Tíminn - 21.02.1990, Side 5
Miðvikudagur 21. febrúar 1990
Tíminn 5
llutafjársjóður sem lýkur störfum á næstu vikum á eftir að ganga endanlega frá þemur
malum, í tveimur tilfellum hefur sjóðurinn veitt hlutafé en stendur á heimamönnum:
RÍKISÁBYRGÐ VANTAR
ENN FYRIR TANGA HF.
Hlutafjársjóður Byggðastofnunnar stefnir að því að Ijúka
störfum á næstu vikum. Enn er eftir að afgreiða endanlega
þrjú erindi sem borist hafa til sjóðsins. í tveimur af þeim
tilfellum hefur Hlutafjársjóður afgreitt beiðnina, en heima-
menn ekki enn framkvæmt sinn hluta málsins, þ.e. ekki getað
staðið við hlutafjárskuldbindingar.
Þar er um að ræða Hraðfrystihús
Breiðdalsvíkur og Hraðfrystihús
Grundarfjarðar. Þriðja fyrirtækið,
Tangi á Vopnafirði, lagði sína um-
sókn seint inn til sjóðsins og er
staðan þannig núna að sú ábyrgð
sem ríkið veitti til hlutafjárkaupa er
upp-urin.
Þannig erekki Ijóst hvernig brugð-
ist verður við fjárhagsvanda Tanga
hf. á Vopnafirði, en samkvæmt
heimildum Tímans hefur þeirri hug-
mynd verið hreyft af heimamönnum
að eldra láni sem fyrirtækið á hjá
Atvinnutyggingasjóði útflutnings-
greina verði breytt í hlutafé hjá
Hlutafjársjóði. Enn er ekki að vitað
hvað stórar upphæðir vantar til þess
að koma skuldastöðu Tanga í viðun-
andi horf. Hvernig heimamenn á
Breiðdalsvík og Grundarfirði leysa
sín mál er enn ekki að fullu Ijóst.
Það verður hins vegar að gerast
fljótlega því ljóst er að rekstrarlega
séð eru fyrirtækin þrjú á flæðiskeri
stödd, en fjármagnskostnaður þeirra
er meiri en reksturinn getur staðið
undir.
Fjárhagsvandi tveggja annarra
fyrirtækja hefur að undanförnu verið
til skoðunar hjá Byggðastofnun, en
þau eru Útgerðarfélag Norður-Þing-
eyinga og Útver hf. á Ólafsvík.
Hlutafjársjóður hefur það hlut-
verk að hjálpa þeim fyrirtækjum,
sem talist geta megin stoðir atvinnu-
lífs í sínu byggðarlagi, með það að
markmiði að koma skuldastöðu
þeirra í það horf að reksturinn geti
staðið undir fjármagnskostnaði og
afskriftum.
Sjóðurinn er fjármagnaður með
útgáfu tvenns konar hlutdeildar-
skýrteina, A - skýrteina með ríkis-
ábyrgð og B - skýrteina sem eru án
ríkisábyrgðar. Hutafjársjóður af-
hendir lánadrottni viðkomandi fyrir-
tækis hlutdeildarskýrteini til greiðslu
á skuldum. Þar með hefur sjóðurinn
greitt skuldir þessa fyrirtækis, og
það þar af leiðandi orðið skuldugt
Hlutafjársjóði um samsvarandi upp-
hæð og hann greiddi. Þessa skuld
greiða fyrirtækin síðan sjóðnum með
því að afhenda Hlutafjársjóði
hlutabréf. Landsbankinn, sem er
stærsti lánadrottinn útgerðar og fisk-
vinnslu í landinu, hefur keypt At-
vinnutryggingarsjóðsbréf og tekið
við hlutdeildarskýrteinum frá Hluta-
fjársjóði fyrir um einn milljarð
króna. Langstærstur hluti þeirra eru
A - skýrteini. - ÁG
Tillaga um byggingu fjölnota íþrótta-
hallar til umræðu í borgarráði:
„Þjóíarhéll"
í Laugardal
Á fundi borgarráðs í gær lagði
Alfreð Þorsteinsson varaborgarfull-
trúi Framsóknarflokks fram tillögu
þess efnis að borgarráð lýsi áhuga
sínum á að fjölnota íþrótta- og
sýningarhús verði reyst í Laugardal.
Bókasöfn:
Eftir nokkurn samdrátt í útlán-
um bókasafna eru nú horfur á að
þessi þróun sé á enda og að
framundan sé aukning í útlánum.
Á síðasta ári jukust t.d. útlán hjá
Bókasafni Kópavogs um 10%.
Aukning í útlánum á barna-
bókum var heldur meiri en aukn-
ing á útlánum á bókum fyrir
fullorðið fólk. Fleiri börn sóttu
einnig sögustundir í Bókasafni
Kópavogs en í fyrra. Þetta hlýtur
að vera bókavörðum mikið gleð-
iefni því þeir hafa haft nokkrar
áhyggjur af því að börn séu að
hætta að sækja söfnin.
Á síðasta ári jukust útlán bóka-
safnsins úr 108.478 árið 1988 í
119.725 í fyrra. Þetta eru um
10% aukning. Ríflega 50% aukn-
ing varð í útlánum á myndbönd-
um.
Teiknimyndasögur eru mest
lánaðar út. Teiknimyndabókin
Háspenna lífshætta var lánuð 353
sinnum, sem þýðir að bókin hefur
verið lánuð út næstum daglega.
Reyndar eru fleiri en eitt eintak
til af bókinni. Vinsælustu þýddu
skáldsögurnar eru Leyndarmálið
og Fórnareldur eftir Mary
Steward. Af íslenskum höfund-
um er Snjólaug Bragadóttir vin-
sælust með bókina Setið að svik-
ráðum. Snjólaug á fjóra titla
meðal 30 útlánahæstu bóka ís-
lenskra kvenhöfunda. Andrés
Indriðason gerir hins vegar enn
betur og á 8 titla af 30 efstu
karlhöfundum. -EÓ
Tillagan er svohljóðandi: „í tilefni
af umræðum um staðsetningu fjöl-
nota íþrótta- og sýningarhús vegna
HM 1995, lýsir borgarráð áhuga
sínum á að slíkt hús verði reist í
Laugardal í Reykjavík. Jafnframt
lýsir borgarráð sig reiðubúið til við-
ræðna við ríkisstjórnina um fram-
kvæmd þessa máls.“ Tillagan var
nokkuð rædd, en borgarráð var ekki
tilbúið til að afgreiða hana á þessu
stigi og vildu fulltrúar hugsa sig um
og var afgreiðslu bókunarinnar frest-
að til næsta fundar. „Ég tel að mjög
ganglegar umræður hafi farið þar
fram um þetta mál. Ég held að menn
vilji skoða það betur og tel því ekki
lokið af hálfu Reykjavíkurborgar,"
sagði Alfreð.
Aðspurður sagði Alfreð að vísu
væri svolítið seint í rassinn gripið, en
aðekki væri öll nótt úti enn. -ABÓ
Hekla í nýtt húsnæði
Fyrirtækið Hekla hf. hefur nú
flutt hluta af starfsemi sinni í nýtt
og glæsilegt húsnæði að Laugavegi
170-172. Nýja húsið eru um 4000
fermetrar að stærð sem þýðir að
fyrirtækið hefur aukið húspláss sitt
um helming. Hekla hefur lengi
búið við of þröngan húsakost mið-
að við umsvif fyrirtækisins. Um
150 starfsmenn vinna hjá Heklu.
Elsti starfsmaðurinn er 92 ára en sá
yngsti er 16 ára.
Byggingunni er ekki enn fulllok-
ið og því er óljóst hvað hún kemur
til með að kosta. Rúmlega fjögur
ár eru liðin frá því að framkvæmdi
hófust.
Myndin var tekin þegar nýja
húsið var formlega opnað. Tímainynd
Pjetur
BYGGINGAVISITALA
HÆKKADIUM 26,9%
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísi-
tala byggingarkostnaðar hækkað um
26,9%. Síðustu þrjá mánuði hefur
vísitalan hækkað um 6,5% og sam-
svarar það 28,7% árshækkun.
Hagstofan hefur reiknað vísitölu
byggingarkostnaðar eftir verðlagi
um miðjan febrúar. Reyndist hún
vera 168,2 stig eða 2,0% hærri en í
janúar (júní 1987-100). Þessi vísi-
tala gildir fyrir mars 1990. Samsvar-
andi vísitala miðuð við eldri grunn
(desember 1982—100) er 538 stig.
Hækkun vísitölunnar frá janúar
til febrúar má að mestu leyti rekja til
launhækkana. Er annars vegar um
að ræða launahækkanir í kjölfar
kjarasamninganna frá febrúarbyrjun
sem ollu um 0,5% hækkun vísitöl-
unnar. Hins vegar hafði aukning á
mælieiningafjölda í húsasmíði, múr-
verki, pípulögn, dúkalögn og
raflögn, sem fram hefur komið
undanfarna mánuði, í för með sér
rúmlega 0,8% vísitöluhækkun.
Verðhækkun ýmissa efnis- og þjón-
ustuliða olli alls um 0,7% hækkun
vísitölu byggingakostnaðar.
Launa-og
lánskjaravísitölur
Launavísitala fyrir febrúarmánuð
miðað við meðallaun í janúar er
113,3 stig, eða 0,5% hærri en í fyrra
mánuði. Samsvarandi launavísitala
sem gildir við útreikning greiðslu-
marks fasteignaveðlána frá 1. mars
1990 er 2.480 stig eða óbreytt frá
fyrra mánuði.
Seðlabankinn hefur reiknað út
lánskjaravísitölu fyrir marsmánuð
nk. og gildir lánskjaravísitala 2844
fyrir þann mánuð. Hækkun láns-
kjaravísitölu frá mánuðinum á und-
an varð 1,35%. Umreiknuð til árs-
hækkunar hefur breytingin verið
sem hér segir:
Síðasta mánuð
Síðustu 3 mánuði
Síðustu 6 mánuði
Síðustu 12 mánuði
17,5%
19,2%
21,1%
21,2%
SSH
Borgin kaupir
skíðasvæði KR
Borgarráð Reykjavíkur sam-
þykkti í gær að kaupa og yfirtaka
austurhluta skíðasvæðis KR í Skála-
felli, hús og lyftur. Kaupverðið er
44,8 milljónir en frá dragast 11,3
milljónir sem eru styrkir Reykjavík-
urborgar til skíðadeildar KR á árun-
um 1983 til 1988 og eftir standa því
33,5 milljónir.
Þá yfirtekur borgin skuld KR-inga
við Landsbankann upp á 13 milljón-
ir. 3,5 milljónir verða greiddar út við
undirritun og eftirstöðvarnar, 17
milljónir eru greiddar með skulda-
bréfum á tíu árum.
Á þessu stigi er ekki vitað á hverra
höndum Skálafellssvæðið verður en
ekki ólíklegt að Bláfjallanefnd komi
þar inní. Skíðadeild KR hefur átt í
miklum erfiðleikum undanfarin ár,
m.a. vegna snjóleysis og því litlar
tekjur að hafa.
-ABÓ