRMÚLA 3 • REYKJAVlK • SÍMI 38900 Z.A
i
W • Á - M • A • N
NÁMU NÁMSSTYRKIR
Landsbanki íslands auglýsir eftir umsóknum um
tvo styrki sem veittir verða NÁMU-félögum.
u Einungis aðilar að námsmannaþjónustu
Landsbanka íslands, NÁMUNNI, eiga rétt á að
sækja um þessa styrki.
Kfl Allir þeir, sem gerst hafa félagar í NÁM-
UNNI fyrir 15. mars 1990, eiga rétt á að sækja um
styrk vegna þessa námsárs.
ÉLfl Hvor styrkur er að upphæð 100 þúsund
krónur og verða þeir afhentir í byrjun apríl 1990.
Kfl Umsóknir er tilgreini námsferil, heimilishagi
og framtíðaráform, skal skilað til Landsbanka ís-
lands eigi síðar en 15. mars næstkomandi.
M.'M Umsóknir sendist til:
Landsbanki íslands, Markaðssvið,
b.t. Ingólfs Guðmundssonar,
Austurstrœti 11, 155 Reykjavík.
Náman er nafn á heildarþjónustu Landsbanka íslands, sem er sér-
staklega sniðin að þörfum námsfólks. Allir námsmenn 18 ára og eldri
eiga rétt á að sœkja um aðild að þessari þjónustu.
í NÁMUNNI er nú m.a.:
- Einkareikningur með yfirdráttarheimild, 3 ókeypis tékkhefti,
einkareikningslán o.fl.
- Kjörbók, háir vextir, ekkert úttektargjald ef keypt eru verðbréf.
- Visa-kort strax við upphaf viðskipta.
- Námslokalán, allt að 500.000,-, lánstími allt að 5 ár, viðtal við
bankastjóra óþarft.
- Ráðdeild, þjónusturit Landsbankans, ókeypis áskrift.
- Filofax-minnisbók, ókeypis eftir 6 mánaða skilvís viðskipti.
- Styrkveiting, tveir styrkir á hverju ári.
- Dreifing og mótlaka gagna fyrir Lánasjóðinn, eyðublöð og
bœklingar LÍN liggja frammi í afgreiðslum Landsbankans. Af-
henda má öll gögn sem eiga að fara til LÍN í afgreiðslum
bankans. Viðkomandi afgreiðslustaður sér síðan um að koma
gögnunum til LÍN samdœgurs.
- Ráðgjöf og upplýsingar, sérstök mappa með upplýsingum, út-
reikningum á greiðslubyrði lána o.fl.
Til að öðlast þessi réttindi þarf aðeins að stofna Kjörbók og Einka-
reikning. Peir námsmenn sem fá lán frá LÍN verða einnig að leggja
námslánin inn á Einkareikning.
Nýr Jötunn
Um áramótin voru Búnaðardeild Sambandsins, Jötunn hf og Bílvangursf
sameinuð í eitt fyrirtæki, sem heitir JÖTUNN, og tekur yfir
allan rekstur fyrirtækjanna þriggja.
Skrifstofur hins nýja JÖTUNS, sem er deild i Sambandinu, verða opnaðar
mánudaginn 19. febrúar að Höfðabakka 9.
SlminnergyQQQQ
• Starfsemi Búnaðardeildar, nema varahlutaverslunin, flyst úr
Ármúla 3 að Höfðabakka 9.
• Varahlutaverslunin verður enn um sinn að Ármúla 3,
Hallarmúlamegin, sími 38900.
• Símanúmer bíla- og rafvélaverkstæöa og varahlutaverslana
að Höfðabakka 9 verða óbreytt fyrst um sinn.
Veriö velkomin að Höfðabakka 9.
SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA
HÖFÐABAKKA 9, SÍMI 670000