Tíminn - 17.02.1990, Side 11
Laugardagur 17. febrúar 1990
HELGIN
11
SAKAMÁL
mundi hann að foreldrar Teddy Eng-
elmann sögðu að fangamark hennar
hefði verið í skónum sem saknað
var. Hann aðgœtti skóna betur og þá
blasti það við honum. T.E.E. var
skrifað með svörtu bleki í fóður
skónna. Teddy Elizabeth Engelmann
átti þessa skó.
Þegar Lucero var sagt þetta þá
neitaði hann að segja meira fyrr en
hann fengi lögfrœðing á staðinn.
Lucero var handtekinn fyrir íkveikju
og vegna gruns um tvö morð. Hann
leit á lögreglumennina, hristi höfuð-
ið og tautaði eitthvað um að einhver
vœri að koma á sig falsaðri sök.
Meðan hann sat inni var fengin
heimild til að leita heima hjá honum
og lögreglan fór með tœknilið á
staðinn. Safnað var miklu af sönnun-
argöngum, m.a. var allt tekið sem
blóð fannst á.
Lucero var fœddur í Nýju Mexí-
kó og hann hafði flutt til Lake Tahoe
fyrir tíu árum þar sem hann starfaði
við vélgœslu. Arið 1973 fluttu hjónin
til San Marcos, skammt frá San Di-
ego. Þar voru þau í sex ár og hann
var við vélgœslu.
— Eg botna ekkert í manninum,
sagði vinnuveitandi hans. — Það
getur líklega enginn nema hann
skýrt það sem gerðist þetta kvöld.
Hann er hœglátur maður sem virðist
fara mjög einforum.
Lögreglan trúði ekki sögu Luce-
ros eitt andartak. Sú staðreynd að í
húsinu fannst brotin gosdrykkja-
flaska með blóðugum hárlokkum,
kom alveg heim við tilgátu meina-
frceðingsins um áverkann á höfði
Teddy. Mál ákœruvaldsins virtist
skothelt.
Hvað ástœðuna varðaði kom ekk-
ert fram. Hvorug telpan hafði verið
kynferðislega áreitt. Talið var að
þœr hefðu verið gabbaðar inn í húsið
en goldið fyrir með lífi sinu að vera
tregar til að koma.
Síðbúinn dauðadómur
Þaim 24. nóvember 1981 tók það
kviðdóm í San Bernadino aðeins
tvœr og hálfa klukkustund að kom-
ast að þeirri niðurstöðu að Philip
Lucero vœri sekur um tvö morð og
íkveikju til að reyna að dylja verkn-
aðinn. Verjandi hans bað um að
þetta yrði látið heita manndráp
vegna augnabliksœðis í reiðikasti.
Sú staðreynd að maðurinn hafði
framið fleira en eitt morð útilokaði
„sérstakar ástœður“ og þar með var
leiðin opin til dauðadóms.
Þann 15. desember skýrði verj-
andinn ffá því að Lucero vœri hald-
inn andlegum truflunum eftir her-
skýldu sína í Víetnam. Hann hafði
fúllnœgt þar þrefaldri skyldu sinni,
sœrst alvarlega og verið sœmdur
purpurahjartanu fyrir vikið. Hann
hefði verið mjög andlega truflaður
um það leyti sem hann ffamdi morð-
in. Veijandinn fór ffam á að dómur-
inn yrði ekki þyngri en lífstíðarfang-
elsi.
Sœkjendur staðhœfðu að morðin
hefðu verið ffamin að yfirlögðu ráði
og að Lucero vitað nákvœmlega
hvað hann var að gera þegar hann
kveikti i húsinu til að reyna að dylja
ódoeðisverk sín.
Lucero sýndi engin viðbrögð
þegar réttarvörður las upp dauða-
dóminn yfir honum. Hœstiréttur
Kalifomíu tók síðar upp málið og
taldi að verjendur Luceros hefðu
mátt fá tœkifœri til að skýra mál sitt
nánar, einkum hvað varðaði sálrœn
áhrif bardaga í Víetnam og þau áhrif
sem fangelsisdvöl gœti haft á Luc-
ero.
Nú tók það nœr fímm sólarhringa
fyrir kviðdóm að komast að þeirri
niðurstöðu að Lucero skyldi dœmast
til dauða og öllum kröfum veijenda
var vísað á bug.
Það hve málið dróst á langinn
hafði í for með sér mikið álag fyrir
aðstandendur telpnanna og eftir
seinni dóminn, sagði faðir annarrar
þeirra: — Ég er feginn að þessu er
lokið. Dómsmál œttu ekki að ganga
svona fyrir sig. Það á að ljúka þessu
strax og í eitt skipti fyrir öll.
I
15. febrúar 1990
BREYTING Á
REGLUGERÐUM
Læknaþjónusta
Greiðslur hjá heimilisiækni og
heilsugæslulækni.
0 kr. - Fyrir viötal á stofu læknis á dagvinnu-
tíma þ.e. á milli kl 0800 og 1700. Inni-
falin er ritun lyfseðils.
500 kr. - Fyrir viötal á stofu læknis utan dag-
vinnutíma og á helgidögum. Innifalin
er ritun lyfseðils.
400 kr. - Fyrir vitiun læknis til sjúklings á dag-
vinnutíma.
1000 kr. - Fyrir vitjun læknis til sjúklings utan
dagvinnutíma.
Greiðslur fyrir sérfræðilæknishjálp og
komur á göngudeild, slysadeild og
bráðamóttöku sjúkrahúss.
900 kr. - Fyrir hverja komu til sérfræðings, á
göngudeild, slysadeild og bráðamót-
töku sjúkrahúss.
300 kr. - Elli- og örorkulífeyrisþegar fyrir hverja
komu til sérfræðings, á göngudeild,
slysadeild og bráðamóttöku sjúkra-
húss.
Greiðslur fyrir rannsóknir og
röntgengreiningu.
300 kr. - Fyrir hverja komu.
100 kr. - Elli- og örorkulífeyrisþegar fyrir hverja
komu.
Elli- og örorkulífeyrisþegar skulu
aldrei greiða samanlagt hærri fjár-
hæð en kr. 3000 á einu almanaksári
fyrir sérfræðilæknishjálp, komu á
göngudeild, slysadeild, bráðamót-
töku sjúkrahúss, rannsóknir og
röntgengreiningu.
Allir eiga að fá kvittanir fyrir þessum
greiðslum.
Ofangreindar greiðslur eru hámarksfjárhæðir.
Innifalinn í greiðslu er kostnaður vegna hvers
kyns einnota áhalda, umbúða og þess háttar.
Lyíjakostnaður
Greiðslur fyrir lyf.
550 kr. - Fyrir lyf af bestukaupalista.
170 kr. - Elli- og örorkulífeyrisþegar fyrir hverja
lyfjaafgreiðslu af bestukaupalista.
750 kr. - Fyrir önnur lyf sem greidd eru af
sjúkratryggingum.
230 kr. - Elli- og örorkulífeyrisþegar fyrir önnur
lyf sem greidd eru af sjúkratryggingum.
Eitt gjald greiðist fyrir hvern 100 daga lyfja-
skammt, eða brot úr honum.
Gegn framvísun sérstaks lyfjaskírteinis í lyfja-
búð fást ókeypis ákveðin lyf, við tilteknum
langvarandi sjúkdómum. Læknar gefa vottorð til
Tryggingastofnunar ríkisins í þeim tilvikum, sem
réttur á skírteini kann að vera fyrir hendi.
SKÝRINGAR Á FRAMKVÆMD REGLUGERÐAR NR. 62/1990 UM GREIÐSLUÞÁTTTÖKU SJÚKRATRYGGÐRA
í LÆKNISHJÁLP O.FL.
Koma til heimilis- eða heilsugæslulæknis
Koma til heimilis- eða heilsugæslulæknis á dagvinnutíma er sjúkl-
ingi ætíð að kostnaðarlausu. Það skiptir ekki máli hvort um er að
ræða bráðakomu eða komu skv. tímapöntun.
Vegna komu til heimilis- eða heilsugæslulæknis utan dagvinnu-
tíma greiðir sjúklingur kr. 500 nema læknir hafi beinlínis sjálfur
ákveðið að sinna læknisstarfinu utan dagvinnutíma.
Sjúklingur greiðir fyrir röntgengreiningu og rannsóknir á rann-
sóknastofu heilsugæslustöðvar (ef sérstakur starfsmaður sér um
rannsóknastofuna). Sjúklingur greiðir þó aldrei hærri fjárhæð en
kr. 300 fyrir hvort (kr. 100 fyrir hvort fyrir elli- og örorkul ífeyrisþega) í
hverri komu.
Koma til sérfræðings
Fyrir komu til sérfræðings og endurteknar komur til sérfræðinga
greiðir sjúklingur í hvert skipti kr. 900 (kr. 300 fyrir elli- og örorkulíf-
eyrisþega).
Til viðbótar komugjaldi greiðir sjúklingur fyrir röntgengreiningu og
rannsóknir á rannsóknastofu ef um það er að ræða. Sjúklingur
greiðir þó aldrei hærri fjárhæð en kr. 300 fyrir hvort (kr. 100 fyrir
hvort fyrir elli- og örorkulífeyrisþega) í hverri komu.
Fari sjúklingur í aðgerð og svæfingu greiðir hann aðgerðarlækni kr.
900 og svæfingalækni kr. 900 (kr. 300 + 300 fyrir elli- og örorkulíf-
eyrisþega).
Koma á slysavarðstofu
Sjúklingur greiðir kr. 900 (kr. 300 fyrir elli- og örorkulífeyrisþega)
vegna komunnar.
Til viðbótar komugjaldi greiðir sjúklingur fyrir röntgengreiningu og
rannsóknir á rannsóknarstofu ef um það er að ræða. Sjúklingur
greiðir þó aldrei hærri fjárhæð en kr. 300 fyrir hvort (kr. 100 fyrir
hvort fyrir elli- og örorkulífeyrisþega) í hverri komu.
Rannsóknir á rannsóknarstofu
Sjúklingur greiðir kr. 300 (elli og örorkulífeyrisþegar kr. 100) fyrir
hverja komu til rannsóknar á rannsóknastofu heilsugæslustöðvar,
sjúkrahúss eða annarrar stofnunar. Þótt hluti rannsóknarsýnis sé
sendur annað til rannsóknar greiðir sjúklingur ekki viðbótargjald
vegna þess. Sendandi sýnis skal gera grein fyrir því á rannsóknar-
beiðni hvort sjúklingur sé þegar búinn að greiða vegna rannsókn-
ar, sem fram fór á sýnistökustað.
Röntgengreining
Vegna hverrar komu til röntgengreiningar, á heilsugæslustöð eða
annars staðar, skulu sjúklingar greiða kr. 300 (kr. 100 fyrir elli- og
örorkulífeyrisþega). Ekki skiptir máli hvaðan sjúklingurkemur, þ.e.
frá heilsugæslulækni, heimilislækni eða sérfræðingi.
Hvers kyns önnur innheimta hjá sjúklingum en að framan greinir,
þ.m.t. vegna einnota vara, umbúða o.þ.h., eróleyfileg.
HEILBRIGÐIS- OG TRYGGINGAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS