Tíminn - 28.02.1990, Side 1
í TÉKKÓSLÓVAKÍU
m
Tíminn
Liðið og fararstjóm kveðja við Laugardalshöllina. fslendingar eiga nú á að skipa leikreyndasta liði í heiminum. Margir spá þessu liði 3. - 4. sæti, en góður árangur er sjötta sætið eða ofar. Tímamynd Pétur
Leikreynt lið sem
er líklegt til afreka
Þijú efstu lið í hveijum riðli komast
áfram í milliriðil. Tveir milliriðlar
verða. Liðin sex úr A og B riðli leika
saman í milliriðli. Sömu sögu er að
segja um liðin sem komast áfram úr
C og D riðli. Þau lið sem komast t.d.
úr C riðli leika við liðin sem komu úr
D riðli, en innbyrðis viðureign lið-
anna frá í undanriðli gildir í milliriðl-
inum. Dæmi: Ef Island vinnur Spán i
undanriðlinum, fær Isiand með sér
tvö stig og öfúgt. Lið tekur ekki með
sér stig sem það hlýtur ef andstæð-
ingurinn kemst ekki í milliriðil. Þess
vegna er vel hugsanlegt þó að Island
tapi fyrir Kúbu að við komum með
fúllt hús stiga upp úr undanriðlinum,
ef Kúba kemst ekki áfram og við
vinnum Júgóslavíu og Spán.
A RIÐILL
Ungverjaland
Frakkland
Svíþjóð
Alsír
B RIÐILL
S-Kórea
Rúmenía
Tékkóslóvakía
Sviss
C RIÐILL
Júgóslavía
Spánn
fsland
Kúba
D RIÐILL
Sovétríkin
Pólland
A-Þýskaland
Japa
Líklegast má telja að þau fjögur lið
sem leika um þrettánda til sextánda
sæti verði; Alsír úr A riðli, Sviss úr
B-riðli, Kúba úr C- riðli og Japan úr
D-riðli.
Þá líta milliriðlamir tveir svona út;
A RIÐILL
Ungverjaland
Frakkland
Svíþjóð
S-Kórea
Rúmenía
Tékkóslóvakía
B RIÐILL
Júgóslavía
Spánn
ísland
Sovétríkin
Pólland
A-Þýskaland
Það lið sem verður efst í A riðli leik-
ur við efsta lið úr B-riðli um heims-
meistaratitilinn. Liðin sem lenda í
öðm sæti í milliriðlunum leika um
bronsið og svo koll af kolli.
25% reglan í undanriðlin-
um
Hin fræga 25% regla mun gilda í
undanriðlinum. Reglan kveður á um
að nái eitthvert lið ekki 25% af stig-
um í undanriðlinum ( 2 stig) eru
mörkin úr viðureignum við það lið
ekki tekin með í útreikningi á marka-
hlutfalli liðanna. Þessi regla var tekin
upp fyrir nokkru, sérstaklega vegna
þess að mjög slök lið í keppninni sem
komu t.d. frá Asíu áttu það til að berj-
ast af krafti í fyrsta leik og svo ekki
söguna meir. Þetta gerði það að verk-
um að það lið er fékk það hlutskipti
að leika við Asíu-liðið í fyrsta leik
vann með nokkrum mörkum en önn-
ur lið keyrðu hreinlega yfir þau með
tíu til fimmtán marka mun. Þetta
þótti ekki sanngimi og því var þessi
regla tekin upp.
Önnur regla í milliriðli
Þegar komið er í milliriðil gildir
25% reglan ekki lengur. Séu tvö lið
jöfn í milliriðlinum gildir markahlut-
fall úr innbyrðisviðureign liðanna.
Hafi þar orðið jafntefli gildir heildar
markahlutfallið. Sé það jafnt þá gilda
fleiri skoruð mörk. Komi það til að
bæði liðin hafi skorað jafn mörg
mörk þá er varpað hlutkesti um hvort
liðið raðast ofar á töfluna.
Dugar9. sætiðá
Barcelona?
Þau lið sem lenda í átta efstu sætun-
um tryggja sér rétt til að leika á
olympíuleikunum í Barcelona 1992
og jafnframt þátttökurétt í A- heims-
meistarakeppninni í Svíþjóð 1993.
Ástæðan fyrir þessu er að fjölgað
verður liðum sem taka þátt í olymp-
íuleikunum. Þau verða sextán í stað
tólf. Þessar upplýsingar, sem fengust
á skrifstofu HSÍ segja það að níunda
sætið getur dugað þjóðum til að kom-
ast bæði á olympíuleikana og næstu
heimsmeistarakeppni. Verði Svíar og
Spánveijar meðal átta efstu þá þýðir
það að liðið í níunda sæti kemst
áfram því gestgjafar ofangreindra
móta hafa þegar þátttökurétt sem
gestgjafar. —ES