Tíminn - 21.02.1990, Qupperneq 10
10 Tíminn
Miðvikudagur 21. febrúar 1990
DAGBÓK
Þálttakendur í námskeiði pípulagningamanna um ofnastillingar.
Pípulagningamenn á
námskeiði um ofnastillingar
Samband íslenskra hitaveitna og
Lagnafélag íslands héldu nú nýverið
námskeið fyrir pípulagningamenn á
Reykjavíkursvæðinu um stillingu á ofna-
kerfi og hvernig eigi að bæta nýtni þeirra.
Áður hafði þetta námskeið verið haldið á
Akureyri og næst verður það haldið fyrir
pípulagningamenn á Suðurnesjum og síð-
an víðar um land.
Fyrirlesarar á námskeiðinu voru
Hreinn Frímannsson, yfirverkfræðingur
hjá Hitaveitu Reykjavíkur, Ragnar
Gunnarsson, framkvæmdastjóri Verk-
vangs og Svavar Óskarsson, verkstjóri
hjá Hitavcitu Akraness og Borgarfjarðar.
Námskeiðið var haldið í Iðnskólanum í
Reykjavík. Fyrir þessi námskeið hefur
verið smíðaður hermir af ofnakerfi, en
þar er hægt að framkalla flesta þá hluti
sem fyrir geta komið í einu ofnakerfi.
Meginefni námskeiðsins er að sýna mikil-
vægi þess að ofnar séu rétt stilltir.
Á myndinni eru talið frá vinstri: Helgi H. Georgsson form. STÝRR, Sigríöur Smith
Kvenfélaginu Keðjan, Þórunn Ólafsdóttir Kvenfélaginu Hrönn, Jónína Steingrímsdótt-
ir Kvenfélaginu Hrönn, Matthildur Kristjánsdóttir Kvenfélaginu Aldan, Erla Sigurðar-
dóttir Kvcnfélaginu Hrönn, Gerður Gunnarsdóttir Kvenfélaginu Aldan, Krístín
Ólafsdóttir Kvenfélaginu Aldan, Sólborg Marinósdóttir Kvenfélaginu Keðjan, Margrét
Björgvinsdóttir Kvenfélaginu Keðjan. Því miður gátu fulltrúar frá Kvenfélaginu
Bylgjan ekki verið viðstaddar.
Sjómannakvenfélögin afhenda
peninga í Þyrlukaupasjóð
Sjómannakvenfélögin í Reykjavík hafa
afhent rúmar 200.000 krónur í Þyrlu-
kaupasjóð Nemendafélags Stýrimanna-
skólans í Reykjavík. Sjóður þessi er til
eflingar Björgunarsjóði Stýrimannaskól-
ans. Markmið björgunarsjóðsins er að
þrýsta á og styrkja kaup á betri og öflugri
björgunarþyrlum. Söfnun hefur staðið
frá því í ágúst 1989 og hafa borist mörg
höfðingleg framlög og loforð um framlög.
Nú á næstu dögum fá allir útgerðarmenn
og skipshafnir á (slandi bréf frá félaginu
með beiðni um stuðning við þetta þarfa
mál.
Norræntlögfræðingaþing 1990
32. norræna lögfræðingaþingið verður
haldið í Reykjavík 22.-24. ágúst nk.
Norræn lögfræðingaþing hafa farið tví-
vegisframhérálandi, árin 1960 og 1975.
Á lögfræðingaþinginu verða mörg
áhugaverð viðfangsefni til umfjöllunar.
Eru þau þessi:
Starfsemi umboðsmanna norrænu
þjóðþinganna.
Upplýsingamiðlun um löggjöf.
Norræni félagarétturinn í Ijósi evr-
ópskrar lagaþróunar.
Refsiábyrgð vegna hættulegrar at-
vinnustarfsemi.
Nauðung og réttaröryggi á sviði geð-
rænnar heilsugæslu.
Áhættutaka og vandamál í tengslum
við hana á vettvangi bótaréttar og refsi-
réttar.
Mannréttindasáttmálar og norræn
réttarfarslöggjöf.
Lagareglur og siðferðisviðhorf á sviði
líftæknifræði.
Er þörf á endurskoðun norrænu samn-
ingalaganna?
Ábyrgðarreglur vegna tölvustarfsemi.
Ölvun við akstur - viðurlög og viður-
lagamat.
Einkamálameðferð - virkara réttarfar
og ný réttarfarsúrræði.
Mengun hafsins frá sjónarmiði lands-
réttar og alþjóðaréttar.
Verðbréfaréttur án verðbréfa - þróun
á sígildu réttarsviði.
(Jfjárhagslegt t jón - bótaréttur og bóta-
ákvarðanir.
Réttarreglur er tengjast markaðssetn-
ingu á vörum.
Eftirlit með opinberri starfsemi með
pólitískum og lagalegum úrræðum (hring-
borðsumræða).
Hópumræður verða um þrjú viðfangs-
efni:
Ágreiningsmál út af forsjá barna.
Alþjóðleg yfirtaka á atvinnufyrirtækj-
um.
Hagsmunaárekstrar í störfum opin-
bena starfsmanna og faglegra ráðgjafa.
Taflfélag Reykjavíkur:
Skákkeppni
framhaldsskóla 1990
hefst að Faxafeni 12 föstudaginn 23.
febrúar nk. kl. 19.30. Keppninni verður
fram haldið laugardaginn 24. febrúar og
lýkur á sunnudag, 25. febrúar.
Fyrirkomulag er með svipuðu sniði og
áður, hver sveit skal skipuð fjórum nem-
endum á frumhaldsskólustigi (f. 1968 og
síðar), auk 1-4 til vara. Tefldar verða sjö
umferðir eftir Monrad-kerfi, ef næg þátt-
taka fæst. Að öðrum kosti vcrður sveitum
skipt í riðla, en síðan teflt til úrslita.
Umhugsunartími er ein klukkustund á
skák fyrir hvern keppanda.
Umferðataflan verður þannig:
Föstudagur23. febrúarkl. 19.30-23.30:
1. og 2. umferð.
Laugardagur 24. febrúar kl. 13.00-
19.00: 3., 4. og 5. umferð.
Sunnudagur 25. febrúar kl. 13.00-
17.00: 6. og 7. umferð.
Fjöldi sveita frá hverjum skóla er ekki
takmarkaður. Sendi skóli fleiri en eina
sveit, skal sterkasta sveitin nefnd a-sveit,
næsta b-sveit, o.s.frv. Ekkert þátttöku-
gjald.
Þátttöku í mótið má tilkynna í síma
Taflfélags Reykjavíkur á kvöldin kl. 20-
22, í síðasta lagi fimmtudag 22. febrúar.
Norræna húsið:
Fyrirlestur um Ingermanland
Miðvikudaginn 21. febrúar kl. 20.30
heldur Toivo Folkesten fyrirlestur um
Ingermanland og sögu þess. Með fyrir-
lestrinum sýnir hann litskyggnur.
Ingermanland, sem liggur fyrir vestan
Leningrad við Kirjálabotn, tilheyrði Sví-
þjóð-Finnlandi á árunum 1617 til 1704 og
t'búar þess eru bæði af finnskum og
rússneskum uppruna.
í Vasterás í Svíþjóð hefur starfað
námshringur innan Landssambands
Finnsk-Ingermanlands félagsins. Fyrirles-
arinn, Toivo Folkestan, situr f stjórn
félagsins. Hann er verkfræðingur að
mennt og starfar hjá ASEA í Svíþjóð.
Sehna Guðmundsdóttir, píanóleikarí.
James Lockhart, hljómsveitarstjóri.
Sinfóníuhljómsveit íslands:
Selma Guðmundsdóttir leikur
Píanókonsert Khatsatúríans
Tíundu áskriftartónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar Islands verða í Háskólabíói
nk. fimmtudag, 22. febrúar, og hefjast
þeir kl. 20.30. Á efnisskrá verða þrjú
verk: KamarinskayaeftirMikhail Glinka,
Píanókonsert eftir Khatsatúrían og að
lokum Sinfónía í C-dúr nr. 9 eftir
Schubert.
Einleikari í Píanókonsert Khatsatúrí-
ans verður Selma Guðmundsdóttir en
hún hefur áður leikið verkið með Sin-
fóníuhljómsveitinni úti á landi. Einnig
hefur hún flutt konsertinn með Sinfóníu-
hljómsveit Þrándheims á tónleikum í
Noregi. Þetta er í fyrsta sinn sem hún
leikur með Sinfóníuhljómsveitinni á tón-
leikum í Reykjavík.
Stjórnandi hljómsveitarinnar á tón-
leikunum er James Lockhart.
Hádegisverðarfundur hjá
Sjóréttarfélaginu
Hið Islenska sjóréttarfélag boðar til
hádegisverðarfundar að Hótel Loftleið-
um, Víkingasal (vesturdyr) fimmtudag-
inn 22. febrúar nk. og hefst fundurinn kl.
12:00.
Fundarefni: Reynslan af björgunar-
samningi L.I.Ú., Landhelgisgæslunnarog
tryggingarfélaganna frá 1986. Frummæl-
andi: Gunnar Felixson aðstoðarforstjóri.
Fundurinn er opinn öllum áhugamönn-
um um sjórétt.
Stjórnin
Digranesprestakall
Aðalfundur kirkjufélagsins verður í
safnaðarheimilinu við Bjarnhólastíg ann-
að kvöld, fimmtudag, kl. 20.30.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa verð-
ur þess minnst að 15 ár eru liðin frá
stofnun félagsins. Kaffiveitingar. Og að
lokum helgistund.
Guðjón Ketilsson hefur haldið 7 einkasýningar og tekið þátt í samsýningum bæði
hérlendis og erlendis.
Galleri Sævars Karis: ar a blýantsteikningum frá 1988 og 1989.
Guðjón Ketilsson sýnir á vs^jun®“dur lil 16-mars °ser °Pin
Nú stendur yfir í Gallerí Sævars Karls,
Bankastræti 9, sýning Guöjóns Ketilsson-
lllllllllllllllHlllllllll KVIKMYNDIR llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllll^
LAUGARÁSBÍÓ: Buck frændi. Stjörnugjöf: 1 1/2
AFÞREYING OG
EIGI
Laugarásbíó hefur tekið til sýn-
inga nýja gamanmynd, með hinum
st'vinsæía John Candy í aðalhlut-
verki og leikstyrt af John Hughes.
Myndin segir frá fimm manna
fjölskyldu í Bandaríkjunum. Sam-
bandið innan fjölskyldunnar er
ekkert upp á það allra besta.
Atburðir gerast, sem valda því að
foreldrarnir verða að fara burt um
tíma og þá vantar illilega barnapíu.
f algerri neyð fá þau Buck
frænda, feita og kærulausa
frændann, sem hugsar um ekkert
annað en sjálfan sig. Pað gengur á
ýmsu og þá helst milli Bucks og
heimasætunnar sem er á erfiða
MEIR
aldrinum.
Myndin er ágætis skemmtun og
þá sérstaklega fyrir hlé, þar sem
Candy fer á kostum á köflum. Eftir
hlé verður myndin dálítið væmin
og langdregin og að mínu mati fer
það John Candy alls ekki að vera
væminn og vera með einhverja
tilfinningafroðu. Aðrir leikarar eru
ekki eftirtektarverðir og handrit
látlaust.
í stuttu máli þá er ræman ágæt.
Hægt er að hlæja að henni og sem
afþreying er hún ágæt, en skilur
nákvæmlega ekki neitt eftir sig.
Pétur Sigurðsson
lllllllllllllllllllllllllll MINNING lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll^
Síra Róbert Jack
Ég, sem þessi orð festi á blað, var
sóknarbarn síra Róberts í aldar-
þriðjung, en frá 1955 til 1988 þjónaði
hann Breiðabólstaðar- og Tjarnar-
nesprestakalli og sat allan þann tíma
að Tjörn á Vatnsnesi. Síra Róbert
var hvers manns hugljúfi og gerði sér
engan mannamun. Sá mun dómur
þeirra sem kynntust honum og nutu
þjónustu hans. Ég stend í þakkar-
skuld við síra Róbert og langar mig
nú til að það komi fram þegar hann
er allur. Svo er mál með vexti að
dóttir okkar hjónanna leið af hjarta-
sjúkdómi, þá um fermingaraldur,
árið 1967, og þrautaráð var að koma
henni undir læknishendur erlendis,
en þá voru ekki enn hafnar aðgerðir
gegn hjartasjúkdómum hér á landi.
Síra Róbert var sem kunnugt er
skoskur að ætt og uppvexti. Ég
leitaði til hans um að fylgja dóttur
minni utan til lækninga (faðir hennar
var þá nýlátinn) til Skotlands, þar
Nokkur kveðjuorð
sem gerði yrði á henni aðgerð sem
væntanlega lagfærði meðfæddan
hjartagalla.
Síra Róbert varð góðfúslega við
bón minni. Aðgerðin, sem gerð var
af færum hjartasérfræðingi í Edin-
borg, heppnaðist vel. Dóttir mín,
Dýrunn að nafni, hefur eigi kennt
sér meins síðan. Þökk sé síra Róbert
fyrir hans hlut þar að. Um förina og
sjúkravist Dýrunnar ritaði prestur-
inn ítarlega grein í ársritið Húna
fyrir nokkrum árum.
Með því að verða þarna við þeirri
bón minni, sem ég hef lýst, sýndi síra
Róbert sannarlega hvaða mann hann
hafði að geyma. Slíkt gleymist eigi,
en geymist í þakklátum huga.
Þökk sé honum, megi minning
hans lifa, prestsins sem þjónaði víð-
lendu prestakalli um langa hríð og
ávann sér allra traust.
J.B. frá Galtanesi